Þjóðviljinn - 24.02.1989, Blaðsíða 32

Þjóðviljinn - 24.02.1989, Blaðsíða 32
Leikstjóradeilan í gær var í húsi leikara viö Lindargötu haldinn fundur í fé- lagi íslenskra leikstjóra þar sem taka átti ákvörðun varö- andi brottrekstur Helga Skúlasonar úr félaginu. Blaðamenn fengu ekki að- gang að fundinum. „Fjölmiðl- ar ekki æskilegir, þetta er innanfélagsmál," sagði María Kristjánsdóttir, formaður fé- lagsins. ■ Kókið felldi Davið Árbæingar hrósa happi þessa daga og eru lausir við ruslpökkunarfabrikkuna sem Davíð Oddsson hafði valið stað í nágrenni við þá. í hverf- inu söfnuðust á fjórða þúsund undirskrifta gegn „böggunar- stöðinni", en það er ekki talið hafa haft áhrif á borgarstjór- ann, sem hefur þrýst öðrum áformum sínum í gegn með miklu fleiri borgarbúa. Útslag- ið gerði að sjálft Kóka Kóla brá við hart og kvartaði yfir sorpi í nágrenni við sig. Kók- fyrirtækinu er annt um sína ímynd hvar sem er í heimin- um, leggur mikla áherslu á tengsl við hreint og fallegt um- hverfi, og var Davíð hótað málarekstri og jafnvel brottf- lutningi meö skaðabótakröfu ef sorpið færi ekki annað. Það vakti líka athygli að einn af andstæðingum sorps- ins í borgarstjórn, Alfreð Þor- steinsson varafulltrúi Fram- sóknar, lagði alla áherslu á hagsmuni Vífilfells í ræðum um málið á síðasta borgar- HEMMI GUNNá tali.. ....við hina og þessa, og auðvitað Elsu, í gamni og alvöru. Á miðvikudaginn kemur. Verðugt athugunarefni fyrir auglýsendur. Skv. könnun Félags- fWQ/ vísindastofnunar fylgdust «3 / /O aðspurðra með Hemma „á tali“, þann 30/11 1988. Tf SJÓNVARPIÐ ekkert rugl. stjórnarfundi. Þetta hafa sjálf- sagt verið klókindi einber hjá Alfreð, og kemur því ekkert við að nýlega keypti Vífilfell hf. af Framsóknarflokknum hlutafélagið Farg, sem barall- ar NT-skuldirnar. Var þar miklu fargi létt af flokknum en Kók fékk í staðinn tap til að draga frá á skattskýrslunni. ■ Þjófnaður frá degi til dags Það hefur lengi verið plags- iður á fjölmiðlum hérlendis að stela öllum skrattanum steini léttari, bæði að utan og hver frá öðrum. Þetta er auðvitað að sumu leyti eðlilegt vegna þess að fátt er nýtt undir sól- inni, og ekki hægt að sýna óendanlega frumleika við form og innihald á greinum og þáttum. Það er þó hægt að sýna mismikla smekkvísi við þjófn- aðinn, og óhætt að segja að nýr daglegur pistill á smekk- leysumetið þessar vikurnar. Höfundur pistilsins kallar sig Dagfinn, -sennilega bróðir Dagfara í DV, og hefur ekki nennt að vera frumlegri en svo að grípa ófrjálsri hendi eitt af þeim pistilsnöfnum sem frægust gerast í íslenskri blaðamennsku: „Frá degi til dags“, sem Magnús Kjart- ansson Þjóðviljaritstjóri not- aði á Austra-greinar sínar. Pistlar Dagfinns eiga að vera sniðugir, en einhvern veginn þykir okkur hérnamegin við Síðumúlann heldur rammt bragðið af þessum brandara, og skiljum ekki í að Dagfinni sé mikill ágóði af samanburð- inum við snilld Austra. En kannski þetta verði til þess að Þjóðviljinn fari að sei- last víðar en nú er í pistiln- öfnum? Var ekki einhvern tíma eitthvað sem hét Hann- es á horninu? ■ Dramatískur endir Það hafa skipst á skin og skúrir á ferli Bogdans Kow- alczyks með íslenska hand- boltalandsliðinu. Hann þótti ekki fínn pappír hér heima eftir frammistöðu liðsins á ól- ympíuleikunum. Nú eru hins- vegar allir í sjöunda himni með frammistöðu liðsins og sennilega þjálfarinn líka þótt honum hljóti að hrjósa hugur við síðasta leiknum, sem landsliðið leikur undir hans stjórn. Úrslitaleikur B- kepþninnar verður nefnilega milli okkar manna og landa Bogdans, Pólverja. Hætt er við að viðtökurnar verði ekki blíðar í heimalandi hans ef ís- land ferð með sigur af hólmi og stelur fyrsta sætinu f rá Pól- verjum. Það er víst að strák- arnir munu leggja sig alla fram í kveðjuleiknum. Breytt Heimsmynd Nú um mánaðamótin er von á fyrsta tölublaði af breyttri Heimsmynd. Framvegis ætlar Herdís Þorgeirsdóttir, rit- stjóri og aðaleigandi, að koma út blaðinu mánaðarlega og keppa við Fréttatímaritið Þjóðlíf sem sótt hefur í sig veðrið að undanförnu undir stjórn Óskars Guðmunds- sonar. Þjóðlífsmenn taka vafalaust hina nýju sam- keppni alvarlega en þó munu þeir ekki hafa stóráhyggjur þar sem Þjóðlíf hefur forskotiö og stendur nú nokkuð vel að vígi með sína 8 til 10 þúsund áskrifendur. ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.