Þjóðviljinn - 17.03.1989, Side 11
FLÖSKUSKEYTI
Cicciolina
fundin sek
ítalska klám- og stjórnmála-
stjarnan llona Staller, betur þekkt
semCicciolina, hefurveriö
dæmd í fimm mánaöa skilorðs-
bundið fangelsi fyrir aö hafa hag-
aö sér ósiðsamlega á almanna-
færi. Það var í september 1987
að hún klifraði hálf nakin upp á
styttu af hesti á Markúsartorgi í
Feneyjum og reið bronshrossinu
berbrjósta og í gagnsæjum
pilsgopa. Lögreglan átti fullt í
fangi með að halda fleiri hundruð
túristum í skefjum sem ákafir
vildu fá að sjá Cicciolinu í návígi.
Skrautlegar
kistur
Líkkistusmiður nokkur í Ghana
hefur getið sér gott orð fyrir að
vera hinn mesti listasmiður. Það
fylgir þó sögunni að kirkjunnar
menn séu ekkert alltof hrifnir af
verkum þessa hagleiksmanns.
Líkkistusmiðurinn heitir Paa Joe
og frægð hans hófstþegar hann
var beðinn að smíða kistu sem
vareinsog laukurílaginu. Smíðin
þótti heppnast það vel að hann
var beðinn um að smíða líkkistu
sem átti að vera einsog hvítur
Mercedes Bens undir leigubíl-
stjórasemvar nýlátinn. Þráttfyrir
að geistleg yfirvöld séu ekki mjög
hrifin af smíðagripunum þá hefur
þóeinnpresturleitaðtil PaaJoe
og beðið um líkkistu fyrir sjálfan
sig. Sú kista á að líta út einsog
Biblían í goggi á risavöxnum erni.
Ávöxtuö
undirskrift
4. júlí 1776 settist Caesar Rod-
ney frá Delaware í Bandaríkjun-
um niöur viö skrifborð sitt og
skrifaði bróðursínum bréf. I bréf-
inu sagði hann bróður sínum frá
því að fyrr um daginn hefði hann
undirritað sjálfstæðisyfirlýsingu
Bandaríkjanna. 213 árum seinna
var bréf þetta selt á uppboði í
New York og fékkst hæsta verð
fyrirþað sem nokkurntíma hefur
fengist fyrir handskrifað bréf eða
rúmar22miljónirkróna.
Kaupandinn vildi ekki láta nafns
síns getið.
Páf inn á
skíðum
Jóhannes Páll II páfi fór á skíði í
ítölsku Ölpunum fyrir skömmu.
Páfinn var vanur að renna sér á
skíðum í Póllandi þegar hann var
ungur að árum og hefur nokkrum
sinnum brugðið sér í brekkurnar
eftir að hann varð páfi, nokkuö
sem óhugsandi er að fyrirrennar-
ar hans hefðu gert. í júlí 1984
renndi hann sér með þáverandi
forseta Ítalíu í Dolómítunum. Fyrir
tveimur árum endurtók hann
leikinn í Ovindoli og nýlega fór
hann svo til Campo Felice í ítöl-
sku Ölpunum. Ólíklegt er þó að
hann bregði sér í Kerlingarfjöll
þegar hann kemur í heimsókn til
Islands snemma í sumar.
Geisladiskar
til upptöku
Fram eru komnir á hljómtækja-
markaðinn í Evrópu geisladiskar
sem hægt er að taka upp á. Disk-
arnir líta eins út og venjulegir
geisladiskar og gefa sömu hljóð-
gæði. Aðeins er hægt að taka
einu sinni upp á hvern disk. Sér-
stakt upptökutæki þarf til þess að
taka inn á diskinn, og kostar það í
verslunum á meginlandinu um
það bil 25.000 krónur. Diskurinn
kostar hins vegar um 1200 krón-
ur nú, en því er spáð að verðið
muni lækka um helming þegar á
þessu ári.
ÚR MYNDASAFNINU
Bilainnflutningur
Hér á árum áður þótti það alltaf tíðindum sæta þegar flutningaskipin komu til landsins hlaðin glæsikerrum
síns tíma enda bílaeign þá ekki eins almenn og hún er í dag. Þessi mynd var tekin á miðjum sjötta
áratugnum þegar verið var að skipa á land Skodabílum í gömlu höfninni. Eins og myndin ber með sér voru
bílarnir njörvaðir niður á dekkinu með áklæði yfir til að verja þá skemmdum sem þeir gátu orðið fyrir á
leiðinni yfir hafið af völdum sjógangs og veðurs. Tilhlökkun þeirra sem kannski voru að eignast sinn fyrsta
bíl var að vonum mikil og þegar uppskipun hófst var fjöldi manns samankominn niðri við gömlu höfnina til að
fylgjast með og ganga úr skugga um áð nýi bíllinn hefði ekki orðið fyrir neinu hnjaski á leiðinni yfir hafið. Þá
var ekki síður mikil eftirvænting meðal almennings að fylgjast með hvernig nýju árgerðirnir litu út og hvort
þær væru eitthvað öðruvísi eíi þeir bílar sem fyrir voru á götum bæjárins. í þá daga var það mikil upphefð að
eignast bíl og ekki á allra allra og eftir þvi tekið þegar nýr bíll kom í götuna. En tímarnir breytast og mennirnir
með og nú að eiga bíl þykir ekki lengur merkilegt. Enda er nú svo komið að fjöldi bíla er orðinn svo mikill að ef
allir bílar í Reykjavík eru samtímis úti á götum borgarinnar í einu hafa þeir aðeins 6 m pláss og komast
hvergi.
Föstudagur 17. mars 1989 t-.'ÝTT Hfc'LGARBLAÐ - SÍÐA 11