Þjóðviljinn - 17.03.1989, Síða 24

Þjóðviljinn - 17.03.1989, Síða 24
HELGARPISTILL ÁRNI BERGMANN Kommúnisminn, spíritisminn og guðspekin Nokkur orð um hugmyndaheim Þórbergs Þórðarsonar „Sá sem étur þjöppu og brauð með margaríni hér í heimi sannleikans vegna, hann mun borða hamborgar- hrygg og rjómarönd í næsta heimi.“ Þetta er náttúrlega Þórbergur. Þetta er úr Sálminum um blómið. Þetta er röddin hans Gvuðs og minnir á sígild fyrirheit um klára- vín, feiti og merg með, sem snauðir menn og matarlitlir von- uðust til að fá ómælt í Himnaríki. Staðhæfingin kallast líka á við endurgjaldslögmáiið sem Þór- bergur hélt mikið upp á og ku vera tölvert í tísku núna: lífið er niðurstaða af gjörðum manna í næstu tilveru á undan. Hún er líka gamansöm útfærsla á þeirri von sem hugsun Þórbergs snerist mjög um: von um réttlæti, reyndar bæði þessa heims og ann- ars. Þjóðleg blanda á staðnum Menn eru stundum að hugsa sem svo: hvílíkur bölvaður hræri- grautur hefur hugsun Þórbergs verið. Allt hristir hann saman blygðunarlaust: kommúnism- ann, guðspekina, spíritismann. Maður varð svo oft var við það hér á árunum, að kommarnir voru margir hverjir óánægðir með eilífðarmálin hjá honum (andskotans draugavitleysan!) meðan eiiífðasinnar voru náttúr- lega hneykslaðir á því hver eftir sínum litarhætti, að Þórbergur hafði ætiað kommúnismanum virðulegan sess í sinni framfara- kenningu. Svo settust menn nið- ur og gerðu sig umburðarlynda í framan og fyrirgáfu karlinum vegna þess hve einlægur hann var, og skemmtilegur og skrifaði allra manna best. Og svo sögðu menn kannski: Við erum nú svona ís- lendingar. Við erum lélegir í te- óríu. Við hristum allt saman. Þórbergur er barasta þjóðlegri en við öll hin til samans. Hann er ekkert að tvínóna við þetta. Hvað leiddi af öðru Nú ætla ég að leyfa mér að vera ekki sammála. Að minnsta kosti er það hæfilegur virðingarvottur við Þórberg sjálfan að minna á það, að sú skrýtna blanda sem hér var á minnst var honum sjálf- sögð og rökvís í kerfi þar sem hvað leiddi af öðru. í bréfi til Kristins E. Andréssonar, sem fylgir seinni útgáfunum á Bréfi til Láru, segir Þórbergur að guð- spekin hafi verið honum „stór- kostlegri opinberun en nokkuð annað.“ Hún hafi varpað „óvæntu ljósi yfir flest mín við- fangsefni ... og veitti inn í mig nýjum skilningi á svo að segja öllum hlutum.“ Meðal annars með þessum afleiðingum hér: „Frá guðspekinni ályktaði ég mig til sósíalisma og alþjóða- hyggju. Þar með þykist ég hafa reist mínar pólitísku skoðanir og afstöðu til mannkynsins í höfu- ðlínum á undirstöðu sem ég býst varla við að hrynji á næstunni.“ Rétt þekking, rétt breytni Þórbergur var spíritisti, sósíal- isti og guðspekingur vegna þess að hann krafðist réttlætis í bráð og lengd og vegna þess að hann taldi mögulegt að finna rétta þekkingu, rétt vísindi til að reisa á fullvissu um sigur réttlætisins. Hann gerði ráð fyrir því að þjóð- félagsbyltingin tryggði réttlátt og skynsamlegt stjórnarfar í þessum heimi - en það var ekki nóg. Réttlætið varð að vera kosmískt líka, það mátti ekki skilja eftir óleysta hnúta, böl skal allt bæta, þeir sem éta margarín og þrum- ara fá sína rjómarönd í næsta heimi. Og kenningar um endur- holdgun og karma falla eins og flís við rass að þessari allsherjar- réttlætiskröfu að mati Þórbergs. Það er rétt að taka vel eftir því, að Þórbergur segist hafa ályktað sig frá guðspeki til sósíalisma. Sá sem blaðar í Bréfi til Láru sér þar bæði lof og last um guðspeki og spíritisma. Gagnrýnin á þessar hræringar er reyndar mjög sterk. Þórbergur lýsir vonbrigðum sín- um með guðspekihreyfinguna með svofelldum orðum: „Guð- spekifélagsskapurinn er orðinn smáborgaralegt klíkuverk, líkt og aðrar andlegar stefnur, krítik- laust og andlaust... Félagsmenn svæfa réttlætistilfinningu sína með einhverju fíflslegu umburð- arlyndi, sem þykist allt vilja um- bera, en finnur þó ekki til með neinu, þorir ekkert að segja og áræðir ekkert að gera... I ein- feldni sinni blanda þeir saman hinu heilaga umburðarlyndi sem vinnur látlaust mannkyninu til blessunar og afskiptaleysi sér- gæðingsins, sem að eins finnur til með sjálfum sér.... Karma-kenn- inguna hafa þeir sem skálkaskjól til að fegra svívirðingar og glæpi“ í öðrum stað í Lárubréfi slær Þórbergur því föstu að „Spírit- isminn frelsar aldrei heiminn“. Og hvers vegna ekki? Meðal ann- ars vegna þess, að „spíritisminn skaðaði ekki hagsmuni auðhring- anna amerísku“. Þórbergur: Þá munu bestu fagmenn stjórna eftir vísindalegum aðferð- um. Og eilífðarmálin koma ekkert trú við, spurningin um líf eftir dauðann er náttúru- og eðlisfræðilegs efnis... skilning á stöðu mannsins og þró- un þjóðfélagsins og svo rétta framvindu mála hér og í eilífð- inni. Gegn pólitík og trú En með þessum samtengingum öllum er Þórbergur að gera fleira. Hann reynir að losa sig undan takmörkunum pólitíkur og trúar. Með öðrum orðum: Þórbergur hrífst af spiritisma vegna þess að á hans vegum fái menn „sannan- ir“ fyrir framhaldslífi, og guð- speki, sem gefur fyrirheit um kosmískt réttlæti. Um leið fjar- lægist hann áhangendur þessara hræringa vegna þess að þeir „svæfa réttlætiskennd sína“, vegna þess að þeir draga ekki þá ályktun af heimsmynd og ei- lífðarmynd sinni að menn þurfi að hefjast handa nú og hér. Ganga fram vasklega gegn fátækt og kúgun og „hagsmunum auðhringa". Þórbegur kemst svo að þeirri niðurstöðu, að það sé aðeins með því að bæta sósíalism- anum við að til verði sú heilög þrenning sem tryggi bæði réttan Þegar í upphafi Lárubréfs sér hann fyrir sér það sameignar- samfélag, þar sem „atvinnumál- unum verður stjórnað til almenn- ingsheilla eftir vísindalegum grundvallarreglum“. Þess má víða finna stað upp frá þessu hjá Þórbergi, að honum finnst minna en lítið til pólitískra umsvifa koma - nema þeirra sem hann telur í anda vísinda. Sjötugur að aldri er hann (árið 1959) að ræða við Matthías Johannessen („í kompaníi við allífið“) og þá fer hann mjög svipuðum orðum um framtíðarríkið og í Lárubréfi. Hann segir að kommúnisminn sé „vísindalegt kerfi“ og segir að hann muni starfa sem hér segir: „Mér mun óhætt að fullyrða að stjórnin verður ekki í höndum refjóttra pólitíkusa heldur sér- fróðra fagmanna frá öllum löndum á hverju sviði“. Þórberg- ur sættir sig ekki við geðsveiflur, óáreiðanleik og súbjektífitet stjórnmálannna - því leitar hann inn í nokkuð svo vélrænan marx- isma, og sá marxismi ber reyndar sterkan svip af tæknikratisma, sérfræðingatrú. Og rétt eins og kommúnisminn átti að losa Þórberg við hvikulleik pólitískra meininga, svo áttu spír- itismi og guðspeki að losa hann við þann voða að þurfa að steypa sér út á sextugt dýpi trúarinnar. Hann trúði á möguleika manna til að höndla sannleikann, einnig um hinar stærstu eilífðargátur, og sannleikurinn átti náttúrlega að vera trúnni æðri. í viðtalsbókinni fyrrnefndu segir Þórbergur með- al annars: „Spurningin um líf eftir dauðann kemur trúarbrögðum og kristindómi ekki meira við en náttúrufræði Darwins og eðlis- fræði Einsteins. Spurningin um líf eftir dauðann er náttúru- og eðlisfræðilegs efnis". Það kynni reyndar að standa í mönnum að útskýra það, hvernig Þórbergur fer að því að gera spíritisma og guðspeki að þeirri „náttúru- og eðlisfræði“ sem leysir úr fyrr- greindum vanda. En þetta gerði hann nú samt. Og hefði orðið mjög reiður, ef menn hefðu strítt honum á því, að þær andlegar til- færslur byggðu fyrst og síðast á trú eða að minnsta kosti trúar- þörf. Trú og ekki trú í samtalsbókinni „í kompaníi við allífið“ segir Þórbergur frá því, hvaða menn honum finnist leiðinlegastir: „Það eru öngþveitismennirnir. Mennirnir sem eru búnir að missa trú á allt, trú á mennina, trú á þróunina, vegna þess að margt hefur gengið öðruvísi í heiminum í nokkra áratugi en æskilegt hefur verið“. Þórbergur var ekki svo skyni skroppinn sjálfur að hann yrði ekki fyrir vonbrigðum: með spir- itisma, með guðspeki og með kommúnismann. eða að minnsta kosti með margt það sem fylgis- menn þessara hugmyndakerfa gerðu eða létu ógert. En hann vildi ekki slást í för með þeim, trúlausum „öngþveitismönnum “ sem eru svo skelfilega leiðinlegir. Og eru náttúrlega ekki líklegir til að gera gagn í heiminum, lamaðir menn af tilgangsleysi allra hluta. Því hélt Þórbergur fast við sína „blöndu" - sína TRÚ á þróunina. Sú trú var honum einskonar lífsnauðsyn sem varð röknauðsyn (sbr. rit Brynjólfs Bjarnasonar). En hún getur aldrei orðið vísindi, því miður, það verða menn að sætta sig við. 24 SlÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 17. mars 1989

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.