Þjóðviljinn - 17.03.1989, Qupperneq 25
Sjokk til að krydda með
Svart hvítur draumur skildi
eftir sig forvitnilegan minnis-
varöa sem fáir sperra viö
eyrun svona fyrst í staö. En
plöturnar „Goö“ og „Bless"
eiga örugglega eftir aö lifa
sem kafli í rokksögu klakans.
„Goð“ er smekkleg plata og
skemmtileg. Mikið hefur verið
lagt í útsendingar sem eru frum-
legar og öðruvísi en maður á oft
að venjast. Hljómsveitarmeðlim-
irnir sjálfir eru áberandi í for-
grunni og hjálparkokkar á blást-
urshljóðfæri og fleira virka vel.
„Bless er rökréttur svana-
söngur í framhaldi af „Goð“. Á
báðum plötunum er hvert lagið
öðru betra og mörg þeirra eru
fullkomlega boðleg hverjum
þeim sem hefur áhuga á framsæk-
inni rokktónlist og hefur þolin-
mæði til að hlusta. f>að er auðvit-
að ekki hægt að ætlast til þsss að
fólk myndi sér skoðun á nokkurri
tónlist út frá því að heyra hana úr
lélegum og lágt stilltum útvarps-
tækjum á vinnustöðum. Ef fólk
ætlar að leggja sig eftir tónlist
verður það að ætla sér tíma til að
hlusta. Þess vegna mun tíminn
vinna með S. H. draumi.
En hljómsveitin Bless er risin
upp úr S. H. draumi. Þeir Gunn-
ar Lárus Hallgrímsson og Birgir
Baldursson eru áfram á ferðinni,
Steingrímur Birgisson er hættur
og ungur ferskur liðsmaður, Ari
Eldon, hefur bæst í liðið. Ritara
fannst tilvalið að mæla sér mót
við Bless í upphafi ferðar og taka
af þeim sneiðmynd (gott nafn á
nýtt tímarit).
Staðurinn er Kabarett, dagur
mánudagur og klukkan er 18.01.
Blessunarlega
brjálaðir
- Þegar ég var að hugsa hvern-
ig best væri að byrja þetta viðtal
fannst inér rétt að byrja á því að
spyrja hvort þið væruð brjálaðir.
Birgir: Já auðvitað erum við
brjálaðir, alla vega ég.
Gunnar: Það fer eftir því hvaða
augum litið er á það, frá sjónar-
hóli hins almenna borgara eða
sjónarhóli klepparans.
Ari: Það er út í hött að ætla að
dæma sjálfan sig brjálaðan, það
er annarra að gera það. Ef maður
dæmir sjálfan sig brjálaðan fer
maður í einhvers konar meðferð.
Birgir: Brjálaður, það eru til
margar hliðar á því, maður getur
verið brjálaður án þess að vera
klepptækur, þetta er spurning um
manns eigin geggjun sem maður
hefur stjórn á.
Ari: Þetta er ekkert sem háir
okkur í daglegum samskiptum.
Gunnar: Ég myndi segja að öll
samskipti innan bandsins væru
mjög brjálæðisleg sem kemur
fram f óstöðvandi hlátri.
Birgir: Þankagangurinn er
brjálaður.
- Má þá draga þá ályktun að
þið séuð í tónlist eins og svo marg-
ir aðrir af því að þið hafið svo
gaman af því?
Gunnar: Já, það er ein af á-
stæðunum, en ef við værum ekki í
hljómsveitinni værum við núll,
ekki neitt.
Ari: Gunnar yrði bankastarfs-
maður, ég yrði ekki neitt.
Gunnar: Það er náttúrlega það
sama.
- S. H. draumur kemur óneit-
anlega við sögu hjá Bless. Þegar
búið er að kveðja drauminn, sem
varði ansi lengi miðað við lífdaga
íslenskra hljómsveita, getið þið
þá sagt eitthvað um það hvers
konar hljómsveit S. H. draumur
var?
Gunnar: Þetta er rétt með líf-
dagana...
Birgir: ... S. H. draumur var
meira Gunna „prjódekt“, Bless
er opnara dæmi.
Gunnar: Tja, ég veit það nú
ekki.
- Var S. H. draumur mis-
skilinn, skildu ekki allir draum-
inn?
Birgir: Hann var alla vega
lengi að komast í gang hvað vins-
ældir snertir.
Gunnar: Hvað vinsældir snert-
ir er hann ekki kominn í gang
enn.
Birgir: Ég meina að viðtökur á
tónleikum voru engar nema
undir það síðasta.
Ari: Undir það síðasta var
hann líka orðinn miklu poppaðri,
get ég sagt sem áheyrandi.
Vinsældir
og allt það
- Vinsældir, er orð sem mér
þykir stundum vera feimnismál á
meðal tónlistarmanna. Jafnvel
tónlistarmenn sem eru orðnir
vinsældir annað hvort þræta fyrir
það eða segjast ekkert kæra sig
um það. Eru vinsældir eitthað
sem þið t.d. stefnið ekki að?
Gunnar: Við stefnum kannski
ekki að því en hefðum ekkert á
móti því.
Birgir: Auðvitað spila vinsæld-
ir inn í, það er miklu skemmti-
legra að spila fyrir fullan sal af
kátu fólki en að troða upp þar
sem 30 mæta og 10 sitja og tala
saman. Hluti af ánægjunni er að
geta gert fólki til geðs án þess að
koma of mikið til móts við það.
Það er að sjálfsögðu mjög gaman
ef manni tekst að sveigja smekk
fólksins að sér.
Ari: Vinsældir eiga bara ekki
að byggjast á neinum sleikju-
skap.
- Hvað ætlar Bless að gera?
Gunnar: Það sem liggur
beinast við, taka upp efni og gefa
það út. Við störfum á íslandi og
verðum að setja okkur þau mark-
mið sem rúmast þar; plötuútgáfa,
tónleikahald og myndbandagerð.
HEIMIR
PÉTURSSON
I framhaldi af því; plötuumslaga-
gerð, plakatagerð, fyrir utan
auðvitað æfingar og tónlistar-
sköpun (glott).
Annað dæmi sem getur komið
inn eru síðan útlönd sem eru
auðvitað sama dæmið bara í
stærra mæli, meira verkefni og
skemmtilegra.
Fariö á
klósettið
- S. H. draumur hefur eitthvað
bankað upp á í útlöndum?
Gunnar: Það var allt af mjög
skornum en ágætum skammti og
eru hlutir sem við sjáum ekkert
eftir. En það er ekkert til að
byggja á. Síðasta plata
draumsins, „Bless“, kemur bráð-
lega út í Englandi og þar verður
hún kynnt sem fyrsta plata Bless.
Sú útgáfa gæti því orðið fyrsta
skref Bless á erlendum mörkuð-
um.
- Hvaða tónlist er það sem þið
viljið helst að komi út úr ykkar
samvinnu?
- Gunnar: Þetta er rokk og
popp sem við spilum og er orðið
eins og klósett; ef manni er mál
getur maður ekkert farið annað
en á klósettið.
Birgir: Við reynum að hafa
sem breiðastar línur.
Gunnar: í framhaldi af þessu
vil ég segja að öll íslensk bönd
sem eitthvað er varið í eru voða-
lega niðurnegld í einum gangi,
eru alltaf í sama ganginum og
komast hvergi út úr honum.
Ari: Við reynum að fá það út úr
lögum sem okkur þykir skemmti-
legt án þess að nálgast þau öll
eins.
Gunnar: Bless er semsagt í
völundarhúsi.
- Er það völundarhús sem þið
haldið að Bretinn t.d. kunni að
meta?
Gunnar: Ja, við ætlum að vona
það, það eru svo margir gangar
ókannaðir.
- Hvernig lítið þið á texta?
Ætlar Bless að frelsa með textum
sínum: a) heiminn, b) eitt bæjar-
félag, c) eina persónu, d) annað?
Gunnar: Því fyrr sem Homo
Sapiens útrýmist, því betra, fyrir
DÆGURMAL
svona
um
litum á
er lítið
og við
eitt og
vað til
heiminn. Þetta kemur hljóm-
sveitinni ekkert við, er bara mín
persónulega skoðun. Fyrir mis-
tök þróaðist maðurinn lengra en
nin dýrin.
Ari: Ef þú hefðir ekki þróast
þetta meira en hin dýrin héldir þú
ekki á gítar, værir bara einhvers-
staðar að éta.
Birgir: Ég held að textarnir hjá
Gunna séu ekkert til að frelsa
heiminn með, ég held að boð-
skapurinn sé...
Gunnar: (f stólræðustíl)
...hver einstaklingur verður að
rýna inn í sjálfan sig og finna þá
leið sem honum þykir best og
koma óskemmdur út úr þeim vít-
ahring sem lífið er.
Anars eru
„strákur hittir
Birgir: Við
plægðum ökrum
Gunnar: Hefur
eitthvað Birgir?
Birgir: Nei, ef
popp- og rokktónlii
búið af góðri tói
leitum en finnum
verðum því að bú;
sjálfir.
Fuli
framl
- A hverju má
frá Bless?
Gunnar: Þjóðii
engan áhuga á að
hverju frá okkur
hafa áhuga...
Ari: ...megaei]
leið og okkur ge;
við gefum algera
Birgir: Ég hel
enga burði til að
ina.
Gunnar: Bless vi
framleiðslu.
Ari: Plata með l!
Birgir: Svo erum
ir.
- Hver ætlar að
ið?
Gunnar: Ari,
svo þetta verði
Ari: Ég er
vegna er ég nú í
Birgir: Eitthvað
Gunnar:
kvöld.
rafað
a von
firleitt
a ein-
r sem
vi um
ri, að
öfum
þjóð-
felldri
i sol
farn-
ra
lokaorð-
sjokk,
viðtal.
, þess
- hmp
Bless
Föstudagur 17. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐÁ 25