Þjóðviljinn - 15.09.1989, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.09.1989, Blaðsíða 3
Afmœli Bjöm Kristmundsson áttræður Áttræður verður á mánudag- inn, 18. september, Björn Krist- mundsson fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Þjóðviljans. Björn er fæddur og uppalinn í Hrúta- firði. Árið 1934 gerðist Björn einn af stofnendum Verkalýðs- og smábændafélags Hrútfirð- inga. Félagið lenti í vinnudeilu við Eimskipafélagið sem kölluð hefur verið Borðeyrardeilan. Björn starfaði fyrir Þjóðviljann í áraraðir, m.a. sem skrifstofu- stjóri, gjaldkeri og framkvæmda- stjóri. Þegar Björn lét af störfum við Þjóðviljann hóf hann störf á skrifstofu Reykjalundar. Þjóð- viljinn árnar Birni heilla á þess- um tímamótum. Reykjavík Maður fannst látinn Áverkar á líkinu Maður um fimmtugt fannst látinn um hádegisbilið í gær þar sem hann lá á maganum inn á salcrni í íbúð sem Fé - lagsmálastofnun leigir út að Suð- urlandsbraut 12. Averkar voru á Iíkinu. Að sögn lögreglu var „óreglu- fólk“ handtekið á staðnum og fært til yfirheyrslu. Að öðru leyti varðist lögreglan allra frétta af málinu þar sem það væri í frum- rannsókn og ekki ljóst hver væri dánarorsök mannsins. -grh Ólæsum fjölgar Ólæsu fólki fullorðnu í heimin- um hefur fjölgað um 130 miljónir frá því á fyrsta árum s.l. áratugar og er það nú um 830 miljónir. Er þá miðað við fólk, sem hvorki kann að lesa né skrifa. Gert er ráð fyrir að um næstu aldamót verði ( heiminum um 912 miljónir fullorðins fólks sem hvorugt kann. Mest er ólæsið í Afríku, þar sem 54 af hundraði fullorðins fólks er hvorki læst né skrifandi. í Asíu er samsvarandi tala 35 af hundraði. Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að helga næsta ár baráttu gegn ólæsi. Pvofaöu Græðandi varasalvi 1 Heilsuval. Laugavegi 92. S 626275 og 11275 íslenskar rætur Útvarpsstöðin Rót hefur ákveðið að hafa íslenska tónlist- arviku dagana 18.-24. septemb- er. Þessa daga verður eingöngu leikin tónlist eftir íslenska höf- unda og er þetta gert í samvinnu við Félag íslenskra tónlistar- manna. Dagskrá vikunnar verður þannig í grófum dráttum að klukkan 9-10.30 á morgnana verður flutt tónlist íslenskra tón- skálda með íslenskum hljóðfær- aleikurum, kórum og einsöngvur- um. Meðal gesta í þessum morg- unþáttum verða Atli Heimir Sveinsson, Jón Stefánsson og Dóra Ólafsdóttir. Frá 10.30-12 verða leiknar dægurperlur ís- lenskrar tónlistar fyrri tíma og rætt við tónlistarmenn. Meðal gesta verða Stefán Jónsson í Lúdó, Hjördís Geirsdóttirog Berti Möller. í hádeginu verður leikin blönduð íslensk tónlist. Frá kl. 13-17 koma ýmsir tónlistarmenn í heimsókn á Rótina með plötur og ferill þeirra verður rakinn. Þeirra á meðal verða Magnús Kjartansson, Bjartmar Guð- laugsson og Jóhann G Jóhanns- son. Tónlistarvikunni lýkur svo með beinni útsendingu frá Fé- lagsheimili tónlistarmanna, sunnudaginn 24. september. Út- sendingin hefst kl. 13 og stendur til kl. 17. -hmp -hefur kennt íslendingum að meta gott kaffi. Þú getur valið um þijár mismunandi tegundir af Menild-kafíi. 103 - Millibrennt 3 04 - Dökkbrennt 104 - Mjög dökkbrennt Merrild-ilmandi og ljúffengt kaffi, sem bragð er af. Merrild

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.