Þjóðviljinn - 15.09.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 15.09.1989, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. september 1989 Uppreisnarmennogliðhlauparhafatekið völdin víðaumlandog Siad Barre getur ekki lengur reitt sig á bandaríska efnahagshjálp kvíslir, sem oft hafa átt í erjum innbyrðis, og þetta á mikinn þátt í óöldinni þarlendis. Barre hefur ekki bætt úr skák í því efni, því að til þess að tryggja sig í valdasessi hefur hann spanað upp ættkvísl- irnar hverja gegn annarri. Þetta hefur hann gert af því að hans eigin ættkvísl, sem nefnist Mare- han, er fámenn og mátti sín lítils fyrir hans tíð. Hann hefur eins og fleiri afrískir og asískir einræðis- herrar mjög hyglað frændum sín- um og hafið þá til embætta, t.d. er sonur hans yfirmaður setuliðs- ins í höfuðborginni. Þessum frændum sínun getur Barre treyst, en á hinn bóginn hefur upphefð þeirra aukið úlfúðina gagnvart honum af hálfu annarra ættkvísla. í hernum er Ogadenættkvíslin sterkust. Það fólk er flest komið norðan úr Eþíópíu, flúði þaðan eftir að Sómalir töpuðu stríði við Eþíópa (eða réttara sagt kúban- ska bandamenn þeirra) á s.l. ára- tug. í fyrra gerði Barre samning við Eþíópíu þess efnis, að Sómalíland gerði ekki lengur til- kall til Ogaden. Því reiddust Oga- denmennirnir í hernum, og hefur það átt mesta þáttinn í lið- hlaupunum. SNM sækir fylgi sitt einkum til Issakættkvíslarinnar, sem einnig erfjölmenn í Djibúti. Þar að auki var norðurhluti landsins áður bresk nýlenda en suðurhlutinn ít- ölsk, og sú fortíð lét eftir sig viss- an mun á landi og fólki norðan- lands og sunnan, sem að líkind- um á sinn þátt í að borgarastríð þetta braust út. Herstöð missir mikilvægi Sómalíland er meðal fátækustu landa heims og í efnahagsmálum hefur stöðugt hallað undan fæti fyrir því yfirstandandi áratug. í Mogadishu og víðar um land er matarskortur. Óánægja stjórna Bandaríkjanna og Bretlands með stjórn Barres hefur leitt til þess að þau hafa í bráðina hætt að styrkja hann efnahagslega. Það munar um minna, því að erlend efnahagshjálp hefur síðustu árin numið 40 af hundraði vergrar þjóðarframleiðslu Sómalílands. Barre kennir því Bandaríkja- mönnum og Bretum um upp- iausnina í landinu. Stjórn Barres hafði annars reitt sig á Bandaríkin sem öruggan efnahagslegan bakhjarl, þar eð hann hafði leyft þeim að koma sér upp flotastöð í Berbera. Sú herstöð var lengi mikilvæg kölluð, þar eð hún er nálægt mynni Rauðahafs. En nú á þess- um tímum sáttastefnu í sam- skiptum risaveldanna er þess far- ið að gæta að þau leggi ekki eins mikið upp úr herstöð'vum út um allar trissur og áður var. Samn- ingurinn um flotastöðina í Ber- bera rennur út næsta ár, og Bandaríkjamenn hafa gefið til kynna að þeir geti sem best verið án hennar. dþ. þarlendis er nú á þá leið, að stjórn Barres er sem óðast að missa tökin á því. Hermenn hlaupa undan merkjum Uppreisnarhreyfing, Sómalska þjóðarhreyfingin, þekkt undir skammstöfuninni SNM, ræður þegar yfir héruðum nokkrum í norðurhluta landsins. Þar að auki er mikill hluti hersins, sem Barre hefur einkum byggt vald sitt á, orðinn honum mótsnúinn. Fjöldi hermanna hefur hlaupist undan merkjum og tekið á vald sitt stór svæði í landinu sunnanverðu. í mörgum héruðum, þar sem stjórnarhermenn, liðhlaupar og uppreisnarmenn eigast við, ríkir alger óöld. Vestrænir stjórnarerindrekar segja að stjórnin hafi enn örugg- lega á valdi sínu höfuðborgina Mogadishu, borgirnar Berbera, Hergeisa og Borama norðan- lands og einhverjir minni borgir í viðbót, en varla mikið þar fram- yfir. Og jafnvel í höfuðborginni er andstaðan gegn Barre mikil. Um miðjan júlí kom þár til mik- illa óeirða, sem stjórnarherinn bældi niður af engri vægð, og munu um 450 manns þá hafa ver- ið drepnir. Stjórnin beitir flugher sínum mjög til að klekkja á upp- reisnarmönnum og liðhlaupum. S.l. ár gerði flugherinn þannig harða hríð að SNM og lagði þá í rústir með sprengjuárásum borg- irnar Hargeisa og Borao. Sagt er að um 50.000 manns hafi farist í þeim árásum, en enginn veit lík- Ríkisskip gegnirstóru hlutverki í vöruflutningum umhverfis landið. Það er sama hver varan er. Nútíma flutningatækni, góður skipakostur og þjálfað starfslið tryggja vörunni góða meðferð alla leið á áfangastað. í þjóðbraut okkar eru 36 hafnir. Tíðar ferðir tryggja hraða flutninga. Láttu Ríkisskip annast flutningana fyrir þig. RfKlSSKlP NOTfMA FLOTNPK3AR SKIPAFÉL/VG MEÐ SIÖRT HLUTVERK í ÞÁGU ALLRA LANDSMANNA Einn þeirra afrískra valdhafa, sem lengst hafa setið að völd- um, er Siad Barre einræðisherra Sómalflands. Hann hefur nú stjórnað þarlendis í 20 ár. En nú er hann valtari í sessi en nokkru sinni fyrr og hefur, í von um að afla sér vinsælda, lofað fjöl- flokkakerfl og frjálsum kosning- um í Iok næsta árs. Hvort það bjargar miklu við fyrir hann er önnur saga. Lýðræði í vestrænum skilningi orðsins er þorra Sómalaframandi. Umgetin loforð ber líklega að skoða sem örvæntingartilraun einræðisherr- ans til þess að snúa þróuninni í landsmálum sér í vil. Ástandið lega um það nákvæmlega. Lands- menn hafa í hundruðþúsundatali flúið til grannlandanna undan hernaði, ógnarstjórn, óöld og skorti. Margar ættkvíslir Þar sem kalla má að Sómalir séu allir ein þjóð og að þeir í trúar- og menningarefnum eru einnig hver öðrum líkir, skyldi maður ætla að skilyrði til einingar landsmanna væru betri þar en gerist og gengur í Afríku yfirleitt. En reyndin hefur orðið önnur. Sómalir skiptast í margar ætt- Bláfátækt einræðisríki í upplausn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.