Þjóðviljinn - 15.09.1989, Side 7

Þjóðviljinn - 15.09.1989, Side 7
Líklegt er aö FH taki við íslandsmeistaratitlinum at Fram sem vann hann í fyrra, en myndin var tekin í síðari leik liðanna í sumar. Mynd - þóm. Laugardagur til lukku Allar líkur eru á að FH eða KA verði íslandsmeistarar í knattspyrnu en hvorugt liðið hefur áður náð þeim árangri. Um helgina lýkur einhverju jafnasta og mest spennandi Is- ■ landsmóti í knattspyrnu. Síðasta umferð 1. og 2. dcildar verður leikin á laugardag og fara allir leikirnir fram á sama tíma, eða kl. 14. Það verður því ekki fyrr en á laugardagseftirmiðdag sem Ijóst verður hvaða lið verður ís- landsmeistari, hvaða lið falla í 2. deild og einnig hvaða lið fylgir Stjörnunni uppí 1. deild. Tímamót í knatt- spyrnusögunni í 1. deild er ástandið þannig að fjögur lið eiga enn möguleika á að vinna deildina og önnur fjögur eru enn í fallhættu. Það eru að- eins Valur og f A sem standa fyrir utan þessa baráttu og er það óvenjulegt þarsem liðin hafa ver- ið í fremstu röð undanfarin ár. Það hefur einmitt einkennt deildina í sumar - ásamt því hve keppnin hefur verið jöfn - að tvö ný lið berjast á toppnum. Lið sem aldrei hafa orðið Islandsmeistar- ar og fæstir þorðu að spá slíkri velgengni í ár. Þetta eru sem kunnugt er FH og KA og eru yfirgnæfandi líkur á að annað hvort þeirra vinni ís- landsmeistaratitilinn því mögu- leikar Fram og KR byggjast á því að bæði liðin tapi sínum leikjum á laugardag. Það skemmtilega í þessari stöðu er að FH og KA hafa bæði verið rokkandi á milli deilda í gegnum tíðina og aldrei svo mikið sem átt möguleika á einhverjum afrekum á toppnum. Árangur FH-inga er sérlega glæsilegur þarsem liðið lék í 2. deild í fyrra. Þá hefur hvorugt lið- anna tekið þátt í Evrópukeppni en allar líkur eru á að þau geri það bæði á næsta ári ásamt Frömur- um sem urðu bikarmeistarar. Akureyringar hafa að vísu leikið áður í Evrópukeppni því ÍB A lék í keppni bikarhafa árið 1970. En altént er útlit fyrir viss tímamót í íslenskri knattspyrnusögu um helgina. Keppnin er reyndar mjög svip- uð því sem gerðist árið 1979 en þá varð ÍBV íslandsmeistari í fyrsta og eina skipti. Flestir höfðu reiknað með annað hvort Val eða ÍÞRÓTTIR f A á toppnum en Vestmannaey- ingar komu á óvart og sigruðu. Árið áður hafði Valur einmitt unnið deildina með miklum yfir- burðum, unnið alla leikina nema einn, og minnir það á að yfirburð- astaða Framara í fyrra hefur ekki orðið þeim til framdráttar í ár. Stöðuna á toppi deildarinnar þekkja flestir. FH er í mjög álit- legri stöðu þarsem liðið hefur eins stigs forskot á KA sem hefur 31 stig. Næst koma KR og Fram með 29 stig og markatala þeirra síðarnefndu er mjög slæm þannig að það má nánast afskrifa þá í þessari baráttu. Á botninum hafa Víkingar 17 stig, ÍBK og Þór 15 og Fylkir 14 stig. Á laugardag beinast augu manna væntanlega helst að leik FH og Fylkis. FH verður helst að vinna því varla getur liðið treyst á að KA tapi sínum leik og Fylki dugar ekkert annað en sigur til að halda sér í deildinni. Bæði lið munu því leggja allt í sölurnar til að vinna leikinn og jafntefli er sama og tap fyrir báða aðila. Leikur IBK og KA hefur álíka þýðingu, KA verður að vinna og vonast eftir að FH nái ekki að sigra en Keflvíkingum gæti hugs- anlega nægt jafntefli. Leikur Fram og Víkings gæti líka ráðið úrslitum bæði á toppi og botni. Framarar verða reyndar að vinna leikinn með ÞORFINNUR ÓMARSSON miklum mun og vonast eftir að toppliðin tapi, en Víkingar hljóta að reyna allt til að hljóta amk. eitt stig til að bj arga sér frá falli. Liðið virtist hafa sloppið úr fallbarátt- unni fyrir nokkru en það er nú öðru nær. Leikur Vals og KR á Hlíðar- enda gæti orðið skemmtilegur. Valur hefur verið að reyna að sanna sig undir stjórn nýs þjálfara en KR verður að vinna til að eiga möguleika á toppnum. Liðið heldur enn í vonina um Evrópu- sæti og er sá möguleiki vel fyrir hendi tapi annað hvort FH eða KA. Þá leika Þór og ÍA á Akur- eyri og hefur sá leikur enga þýð- ingu fyrir Skagamenn. Þórsarar verða hinsvegar helst að vinna sigur, en jafntefli bjargar þeim ef ÍBK og Fylkir tapa sínum leikjum. Af þessu má sjá að fimm úr- slitaleikir verða leiknir á sama tíma á laugardag. Áhugi manna á leikjunum hlýtur að vera mikill og má búast við metaðsókn á þessa umferð. Þá eru þessir leikir sem himnasending fyrir ljósvaka- miðlana og má búast við að menn hafi viðtækið með sér á völlinn. Ekki má gleyma 2. deildinni sem leikin er á sama tíma. Þar er staðan að vísu nokkuð ljós nema hvað ÍBV og Víðir berjast um annað sætið sem gefur þátttöku- rétt í 1. deild að ári. Stjarnan hef- ur þegar unnið deildina sem verð- ur að teljast frábær árangur hjá liði sem var í 3. deild í fyrra. Vestmannaeyingar hafa eins stigs forskot á Víði en bæði lið leika gegn liðum sem eiga lítilla hagsmuna að gæta í síðustu um- ferðinni. ÍBV leikur gegn Breiðabliki í Kópavogi en Víðir heldur til Selfoss og leikur þar við 'heimamenn. Fastir leikdagar Á laugardag verður í fyrsta skipti í sumar flautað til leiks á fimm stöðum í einu í deildinni. Allar umferðirnar hafa hingað til verið leiknar á allt að fjórum mis- munandi dögum sem hlýtur að draga úr áhuga almennings á mótinu. Þá hefur það augljós áhrif á leiki liðanna, nú þegar mótið er svo jafnt, að skipta þeim niður á fleiri en einn dag. Vaknar því enn einu sinni sú spurning hvort ekki eigi að á- kveða fasta leikdaga í deildinni líkt og í öðrum löndum og reyna að gera 1. deildarkeppnina enn áhugaverðari. Forráðamenn fé- lagannna verða einfaldlega að sætta sig við að geta ekki farið á alla leikina einsog þeir vilja, en líklegt er að sá hópur sem vill sjá fleiri en einn leik í hverri umferð sé ansi fámennur og hafi jafnvel undir höndum frímiða á leikina sem skilar sér ekki í kassann. í þessu sambandi vil ég benda á athyglisverða grein í nýjasta tölu- blaði íþróttablaðsins þarsem hugmyndin um fasta leikdaga er reifuð. Þar er stungið uppá fimmtudögum sem föstum leikdögum og hvort sem það er rétta lausnin eða ekki er löngu kominn tími til að leika hverja umferð í 1. deildinni á einum og sama deginum. Ég er sannfærður um að þegar til lengri tíma er litið yrði það Islandsmótinu til fram- dráttar. Pústkerfi úr ryðfríu gæðastáli í flest ökutæki Framleiðsla er nú hafin á pústkerfum úr ryðfriu gæðastáli í flestar gerðir ökutækja og bifreiða. Komið eða hringið og kynmð ykkur pústkerfin sem endast og endast. 5 ára ábyrgö á efrti og vinnu. HljDölqfikcrti kf STAPAHRAUNI 3 HAFNARFIRÐI SÍMI 652 777 NÝR DAGUR SlA

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.