Þjóðviljinn - 15.09.1989, Side 9
Tvo daga
að klára
Steingrím
Hallbjörn hefur gefið út sína fimmtu plötu til
styrktar dóttursyni sínum og nafna svo hann
komist til Ástralíu í aðgerð, en hann missti
heyrn á báðum eyrum eftir slys. Hallbjörn J.
Hjartarson: Erfiðast að þurfa að éta ofaní
mig allar fyrri yfirlýsingar um að ég væri hætt-
ur. Kemur í fyrsta skipti fram opinberlega
síðan 1985 á Hótel KEA á laugardagskvöld
Kúreki norðursins Hallbjörn
J. Hjartarson frá Skagaströnd
hefur kvatt sér hljóðs á nýjan leik
eftir fjarveru frá sviðsljósunum í
fjögur ár. Árið 1985 lenti hann í
alvarlegu umferðarslysi í Reykja-
vík sem varð þess valdandi að
hann ákvað að hætta öllum af-
skiptum af tónlist. En nýlega
sendi Hallbjörn frá sér sína
fímmtu hljómplötu og eru lög af
henni þegar farin að hljóma á
öldum Ijósvakans, aðdáendum
hans til mikillar ánægju. Á plöt-
unni eru 10 frumsamin lög eftir
Hallbjörn en undirleik annaðist
Magnús Kjartansson og félagar.
Utsetningar önnuðust Hallbjörn,
Magnús og Vilhjálmur Guðjóns-
son gítarlcikari. Á morgun, laug-
ardag mun Hallbjörn troða upp í
fyrsta skipti síðan 1985 á Hótel
KEA á Akureyri og ekki er útilok-
að að hann sjái sér fært að
heimsækja aðdáendur sína í öðr-
um landshlutum seinna.
En hver er ástæðan fyrir því að
Kúreki norðursins kveður sér
hljóðs á nýjan leik eftir að hafa
gefið út þá yfirlýsingu að hann
væri með öllu hættur afskiptum af
tónlist um aldur og ævi? Að sögn
Hallbjörns er ástæðan fyrir
endurkomu hans sú að dóttur-
sonur hans og nafni slasaðist illa
fyrir nokkru, hann höfuðkúpu-
brotnaði ásamt því að fá heila-
himnubólgu sem sýking komst í
og við það missti hann heyrn á
báðum eyrum. Hallbjörn segist
ekki vita gjörla hvað hafi gerst
innra með honum þegar hann á -
kvað að byrja að semja á nýjan leik
en í sjálfu sér skiptir það engu
máli heldur hitt að hann er farinn
af stað með nýja plötu ef það
kynni að auðvelda dóttursynin-
um að fá einhvern bata. En eins
og kunnugt er kostar það dágóð-
an skilding að fara erlendis í
læknisaðgerðir þótt hið opinbera
komi til með að styrkja ferðina
Hallbjörn J. Hjartarsson, sveitasöngvarinn frá Skagaströnd, hefur kvatt sér hljóðs á nýjan leik með útgáfu
sinnar fimmtu plötu.
eitthvað, og munu þeir peningar
sem platan kann að hala inn
renna óskiptir í þann kostnað
sem utanlandsferðinni kann að
fylgja.
Til stóð að senda drenginn
vestur um haf til Bandaríkjanna í
aðgerð en eftir að Hallbjörn sá
frétt þess efnis á Stöð 2 ekki alls
fyrir löngu að í Ástralíu hefði
læknum tekist að græða rafeinda-
eyra í áttræðan öldung með góð-
um árangri, var stefnan sett á
Ástralíu. Að vísu er sá hængur á
að ekki fylgdi fréttinni hvar í Ást-
ralíu aðgerðin var framkvæmd.
Að sögn Hallbjörns hafði öldun-
gurinn verið án heyrnar í 30 ár en
núna er hann búinn að kaupa sér
hljómflutningstæki og fílar sig í
botn eins og unglingur.
Lagiö um
Steingrím
erfiðast
En var ekki erfitt að byrja á
nýjan leik? - Jú, svo sannar-
lega,“ segir Hallbjörn. - Per-
sónulega fannst mér erfiðast að
þurfa að éta ofan í mig allar fyrri
yfirlýsingar mínar um að ég væri
með öllu hættur afskiptum af tón-
list. En eftir að ég var búinn að
harka það af mér og sestur niður
við píanóið varð ekki aftur snúið
og lögin komu eins og áður. Að
vísu reyndist mér einna erfiðast
að semja lagið um hann
Steingrím Hermannsson: Hann
er vinsæll og veit af því. í>að tók
mig tvo daga að klára það lag og
hef ég aldrei verið eins lengi með
nokkurt annað lag fyrr eða síðar,
sagði Hallbjörn J. Hjartarson.
Eins og kunnugt er rak Hall-
björn á velmegtadögum sínum á
Skagaströnd „Kántrýbæinn" en
sá rekstur gekk ekki sem skyldi
og fór fyrirtækið á hausinn og
bærinn seldur á nauðungarupp-
boði. Sá sem keypti hefur látið
staðinn drabbast niður og er það
draumur Hallbjörns að geta
eignast hann á nýjan leik.
-grh
Föstudagur 15. september 1989jNÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA 9