Þjóðviljinn - 15.09.1989, Qupperneq 10
FÉLAGSMÁLAStOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
W FJOLSKYLDUDEILD
Fósturforeldrar
óskast
Okkur vantar „allavega" fósturforeldra fyrir
„allavega" börn á öllum aldri.
Annars vegar er um aö ræöa börn sem þurfa að
fara í fóstur til frambúðar og alast upp hjá fóst-
urforeldrum. Hins vegar er um aö ræöa börn
sem þurfa á fósturheimili aö halda tímabundið
en alast að öðru leyti upp hjá kynforeldrum sín-
um.
Þeir sem hafa áhuga á aö taka barn/börn í fóstur
til frambúðar hafi samband viö Helgu Þórólfs-
dóttur eöa Hjördísi Hjartardóttur í síma 25500.
Þeir sem hafa áhuga á að taka barn/börn tíma-
bundiö hafi samband viö Regínu Ástvaldsdóttur
í síma 685911. Þessir aðilar munu veita upplýs-
ingar meðal annars um hvað felst í því að taka
barn í fóstur og hvað þarf til að gerast fósturfor-
eldrar.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Heimilishjálp
Starfsfólk vantartil starfa í heimilishjálp. Vinnu-
tími eftir samkomulagi, allt niður í 4 tíma á viku.
Upplýsingar í síma 18800.
Auglýsing
Staða fulltrúa hjá Veðurstofu íslands er laus til
umsóknar. Góð kunnátta í íslensku, ensku og
vélritun nauðsynleg. Kunnátta í einu Norður-
landamáli æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist samgönguráðu-
neytinu fyrir 29. sept. 1989.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Veð-
urstofu íslands.
Veðurstofa íslands
KÍ
KENNARASAMBAND ÍSLANDS
Kennarasamband
íslands
auglýsir starf skrifstofustjóra KÍ laust til um-
sóknar frá 1. janúar 1990.
Um er að ræða fullt starf.
Skriflegar umsóknir, þar sem getið er um
menntun og fyrri störf skulu berast stjórn KÍ,
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík fyrir 1. október
1989.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu KÍ í
símum 91-24070 og 91-12259.
Fundur á Isafirði
Landbúnaður - menning - sam-
göngur - menntun
Steingrímur
Svavar
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og
samgönguráðherra og Svavar Gestsson
menntamálaráðherra halda opinn fund á Hótel
ísafirði mánudagskvöldið 18. september n.k. kl.
20.30
Menntamálaráðuneytið, landbúnaðarráðu-
neytið og samgönguráðuneytið
Fóstrur
Forstöðumaður, fóstrur og annað uppeldis-
menntað starfsfólk óskast á foreldrarekið dag-
vistarheimili sem tekur til starfa í haust á hjóna-
görðum Háskóla ísiands. Umsækjendur yrðu
að taka þátt í skipulagningu og uppbyggingu
heimilisins.
Við leitum að aðilum sem hafa áhuga á sam-
starfi við foreldra og geta hafið störf fljótlega.
Upplýsinar sem greini frá menntun og fyrri störf-
um sendist til foreldrafélagsins Grímu, Suður-
götu 73, íbúð 122, fyrir 22. september. Nánari
upplýsingar í síma 17618, Þórdís og 21427,
Oddný.
Beggja hagur
Ert þú eigandi að snyrtilegri íbúð og vantar
traustan leigjanda til a.m.k. 1-2 ára?
Ég ertraustur leigjandi og vantarsnyrtilega íbúð
(helst í Vesturbænum) fyrir mig og 12 ára dóttur
mína.
Hafðu samband við mig í síma 681333 eða
21341 á kvöldin, og við hljótum að geta komist
að samkomulagi um góða umgengni og sann-
gjarna leigu.
Guðrún Gísladóttir
afgreiðslustjóri Þjóðviljans
VÁTKYGGINGAF’ÉLAG
ÍSLANDS HI'
Orðsending til viðskiptamanna
Vátryggingafélags íslands h.f.
Frá og með mánudeginum 18. september n.k.
verðaskrifstofurokkaropnarfrá kl. 9.00-17.00
alla daga.
VERZLUNARMANNA-
FÉLAG
REYKJAVÍKUR
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar at-
kvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur um kjör fulltrúa á 17. þing Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna.
Kjörnir verða 70 fulltrúar og jafn margir til vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Húsi versl-
unarinnar, fyrir kl. 12.00 mánudaginn 18. sept-
ember næstkomandi.
Kjörstjórnin
w
Félag
járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 18. september
1989 kl. 20.00 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál, m.a. boð til félagsmanna um
kaup á hlutabréfum í Alþýðubanka.
Endurmenntun, ýmis námskeið framundan.
Leiga á iandi undir sumarhús o.fl.
2. Kjaramál. Staðan í kjara-, verðlags- og at-
vinnumálum.
3. Önnur mál
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
AUGLYSING
Lausar stöður
heilsugæslulækna
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður
heilsugæslulækna með veitingu sem hér segir:
1. Stykkishólmur H2, önnur staða læknis frá og
með 1. febrúar 1990.
2. Flateyri H1, staða læknis frá og með 1.
nóvember 1989.
3. Húsavík H2, ein staða læknis frá 1. nóvem-
ber 1989.
4. Þórshöfn H1, staða læknis frá og með 1.
nóvember 1989.
5. Höfn Hornafirði H2, önnur staða læknis frá
og með 1. janúar 1990.
6. Vesímannaeyjar H2, ein staða læknis frá og
með 1. janúar 1990.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf, sendist ráðu-
neytinu fyrir 11. október n.k. á sérstökum eyðu-
blöðum; sem fást hjá ráðuneytinu og hjá land-
lækni. I umsóknum skal koma fram hvenær
umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að
umsækjendur hafi sérfræðileyfi í heimilislækn-
ingum.
Nánari upplýsingar um stöðurnar veita ráðu-
neytið og landlæknir.
Heilbrigðis- og
tryggingamátaráðuneytið,
12. september 1989
10 SÍÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. september 1989