Þjóðviljinn - 15.09.1989, Síða 27
KVIKMYNDIR
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
Heimur versnandi fer
Batman, sýnd í Bíóborginni/
Bíóhöllinni. Bandarísk, árgerð
1989. Leikstjóri: Tim Burton.
Framleiðendur: Jon Peters, Peter
Guber. Aðalhlutverk: Jack Nic-
holson, Michael Keaton, Kim Ba-
singer.
Jibbijjei, þá er hún komin
myndin sem allir hafa beðið eftir.
Vinsælasta kvikmynd ársins
stefnir í að verða vinsælasta kvik-
mynd allra tíma enda verða allir
að sjá bíóið sem allir hinir sjá,
eða þannig. Það er einmitt lóðið.
Fólk fer að sjá Batman af því að
hún er svo vinsæl og allir aðrir sjá
hana. Batman er alls ekki góð
kvikmynd - og reyndar ekki vond
heldur - en einhver mestu auglýs-
ingatrix kvikmyndasögunnar
hafa gert hana að einni af þeim
allra vinsælustu.
En hvernig er þá Batman? Er
hún bara leiðinleg vitleysa sem
allir ættu að forðast? Nei, eigin-
lega er Batman alveg einsog við
mátti búast, og frekar verri ef
eitthvað er. Jack Nicholson er
náttúrlega Jókerinn holdi klædd-
ur og gott betur. í kringum hann
á myndin sínar fyndnu hliðar.
Þær eru eingöngu þegar Jókerinn
er á tjaldinu en að öðru leyti er
myndin hvorki fugl né fiskur og
ekki leðurblaka heldur. Þetta
hefur Tim Burton greinilega vit-
að því Jókerinn er ekki minna á
tjaldinu en Batman sjálfur.
Hin drungalegu leiktjöld sem
skapa Gotham-borg koma heldur
ekki á óvart og þótt brellurnar
séu ágætar gerir það Batman ekki
að betri bíómynd. Það kemur
kannski einna helst á óvart hvað
myndin er slöpp þegar á heildina
er litið. Þá voru nú þættirnir alveg
jafn góðir þótt ekki væri mikið í
þá lagt.
Myndin fjallar vitanlega um
baráttu góðs og ills. Söguþráður-
inn sem slíkur er afskaplega
ómerkilegur og það kemur á
óvart að ekki skuli hafa verið
hægt að búa til skemmtilegri sögu
í kringum krossfarann sem ekk-
ert illt má sjá. Ástarsamband
hans við Vicki Vale er td. svo
innilega klisjukennt að varla
The Bear ★★★
(Björninn)
Annaud kemur vissulega nokkuö á óvart
meö þessum óð sínum til náttúrunnar en
þaö verður ekki frá honum tekið aö myndin
er listavel gerö. Falleg og rómantísk mynd
og góö skemmtun fyrir alla fjölskylduna,
sórstaklega þá sem unna óspilltu náttúru-
lífi. Aðalleikararnir fara á kostuml
Physical Evidence ★★
(Vitni verjandans)
Morösaga, réttarhöld, rómantik og has-
ar, allt í sömu myndinni en ekkert rís þó
uppúr meðalmennskunni. Hin glæsilega
Theresa Russell passar illa f hlutverk lög-
fræðingsins, og Burt Reynolds er einsog
venjulega. Útkoman þó alls ekki alvond.
A Cry in the Dark ★★★★
(Móðir fyrir rétti)
Mynd um fórnarlömb náttúrunnar og
jafnvel enn frekar fórnarlömb mannlegs
samfélags þegar þaö tekur á sig hina grim-
mustu mynd. Schepisi splæsir saman nátt-
úrunni gegn almenningi og fjölmiðlum
þannig aö úr verður einhver áhrifamesta
kvikmynd sinnar tegundar í langan tíma.
Mynd sem allir hafa gott af aö sjá.
hefði verið hægt að gera betur á
þeim nótum.
Michael Keaton leikur Batman
og er varla hægt að sjá hvort hann
gerir það nógu vel. Hann fær
aldrei tækifæri til að skapa sterka
persónu en maður einsog Bat-
man hlýtur að hafa sterka per-
sónugerð. Kim Basinger á kann-
ski ekki sök á því hvað Vicki Vale
er dæmalaust óaðlaðandi per-
sóna. Hlutverkið er bara svo inni-
lega útjaskað enda hefur það ver-
ið notað í nær öllum hetjumynd-
um Bandaríkjamanna undanfar-
in ár. Og hún er ekki einu sinni
sexí!
Gæði kvikmyndanna hafa átt
nógu erfitt með að hanga í réttu
hlutfalli við vinsældirnar framað
þessu en augljóst er að heimur
versnandi fer. Eftir þetta gætum
við séð fyrir okkur auglýsinga-
sukk stóru kvikmyndafyrirtækj-
anna vestan hafs þarsem athygl-
inni er í ríkari mæli beint að alls
kyns glingri og dóti sem á í raun
ekkert skylt við kvikmyndina
sjálfa. Þetta gerðu þeir hjá Warn-
Konur á barmi taugaáfalls ★★★
Frískur, fyndinn og skemmtilegur farsi
frá Spáni. Kvikmyndataka og leikur skapa
skemmtilega taugaveiklað andrúmsloft og
undirstrika þannig titil myndarinnar. Kon-
urnar ættu bæöi aö höfða til þeirra sem
leita eftir einfaldri afþreyingu og hinna sem
langar að sjá vel heppnaða kvikmynda-
gerð.
Babette's gæstebud ★★★★
(Gestaboð Babettu)
Þessi gómsæta mynd Gabriels Aksels
er uppgjör bókstafstrúarmanna við
fieistinguna og syndina. Stórgóð persónu-
sköpun og veislan f lokin er ógleymanleg.
Laugarásbíó
Cohen and Tate ★
(Cohen og Tate)
Roy Scheider leikur í verri kvikmyndum
meö hverju hlutverkinu. Hér er hann barn-
aræningi í heldur spennusnauðum þriller.
Hvað kemur næst?
K-9 ★
James Belushi er afskaplega þreytu-
legur í þessari slöppu gamanmynd. Hund-
urinn getur lítið gert aö því hvaö myndin er
kjánaleg, ekkert frekar en apinn sem var
meö Clint Eastwood hér um áriö. Nú bíöum
við bara eftir að sjá næstu buddy-mynd þvf
alltaf reyna þeir aö skipta um partner. Stól-
arnir voru ágætir.
Critters II 0
(Aðalrétturinn)
Ekki siöan Orson Welles gerði Citizen
Kane hefur.. nei, nei, bara aö grfnast.
Þetta er botninn á þvf. Og ég sem hélt að
fyrri myndin heföi verið þaö versta.
er bræðrum og það heppnaðist
fullkomlega.
En einu virðast þeir hafa
gleymt. Hvernig á að gera fram-
haldsmynd þegar enginn Jóker er
til staðar? Þeir kunna nú eflaust
einhver bellibrögð við svona
kjánalegum athugasemdum.
Jókerinn hefur kannski nokkur
líf, annað eins hefur nú sést á
The ‘Burbs ★★
(Geggjaðir grannar)
Ekkert sérstök mynd f neinu tilliti en
leikararnir bjarga henni fyrir horn. Tom
Hanks slær ekki feilpúst frekar en fyrri dag-
inn f þessari athugun hans og fleiri á væg-
ast sagt ófrýnilegum nágrönnum.
Bíóhöllin
Batman ★★
Vinsældir myndarinnar eru greinilega
djörfu auglýsingasukki Warner-bræðra aö
þakka fremur en kvikmyndinni sjálfri.
Myndin á sínar fyndnu hliðar þegar Jóker-
inn spriklar og sprellar en annars nær Bat-
man ekki uppí nefið á sór fyrir útjaskaöri
klisju. Basinger er ekki einu sinni sexf og
þá er nú mikið sagt.
Lethal Weapon II ★★
(Tveir á toppnum 2)
Gibson og Glover eru gott gengi og
Pesci skemmtilega óþolandi en því miöur
er myndin yfirkeyrö af ófrumlegum byssu-
bardögum og hvimleiðum hrottaskap. Ekk-
ert er þó verra en steingeldur söguþráður-
inn sem allir hafa séð áður.
Licence to Kill ★★★
(Leyfið afturkallað)
Ein besta Bond-myndin f langan tfma.
Dalton er 007 holdi klæddur og spannar allt
frá hörkutóli til sjentilmanns. Broccoli hefur
hrist, en ekki hrært, upp f Bond-ímyndinni
með góðum árangri.
The Gods Must Be Crazy II ★
(Guðirnir hljóta að vera geggjaðir
2)
Ágæti fyrri myndarinnar var einkum
tjaldinu, eða skiptir það kannski
ekki máli hvaða skýringu þeir
byggju til ef Jóker yrði með í
númer tvö? Eflaust ekki, því
auglýsingasukkið myndi gera
framhaldið enn meira spennandi
og þannig heldur sagan áfram í
henni hnignandi Hollywood-
borg. Vonandi er Indiana Jones
eitthvað betri.
snjallri og f rumlegri hugmynd að þakka. Þvi
er ekki fyrir að fara hér heldur er, einsog
alltof oft, reynt aö notfæra sér vinsældir
fyrri myndarinnar til að gera aöra eins. Á
sér sínar góðu hliðar en þær hverfa fyrir
hinum verri.
Her Alibi ★★
(Með allt í lagi)
Hreint ágætis skemmtun þarsem
klaufinn Tom Selleck líkir eftir Cary Grant
hér á árum áður. Vel er fléttað á milli hinnar
raunverulegu sogu og skáldskapar rithöf-
undarins en atriðin með Rúmenunum og
þar með talið lokaatriðið heldur hugmynd-
asnauð.
Bíóborgin
Batman ★★
Vinsældir myndarinnar eru greinilega
djörfu auglýsingasukki Warner-bræðra að
þakka fremur en kvikmyndinni sjálfri.
Myndin á sínar fyndnu hliðar þegar Jóker-
inn spriklar og sprellar en annars nær Bat-
man ekki uppí nefið á sér fyrir útjaskaðri
klisju. Basinger er ekki einu sinni sexi og
þá er nú mikið sagt.
Lethal Weapon II ★★
(Tveir á toppnum 2)
Gibson og Glover eru gott gengi og
Pesci skemmtilega óþolandi en því miður
er myndin yfirkeyrð af ófrumlegum byssu-
bardögum og hvimleiðum hrottaskap. Ekk-
ert er þó verra en steingeldur söguþráður-
inn sem allir hafa séð áður.
Forever Friends ★★
(Alltaf vinir)
Um margt ágæt lýsing á langvarandi vin-
Myndin á sínar fyndnu hliðar, en þær eru allar í kringum Jókerinn hans
Nicholsons.
" ' I
Klippiborðið
Peter Hyams (Capricorn One,
2010, The Presido) sem jafnan
er kvikmyndatökustjóri á sínum
myndum, vinnur nú að nýrri
mynd, Narrow Margin. Þetta er
endurgerð á þrusu þriller sem
Richard Fleischer gerði árið
1952. Gene Hackman leikur
saksóknara sem þarf að gæta
konu sem varð vitni að morði.
Hana leikur Anne Archer og fær-
ist hildarleikurinn frá Vancouver
til kanadísku Klettafjallanna.
Hackman hefur annars nýlokið
við The Package en Archer lék
ásamt Tom Berenger í nýjustu
mynd Alans Rudolphs, Love at
Large.
Sean Connery er væntanlegur á
tjaldið hér á landi sem faðir Indi-
ana Jones en hann hefur þegar
tekið til við önnur verkefni. John
McTiernan, sem gerði hasar-
myndina Die Hard, hefur fengið
Connery og Sam Neill til að leika í
The Hunt for Red October en því
miður veit Klippiborðið lítið meira
um myndina. Þá vill Michael Apt-
ed, sem síöast gerði Gorillas in
the Mist, fá Connery til að leika í
mynd sem kallast Class Action.
Leikari hetjunnar dr. Jones,
Harrison Ford, leikur hinsvegar í
nýjustu kvikmynd Alan Pakula en
hann gerði ágætis myndir hér í
eina tíð, einsog Klute, Parallax
View og All the President's Men.
Nýja myndin kallast Presumed
Innocent og leikur hin ægifagra
Greta Scacchi á móti Ford.
Michael Caine höfum við séð í
tveimur gamanmyndum að und-
anförnu og er von á fleiru í þeim
stíl frá kappanum. Hann hefur
þegar leikið í A Shock to the Syst-
em með Elizabeth McGovern,
Peter Riegert og Swoosie Kurtz
sem er gerð eftir skáldsögu
Simon Brétt. Síðan mun Caine
leika ásamt Roger Moore í
Bullseye, eftir Michael Winner,
og síðast en ekki síst í enn einni
útfærslunni á dr. Jekyll oq mr.
Hyde.
áttu tveggja ólíkra kvenna. Agætlega
lelkln, sérstaklega er Mldler hrlfandl I elnnl
buddy-myndinni enn. Myndin reynir hins-
vegar að segja alltof mlklð, einsog dæmi-
gerð væmin míní-sería, og veldur hún ekki
þessum miklá söguþræði.
Háskólabíó
Sherlock and Me ★★★
(Sherlock og ég)
Hárflnn breskur húmor um hlutverka-
skiþti Holmes og Watsons, en þó með fullri
virðingu fyrir sögum A. C. Doyles. Caine
hefur loks valið sér hlutverk af kostgæfni
og Kingsley er ekki verri en sem Gandhi á
sínum tima. Góð hugmynd og ágætlega
útfærð. Prýðis góð skemmtun.
Stjörnubíó
Magnús ★★★
Lang besta kvikmynd Þráins til þessa og
jafnframt í hópi betri kvikmynda sem gerð-
ar hafa verið hér á landi. Þráinn hefur náð
auknum þroska sem listamaður og byggir
mynd sina vel upþ til að byrja með en ým-
issa brotalama fer aö gæta þegar leysa á
úr vandamálum höfuðpersóna. Oft yndis-
legur gálgahúmor og Magnús er
sannkölluð skemmtimynd fyrir alla aldurs-
hópa.
Baron Múnchhausen ★★★
(Ævintýri Múnchhausen)
Ævintýri barónsins af Munchhausen
eftir lygasögum R. E. Raspe gætu varla
fengið betri meðferð en hjá fyrrum Monty
Python fólkinu undir stjórn Terry Gilliam.
Sannkölluð fantasía sem allir geta haft
gaman af, jafnt ungviðið sem kvikmynda-
fríkin. Svona eiga ævintýri að vera.
Föstudagur 15. september 1989 1 NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 27