Þjóðviljinn - 08.12.1989, Page 18
JÓLAMATURINN
List og lostœti
Jólahlað-
borð með
myndlistar-
ívafi
Eitt af því sem mörg veitinga-
hús gera fyrir jólin er að bjóða
uppá sérstakt jólahlaðborð í des-
embermánuði. Á Holiday Inn
hótelinu er tam. hlaðborð undir
heitinu List og lostæti, þarsem
sameinuð er myndlist og matar-
lyst.
Jólahlaðborðið er á boðstólum
í hádeginu og á kvöldin alla daga
vikunnar og er þar boðið uppá
jólarétti að hætti ýmissa landa.
Þar er ekki einungis hægt að gæða
sér á fjölbreyttu köldu borði
heldur má þar fá danska rifjast-
eik, sænska síldarrétti, gljáð grís-
alæri, heitt og kalt hangikjöt,
portúgalskan saltfisk í hvítlauk,
danska eplaköku, franskar jólak-
ökur, að ógleymdu laufabrauði
Matreiðslumeistarar Holiday Inn við glæsilegt jólahlaðborðið. Mynd: Kristinn.
sjálfu jólaglögginu. Það síð-
astnefnda er lagað eftir aldar-
gamalli uppskrift Wessman fjöl-
skyldunnar í Svíþjóð og er sér-
lega ljúffengt, en einnig er hægt
að fá hefðbundið glögg. Hlað-
borðið, með ótakmarkaðan að-
gang að öllum réttum, kostar
1.590 krónur en glöggið er á kr.
450 (Wessman) og kr. 350 (hefð-
bundið).
Að auki er hægt að fá sérstakt
kaffihlaðborð á eftirmiðdögum
og síðkvöldum. Þar er ma. hægt
hið gamalkunna bakkelsi „jom-
fru med slör“, heitar eplaskífur,
Napóleonsköku, kaffi og heitt
súkkulaði með rjóma.
Matarlystinni er fullnægt í
skjóli íslenskrar grafíklistar, en
hótelið stendur fyrir desember-
galleríi á vegum List Gallerís í
sömu salarkynnum. Þar sýna ell-
efu listamenn graffk og bjóða
verkin um leið til sölu. Kaupand-
inn fær þá verkið í hendurnar um
leið og hann heldur saddur heim
á leið.
GewffáS
íitu
U' ,M„wnK)ósit091löskut
KAUI STAÐUR
/fHKUGHRDUR
/ MJÓDD OG EDDUFELLI markadur wð sund vesturíbæ
ENGIHJALLA ■ MIÐVANGI
TÆWA
Af sælkera í
Þingholtunum
Frúin á Skinnastöðum hefur
víða verið og á ferðum sínum
safnað að sér hinum og þessum
uppskriftum, sem hún gleymir yf-
irleitt að skrifa niður, enda engin
ástæða til, hún fær svo miklu betri
hugmyndir sjálf um leið og hún
heyrir uppskriftina að slíkt væri
hreinasta tímasóun.
Því er það að höfundar upp-
skriftanna skilja sjaldnast neitt í
neinu þegar fyrir þá er borinn
dýrindismatur, kenndur við þá
sjálfa. Frúin fylgir nefnilega
þeirri reglu að gjalda keisaranum
það sem keisarans er og þess
vegna minnir nafn réttanna
gjarnan á þá sem upphaflega gáfu
henni hugmyndina að kræsingun-
um og það þótt viðkomandi sé
tilbúinn að gefa frá sér allt tilkall
til höfundaréttar.
Tveir eru þeir eftirréttir sem
Skinnastaðir eru frægastir fyrir
og er hugmyndin að þeim sótt til
Frakklands. Kannast Fra-
kklandsfarar sjálfsagt eitthvað
við uppistöðuna, - og nöfnin á
þessum ágætu réttum, sem báðir
gera þær kröfur til neytenda að
þeir séu við góða heilsu, ekki
mjög saddir, ekki á leiðinni neitt
næstu 2-3 tímana, og síðast en
ekki síst að þeir séu alvöru sælk-
erar.
Súkkulaðifroða
á la Skinna-
staðir
Á Skinnastöðum gengur þessi
ágæti réttur undir nafninu Mo-
usse au chocolat eða Súkkulaði-
froða og þykir tilvalinn á eftir
raunverulegri villibráð, „til að
mynda gæs“, segir Frúin en
leggur þó áherslu á að gæsin skuli
vera lynggæs en ekki grasgæs.
Froða fyrir ca 4 samanstendur af:
k eggjum
um 150 gr suðusúkkulaði
2 pelum af rjóma
ögn af sérríi eða köldu,
sterku kaffi
Súkkulaðið er brætt í vatnsbaði
og eggjarauðurnar síðan hrærðar
saman við það þegar mestur hit-
inn er farinn úr því. Síðan er kaffi
eða sérríi bætt útí. Rjómi og eg-
gjahvíta eru stífþeytt hvort í sínu
lagi. Þegar súkkulaði- og eggja-
hræran er orðin alveg köld er hún
þeytt saman við rjómann og loks
eru eggja-hvíturnar þeyttar ró-
lega saman við blönduna. Skreytt
eftir atvikum, til dæmis með kiwi
eða jarðarberjum og mjög gott
getur verið að rífa soldinn appels-
ínubörk út í froðuna.
ífea
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Laus er til umsóknar 50% staöa á skrifstofu
framkvæmdastjóra frá 1. janúar n.k.
Starfið er fólgið í tölvuskráningu og almennum
skrifstofustörfum. Vinnutími er kl. 12.00-16.00.
Umsóknir sendist til skrifstofustjóra F.S.A. fyrir
15. desember n.k.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-22100
Tilboðsverð
MÖMMU sultur
Bökunarsulta frá Búbót
Tryggir fallegan jólabakstur
Rennur ekki til