Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1995, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 1995
Útlönd
Sprenging í neðan-
jarðarlest Parísar
- tugur manna særður,
Öflug sprengja sprakk í neðanjarð-
arlest Parísarborgar um sjöleytið í
morgun. Sprengjan sprakk í göngun-
um milli lestarstöðvarinnar St. Mic-
hel, þar sem fyrsta sprengjan í röð
tilræða sprakk í sumar, og Musee
d’Orsay. Samkvæmt fyrstu fréttum
var um tugur manna særður, þar af
fjórir alvarlega.
Lögregla sagðist í morgun ekki viss
um hvort sprengingin hefði orðið
inni í lestinni eða á teinunum í
göngunum en hallaðst heldur að
hinu síðarnefnda. Fjöldi lögreglu-
manna og hjálparstarfsmanna þusti
á vettvang og var St. Michel-brúnni,
yfir Signu, lokað. Hlúð var að hinum
særðu á Musse d’Orsay lestarstöð-
Vitni um Rosemary West:
Var blíð eina stundina
en ruddaf engin hina
Vitni í réttarhöldunum gegn
Rosemary West, 41 árs móður sem
ákærð er fyrir morð á 10 ungum
stúlkum og konum, segir að hún
hafi brugðiö sér í gervi tveggja per-
sónuleika. Eina stundina hafi hún
verið blíð og skilningsrík en hina
hafi hún verið ruddafengin og klúr.
í gær lýsti vitnið, sem nefnd er
ungfrú A, því hvemig Rosemary
hafði brugðist trausti hennar og
neytt hana til að taka þátt í ofbeldis-
kenndu kynsvalh með sér og eigin-
manni sínum, Fred. Fred, sem einnig
var ákærður fyrir morðin, fannst
hengdur í fangaklefa sínum á nýárs-
dag. Ungfrú A segist hafa fundið öxl
til að gráta á þar sem Rosemary
West var en hún hafi brugðist trausti
hennar og nýtt sér hana til ógeð-
felldra kynlífsathafna.
Verjendur Rosemary segja fram-
burð ungfrú A vera uppspuna, hún
hafi þjáðst af ofskynjunum og geð-
sýki og hafi aldrei hitt Rosemary.
Ungfrú A segir hins vegar að vanda-
mál sín megi rekja til kynnanna af
West-hjónunum.
í dag hefst sá kafli réttarhaldanna
sem búist er við að hrylli kviðdóminn
einna mest, en þá verður fjallað um
meint morð Rosemary á elstu dóttur
sinni, Heather, 1987. Þá var Heather
aðeins 17 ára. Það var einmitt hvarf
Heather sem leiddi lögregluna á
sporið í einu óhuggulegasta morð-
máh í Bretlandi hin síðari ár.
Reuter
VINNINGASKRÁ
BINGÓLOTTÓ
Útdráttur þann: 14. oktábcr, 1995
61 36 39 8 6 43 54 28 72 41 58 31 760 44 192963
__________EFTIRTALIN MTOANÚMER VIWWA tnnn IfB vðRUÚTTEKT.
10070 10555 10755 11078 11553 11868 12311 12699 13003 13680 13918 14472 14852
10079 10562 10756 11105 11560 11914 12347 12747 13064 13828 14029 14583 14969
10159 10586 107% 11349 11611 12044 12397 12794 13332 13859 14056 14633
10463 10608 10851 11493 11712 12060 12611 12829 13574 13901 14298 14798
Bingáútdrittar Tvúturinn
62 45 69 1041 2 6 63 44 56 23 72 73 65 43 64 54 36 35 22
___________EFTDtTAUN MBANÚMER VINNA1000 KR. VðRDÚTTflfT
10030 10608 11052 11711 11875 12045 12536 13219 13513 14289 14635 14792 14852
10150 10633 11160 11780 11974 12087 12548 13256 13787 14330 14645 14798 14893
10202 10692 11660 11811 11985 12206 12716 13402 13960 14350 14735 14799
10209 10831 11671 11823 12010 12518 12932 13499 14071 14585 14749 14805
Bingáútdrittur, Þristurinn
66 69 71 14 20 30 3144 49 32 65 53 21 75 1068 55 7
____________EFTIRTALIN MTOANÚMER VINNA1000 KR. VflRITITTTEKT.___________
10029 10323 10448 10984 11704 11819 12468 13198 13426 13644 14185 14701 14974
10062 10339 10554 11025 11734 11889 12853 13304 13564 13768 14247 14749 14985
10070 10382 10906 11271 11750 12203 12867 13327 13593 13792 14580 14771
10095 10442 10977 11443 11760 12229 13164 13357 13621 14086 14618 14845
Lukkunúmcn Áiinn
VINNNINGAUPPHÆB 10000 KR vðRUÚTTEKT FRÁ J-IONES & VERO MODA
I 14899 13839 11832
Lukkunámer TviMurinn
__________VINNNINGAUPPHÆÐ 10000 KR VðRPÓTTEKT FRÁ NÓATÚN.__________
1 10958 14376 11162
Iuklainéuicr Þristuriun
VINNNINGAUITHÆB 10000 KR. VðRUÚTTEKT FRÁ HBD PÚNTUNABIISTA mhm
I 14335 14983 10827 '
LukkukiáBt
Rðð: 0061 Nr. 14100
BflihidM
Röð: 0062 Nr 14024
Vúmingar greiddir útfraog með þríðjudegi.
Blngáátdréttur Áiinn
þar af fj órir al varlega
inni. Von var á Jean-Louis Debre
innanríkisráðherra og Alain Juppe
forsætisráðherra á vettvang.
Grunur leikur á að íslamskir öfga-
menn frá Alsír beri ábyrgð á spreng-
inguni í lestargöngunum en þeir
stóðu að röð sprengjutilræða síðari
hluta sumars sem urðu sjö manns
að bana og særðu um 130 manns.
Lögregla yfirheyrði í morgun vitni
sem sögðust hafa séð konu stökkva
af lestinni á lestarstöð skömmu fyrir
sprenginguna, öskrandi slagorð.
íslamskir öfgamenn saka frönsk
stjórnvöld um að styðja við bakið á
herstjórninni í Alsír. Þar hafa um 40
þúsund manns farist í ógnaröld sem
hófst 1992. Reuter
Lífverðir blökkumannaleiðtogans Louis Farrakhans við tröppur þinghússins
i Washington í gær. Símamynd Reuter
Mörg hundruð þúsund blökkumenn funda í Washington:
Yf irráð hvítra verða
að líða undir lok
„Það eru ennþá tvær Ameríkur,
önnur svört, hin hvít, aðskildar og
ójafnar. Yfirráð hvíta mannsins
verða að hða undir lok ef mannkynið
á að lifa,“ sagði hinn umdehdi banda-
ríski blökkumannaleiðtogi Louis
Farrakhan frammi fyrir mörg
hundruð þúsund svörtum körlum
sem voru samankomnir í Washing-
ton í gær til að vekja athygli á stöðu
sinni.
Farrakhan, sem er leiðtogi hreyf-
ingarinnar Þjóðar íslams, leit á fund-
inn sem eins konar friðþægingu
svartra karla þar sem þeir mundu
fordæma glæpi, ííkniefnamisnotkun
og fjölskyldueijur sem hafa sundraö
blökkumannasamfélögum vestra.
„Svarti maður, þú þarft ekkert að
berja á hvíta manninum. Það eina
sem þú þarft að gera er að fara heim
og gera hverfi okkar heiðarleg og
örugg,“ sagði Farrakhan.
Lögreglan sagði að fjögur hundruð
þúsund menn hefðu tekið þátt í fund-
inum viö þinghúsið í Washington í
gær en skipuleggjendurnir höfðu sett
sér það mark að fá eina mUljón
manna. Þeir sögðu hins vegar að
hálf önnur mihjón manna hefði sótt
fundinn.
Farrakhan, sem margir telja æs-
ingamann og kynþáttahatara, hélt
rúmlega tveggja klukkustunda
þrumuræðu á fundinum og hvatti
m.a. Clinton forseta til að opna aug-
un og sagði að þjóðfélagið væri að
rifna í sundur. CUnton hafði fyrr um
daginn haldið ræðu í Texas þar sem
hann hvatti til einingar kynþátt-
anna.
„Við erum að rifna í sundur og viö
getum ekki breitt yfir það með faileg-
um ræðum, forseti góður,“ sagði
Farrakhan.
Fundurinn fór friðsamlega fram,
jafnvel friðsamlegar en flestir fjölda-
fundir í W ashington. Reuter
Stuttar fréttir
FundaðíMoskvu
Alþjóðlegir sáttasemjarar fund-
uöu um Bosníu-deUunaí Moskvu
og voru þess fullvissir að vopna-
hléið mundi halda þrátt fyrir bar-
daga í norövesturhluta landsins.
Hersveitir Bosniu-Serba kæra
sig kollóttar um vopnahléið og
loka veguro frá Sarajevo tíl griða-
svæðis SÞ í Gorazde.
Ciilerþraukarenn
Tansu Ciller.
fbrsætisráð-
:|®a!;:j:;:|!§ýrki:::
lands, bauðst í |
gær til aö leiða
starfstjórn þar
til efnt hefði
verið tU kosn-
inga í landinu
en þingheimur lýsti vantrausti á
stjóra hennar um daginn.
Njósnariskotinn
Suður-kóreskir hermenn skutu
meintan njósnara frá Norður-
Kóreu þegar hann reyndi aö
laumast yfir landamærin í frosk-
mannabúningi.
Hættaáskriðum
Franskur eldqallafræðingur
segir hættu á skriðuföllum og
risastórum flóðbyigjum af völd-
um tilraunasprenginga í Suður-
Kyrrahafl.
Bréfasprengjur
Mikiil viðbúnaðm- er nú í Aust-
urríki eftir að tveir menn særð-
ust í bréfasprengjum þar í gær
og era nýnasistar grunaðir.
Saddamvann
Saddam Hus-
sein iraksfor-
seti fékk 99,9
prósent at-
kvæða í for-
setakosningun-
um um helgina,
enda var hann I
eini frambjóö- 1
andinn. Bandaríkjamenn hafa
lýst fyrirlitningu sinni á at-
kvæðagreiðslunni.
Tókuekkiítaumana
ísraelskir ráðherrar vísa á bug
ásökunum um að þeir hafi tekið
í taumana til að milda viðbrögð
hersins við drápi níu hermanna
i Líbanon.
RoxannegrandarS
Fellibylurinn Roxaime varð
þremur sjómönnum aö bana und-
an austurströnd Mexikós í gær
og 21 manns aö minnsta kosti er
saknað.
UppþotíKenía
Ættflokkaerjur brutust út í fa-
tækrahverfi í Naíróbí, höfuðborg
Kenía, í gær og létust að minnsta
kosti fjórir í átökunum.
Mary Robinson, forseti Irlands,
útilokaði í gær að hún hefði
minnsta áhuga á starfi fram-
kvæmdastjóra SÞ en var ekki
eins ákveðin þegar talið barst að
starfi yfirmanns mannréttinda-
mála.
Kóngurískotlínu
Spænska lög-
reglan vísar því I
á bug að bask- |
nesku skæra- |
liðasamtökin
ETA hafi haft
Jóhann Karl
Spánarkonung
í sigtinu í tvær I
vikur áður en upp ura skæruliða
komst og þeir voru ltandteknir.
Graf missir spón úr aski
Þýska tenniskonan StefB Graf
varð aö sjá á bak einnar milljónar
dollara styrktarsamningi við Op-
el bílasmiðjumar vegna óreiðu í
skattamálum hennar. Reuter