Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 JjV Dagur í lífi Páls Magnússonar sjónvarpsstjóra: Meá harásperrur eftir veiáiferá Reis úr rekkju á hefðbundnum tíma - um hálfáttaleytið - en fann hins vegar strax að líkamlegt ástand var óhefðbundið. Skrokkur- inn var allur með stirðasta móti en einhvern veginn tókst mér þó að hafa mig fram úr rúminu og skakklappast fram i eldhús. Skýr- ingin: rjúpnaveiði hófst daginn áður. Á laugardeginum hafði ég ekið vestur i Dali og var búinn að reikna það út að ég þyrfti ekki að veiða nema fjórðung úr prómilli af þeim rjúpum sem fræðimenn segja að byggi landið á þessu hausti til að sjá fjölskyldu minni fyrir jólamatnum. Dreymdi flögrandi rjúpur Það var blíðskaparveður þegar komið var vestur og könnunarleið- angur um væntanlega veiðislóð gaf fögur fyrirheit. Fullur tilhlökkun- ar smokraði ég mér ofan í svefn- pokann klukkan tíu á laugardags- kvöldið - dreymdi flögrandi rjúpur í nokkra klukkutíma - og var kom- inn á fætur klukkan fimm á sunnudagsmorgun. En skjótt skip- ast veður í lofti. Nú var kominn strekkingsvindur úr norðri og lemjandi rigning, sem breyttist í snjóbyl og aftakaveður þegar kom- ið var upp í veiðilendurnar. Við létum okkur samt hafa það að berj- ast þama um fram yfir hádegi þótt varla sæi fram úr augum. Þá rann upp fyrir mér að það mætti einu gUda þótt veiðislóðin væri krakk- fuU af rjúpum - eina leiðin til að veiða þær væri ef þær gerðust svo vinsamlegar að bíða þolinmóðar þangað tU maður slysaðist til að stíga ofan á þær. Ég hunskaðist því heim - ásamt vonsviknum veiði- hundi minum, sem ekkert hafði fengið að spreyta sig og þótti harla lítið til frammistöðu húsbónda síns koma. Ég reyndi að útskýra fyrir Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verálaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu. að verömæti kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Reykjavík. 2. verálaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú Fimm breytingar? 329 e/oDV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Finnur þú fimm breytingar? 329 Þetta er gúllash og vogaðu þér ekki a segja hvað þið kölluðuð þetta í hernum. Nafn:. Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð tuttugustu og níundu getraun reyndust vera: 1. Hannes Már Hávarðsson 2. Ólöf Siguðardóttir Holtsgötu 30 Fannafold 115 900 Vestmannaeyjum 112 Reykjavík „Um margra ára skeið las ég fréttir nánast á hverju kvöldi - fyrst á Ríkissjónvarpinu og síðan á Stöð 2 - en það breytti því ekki að ég var með vægan fiðring í maganum," segir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri um endurkomu sína í „fréttasettið". DV-mynd Brynjar Gauti honum hinar erfiðu aðstæður en hann lét ekki segjast óg hengdi haus. Afrakstur ferðarinnar takmark- aðist sem sé við harðsperrur á mánudagsmorgninum. Eg taldi mér trú um að lýsi myndi hafa ein- hvers konar smyrjandi áhrif á stirðan skrokkinn - þótt það hljóti að teljast vægast sagt hæpin lífeðl- isfræði - og saup því tvöfaldan skammt ásamt tveimur glösum af appelsínusafa og vítamíntöflum sem er minn venjulegi morgun- verður. Aá mörgu aá hyggja Eftir hraðferð yfir DV var ekki lengur til setunnar boðið, - ég hafði mig til - vakti konu og barn og dreif mig síðan í vinnu. Það tóku við látlaus fundahöld fram yfir hádegi, enda að mörgu að hyggja þegar verið er að koma saman nýrri sjónvarpsstöð sem á að fara í loftið innan fárra vikna. Þar tvinnast saman dagskrármál, tæknimál, markaðsmál og svona mætti lengi fram telja. Nákvæm- lega hvað ég var að bardúsa get ég hins vegar ekki upplýst því ég verð að gera ráð fyrir því að keppinaut- arnir lesi DV eins og aðrir. Milli funda skaust ég eftir sjö ára gam- alli dóttur minni, Eddu Sif, til dag- mömmu og ók henni í skólann. Há- degismatur varð að liggja á milli hluta að þessu sinni. Síðdegis tóku við fleiri fundir og símtöl í allar áttir - innan lands og utan. Þetta var þó ekki með öllu hefð- bundinn dagur, því ég hafði fallist á að byrja að lesa fréttir á Stöð 2 og var kominn þangað um sex-leytið til að setja mig inn f hlutina. Um margra ára skeið las ég fréttir nán- ast á hverju kvöldi - fyrst á Ríkis- sjónvarpinu og síðan á Stöð 2 - en það breytti þvf ekki að ég var með vægan fiðring í maganum, enda langt síðan ég hef sett mig í þessar stellingar. Það hjálpaði þó upp á sakirnar að í „fréttasettinu" þetta kvöld voru gamlir og góðir sam- starfsmenn til margra ára: Elín Hirst, Þórir Guðmundsson og Ari Trausti - allt fólk sem ég-hafði fengið til liðs við Stöð 2 á sínum tíma. Tæknimennirnir voru sömu- leiðis gamlir kunningjar og svo vildi til að konan mín, Hildur Hilmarsdóttir, var útsendingar- sfjóri. Þetta var sem sé allt mjög heimilislegt. DNA-próf og íslend- ingasögurnar Um hálfníuleytið sótti ég Eddu Sif sem verið hafði hjá langömmu sinni í pössun og kvöldmat. „Þrenningin" kom samtímis heim klukkan að ganga tíu og hafði þá hvert um sig að haki rúmlega tólf klukkustunda vinnudag. Sú litla fór beint í rúmið en við hjónin fengum okkur rúgbrauð og síld og ræddum málin - dálítið þjökuð af samviskubiti yfir þeytingnum á dótturinni allan daginn. Gengið til náða um klukkan hálftóif. Ég er með Islendingasög- urnar á náttborðinu þessa dagana - er búinn að leggja að velli sex þeirra og er kominn vel á veg með þá sjöundu sem er Ljósvetninga- saga. Um það bil sem tugur manna hafði verið drepinn vegna deilna um faðerni ófædds barns datt ég út af. í svefnrofunum var ég að hugsa að það hefði komið sér vel ef DNA- rannsóknir hefðu verið hafnar á þessum tímum. .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.