Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 23
UV LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
23
Rúnar og Arnar í The Boys alltaf jafn vinsælir:
> Stelpurnar hringja stöðugt í þá
\
)
!
i
íslensku drengirnir Arnar og
Rúnar, sem búsettir eru í Noregi og
hafa gert garðinn frægan undir
nafninu The Boys, eru aldeilis ekki
að hætta eins og sögur segja. Þeir
voru að gefa frá sér þriðju plötu
sína fyrir stuttu og sú fjórða mun
koma út í apríl. Rúnar er fimmtán
ára en Arnar þrettán.
„Þeir hafa aldrei verið vinsælli og
stelpurnar hringja stöðugt til þeirra
en margar leggja á þegar pabbinn,
Halldór Kristinsson, svarar," segir í
nýjasta Norsk Ukeblad þar sem fjall-
að er um drengina. „Við höfum átt
kærustur en núna höfum við ekki
tíma fyrir annað en skólann og tón-
listina," segja bræðurnir sem búa
með foreldrum sínum í Skjelsvik í
Telemark. Húsið þeirra stendur ná-
lægt sjónum.
Tónlistin í kjallaranum
í kjallaranum á heimili þeirra er
sérstakt músíkherbergi þar sem
flestöllum frítíma þeirra Arnars og
Rúnars er eytt. Bræðurnir eru sam-
rýndir og þegar farnir að huga að
næstu plötu. Þeir hafa þó ekki alltaf
verið svo miklir vinir því Rúnar
upplýsir að einu sinni hafi Arnar
þurft að borða sápu eftir að hafa bit-
ið bróðurinn. „Það versta var að
hann borðaði hana alla og fannst
hún bara góð,“ segir Rúnar og hlær.
í sumar stækkaði fjölskyldan þeg-
ar hún eignaðist kanínuna Dusku.
„Við sungum í dýragarðinum í
Kristiansand og þá sá ég kanínupar
með fimm kanínubörn. Foreldrarnir
borðuðu börnin svo ég bjargaði einu
nýfæddu og fór með heim,“ segir
Arnar á meðan hann klórar litla
greyinu bak við eyrun.
Á meðan jafnaldrar strákanna
halda sig við hip hop tónlist eru þeir
Arnar og Rúnar á kafi í Everly Brot-
hers, Bítlunum og annarri gamalli
tónlist. „Þetta er tónlist sem allir
vilja hlusta á,“ segir Halldór faðir
þeirra. Sjálfur er hann að troða upp
og mun syngja í Tiggerstudenten í
Norsku óperunni í janúar. Hann
Rúnar og Arnar passa litlu kanínuna sem þeir eignuðust í sumar.
Vöggudauði:
Börn eiga ekki að
sofa í sama rúm
og mamma
- samkvæmt ráðleggingum landlæknisembættisins
í síðasta helgarblaði var þýdd grein
úr Sunday Times þar sem sagði að
breskir sérfræðingar hefðu komist að
því að hægt væri að koma í veg fyrir
vöggudauða með því að láta ungbörn
sofa uppi í rúmi hjá mæðrum sínum.
Sérfræðingar þessir benda á að vöggu-
dauði sé mjög fátíður í öðrum heims-
hlutum, svo sem í Asíu, þar sem börn
sofa hjá mæðrum sínum.
Ólafur Ólafsson iandlæknir hafði
samband við blaðið vegna þessarar
greinar og benti á að ráðleggingar sem
kæmu fram í greininni væru algjör-
lega andstæðar ráðleggingum ís-
lenskra heilbrigðisyfirvalda. Hann
bendir á að skráningu á vöggudauða
í ýmsum þróunarlöndum sé mjög
ábótavant eins og annarra slysatil-
vika.
„Ráð íslenskra heilbrigöisyfir-
valda eru studd ráðleggingum
breskra og bandarískra heilbrigðis-
yfirvalda.
Mæðrum er ráðlagt að leggja ung-
börn á hlið en ekki á magann. Þau
eiga að sofa á 'sléttum og þéttum
dýnum og hafa sæng við hæfi. Því
miður eru mörg dæmi um vöggu-
dauða ef börn eru látin sofa við hlið
móðurinnar."
Samkvæmt dreifibréfl landlækn-
isembættisins, sem sent hefur verið
til allra sjúkrastofnana á landinu, er
sérstaklega varað við að ungbörn
sofi næturlangt í sama rúmi og eldri
börn eða fullórðnir.
Canon L-500 laser faxtæki
Kr, 119.800.- m.vsk
Tceknilegar upplýsingar
125 númera skammval
30 blaða frumritamataii
Sendiminni 12 bls
Móttökuminni 12 bls'
Hægt að tengja símsvara
Prenthraði 4 bls. á mín
Hópsendingar
Tímastilltar sendingar
Aðgangslæsing
Og margt fleira
SUÐURLANDSBRAUT 6. SIMI 568 5277
í kjallaranum heima hjá bræðrunum er músíkherbergi þar sem þeir eyða öll-
um sínum frístundum.
hefur kennt sonunum og hjálpað
þeim í tónlistinni.
Framtíðin ákveðin
Arnar og Rúnar eru í sjöunda og
níunda bekk í Heistad grunnskólan-
um. Á næsta ári fer Rúnar í fram-
haldsskóla og báðir hafa þeir ákveð-
ið framtíð sina. „Mig langar að
verða arkitekt. Ég hef svo gaman af
að lita og teikna," segir Rúnar.
„Mig langar að vera lögfræðingur
og hjálpa fólki,“ segir Arnar.
Strákarnir hafa troðið víða upp í
sumar og búast við að veturinn
verði eins. Þeir hafa margt að gera
og ýmsar skemmtilegar hugmyndir
eru í gangi.
FRÁBÆRT VERÐ Á
Creda þurrkurum
5 kg. AUTODRY
Tvö hitastig. Veltir tromlunni í aðra óttina.
Hæg kæling síðustu 10 min.
Barkinn fylgir með.
3 kg. COMPACT
Tvö hitastig. Veltir tromlunni í bóðar óttir.
Hæg kæling síðustu 10 mín.
Barkinn fylgir með. Rakaskynjari.
Verið velkominn í verslun okkar - Opið laugardaga. 10-16.
RflFTfEKJflUERZLUN ÍSLflNDS 1F
Skútuvogi 1 b, 104 Reykjavík. Sími 568 8660
■■■■■RRBMHRRRMRBBaMRBRBRRaBBRBMMHBDRRRBMnaBi
Ráðstefna
um sjúkraflutninga
Rauði kross íslands heldur ráðstefnu um skipulag og fram-
kvæmd sjúkraflutninga. Ráðstefnan verður á Hótel Loftleiðum
föstudaginn 27. október næstkomandi kl. 10-16.
FRUMMÆLENDUR ERU:
Ingibjörg Pálmadóttir,
heilbrigðisráðherra
Jón Viðar Matthíasson,
aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Reykjavíkur
Magnús Hreinsson,
formaður Rauða kross deildar á Djúpavoyi
_ Dögg Pálsdóttir,
skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu
Þórir Sigurbjörnsson
fulltrúi RKÍ í Sjúkraflutningaráði landlæknis
Dr. Eelco H. Dykstra,
forstöðumaður
Evrópskrar upplýsingamiðstöðvar um sjúkraflutninga.
Jón Baldursson,
yfirlæknir á Slysadeild Borgarspítalans
Úlfar Hauksson,
formaður Heilbrigðis- og almannavarnanefndar RKÍ
Að loknum framsöguerindum verða pallborðsumræður og fyrir-
spurnir. Skráning á ráðstefnuna er hjá Rauða kross íslands í
síma 662 6722 fyrir 25. október.
Þátttaka í ráðstefnunni er án endurgjalds.
♦