Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Page 34
42
unglingaspjall
Allir í sömu kró
Oft óskar maður þess að hafa þá
eiginleika að geta skyggnst inn í
huga fólks. Ekki til að forvitnast um
- segir Hlynur Sigurðsson
eitthvað sem ekki kemur manni við
heldur til þess að leitast við að upp-
lifa hversdagsleika einhvers annars
í nokkrar mínútur eða klukku-
stundir. Það væri gaman að líta yfir
bekkinn og sjá að maður gæti
brugði^sér í allra kvikinda líki.
Hvernig ætli sé t.d. að vera þessi
rauðhærði upp við kennaraborð-
ið? Ganga beint inn í stofu, taka
upp úr töskunni, fylgja í öllu skip-
unum yfirboðarans, fá yfirgengi-
legan hjartslátt, þó ekki nema
bara við að segja , já“ þegar nafn
manns er lesið upp úr kladdan-
um. Eða kannski að vera töffar-
inn á aftasta borði. Koma helst
fimm mínútum of seint i tím-
ann, bara til þess að vekja að-
eins meiri athygli á sér, þó
ekki sé nema í þá stuttu stund
sem það tekur að ganga að borðinu
sínu, og helst að segja einhverja
hnyttna setningu á meðan, bara til
að undirstrika hvað maður er nú
svalur. Ég ætlaði nú reyndar líka að
skyggnast inn í huga „hipp-hoppar-
ans“ í víðu buxunum, síða bolnum
og með húfuna en hætti snarlega
við þegar ég heyrði í „geðveikinni"
sem hann var að spila í vasadiskó-
inu.
En allt eru þetta nú bara vanga-
veltur, aðeins ein af þeim þúsund-
um sem fljúga um huga minn dag-
lega. Ekki ætla ég þó að mynda mér
skoðun á því hver þessara mann-
gerða ég vildi helst vera og leyfi mér
því þess í stað að vorkenna kennar-
anum sem á einhvern undarlegan
hátt þarf að koma þessum ólíku per-
sónum í skilning um sama hlutinn.
Ég er að hugsa um að sleppa því að
bregða mér í heimsókn í hugar-
heim kennarans, og ætli hann lái
mér það nokkuð. Ég er svo sem
ekkert að agnúast út í kenn-
ara, þvert á móti getur mað-
ur ekki annað en dáðst að
þeirri hæfni sem þarf til að
reka ólíka sauöi, alla í
sömu kró.
En eftir svona hring-
ferð um kennslustof-
una er maður feginn
að lenda aftur í sín-
um eigin hugarheimi.
Þegar öllu er á hotninn
hvolft á maður nóg með
eigið ferðalag, svo maður
fari nú ekki að gerast
landnámsmaður í lífi
annarra.
Hlynur Sigurðsson, ritstjóri fréttablaðs í
Flensborg í Hafnarfirði, veltir fyrir sér hvort
ekki væri gaman að geta skyggnst inn í huga
annarra og upplifa þannig hversdagsleikann í
margbreytiiegri mynd í nokkrar mínútur.
DV-mynd Sveinn
in hliðin
Langar mest að hitta guð
segir Ari Matthíasson leikari
Sá sem sýnir á sér hina hliðina í
þetta skiptið er Ari Matthíasson
leikari. Ari leikur glæpamann af
verstu gerð í bíómynd Jóns
Tryggvasonar, Nei er ekkert svar,
og ennfremur leikur hann í leikrit-
inu Við borgum ekki eftir Dario Fo
sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um
þessar mundir. Ari er einn af þeim
„nýju“ leikurum sem hefur verið
að hasla sér völl á leiksviðinu og
borið hefur æ meira á undanfarið.
Fullt nafn: Ari Matthíasson.
Fæðingardagur og ár: 15. apríl
1964.
Maki: Gígja Tryggvadóttir.
Börn: Júlía, 8 ára, og Birta, 6 ára.
Bifreið: Gömul Toyota Cressida.
Starf: Leikari.
Laun: Ég er víðs ijarri þvl að kom-
ast á leynilistann.
Áhugamál: íþróttir og áfengi.
Hefur þú unnið í
happdraetti eða
lottói? Ég vann
eitt sinn koníaks-
ílösku á
þorrablóti
Leikfélagsins.
Hvað finnst þér
skemmtilegast að
gera? Lesa góða bók
og sjá góða bíómynd
eða leikrit.
Hvað finnst þér leið-
inlegast að gera? Opna
gluggapóst.
Uppáhaldsmatur:
Lambakjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Bjór.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Michael Jordan.
Uppáhaldstfmarit: KR-blaðið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefu séð fyrir utan maka? Hjú-
skaparstöðu minnar vegna neita
ég að svara þessari spurningu.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Guð, en ég óttast að það
verði djöfullinn.
Uppáhaldsleikari: Sá sem ég leik
með hverju sinni. Mér dettur í hug
Eggert Þorleifsson í Við borgum
ekki.
Uppáhaldsleikkona: Margrét Vil-
hjálmsdóttir er góð Lína.
Uppáhaldssöngvari: Ég held mest
upp á sjálfan mig þar sem ég fékk
gullplötu fyrir söng minn í Hárinu
sem ég söng reyndar aldrei í.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Dettur enginn í hug.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Simp-
sonfjölskyldan.
Uppáhaldsmatsölustaður: Holt-
ið.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Góðan reyfara eftir Elmor
Leonard.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Steinn
Ármann Magnússon.
Hvort horfir þú meira á Sjón-
varpið eða Stöð 2? Nokkuð jafnt.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Gunnar Helgason, gamall skólafé-
lagi minn.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kaffibarinn.
Uppáhaldsfélag í
íþróttum? KR.
Stefnir þú að ein-
hverju sérstöku í
framtíðinni? Ég
stefni alla leið á
toppinn.
Hvað gerðir þú í
sumarfríinu?
Fór til Krítar
og slappaði af.
■' •
fflmmmmmmmmm
Jr
Ari Matthíasson leikur
um þessar mundir í Við
borgum ekki.
DV-mynd Brynjar Gauti
mmmmmtmmmmMmsmmmmmk
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 DV
Jon Bon Jovi:
Byrjafli
snemma
stelpum
Breski rokktónlistarmaðurinn
Jon Bon Jovi getur þakkað móður
sinni fyrir snillihæfileika sína í tón-
listinni.
Mamma hans var vön að syngja
fyrir hann þegar hann var lítill og
þegar hann var sjö ára gaf hún hon-
um fyrsta gítarinn. Jon Bon Jovi
hélt að stelpurnar myndu flykkjast
að honum ef hann færi að spila á
gítar á ströndinni og ákvað því að
læra á gítar hjá nágranna sínum.
Nágranninn sagði að hann væri al-
gjörlega hæfileikalaus og Jon Bon
Jovi hætti.
Jon Bon Jovi byrjaði snemma að
vera með stelpum og hann kynntist
núverandi konunni sinni,
Dorotheu, meðan þau voru enn í
skóla. Hann var alltaf að spila með
hinum og þessum hljómsveitum og
fannst það miklu skemmtilegra en
að sitja yfir skólabókunum. Hann
var alltaf yfir sig þreyttur í skólan-
um á morgnana og fór því að ganga
með dökk gleraugu. í skólanum
lærði hann að sofa uppréttur í tím-
um.
Eftir að hafa unnið við bílaþvott
og á hamborgarastöðum og spilað
með hverri hljómsveitinni á fætur
annarri fór Jon að vinna í upptöku-
veri hjá frænda sínum. í verinu
kynntist hann frægum tónlistar-
mönnum og þar lærði hann allt sem
hann kann í sambandi við tónlist-
ina. Þegar hann gaf út fyrstu plöt-
una sína keypti hann sér bíl og
sendi foreldra sína í ferðalag til út-
landa.
Jon Bon Jovi hefur nú náð langt í
tónlistinni og miklu lengra heldur
en nágranninn sem dæmi hann
hæfileikalausan hefði getað ímynd-
að sér. Hann ætlar sér að halda
ótrauður áfram á tónlistarbrautinni
en er samt búinn að leika í fyrstu
myndinni sinni sem heitir Moon-
light and Valentino. Tónlistin skipt-
ir hann þó miklu meira máli en
leiklistin og henni hefur hann helg-
að líf sitt.
Hákon, krónprins í Noregi:
Stjórnar landinu meáan
pabbinn fer í ferðalag
Það er ekki alltaf tekið út með
sældinni að vera prins og verðandi
konungur. Hákon, krónprins í Nor-
egi, er aðeins 22ja ára en þrátt fyrir
það verður hann öðru hverju að
leysa föður sinn af i landsstjórninni
og stjórna ríkisstjórnarfundum með
gamalreyndum ráðherrum. Harald-
ur Noregskonungur og Sonja drottn-
ing eru ejnmitt þessa dagana á
ferðalagi í Bandaríkjunum og því
hefur Hákon orðið að taka sér frí
frá sjóhernum til að sinna lands-
stjórninni.
Hákon er náttúrlega vanur til-
standinu kringum konungsembætt-
ið og landsstjórnina því að hann er
alinn upp með það að markmiði að
taka við krúnunni einn góðan veð-
urdag. Hann var aðeins 18 ára þeg-
ar hann sat fyrsta ríkisstjórnar-
fundinn og var þá yngri en nokkur
krónprins fram að því. Faðir hans,
Haraldur Noregskonungur, var til
dæmis 23ja ára þegar hann sat sinn
fyrsta fund.
Hákon krónprins er í norska sjó-
hernum og deilir 7,5 fermetra káetu
með tveimur öðrum. í nýjasta hefti
Hákon, krónprins í Noregi, tekur við
landsstjórninni meðan foreldrar
hans eru á ferðalagi í Bandaríkjun-
um en hann var aðeins 18 ára þegar
hann sat sinn fyrsta ríkisstjórnar-
fund.
Cathrine Knudsen, 21 árs kærasta
Hákonar, starfar sem fyrirsæta
samhliða hagfræðinámi sínu. Hún
fer i framhaldsnám til Spánar á
næsta ári og Hákon til Bretlands
þannig að þau hafa trúlega ekki
mikinn tíma til að hittast.
Norsk Ukeblad segir að sem krón-
prins hafi hann að sjálfsögðu allt
annan bakgrunn en félagar hans á
herskipinu. Hann hlífi sér þó ekki
við vinnu, sé 100 daga á ári til sjós,
og hitti því ekki kærustuna sína,
fyrirsætuna og hagfræðinemann
Cathrine Knudsen, 21 árs, mjög oft.
Cathrine og Hákon huga bæði á
framhaldsnám erlendis. Á næsta ári
ætlar hann að halda menntun sinni
áfram á svipaðri braut og faðir hans
og afi en þeir lærðu báðir við Ox-
ford-háskóla í Bretlandi. Cathrine
fer hins vegar í framhaldsnám til
Spánar þannig að parið fær ekki
mörg tækifæri til að hittast meðan á
því námi stendur. Það væri þá helst
þegar Hákon þarf að taka við lands-
stjórninni og Cathrine getur skotist
heim til Noregs.