Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 35
JLlV LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, stendur með Monu Sahlin. Mona Sahlin, varaforsætisráðherra Svíþjóðar, á í vök að verjast vegna mis-
Símamynd Reuter notkunar á greiðslukorti í eigu ríkisins þar sem hún blandaði saman opin-
berum útgjöldum og einkaneyslu. Símamynd Reuter
Mona Sahlin, varaforsætisráðherra Svíþjóðar, óreiðupési í fjármálum:
Kann ekki fót-
um sínum forráð
43
ARMORCOST-ÖRYGGISFILMAN
er límd innan á venjulegt gler
* Breytir rúðunni i öryggisgler
(innbrot-fárvirði-jarðskjálftar)
* Sólarhiti minnkar um 75%
* Upphitun minnkar um 95%
* Eldvarnarstuðull F-15
Skemmtilegt hf.
s. 567-6777
Bildshöfða 8.
fMll n
904*1700
Verð aðeins 39,90 mín.
■VíiÆimmmm
1 [ Dagskrá
líkamsræktar
stöðvanna
r Nýtt 1
kvöldverðartilboð
20/10-26/10
Skelfiskraqú
með kryddhrísqrjónum
Rósasteiktur lambavöðvi í
qráðostahjúp með rístuðu qræn-
metioqvillibráðarsósu
Ljúffenqur kókóshnetuis
með mokkaívafi
Skjótt skipast veður í lofti. Ekki
er nema rétt rúm vika síðan Mona
Sahlin var talin ein skærasta stjarn-
an í sænskum stjórnmálum, nær ör-
ugg um að taka við af Ingvari Carls-
syni, bæði sem leiðtogi jafnaðcU--
mannaflokksins og forsætisráðherra
landsins, þegar hann lætur af emb-
ættum sínum 'á flokksþinginu í
mars á næsta ári. Þá birti sænska
blaðið Expressen frétt um að Sahlin
hefði misnotað greiðslukort ríkisins
og greitt með þvi fyrir ýmislegt sem
kom embætti hennar ekkert við.
Nú hefur Sahlin dregið sig út úr
kapphlaupinu um leiðtogastöðuna,
að minnsta kosti um sinn, og ríkis-
saksóknari hefur ákveðið að rann-
saka kortamisnotkun hennar.
Sú mynd sem dregin hefur verið
upp af Monu Sahlin undanfarna
daga er af háttsettum stjómmála-
manni sem kann ekki fótum sínum
forráð þegar persónuleg fjármál eru
annars vegar.
Sígarettur úti í sjoppu
Á tímabilinu 1990 til 1991, þegar
Mona Sahlin var atvinnumálaráð-
herra, notaði hún opinbert greiðslu-
kort sitt ellefu sinnum til einkanota,
í trássi við gildandi reglur. Með kort-
inu greiddi hún fyrir sitt lítið af
hverju, allt frá sígarettum úti í
sjoppu til sumarleyfisferðar til Evr-
ópu upp á hundrað þús. kr. íslenskar.
Allajafna hafði Mona þó hraðar
hendur þegar kom að því endur-
greiða peningana en einstaka sinn-
um liðu þó margir mánuðir. Það
kom svo líka fyrir að ríkisendur-
skoðandi þurfti að rukka hana um
greiðslu.
Aftonbladet sænska segir að í
þremur tilvikum sé ekki að finna
nein gögn um að Mona Sahlin hafi
yfirleitt verið rukkuð um peningana
sem hún notaði til eigin þarfa.
Lofar bót og betrun
Eftir að Sahlin tók við embætti
varaforsætisráðherra síðastliðið
haust hefur hún notað opinbert
greiðslukort sitt allnokkrum sinn-
um í viðbót til einkanota.
Á tímabilinu 7. nóvember 1994 til
4. desember 1994 notaði hún kortið
sex sinnum til eigin þarfa. Einu
sinni notaði hún það til að kaupa
sér föt en í hin skiptin tók hún út
reiðufé í hraðbönkum. Á reikning-
inn frá kortafyrirtækinu skrifaði
hún „til einkanota" til að sýna að
hún ætti sjálf að greiða þann hluta
reikningsins. Hún virtist því vera
sér meðvituð um að notkun ríkis-
kortsins í eigin þágu bryti gegn sett-
um reglum.
I desemberbyrjun 1994 skrifaði
Mona Sahlin orðsendingu til stjórn-
sýsluskrifstofunnar þar sem hún
sagði: „Ég er búin að fá nýtt eigið
greiðslukort og uppgötvaði að ég
hafði í staðinn notað greiðslukort
ríkisins fyrir mistök. Ég mun því
sjálf greiða allt sem kemur inn á
kortið mitt. Getið þið sent mér
reikninginn þegar hann kemur?
Núna er ég búin að leggja ríkiskort-
ið til hliðar, svo þetta kemur ekki
fyrir aftur,“ sagði Mona Sahlin í
orðsendingunni.
Enn og aftur
til einkanota
Um miðjan desember var Sahlin
beðin um að greiða sem svarar rúm-
lega 93 þúsundum íslenskra króna
fyrir hraðbankaúttektir og fatakaup
í nóvember. Greiðslufresturinn var
30 dagar. Þann 25. janúar var hún
rukkuð um tæpar tíu þúsund krón-
ur íslenskar til viðbótar vegna
hraðbankaúttektar í desemberbyrj-
un. Það var þó ekki fyrr en 6. febrú-
ar sem hún greiddi báðar kröfurnar.
Þrátt fyrir skrifleg loforð, notaði
Sahlin opinbera greiðslukortið til
eigin þarfa þann 12. apríl 1995 og
enn á ný fimm dögum síðar. Hún
skrifaði þó aftur „til einkanota" á
reikninginn frá kortafyrirtækinu.
Það varð svo að samkomulagi að út-
tektirnar í apríl skyldu dragast frá
launum hennar.
Umdeildir bílar
Saksóknaraembættið ætlar einnig
að rannsaka tvö tilfelli þar sem
Mona Sahlin leigði bU og greiddi
fyrir með opinbera greiðslukortinu,
en áhöld eru um hvort bílarnir hafi
verið til opinberra nota eða einka-
nota. í fyrra skiptið var Sahlin með
bifreið á leigu frá 1. tU 18. desember
1994 og hljóðaði reikningurinn upp
á tæplega níutíu þúsund krónur ís-
lenskar. Aftur leigði hún sér bU
þann 10. aprU í ár en skilaði honum
eftir þrjá daga. Sú leiga kostaði
rúmar tíu þúsund krónur. Og aftur
greiddi Sahlin með opinbera
greiðslukortinu.
Þann 29. september síðastliðinn
sendi stjórnsýsluskrifstofan hins
vegar Monu Sahlin reikning fyrir
bUaleigubUunum. Á þeim tíma var
sænska blaðið Expressen þegar far-
ið að rannsaka kortamisnotkun Sa-
hlin og að sögn ritstjóra þess var
mönnum vel kunnugt um það innan
stjórnkerfisins. Sahlin sjálf segist
ekki hafa haft hugmynd um rann-
sókn blaðsins þegar hún tók þá
ákvörðun að greiða sjáif fyrir bUa-
leigubílana þar sem hún hefði að
hluta til notað þá í einkaþágu.
Reikningana greiddi hún svo 10.
október síðastliðinn.
Embættismenn í stjórnkerfinu
segja að Sahlin hafi líklega haft rétt
tU þess að láta ráðuneytið greiða
fyrir leigu þessara umdeUdu bíla,
þar sem mat hennar sjálfrar um
hvort hún þurfi bílana vegi þungt.
Mona heldur stöðugt
fram sakleysi sínu
En það er óreiða víðar en í sam-
bandi við notkun opinbera greiðslu-
kortsins. Frá því á árinu 1989 hafa
ógreiddar stöðumælasektir Sahlin-
fjölskyldunnar nítján sinnum verið
sendar til fógeta. Ékki nóg með það,
heldur fengu Sahlin og eiginmaður
hennar tvisvar stöðumælaasekt á
bUinn árið 1993 þegar búið var að
banna notkun hans. Hjónin höfðu
nefnilega trassaö að koma með hann
í skoðun. Og tvisvar sinnum hefur
verið lokað fyrir einkagreiðslukort
Monu vegna gífurlegs yfirdráttar.
Mona Sahlin hefur fagnað rann-
sókn saksóknara, enda segist hún
ekki hafa brotið neitt af sér. Hún
hefur ráðið tvo lögfræðinga til að
fara með málið og munu þeir svara
öllum spurningum á meðan rann-
sóknin fer fram. Solveig Riberdahl
vararíkissaksóknari sagði á mið-
vikudag að rannsókn máls Monu Sa-
hlin mundi taka að minnsta kosti
einn mánuð. „Henni verður þó alla
vega lokið fyrir jól,“ sagði saksókn-
arinn.
Hugrökk kona,
Mona Sahlin
Samráðherrar Monu Sahlin hafa
ýmsir orðið til þess að lýsa yfir
stuðningi sínum við hana i þessum
þrengingum, nú síðast Ingvar Carls-
son forsætisráðherra á fundi með
fréttamönnum á miðvikudag. Hann
bar óspart lof á varaforsætisráð-
herrann en lögfræðilegu álitamálin
lét hann liggja milli hluta.
„Hún býr yfir mikilli þekkingu og
hún er fær, hún er sterk og hugrökk
og er mikill vinnuþjarkur," sagði
Ingvar Carlsson um Monu Sahlin.
„Ég dæmi engan án þess að hafa
kynnt mér málavöxtu. Jafnvel ráð-
herra á ekki að þurfa að þola slíka
meðferð."
Margir stjórnmálaskýrendur hafa
orðið til þess að efast um pólitíska
framtíð Monu Sahlin.
„Uppljóstranirnar í síðustu viku
eru ekki um einstaka mistök, held-
ur mynstur fjárhagslegrar van-
rækslu og dómgreindarskorts.
Hvernig á land með mikinn efna-
hagsvanda að geta veitt þeim sem
ekki er trúandi fyrir eigin greiðslu-
korti umboð til að koma efnahagslíf-
inu á réttan kjöl?“ sagði í grein í
Dagens Nyheter síðastliðinn sunnu-
dag.
Ekki er útséð meö hver tekur við
af Ingvari Carlssyni í mars, ef Mona
Sahlin er endanlega út úr myndinni.
Þau Jan Nyberg, Margareta Win-
berg og Göran Persson, sem eitt
sinn þóttu koma til álita í for-
mannsvalinu, lýstu öll yfir því á
fimmtudag að þau væru ekki í fram-
boði.
Kr. 1.995
HaGSTÆB HÁDE6ISVEKBAKT1LB0Ð ALLA VIRKA DAGA
Besta verðið á videóspólum
- og ekki á kostnað gæðanna.
Universum erþýsk gæða-
framleiðsla frá Quelle.
180 mín. á kr. 299
240 mín. á kr. 399
Spólurnar eru til i verslun okkar.
Landsbyggðarfólk ath.
Pantið nýja
Quelle haust-
og vetrarlistann
á kr. 600
og fáið spólurnar
um leið án
sérstaks
burðargjalds.
Verslun, Dalvegi 2, Kópavogi
Pöntunarsími 564 - 2000