Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Qupperneq 50
58
fólk í fréttum
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 TTT7'
Guðrún Agnarsdóttir
Guörún Agnarsdóttir, læknir og
fyrrv. alþingismaður, Lækjarási 16,
Reykjavík, var ásamt séra Pálma
Matthíassyni, oftast nefnd í skoö-
anakönnun DV er spyrjendur voru
beðnir um aö velja næsta forseta
lýðveldisins úr hópi tíu þekktra
íslendinga.
Starfsferill
Guörún fæddist í Reykjavík 2.6.
1941 og ólst þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá VÍ1961, embættisprófi
í læknisfræði frá HÍ1968 og er sér-
fræðingur í veirufræði frá 1978.
Guðrún var við nám og störf sem
læknir og fyrirlesari í Englandi
1970-81, auk þess sem hún stundaði
þarrannsóknir.
Guðrún var sérfræðingur í veiru-
fræði við Tilraunastöö HÍ í meina-
fræði á Keldum 1981-83 og í hluta-
starfi þar frá 1992, alþm. fyrir Sam-
tök um kvennalista 1983—91, er for-
stjóri Krabbameinsfélags íslands
frá 1992 í hlutastarfi ogjafnframt í
hlutastarfi sem umsjónarlæknir á
slysadeild Borgarspítalans við
neyðarmóttöku vegna nauðgunar.
Guðrún hefur setið í fjölmörgum
ráðum og nefndum, m.a. er varða
rannsóknir og heilbrigðismál.
Fjölskylda
Guðrún giftist 2.6.1966 Helga
Þresti Valdimarssyni, f. 16.9.1936,
lækni og prófessor í ónæmisfræð-
um við HI. Hann er sonur Valdi-
mars Jónssonar, sjómanns í
Reykjavík, og k.h., Filippíu Sigur-
laugar Kristjánsdóttur (Hugrúnar)
rithöfundar.
Börn Guðrúnar og Helga eru
Bima Huld, f. 15.121964, BA í ensku
og heimspeki, nú blaðakona í Lon-
don, en maður hennar er Timothy
Sebastian Perris Moore og er sonur
þeirra Kristján Helgi Swerford, f.
9.3.1994; Agnar Sturla, f. 31.71968,
við framhaldsnám í mannfræði við
Cambridge-háskóla, en kona hans
Anna Rún Atladóttir og er sonur
þeirra Atli Snorri, f. 14.12.1993;
Kristján Orri, f. 24.101971, lækna-
nemi við HI.
Systkini Guðrúnar eru Hans, f.
29.5.1945, fulltrúi hjá Könnun hf;
Elín, f. 25.5.1947, gæðastjóri hjá
Hans Petersen; Júlíus f. 22.2.1953,
framkvæmdastjóri í Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar: Agnar Guð-
mundsson, f. 6.3.1914, skipstjóri og
fyrrv. framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, ogk.h., Bima Petersen, f. 2.12.
1917, d. 27.11.1969, húsmóðir.
Ætt
Agnar er sonur Júlíusar Guð-
mundssonar, stórkaupmanns í
Reykjavík, sem var sonur Stefáns,
verslunarstjóra á Djúpavogi, bróð-
ur Stefaníu, ömmu Páls Stefáns-
son, auglýsingastjóra DV. Stefán
var sonur Guðmundar, hreppstjóra
á Torfastöðum, Stefánssonar, bróð-
ur Svanborgar, langömmu Hall-
dórs, föður Kristínar alþm. Móðir
Júlíusar var Andrea Nielsdóttir
Weywadt, verslunarstjóra á Djúpa-
vogi, og k.h., Sophie Mortensdóttur
Tvede, land- og bæjarfógeta í
Reykjavík.
Móðir Agnars var Elín Magnús-
dóttir Stephensens landshöfðingja
Magnússonar Stephensen, sýslu-
manns í Vatnsdal, Stefánssonar
Stephensens, amtmanns á Hvítár-
völlum, Ólafssonar, stiftamtmanns
í Viðey, Stefánssonar, ættfóður
Stephensensættarinnar. Móðir
Elínar var Elín Jónasdóttir Thorst-
ensen, sýslumanns á Eskifirði,
Jónssonar landlæknis Þorsteins-
sonar. Móðir Jónasar var Elín
Stephensen, systir Magnúsar í
Vatnsdal. Móðir Elínar Thorstens-
en var Þórdís Pálsdóttir Melsteðs,
amtmanns í Stykkishólmi, og Önnu
Stefánsdóttur, amtmanns á Möðm-
völlum, Þórarinssonar, ættföður
Thorarensenanna Jónssonar.
Birna er dóttir Hans Petersens,
kaupmanns í Reykjavík, sonar
Adolfs Petersens, verslunarmanns
í Keflavík, og k.h., Maríu, systur
Mettu Kristínar, móður Ólafs, próf-
asts í Hjarðarholti, afa Ólafs Ólafs-
sonar landlæknis og Ólafs Björns-
Guðrún Agnarsdóttir.
sonar próféssors og langafa Þor-
steins heimspekings, Vilmundar
ráðherra og Þorvalds prófessors
Gylfasona. María var dóttir Ólafs,
hreppstjóra í Hafnarfirði, Þor-
valdssonar.
Móðir Birnu var Guðrún Jóns-
dóttir, b. á Brún, Hannessonar af
Guðlaugsstaðaætt, bróður Guð-
mundar læknaprófessors og Páls á
Guðlaugsstöðum, föður Björns, al-
þingismanns á Löngumýri. Páll var
afi Páls Péturssonar félagsmála-
ráðherra og Más dómstjóra. Móðir
Guðrúnar var Sigurbjörg, hálfsyst-
ir Þorgríms, afa Valborgar skóla-
sfjóra, móður Stefáns heimspek-
ings, Sigurðar hagfræðings og Sig-
ríðar sendiherra Snævarr.
afmæli
Gunnlaugur Pálmi Steindórsson
Gunnlaugur Pálmi Steindórsson
forstjóri, Bólstaðarhlíð 54, Reykja-
vík, veröur sjötugur á morgun.
Starfsferill
Gunnlaugur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann stundaði
iðnnám í járnsmíði 1942-46, vél-
stjóranám við Vélskólann í Reykja-
vík 1947-50 og lauk þaðan námi sem
vélfræðingur.
Gunnlaugur var vélstjóri á togur-
um og farskipum á árunum 1947-53
og við írafossstöð 1953-55.
Gunnlaugur stofnaði Vélsmiðj-
una Dynjandi sf. 1954 og Dynjandi
hf., innflutnings- og heildverslun,
1986 og hefur verið framkvæmda-
stjóri þeirra síðan.
Gunnlaugur hefur setið í stjórn
ýmissa samtaka á vegum málmiðn-
aðarins á árunum 1965-86. Þá hefur
hann starfað í Oddfellow-reglunni
í fjörutíu ár.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnlaugs er Guörún
Haraldsdóttir, f. 23.5.1928, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Haralds Jónsson-
ar, skipstjóra og útgeröarmanns í
Gróttu á Seltjarnarnesi, og k.h.,
Ástu Þorvarðardóttur húsmóður.
Sonur Gunnlaugs og Guðrúnar
er Steindór, f. 11.10.1961, fram-
kvæmdastjóri Dynjandi hf., búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Hrefnu
Njálsdóttur og eru börn þeirra
Bryndís Dögg, f. 22.9.1986, og
GunnlaugurEgill, f. 19.5.1994)
Systir Gunnlaugs er Anna Sofiia
Steindórsdóttir, f. 4.1.1923, ekkja
eftir Pál Sigurðsson, verkfræðing
og rafmagnseftirlitsmanns ríkis-
ins, og eru synir þeirra Sigurður,
lyfja- og matvælafræðingur, og
Gunnlaugur Þór, kvikmyndagerð-
ar- og sjónvarpsmaður.
Foreldrar Gunnlaugs voru
Steindór Gunnlaugsson, f. 25.9.
1889, d. 17.3.1971, lögfræðingur í
Reykjavík og sýslumaður, og
Bryndís Pálmadóttir, f. 1.3.1897, d.
4.1.1988, húsmóðir.
Ætt
Steindór var sonur Gunnlaugs,
hreppstjóra og dbrm. á Kiðjabergi
í Grímsnesi, Þorsteinssonar, sýslu-
manns á Ketilsstöðum, Jónssonar
Johnsen, umboðsmanns og sýslu-
manns í Stóra-Ármóti, Jónssonar,
sýslumanns á Móeiðarhvoli, Jóns-
sonar. Móðir Jóns Johnsens var
Sigríður Þorsteinsdóttir. Móðir
Þorsteins sýslumanns var Halla
Magnúsdóttir, b. í Skálholtshrauni,
Jónssonar og Margrétar Vigfús-
dóttur. Móðir Gunnlaugs var Ingi-
björg Gunnlaugsdóttir, dómkirkju-
prests í Reykjavík, Oddssonar og
Þórunnar Bjömsdóttur.
Móðir Steindórs var Soffia Skúla-
dóttir, prófasts og matráðsmanns á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, Gísla-
sonar, prests á Gilsbakka, Gísla-
sonar, b. á Enni í Refasveit, Ara-
sonar. Móðir Skúla var Ragnheiður
Vigfúsdóttir, sýslumanns á Hlíðar-
enda, Þórarinssonar. Móðir Soffíu
var Guörún Þorsteinsdóttir, prests
í Reykholti, Helgasonar, konrekt-
ors á Móeiðarhvoli, Sigurðssonar.
Móðir Þorsteins var Ragnheiður
Jónsdóttir, systir Jóns Johnsens.
Móöir Guðrúnar á Breiðabólstað
var Sigríður Pálsdóttir, sýslu-
manns á Hallfreðarstöðum, Guð-
mundssonar.
Bryndís var dóttir Pálma, prests
á Felli í Sléttuhlíð, Þóroddssoanr,
b. á Skeggjastjöðum, Magnússonar,
b. á Eyvindarstöðum á Álftanesi,
Gestssonar. Móðir Pálma var Anna
Guðbrandsdóttir, b. og skipasmiðs
í Kothúsum í Garði, Þórðarsonar.
Móðir Bryndísar var Anna Hólm-
Gunnlaugur Pálmi Steindórsson.
fríður Jónsdóttir, prófasts í
Glaumbæ, Hallssonar, í Geldinga-
holti, Ásgrímssonar. Móðir Jóns
var María Ólafsdóttir, prests á
Kvíabakka, Jónssonar.
Gunnlaugur og Guörún taka á
móti gestum í Oddfellowhúsinu viö
Vonarstræti á morgun, sunnudag-
inn 22.10., frá hádegi, milli kl. 12.00
og 15.00.
Til hamingju með afmælið 21. október
95 ára
Sundstræti 25, ísafirði.
Magnús Magnússon,
Fossvogsbletti 13, Reykjavík.
ÞorvarðurÞórðarson, ,
Engjavegi75, Selfossi. 60 dtð
Gísli Þór Þorbergsson
90 ára
Bárður ísieifsson,
Hólmgarði 50, Reykjavík.
85 ára
Aðalheiður Klemensdóttir,
Holtsgötu 31, Reykjavík.
Sigríður Pétursdóttir,
Nönnugötu 8, Reykjavík.
80ára
Bryndis Bolladóttir,
Stóra-Hamri II, Eyjafjarðarsveit.
Hlín Stefánsdóttir,
Munkaþverárstræti 22, Akureyn
75 ára
Pálmfríður Bergmann,
Heiðarvegi 12, Keflavík.
Ernst Fridolf Backman,
Markarflöt 5, Garðabæ.
70ára
Helga Rögnvaldsdóttir,
Guðmundur Steinþórsson,
Ytri-Lambhaga, Mýrahreppi.
Kristinn Sigurpáll Kristjánsson,
Ásabyggð 16, Akureyri.
Guðjón Axeisson,
Ystaseli 35, Reykjavík.
50ára
Ragnheiður Ólafsdóttir,
Hesthömrum 12, Reykjavík.
40ára
Margrét Karlsdóttir,
Þverási 41, Reykjavík.
Jón Saevar Grétarsson,
Móasíðu 9D, Akureyri.
Jón Hilmar Sigþórsson,
Drekavogi 20, Reykjavík.
Þorsteinn Friðþjófsson,
Goheimum 11, Reykjavík.
Heigi Sigurðsson,
Silfurteigi 5, Reykjavík.
Bergljót Þorsteinsdóttir,
Veghúsum 29, Reykjavík.
Jóhann Sigurður Þorsteinsson,
Kópavogsbraut 12, Kópavogi.
Gísli Þór Þorbergsson, bílstjóri og
framkvæmdastjóri, Fjarðarási 12,
Reykjavík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Ólafsfirði og ólst
þar upp að Hreppsendaá. Hann
stundaði barnaskólanám á Ólafs-
firði og lauk þar gagnfræðaprófi,
flutti til Reykjavíkur 1964 og stund-
aði þar nám í múrverki, lauk
sveinsprófi 1970 og er meistari í
þeirra iðngrein frá 1977. Gísh vann
við múrverk til 1986 en gerðist þá
sendibílstjóri og starfar við það enn
í dag. Þá starfrækir hann eigið fyr-
irtæki, Dúndra hf„ sem starfrækir
Dúndur-veislusalinn og diskótek.
Gísli starfaði í Kiwanisklúbbnum
Geysi í Mosfellsbæ 1979-91, sat í
stjóm klúbbsins 1980-88, var for-
seti hans 1986-87, sat í stjórn Nýju
sendibílastöðvarinnar 1994-95 og
hefur starfað í Ólafsfirðingafélag-
inu í Reykjavík frá stofnun þess
1989.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 15.6.1968 Margréti
Bogadóttur, f. 9.11.1948, starfs-
stúlku við leiksskóla. Hún er dóttir
Boga Sigurðssonar, kennara og
fyrrv. framkvæmdastjóra Sumar-
gjafar, ogÁlfheiðar Bjarnadóttur
húsmóður.
Fósturforeldrar Margrétar eru
Ágúst Filippusson, fyrrv. húsvörð-
ur við Árbæjarskóla, og Svava
Bjamadóttir húsmóðir.
Börn Gísla og Margrétar eru Álf-
heiöur, f. 13.11.1968, húsmóðir í
Vík í Mýrdal, gift Arnari Þór Reyn-
issyni matreiðslumanni og er son-
ur þeirra Ásgeir Már; Herdís, f.
12.9.1970, háskólanemi í Reykjavík,
en hennar maður er Vilhelm S. Sig-
urðsson, kennari við MR, og er
dóttir þeirra Hrafnhildur; Þorberg-
ur, f. 1.3.1974, háskólanemi í for-
eldrahúsum; Svanborg, f. 6.4.1978,
nemi viö MH, í foreldrahúsum.
Systkini Gísla eru Hartmann, f.
9.3.1935, d. 31.5.1981, starfsmaður
Pósts og síma í Reykjavík; Valgerö-
ur Óla, f. 18.4.1936, starfsmaður við
leikskóla, búsett í Hafnarfirði;
Guðlaug Hólmfríður, f. 1.3.1939,
sjúkraliði í Kópavogi; Bryndís, f.
7.6.1941, d. 8.9.1973, var búsett í
Sauðárkróki; Anna Gréta, f. 1.5.
1944, búsett á Akranesi, starfsmað-
ur hjá íslenskum aðalverktökum í
Hvalfirði.
Foreldrar Gísla voru Þorbergur
Gísli Þór Þorbergsson.
Gíslason, f. 5.5.1907, d. 14.5.1991,
verkamaöur á Ólafsfirði, og k.h.,
Kristín Soffia Magnúsdóttir, f. 8.3.
1910, d. 30.9.1980.
Fósturforeldrar Gísla voru Guð-
jón Jónsson, f. 18.7.1890, d. 16.10.
1964, bóndi að Hreppsendaá, og
k.h., Herdís Sigurjónsdóttir, f. 2.5.
1893, d. 27.10.1987, húsfreyja.
Gísli tekur á móti gestum í Dúnd-
ur-salnum, Dugguvogi 12, í kvöld
frákl. 20.00.