Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Sex manna flölskylda býr í einu hættulegasta húsi landsins
Losna ekki ur verðlausu husi
á eldrauðu svæði í Hnífsdal
- aö heiman vegna snjóflóöahættu í þrjá mánuöi síðasta vetur
Frá Hnífsdal þar sem Hjörtur Ágúst Helgason býr ásamt konu sinni og fjórum börnum. Hús fjölskyldunnar er
verðiaust þar sem það er á hættusvæði vegna snjóflóða. Þau hafa enn ekki fengið svör um það hvort og hvenær
hús þeirra verði keypt upp. Þau fá ekki annað húsnæði á svæðinu og verða því að búa í húsi sínu þar til úrlausnir
fást. DV-mynd MÓ
„Ef það fer að fenna eitthvað að
ráði og veður að versna að ráði
verðum við rekin úr húsinu. Þá höf-
um við ekkert víst húsaskjól. Síð-
asta vetur urðum við, sex manna
fjöiskylda, að hafast við í flatsæng í
stofunni hjá móður minni í einn
mánuð,“ segir Hjörtur Ágúst Helga-
son, húsasmíðameistari í Hnífsdal, í
samtali við DV.
Hann býr með fjölskyldu sinni í
húsinu númer fimm við Fitjateig.
Það er á hættusvæði vegna snjó-
flóða - eiginlega eldrauðu svæði -
og telst eitt hættulegasta hús lands-
ins. í þrjá mánuði á síðasta vetri
mátti íjölskyldan ekki búa í húsinu
vegna snjóflóðahættunnar.
„Við höfum leitað eftir húsnæði á
öruggari stað en það gengur ekkert
að finna íbúð sem er nógu stór fyr-
ir fjölskylduna. Húsið sjálft er óselj-
anlegt með öllu og þarf ekki einu
sinni að hugsa til þess að koma því
í verð;“ segir Hjörtur.
Kaupir ekki fyrir loforð fé-
lagsmálaráðherra
Ibúarnir í götunni eru flestir
farnir. Nú er þar búið í tveimur
húsum af sex og mestar líkur á að
Hjörtur og hans fólk verði þar einn
eftir í vetur. Ríkisstjórnin hefur gef-
ið fyrirheit um að kaupa upp hús
þar sem snjóflóðavamir eru óvið-
ráðanlegar sökum kostnaðar. Svo
er um húsin við Fitjateig í Hnífsdal
en samt hefur enn ekkert bólað á
efndum frá ríkisvaldinu um að
kaupa húsin.
„Ég legg ekki í að festa mér nýtt
hús meðan ekkert er vitað um hvé
mikið fæst fyrir gamla húsið og
ekki heldur hvenær af kaupum rík-
isins gæti orðið. Ég veit um fólk
sem hefur keypt með von um að
þessi loforð skili sér en ég geri það
ekki,“ sagði Hjörtm-.
Hjörtur flutti inn í hús sitt árið
1980 og þá var það talið utan hættu-
svæða. Hættulínan var dregin í
hliðinni alllangt fyrir ofan húsið og
var ætlunin að byggja fleiri hús enn
ofar. Húsið stóð í nýju hverfi og
skipulag þar var samþykkt af öllum
viðkomandi aðilum.
Síðan féll snjóflóð úr hlíðinni - í
svokölluðu Búðagili - árið 1984 og
eftir það var fariö að tala um að göt-
umar Fitjateigur og Smárateigur
væra á hættusvæði. Gamlir menn
minntust þess að flóð hefðu oft fall-
ið á þessum slóðum á árum áður og
verðið á húsinu féll.
Hættulína út í hött
Eftir 1990 segir Hjörtur að húsið
hafi verið orðið illseljanlegt og eftir
flóðin í Súðavík og á Flateyri er
tómt mál að tala um sölu. Þetta er
hættulegasta hverfi á landinu.
„Ég veit ekki eftir hverju var far-
ið þegar hættulínan var dregin á
sínum tíma. Hún var einfaldlega út
í hött en húsið stendur þarna og
verður ekki fært. Vandinn er að
finna nýtt húsnæði og virðist ekki
ætla að ganga þrautalaust," segir
Hjörtur.
Hann segir að börnunum líði illa
að búa við þessar aðstæður. Þau
spyrji oft hvort þau geti ekki flutt
bráðum og hvort jólin verði haldin
í öðru húsi.
„Börnin era óróleg og við það
verða aðrir í fjölskyldunni líka óró-
legir. Þetta er óþolandi bið og enga
úrlausn að sjá enn. Bæjarstjórinn
hefur brugðist vel við óskum okkar
og barist mikið í þessu þótt það hafi
ekki dugað enn,“ segir Hjörtur.
-GK
Dagfari
Rekinn úr Rotary
Menn hafa löngum velt því fyrir
sér hvers vegna Davíð Oddsson
umtumast jafnan ef minnst er á að
íslendingar eigi að kanna aðild að
Evrópusambandinu. Þetta hefur
ekki síst vakiö athygli vegna þess
'að Davíð lætur fátt koma sér úr
jafnvægi eftir að hann gerðist
landsfaðir að atvinnu og kemur
fram sem maður sátta og samlynd-
is. En ef minnst er á EB verður
Davíð alltaf hinn versti og vandar
þeim ekki kveðjumar sem hafa
uppi slíkt tal. Þessi ofurviðkvæmni
hefur verið mönnum ráðgáta allt
til þessa. Nú er gátan hins vegar
ráöin. Útvarpið birti á laugardags-
kvöldið glefsur úr ræðu sem Davíð
hélt á fundi sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Þar var hann enn að
skammast út í Evrópusinna og sér-
staklega sárnaði honum að jafnvel
fólk úr hans eigin flokki vill taka
málið á dagskrá. En svo kom skýr-
ingin á þessu rótgróna hatri á Evr-
ópusambandinu: Davíð var rekinn
úr Rotary.
„Ég var rekinn úr Rotary og ef
ég á eftir að skrifa ævisögu mína
þá mun hún heita: Rekinn úr Rot-
ary,“ sagði forsætisráðherra og
þessar upplýsingar komu sem köld
vatnsgusa yfir fundarmenn. Davíð
sagðist hafa verið rekinn úr Rotary
af því að klúbburinn hefði ætlast
til þess að hann færi eftir reglum
klúbbsins en ekki að hann setti
Rotary reglur. Þá upplýsti Davíð að
hann væri ekki frímúrari og brátt
kom skýringin á því. Hann hafði
komist á snoðir um að ef hann
gengi í frímúráraregluna yrði
hann að sæta þeim reglum sem þar
giltu. Reglan ætlaði ekki að laga
sig að reglum sem Davíð setti. Þeg-
ar hér var komið sögu fóra frímúr-
arar í hópi fundarmanna að ókyrr-
ast, enda umræðuefnið viðkvæmt
fyrir marga. Davíð sagði að þetta
væri alveg eins í EB. Ef við ætluð-
um að ganga í bandalagið yrðum
við að fara eftir reglum þess en
ekki að setja því reglur. Því kæmi
ekki til greina að ganga í slíkan fé-
lagsskap. Og fyrst Davíð vill ekki
ganga í félög sem hafa eigin reglur
skal þjóðin ekki láta sig dreyma
um að kanna aðild að EB. Eða eins
og amma mín sáluga var vön að
segja: Ein þjóð. Einn foringi. Vegna
þess að Davíð var rekinn úr Rotary
verður ekkert af því að við göngum
í Evrópuklúbinn.
Nú kom það ekki fram í þeim
glefsum sem útvarpið birti úr ræð-
unni hvers vegna Davíð var rekinn
úr Rotary með þeim afleiðingum
að útilokað er að við sækjum um
aðild að EB. Dagfari hefur alltaf
staöið í þeirri trú að menn væru í
Rotary til að vera góðir við sjálfa
sig og aöra. Kæmu saman til snæð-
ings og rabbfunda. Héldu jólaböll
og árshátíðir og skemmtikvöld og
spiluðu jafnvel bingó með börnun-
um. Það kemur því á óvart að
heyra að þarna ríkir eitthvert
kommisaraveldi. Það er bersýni-
lega ekki allt sem sýnist þegar Rot-
ary er annars vegar svo ekki sé
minnst á reglu frímúrara. Allt er
þetta mál hið dularfyllsta og meðan
ekki er upplýst hvers vegna Davíð
var rekinn úr Rotary ber að gjalda
varhug við þessum félagsskap.
Klúbburinn hlýtur að hafa krafist
þess að félagsmenn fengjú sameig-
inlegan aðgang að eignum Davíðs
og fengju að ganga í ísskápinn
hans að vild.
1 ræðu Davíðs um Rotary, frí-
múrara og Evrópubandalagið var
lítið minnst á Sjálfstæðisflokkinn
nema hvað formaðurinn hnýtti í þá
flokksmenn sem léðu máls á að
ganga í klúbbinn í Brassel. Það má
kannski skilja þetta sem hótun um
að þeir verði reknir úr Sjálfstæðis-
flokknum. Hins vegar þarf Davið
ekki að óttast brottrekstur úr
flokknum. Þar þarf hann ekki
sætta sig við neinar reglur. Aftur á
móti verður flokkurinn að laga sig
að reglum Davíðs, öfugt við það
sem gildir í Rotary. Það verður að
ætlast til þess að þeir sjálfstæðis-
menn sem eru í Rotary sýni for-
ingja sínu hollustu og láti reka sig
úr þessum félagsskap. Og hvað
ætla flokksbundnir frímúrarar að
gera?
Dagfari
Tyco Matchbox bílar og bílabrautir þvottastöðvar,
brotajárnstöðvar, kappakstursbrautir og mótorhjól
bruna inn í búðirnar núna
F NG ö R
UNI N
Heildverslunin BJARKEY S: 567 4151