Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 Fréttir Skýrsla um frísvæði á Suðurnesjum: Mjög óánægður með við- brögð utanrikisráðherra - segir Kristján Pálsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins Ægir Már Kárason, DV, Suðnrnesjum: „Mér flnnast viðbrögð utanríkis- ráðherra vera ótrúlega þvergirð- ingsleg. Það hljóta að koma upp í huga efasemdir um raunveruleg heilindi manna að koma fleiri at- vinnutækifærum á koppinn, sem sárlega vantar, eins og Framsóknar- flokkurinn hefur beinlínis lofað. 12 þúsund störf fyrir aldamót, eru þá þetta innantóm orð Framsóknar- flokksins? Ég er mjög óánægður með viðbrögð utanríkisráðherra sem eru úr öllum takti við þann ásetning rikisstjórnarinnar að auka atvinnumöguleika í landinu," segir Kristján Pálsson, alþingismaður og einn nefndarmanna sem unnu að gerð skýrslunnar um fríiðnaðar- svæði á Suðumesjum sem nefiidin hefur lagt til að verði gerð tilraun með á Suðumesjum. í skýrslunni er gert ráð fyrir 3-5 erlendum fyrirtækjum á Suðurnesj- um á ári og á 5 ára tímabili verði 200 ný störf sem mundu skapast á Suðurnesjum. Kristján segir að nýbúið sé að undirrita skýrsluna af háifu nefnd- armanna. Svo virðist sem utanríkis- ráðherra og fieiri ætli að blása mál- ið af. Til þess bendi yfirlýsingar í fjölmiðlum. Kristján segir að ráð- herra vilji ekki reyna það með Suð- umesjamönnum aö stofna þar frís- væði og fyrirtæki í ljósi þess að það vanti sárlega störf. Þessi aðferð hafi gengið annars staðar í heiminum. Það sé ekki verið að ganga á auð- lindir landsins, fyrst og fremst að nýta menntun fólksins og mannauö- inn. „Samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum gefa frísvæði betri laun en fyrirtæki utan þeirra.“ í skýrslu nefndarinnar, sem hefur verið að störfum í 3 ár, er ekki talað um afgirt svæði. Fyrirtækin geta verið hvar sem er, í hvaða lausa hús- næði sem er á Suðurnesjum. Þau hafa sérstök skattakjör og eftirlitið væri í formi innflutnings og útflutn- ingsskýrslna. Þá yrðu óundirbúnar heimsóknir í fýrirtækin þegar skattaeftirlitsmönnum sýndist. Krist- ján segir að þetta yrði sambærilegt og í öðram löndum m.a. á írlandi. Ekki sé verið að leggja út í mikinn stofnkostnað fyrir fram. Kristján seg- ir þetta vera sambærilega aðferð við að ná inn fyrirtækjum til landsins og byggða á svipuðum forsendum og stækkun álversins í Straumsvík, bjóða erlendum aðilum betri kjör ef þeir koma til íslands. Kristján segir að vitað sé um fyrirtæki sem hafa beðið eftir því að komast inn á frís- væði á íslandi ef það væri stofnað en ekki hafi orðið af því vegria tregðu íslenskra sfjómvalda. „Frísvæði gætu verið hvar sem er á landinu ef tilraunin myndi ganga upp á Suðurnesjum. Ég mun vinna að því í gegnum Alþingi að þessari tilraun verði komið í framkvæmd. Ég hef mikla trú á henni og vil reyna hana. Þetta er hugmynd sem hefur gengið annars staðar í heim- inum,“ segir Kristján Pálsson al- þingismaður. Utanríkisráðherra: Urelt að hafa atvinnulífið I girðingum „Ég er þeirrar skoðunar að það þurfi fyrst og fremst að vera góð al- menn skilyrði fyrir atvinnuvegina í landinu. Það er úreltur hugsunar- háttur að hugsa sér atvinnulífið inn- an einhverra girðinga. Menn geta kallað það þvergirðingshátt eða hvað sem er mín vegna,“ segir Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra um gagnrýni Kristjáns Pálssonar, alþingismanns og fulltrúa í nefnd um fríiðnaðarsvæði á Suðurnesjum. Halldór segist ekki vita til þess að nefndin hafi sent mér skýrsluna, sér finnist það sérkennilegt að skýrslan sé send víða án þess að koma á borð utanríkisráðherra. Hann vilji gjarn- an bíða með frekari viðbrögð þang- að til hann hafi séð skýrsluna. En hefur verið reynt að sópa málinu út af borðinu, eins og Kristján heldur fram? „Ég hef ekki verið að rannsaka þetta mál árum saman. Það hafa þeir sem eru í þessari nefnd. Ég veit ekki af hverju þetta hefur tekið svona voðalega langan tíma hjá þeim,“ segir Halldór. -GHS Samningur um Sjúkrahús Suðurnesja: Suðurnesjamenn reiðir ráðherrum Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: „Það kom fram í viðtali hjá fjár- málaráðherra að hann styddi tillögur heilbrigðisráðherra um verulegar breytingar á byggingu D-álmunnar. Við áttum síðan fund með þingmönn- um kjördæmisins og málið er í þeirra höndum nú. Við treystum því að staðið verði við þann samning sem hefur verið undirritaður," sagði Guðjón Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Suðumesjum, eftir fund sem stjóm sambandsins átti með Friðriki Sophussyni fjármálaráðherra. Sveitarstjómarmenn á Suðurnesj- um eru æfir yfir viðbrögðum Frið- riks um byggingu D-álmu við sjúkra- hús Suðumesja í Keflavík. Sam- kvæmt heimildum DV gerði Friðrik ekki mikið úr samningnum sem var undirritaður í april í ár. Hann var meðal þeirra sem skrifuðu undir. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra vill gera breytingar á bygg- ingu D-álmu en Suðurnesjamenn vilja hvergi hvika frá þeim samningi sem hefur verið undirritaður. Nær öruggt er að málið muni koma til kasta Alþingis. Guðmundur Árni Stefánsson þingmaður sagði nýlega á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að þegar málið kæmi til kasta Alþingis væri hægt að sjá hvaða þingmenn styddu samninginn. Hann vill að staðið verði við samn- inginn. Leiðrétting: Einar K. er andstæð- ingur kvótakerfisins í frásögn DV af umræðum á Al- þingi um veiðileyfagjald var sagt að Einar K. Guðfinnsson, 1. þingmaður Vestfjarðakjördæmis, vildi óbreytta fiskveiðistjómun. Þetta er rangt og er Einar beðinn afsökunar á þessu. Hann er löngu kunnur sem and- stæðingur núverandi kvótakerfis. Það sem þarna misritaðist var að Einar lýsti sig andstæðing þess að taka upp veiðileyfagjald, hvað það varðar vildi hann hafa ástandið óbreytt. -S.dór Kristján Pálsson alþingismaður er einn þeirra sem unnu skýrslu um frísvæði á Suðurnesjum. Hann segir viðbrögð Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra vera ótrúlega þvergirðingsleg og úr takti við þann ásetning ríkisstjórnar- innar að fjölga atvinnutækifærum. DV-mynd Ægir Már Flugfélagið Ernir hf. hættir rekstri á Vestfjörðum eftir 25 ára starf: „Akaflega sárt“ - segir Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafirði: „Mér finnst þetta ákaflega sárt. Með sjúkraflugi sínu hefur Hörður Guðmundsson og Flugfélagið Emir verið okkur mikil hjálparhella. Ég var að vona að til þessarar ákvörð- unar þyrfti ekki að koma. Þetta er ekki aðeins slæmt fyrir okkur sem störfum á sjúkrahúsinu, heldur er þetta einnig missir fyrir bæjarfélag- ið,“ segir Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði og formaður bæjarráðs ísa- fjarðar, um þá ákvörðun Flugfélags- ins Emis hf. á ísafirði að hætta rekstri á Vestfjörðum. Þorsteinn tel- ur að sjúkraflugvélar úr Reykjavík komi Vestfirðingum ekki að sama gagni. „Það segir sig sjálft. Ég veit að þeir verða aldrei eins fljótir til með sjúkraflug úr Reykjavík. í fyrsta lagi eru þeir klukkutíma á leiðinni að sunnan og í öðru lagi er ég sannfærð- ur um að þeir verða aldrei eins fljót- ir og Hörður að manna vélarnar," segir Þorsteinn Jóhannesson. „Það er mjög slæmt ef Flugfélagið Ernir gerir alvöra úr því að hætta rekstri hér fyrir vestan,“ segir Gísli Ólafsson, bæjarstjóri í Vesturbyggð. „Félagið hefur haldið uppi mjög góðri þjónustu á Vestfjörðum. Jafn- framt hefur það verið gífurlega mik- ið öryggistæki fyrir alla Vestfirðinga eins og ótal sinnum hefur sannast og ekki síst hérna hjá okkur. Ég sé ekki fyrir mér að hægt verði að fylla þetta skarð á næstunni.“ Flugfélagiö Atlanta: Verkefni í Kólumbíu Flugfélagið Atlanta hefur gengið frá samningum við kólumbíska flug- félagið Avianca La Aerilinea de Colombia sem er þarlent ríkisflugfé- lag. Um er að ræða daglegt flug milli Bogota, höfuðborgar Kólumbíu, og New York. Samningurinn gildir frá 1. des- ember næstkomandi til 14. janúar á næsta ári. „Málið er það að þeir era að missa stóra þotu í skoðun og þurfa því að leigja vél í verkefnið á meðan eða í einn og hálfan mánuð. Hins vegar er ekki útilokað að um frekari verkefni verði að ræða fyrir þá,“ sagði Magnús Friðjónsson, fjármála- stjóri Atlanta, í samtali við DV. Alls munu 60starfsmenn á vegum félagsins vinna við þetta verkefni og notar Atlanta Boeing 747 breiðþotu í það. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.