Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Page 7
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
7
dv Sandkorn
Allir dauðir
Fjölmiðlar
hafa verið að
birta brot úr
nýútkomnum
bókum eins
og gengur og
gerist. í bók-
inni „Þeim
varð á í
messunni"
eru sagðar
ýmsar skemmtisögur af prest-
um, og mun af nógu að taka,
enda prestar upp til hópa fyndn-
ir og skemmtilegir menn. Einn
þeirra er Örn Friðriksson sem
um árabil hefur verið sálusorg-
ari Mývetninga og er húmoristi
hinn mesti. Hann tilkynnti t.d.
prestsfrúnni í Laufási í Eyja-
firði það er hún var að ganga
frá sláturafurðum að sá matur
væri bannvænn. Þegar prests-
frúin sýndi sig að vera hissa á
þeim tíðindum og sagði fólk
hafa lifað á þessum mat í
aldaraðir kom rökstuðningur
Arnar, nefnilega sá að þetta fólk
væri einmitt allt löngu dautt.
Vodkinn góður
Jón A. Bald-
vinsson,
sendiráðs-
prestur í
Englandi,
heimsótti sr.
Örn og í tal
barst að Jón
væri orðinn
nær sköllótt-
ur. Örn
spurði hann þá hvort hann
hefði drukkið vodka. Jón kvað
já við og spurði undrandi hvort
vodki hefði eitthvað að segja við
hármissi. E.t.v. væri þama kom-
in lausnin við hármissinum. Og
ekki stóð á svarinu hjá Mý-
vatnsklerki: „Það held ég ekki,
en vodkinn er bara svo skrambi
góður.“
Aðgengið
Haft er fyrir
satt að þegar
ákveðið var
að Háskólinn
á Akureyri
flytti starf-
semi sína í
þau hús í
bænum þar
sem áður var
vistheimilið
Sólborg, heimili fyrir fatlaða,
hafi verið búinn til listi yfir
nauösynlegar framkvæmdir sem
ráðast þyrfti í áður en starfsemi
skólans gæti hafist í húsinu.
Það er einnig haft fyrir satt, svo
ótrúlega sem það hljómar, að
efst á þeim lista hafi verið að
bæta aðgengi fatlaðra að húsa-
kynmmum.
Fordæmið
Forsvars-
menn Land-
spítalans
virðast hafa
dottið niður á
lausn á fjár-
hagsvanda
fyrirtækja og
stofnana sem
eiga í erfið-
leikum. For-
dæmið er komið, og nú er að sjá
hvort aðrir viija fylgja á eftir.
Málið er að í eldhúsi Landspít-
alans er ungur nemi í „matar-
tækni“ að störfum og var að
sliga fjárhag spítalans. Eitthvað
þurfti að gera áður en loka yrði
eldhúsinu og síðan spítalanum
alveg, ef marka má alvöru máls-
ins. Niðurstaðan varð sú að
neminn gæti bara unnið kaup-
laust í þágu spítalans og var
hann því sviptur þeim himin-
háu 50 þúsund króna mánaðar-
launum sem hann hefur rogast
með út þaðan um hver mánaða-
mót. Má nú reikna meö aö bjart-
ari tímar séu fram undan í
rekstri Landspítalans.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
J HflGÆÐA-
|
I
telefunkgn
SJONVARPSTÆKI
Gæðin leyna sér ekki,
komdu 03 skoðaðu!
miroNiiN J
1 — 1
Twrrr
l
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
VÍSA
RAOGREIÐSLUR
I TIL sa MÁNAOA
| WKAAIIPATAYCXIWC - HUMLEMCDUR *«T»H»*KTlm
TELEFUNKEN S-8400 IVI NIC
33" sjónvarpstæki:
• Black Matrix FST-skjár •
4 hátalarar, þar af 2 snúanlegir •
Nicam Stereo HiFi-hljómur meb
40 W Surround magnara
Isl. textavarp • Upplýst fjarstýring
sem er auðveld í notkun, barnalæsing,
tímarofi o.m.fl.
idCatclML:
TELEFUNKEN S-540 C NIC
29" sjónvarpstæki
• Nýr Black D.I.V.A.-skjár • 4
hátalarar • Nicam Stereo HiFi-
hljómur með 40 W Surround-
magnara • 2 þrepa Zoom Isl.
textavarp • Upplyst fjarstvring
sem er auðveld í notkun, barnalæsing,
tímarofi o.m.fl.
TELEFUNKEN S-530 NIC
28" sjónvarpstæki
•Black Matrix FST-skjár, 4 hátalarar
• Nicam Stereo HiFi-hljómur með
40 W Surround magnara •
textavarp • Fjarstýring sem er
auðveld í notkun^barnalæsing,
tímarofi o.m.fl.
§
0
I
I
£
%
1
1
i
i
Skipholti 19
Sírni: 552 9800