Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Stuttar fréttir
Engar breytingar
Harðlínumenn Serba héldu
áfram gagnrýni sinni á friðar-
samningana um Bosníu í gær.
Bandaríkin . segja engar breyt-
ingar verða gerðar á samningun-
um.
Króatar brenna borgir
Hermenn Bosníu-Króata hafa
farið um með ránshendi og
brennt hús í nokkrum borgum
sem skila á aftur til Serba sam-
kvæmt friðarsamningunum.
Á fölskum forsendum
Lech Wa-
lesa, sem tap-
aði fyrir
Aleksander
Kwasniewski í
forsetakosn-
ingunum í Pól-
landi fyrir
viku, segir
keppinaut sinn
hafa sigrað á fölskum forsend-
um. Yfir 600 þúsund kjósendur
hafa farið fram á að kosningaúr-
slitin verði ógilt þar sem Kwa-
sniewski hefði logið um mennt-
un sina.
Þrjú hundruð saknað
Níu létu lffiö og nær þrjú
hundruð er saknað eftir óveður
við strönd Bangladesh og nokkr-
ar eyjar á Bengalflóa á laugar-
dag.
Létust er veggur hrundi
Að minnsta kosti níu létust og
fimmtíu slösuðust er veggur
hrundi við krikketleikvang í
Nagpur á Indlandi í gær.
Dómur mildaður
Áfrýjunardómstóll í Kúveit
hefur dregið 20 mánuði frá 5 ára
fangelsisvist sem írösk kona var
dæmd í fyrir að hafa barið fil-
ippseyska húshjálp sína til
dauða.
Ríkisráðið gagnrýnt
Marita Pet-
ersen, fyrrum
lögmaður Fær-
eyja, er meðal
þeirra Færey-
inga sem harð-
lega gagnrýna
nýstofnað rík-
isráð milli
Danmerkur,
Færeyja og Grænlands. Marita
segir rangt að aðeins stjórnar-
leiðtogar skuli vera meðlimir að
ráðinu.
Segjja Mandeia notaðan
Yfirvöld í Nígeríu vísuðu í
gær á bug gagnrýni Nelsons
Mandela, forseta Suður-Afríku,
á mannréttindabrot þeirra.
Sögðu yfirvöld Vesturlönd nota
Mandela til að koma á óstöðug-
leika í Nígeríu.
Með falsað vegabréf
Yfirvöld i
Mexíkó rann-
saka nú
meinta notk-
un fyrrum
Mexíkófor-
seta, Carlos
Salinas, á
fölsuðu vega-
bréfi. Talið er
að hann búi í Kanada og hafi
ferðast til Kúbu undir nafninu
Alberto Navarro. Greint var frá
þessu í fjölmiölum í Mexíkó degi
eftir að embættismenn staðfestu
frétt um handtöku mágkonu Sal-
ina vegna peningaþvotts í Sviss.
Áfram verkfall
Verkalýðsfélög í Frakklandi
hvöttu í gær jámbrautarstarfs-
menn til að halda áfram verk-
fallsaðgerðum.
Flúði til Bretlands
Fyrirtækið Body Shop aðstoð-
aði Nígeríumanninn Owens
Wiwa, bróður rithöfundarins
Saro-Wiwa sem tekinn var af
lffi, við að flýja til Bretlands.
Reuter, Ritzau
Utlönd
Breskir Qölmiölar:
John Major íhugar að
verða við ósk Díönu
- Camilla var með ráðabrugg
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, íhugar nú að skipa Díönu
prinsessu sendiherra á faraldsfæti til
að efla erlend viðskipti Bretlands.
Breska blaðið Sunday Express
skýrði frá þessu í gær. Sagði blaðið
Ian Lang viðskiptaráðherra styðja
þessa hugmynd. Blaðið Sunday Te-
legraph greindi frá því að nú væra
hafnar viðræður milli Buckingham-
hallar og háttsettra aðila innan
stjórnarinnar til þess að verða við
ósk Díönu um sendiherrastarf.
Forsætisráðuneytið vildi ekki tjá
sig um þessar fregnir í gær að öðru
leyti en því að þær væra vangavelt-
ur fjölmiðla.
í blaðinu Mail on Sunday var sagt
að utanríkisráðuneytið hygðist koma
í veg fyrir að Diana hlyti starf sendi-
herra til að hún setti ekki í hættu
stefnu Bretlands á erlendum vett-
vangi.
Ráðabrugg Camillu
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Díana vaxið í áliti hjá almenn-
ingi eftir opinskátt sjónvarpsviðtal
fyrir viku. Hún á ef till vill eftir að
njóta enn meiri samúðar í kjölfar
frétta í Mail on Sunday í gær þar
sem segir að ástkona Karls Breta-
prins, Camilla Parker Bowles, hafi
hvatt hann til að ganga að eiga
Díönu þar sem hún áleit hana
heimska.
Haft er eftir mági Camillu, Ric-
hard Parker Bowles, að hún hafi
verið viss um að henni stafaði ekki
ógn af Diönu. „Camilla vissi að hún
yrði aldrei kona Charles þar sem
hún var kona með fortíð. En hún
hélt einnig að hægt væri að ráðskast
með Díönu. Camilla vissi að hún
gæti skipað sama sess í hjarta Karls
og áður. Hún vildi aldrei giftast hon-
um heldur vera áfram ástkona hans
og samtímis í hjónabandi með
Andrew.
Richard kvaðst vorkenna Diönu
og bætti við: „Staðreyndin er sú að
ef Camilla hefði verið barn á strönd-
inni hefði hún rústað sandköstulum
hinna barnanna. Hún er skemmdar-
vargur. Hún þolir ekki að sjá aðra
hamingjusama."
Orðrómurinn um að Karl og
Díana ætli að skilja og að Karl gangi
að eiga Camillu og gera hana að
drottningu sinni hefur farið vaxandi
að undanförnu. Díana og Karl vísa
því bæði á bug að þau vilji lögskiln-
að.
Konungur eftir 20 ár
Hvemig sem þeim málum lyktar
getur orðið bið á því að Karl setjist
í hásætið. Tryggingafræðingar
greindu frá því í breska blaðinu
Independent í gær að líklega myndi
Karl Bretaprins ekki komast til
valda fyrr en eftir 20 ár. Trygginga-
fræðingamir gera sem sagt ráð fyr-
ir að Elísabet drottning geti orðið
níræð og miða þeir þá við lífsstíl og
fjölskyldusögu. Drottningin er núna
69 ára gömul og reykir ekki. Sam-
kvæmt þessari spá tryggingafræð-
inganna myndi Karl, sem er 47 ára,
ekki sitja í hásætinu nema í 13 ár
því gert er ráð fyrir að hann nái 75
ára aldri. Lífslíkur hans aukast þó
eftir því sem hann eldist.
Reuter
Díönu prinsessu var boðið í hvalaskoðunarferð á laugardaginn við strendur Argentínu en þar hefur prinsessan verið í heimsókn í nokkra daga. Hér kíkir
siéttbakskálfur á Díönu og föruneyti hennar. Prinsessan sneri heim til Englands í gær. Símamynd Reuter
/J
d J
Noregur:
Áfram bann viö útflutningi
á hvalaafurðum
Norsk yfirvöld vilja áfram bann þau óttast refsiaðgerðir.
við útflutningi á hvalaafurðum. Hvalveiðimenn vilja að norsk
Fangarar smáhvala eru vonsviknir yfirvöld segi sig úr Alþjóðahval-
því þeir höfðu vonast til að banninu veiðiráðinu. Fulltrúi norska utan-
yrði aflétt frá og með næsta ári. Yf- ríkisráðuneytisins tjáði hvalveiði-
irvöld segja ekki markað fyrir
hvalaafurðir erlendis en hvalveiði-
menn segjast hafa fengið skilaboð
um hið gagnstæða, þar á meðal frá
Japan.
Japanskir kaupendur eru fúsir til
að greiða gott verð fyrir hvalspik og
síðastliðið vor var verðið ævintýra-
legt. Vonbrigðin urðu því mikil á
ársfundi veiðimannanna um helg-
ina er tilkynning yfirvalda barst.
Yfirvöld vilja ekki styggja Evrópu-
sambandið og Bandaríkin þar sem
SÞ varaðar
morði í
Þremur mánuðum fyrir þjóðar-
morðið i Rúanda voru Sameinuðu
þjóðirnar, SÞ, varaðar við því að
öfgamenn meðal hútúa væru að
skipuleggja fjöldamorð. Þetta kom
fram í breska blaðinu Observer i
gær.
Blaðið skrifar að yflrmaður SÞ í
Rúanda hafi fengið leynilegt skeyti
mönnum að Noregur yrði enn um
sinn áfram í ráðinu til þess að geta
haft áhrif. Að segja sig úr ráðinu
væri það sama og að færa Grænfrið-
ungum og öðrum hvalveiðiandstæð-
ingum gjöf.
Hvalveiðimennirnir eru löngu
búnir að gefa upp von um að aðild-
arlönd Alþjóðahvalveiðiráðsins
samþykki kvóta fyrir veiðar í ábóta-
skyni. Hvetja veiðimennirnir norsk
yfirvöld til að láta NAMMCO alveg
sjá um málið.
við þjóðar-
Rúanda
þar sem vitnað var í háttsettan
mann í her Rúanda sem þjálfað
hafði öfgahópa hútúa en fengið bak-
þanka. Greint er frá því að embætt-
ismenn SÞ í New York hafi ekki
sýnt Öryggisráðinu skeytið. Allt að
milljón tútsímenn og hófsamir hútú-
ar voru myrtir af öfgamönnunum.
West grunuð
um mannát
Ekki er talið útilokað að Ros-
emary West, sem fundin var sek
um hrottafengna misþyrmingu og
morð á tíu konum og stúlkum,
hafi einnig látiö eftir sér mannát.
För á leggjum fórnarlambanna
benda til að kjöt hafi verið skorið
af þeim, að sögn réttarsálfræð-
ingsins Pauls Brittons.
„Þegar maður sker kjöt af beini
koma oft fór á beinið. Þaö er lík-
legt að mannát hafi verið hluti af
athöfninni," sagði sálfræðingur-
inn í viðtali við Sunday Times í
gær.
Britton, sem aðstoðaði lögreglu-
yfirvöld í Gloucester í Englandi
við rannsókn á morðunum, tók
einnig eftir því að fingur og hné-
skeljar vantaði á sum fórnarlömb-
in.
Rosemary West var dæmd í lífs-
tíðarfangelsi í síðustu viku fyrir
tíu morð, þar á meðal morð á dótt-
ur sinni á unglingsaldri og barn-
ungri stjúpdóttur. Eiginmaður
Rosemary, Fred West, framdi
sjálfsmorð í fangaklefa á nýársdag
og þurfti því ekki að svara fyrir
hryðjuverk sín.
Rosemary West og eiginmaður
hennar, Fred West, hafa mögu-
lega gerst sek um mannát.
Símamynd Reuter
Áður en Rosemary var dæmd
máttu fjölmiðlar einungis greina
frá því sem kom fram í réttarsaln-
um. Eftir dóminn hefur verið
greint frá enn meiri hryllingi.
Reuter