Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Síða 18
18 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 Menning Að bjarga barni ... og sjálfi Ferðalag á vegum úti með blótandi og brennivínsþefjandi ungling í aftursætinu. Varla eftirsóknarvert fyrir þreytta, einstæða móður en nauðsynleg ferð ef bjarga á bami. Svo ályktar Harpa Eir, aðalpersónan í Hjartastað Steinunnar Sigurðardóttur en hún gefst upp á Reykjavíkurlífínu og flýr austur á firði með einkabamið sem öllum að óvömm hefur tekið upp á því að leggjast í drykkju og drabb. Harpa Eir fær bestu vin- konuna, Heiði, til að skutla þeim mæðgum austur þar sem þær ætla að búa um vetur- inn. Austur komast þær þrátt fyrir ýmis skakkaföll og í lok bókar er þungu fargi létt af Hörpu og lesandanum sem fær heldur bet- ur óvæntan endi. Hörpu tekst ekki aðeins að forða baminu, a.m.k. um stundarsakir, henni tekst einnig að ljúka upp leyndardóm- inum um uppruna sinn en hún hefur lengi efast um að hún sé rétt feðrað, svona dökk sem hún er á hörund og öðruvísi. Þannig er ferðin björgunarleiðangur í tvennum skiln- ingi, farin til að bjarga bami og finna konu sem veit ekki hver hún er. Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir Hjartastaður er viðamesta verk Steinunn- ar til þessa, hátt í 400 síður af skemmtileg- heitum og óborganlegum lýsingum og til- svömm í anda höfundar. Aðalpersónumar, Harpa Eir, dóttirin Edda Sólveig og Heiður bílstjóri em eins ólíkar og mest má vera, margbrotnar persónur sem nálgast má frá mörgum hliðum, allar gæddar sérstæðum eiginleikum og ekki síður minnisstæðar en glæsikvendið Alda í Tímaþjófnum. Edda er kjaftfor unglingur á villigötum, Heiður rík- ur og þekktur flautuleikari, Harpa fátækur og óömggur sjúkraliði sem yrkir í laumi og á ekkert annað í veröldinni en bamið sem nú hefur bmgðist rétt eins flestir aðrir. Sam- skipti þessara þriggja persóna em þraut- hugsuð og einkar sannfærandi. Þær em tengdar sterkum böndum en ekki má mikið út af bregða svo að pirringurinn komi í ljós. Togstreitan er mikil, bæði á milli móður og bams en einnig á miili vinkvennanna en í þeirra sambandi er Heiður gefandi en Harpa þiggjandi sem öfúndar Heiði í laumi. Heiður vill allt fyrir Hörpu gera en öll hennar gæði minna Hörpu á eigin vanmátt svo hún laun- ar Heiði gjaman greiðana með meinlegum athugsemdum. Þá verður Harpa sterk en Heiður lítU, Sambcmd þeirra er á mörkum ástar og haturs, sterkt, flókið og undarlegt, rétt eins og samband 'Eddu og Hörpu. Það em þessi mögnuðu samskipti, gædd sál- fræðUegri dýpt, sem drífa söguna áfram. Inn í þau fléttast huggulegt spjaU vinkvennanna þar sem Harpa rifjar upp gömlu, góðu dag- ana áður en bamið breyttist í skrímsli en inn í þær minningar blandast aðrar verri um meitt og hálfdautt bam. Hún rifjar upp æskuminningar og gamla kærasta, unaðs- stimdir í útlöndum og syrgir horfið frelsi og horfna hamingjudaga. Þessar ' upprifjanir sögukonu renna þægUega saman við höktið á þjóðveginum og það er skemmtUeg viðbót að kynnast móður Hörpu sem er löngu látin en dúkkar upp í hugarfylgsnum Hörpu þeg- ar minnst varir. Fleiri skrautlegar persónur koma við sögu, sérsinna og sérkennUegt fólk úr ættarflóru Hörpu sem stöUumar heim- sækja á leið sinni; það þarf stundum að rétta úr skönkum þótt stuttir séu, en Harpa minn- ir lesendur ósjaldan á hve lítU hún er og skrítin! Eins og við er að búast af Steinunni eru þær lýsingar fuUar af hálfkæringi, spotti og spéi og kaUa á bros og jafhvel hrossahlát- ur lesandans. En Steinunn er ekki bara fyndin, hún er snUlingur í að flétta saman gáska og kvöl svo úr verður sérstæð og manneskjuleg blanda. Þó Harpa grínist með sjálfa sig og aðra er hún á háalvarlegu ferða- lagi upp á líf og dauða og lesandinn missir ekki af þeim sannleika þrátt fyrir léttleik- ann. Enda óbærUegur léttleiki sem Harpa brynjar sig með í sámm söknuði eftir sák- lausu stelpuskotti með koparrauðar kmUur sem hún elskar allra mest og best. Það má segja að Hjartastaður sé bæði þroskasaga og gamansöm ferðasaga með harmþrungnu, ívafi - eða öfugt - en kannski er hún fýrst og síðast ástarsaga. Hún fjaUar um ástina í öUum sínum margbreytUegu myndum, brokkgenga vináttuást, ást á mUli foreldra og bama, ást á mUli karls og konu: ást sem er eins og íslenska landslagið, stund- um græn, björt og safarík en einnig dökk, dimm og dmngaleg. Hjartastaður birtir sannfærandi og eftirminnUega mynd af mannlegum samskiptum, sorgum, gleði og væntingum sem brandaraflaumur Steinunn- ar nær aldrei að kæfa. Hjartastaður Steinunn Sigurðardóttir Mál og menning 1995 Aðalfundur íbúasamtaka Grafarvogs verður haldinn þriðjud. 5. des. í Gullöldinni, Hverafold 1-3, kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þar að auki verður rætt um nágrannavörslu, umferðar- og umhverfismál. Stjórnin Tannverndarráð ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum jóladagatöl án sælgætis Útboð F.h. Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar er óskað eftir tilboðum í þvottaþjónustu (þ.e. þvott og flutning á líni, fatnaði o.fl.) fyrir stofnanir og fyrirtæki Reykjavikurborgar. Um er aö ræöa þvott á: moppum, handklæðum, klútum, mottum, dúkum, vinnufatnaði og öðru tilfallandi. Fjöldi afhendingarstaða veróur u.þ.b. 180. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. desember 1995 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 Loftburstinn og titlarnir - Tumi Magnússon í Ásmundarsal Nú fer hver aö verða síðastur að njóta myndlistar í hinum sérstæðu húsakynnum meistara Ásmundar á Skólavörðuholtinu. Þaö er miður aö borgaryfirvöld skuli ekki gera sér grein fyrir gildi þessa húss, Ás- mundarsalar, út frá því sjónarmiði að það er sniðið að þörfum myndlistar. Fer þá lítið fyrir húsvemdarsjóði borgarinnar þegar ekki er litið til merkra húsa sem era andlit borgarinnar út á við. Tumi Magnússon er líklega síöastur til að sýna í Ásmundarsal, en hann opnaði þar um helgina sýn- ingu á níu málverkum. Tumi hefur á undanfömum árum unniö málverk með rafmögnuðum loftbursta eins og auglýsingateiknarar fyrri ára notuðu óspart. Sjálfur kallar hann loftburstann loftpressu, ugglaust tÍL aö árétta aö nokkur vinna liggur að baki þessum verkum. Myndlist Úlafur J. Engilbertsson Titlarnir stór þáttur Titlar verkanna em e.t.v. stærri þáttur í verkunum en jafnan er raunin. Þeir vísa til hluta og fyrirbæra sem ýmist virka aðlaðandi eða fráhrindandi, ljúffeng- ir eða eitraðir. Markmið listamannsins mun þó ekki vera það að örva eða draga úr kirtlaframleiðslu gest- anna, heldur að benda á hvemig hægt er að breyta því hvernig við horfum á hlutina með því einu að láta þá heita eitthvað. í slíku samhengi verður málverkið sjálft nánast að aukaatriði og nánast eins og mynd- skreyting við skrautlegan texta. Það er þó öllu heldur samspil þessara tveggja þátta sem vakir fyrir lista- manninum. Að baki liggur sú afstaða til myndlistar- innar að hún komi alltaf til dyranna eins og hún er klædd og geti aldrei verið skálkaskjól til að sýnast vera annað en hún er, persóna listamannsins og fyr- irætlanir hans skíni alltaf í gegnum verkið. Rík kímnigáfa Slík afstaða minnir um sumt á afstöðu skammtaeðl- isfræöinga til þess efnis sem þeir meðhöndia hverju sinni, og hún hefur, ásamt með ríkri kímnigáfu, jafn- an einkennt verk Tuma. Honum hefur auðnast að þróa verk sín frá hlutvöktum draumveruleika í ljóð- rænum anda de Chiricós til huglægrar afstraksjónar, sem minnir einna helst á smásjármyndir út úr fókus, án þess þó aö henda kímnigáfunni fyrir borð. Þau verk sem að mínu viti hera af á sýningunni hafa jafn- framt þann eiginleika að mann sundlar nánast í um metra fjarlægð frá þeim. Þetta em verk nr. 2, Ryð, kjötmygla, spanskgræna; nr. 3, Koparsúlfat, jám- drykkur, blýbensín og nr. 6, Flugneitur, joð, sæðis- drepandi krem. í þessum verkum er að flnna dýpt þar sem mýkt litasamspilsins kallar fram fjarvíddarblekk- ingu hjá áhorfandanum sem veit ekki lengur hvort hann er úti í salnum eða kominn á kaf í vegginn. Andi og efni Annars er það undir hverjum og einum komið hvemig hann nálgast verk Tuma. Þessi aðferð hans hefur víðtækar skírskotanir; hún er í eðli sínu efn- islag sem virkar andlegt en hefur skírskotanir til efn- isþátta utan við sjálft sig sem aftur hafa andlegar skír- skotanir. Þannig má endalaust leggja út frá verkum Tuma. Hitt er aftur annað mál hvort endalaust verði ausið úr þessum branni. Kímnigáfan hefur þó haldið mörgum á floti, hvaö sem því líður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.