Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 20
20
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Kvóti Vestfirðinga að mestu á hendi örfárra fjölskyldna:
Þetta er alvarlegt
áhyggjuefni
- segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV
„Ég hef áhyggjur af því að kvóti á
Vestfjörðum er að langmestu leyti í
eigu örfárra fjölskyldna. Maður
spyr sig hvað gerist ef þær ákveða
að flytja sig um set. Þetta er alvar-
legt áhyggjuefni," segir Pétur Sig-
urðsson, formaður Alþýðusambands
Vestfjarða.
Pétur vitnar þama til þess að
mest af kvóta Vestfirðinga er á
höndum örfárra fjölskyldna. Þar má
nefna tvær fjölskyldur sem ráða
Hrönn hf„ útgerð Guðbjargar ÍS
sem er kvótahæsta skip á Vestfjörð-
um. í Hnífsdal er um að ræða kvóta
Miðfells, útgeröar togarans Páls
Pálssonar ÍS. Þá tengjast Ósvör hf. í
Bolungarvík og Bakki hf. í Hnífsdal
þeirri útgerð þar sem Aðalbjöm
Jóakimsson, framkvæmdastjóri og
stærsti eigandinn, er jafnframt
stjómarformaður og einn eigenda
Miðfells. Frosti hf. í Súðavík er í
eigu nokkurra fjölskyldna en meðal
eigenda þar er Ingimar Halldórsson
framkvæmdastjóri sem jafiiframt er
einn eigenda Miðfells hf. Gunnvör
hf„ útgerð frystitogarans Júlíusar
Geirmundssonar á ísafirði, á jafn-
framt meirihlutann í íshúsfélagi ís-
firðinga hf. sem aftur á tvo togara,
Stefni ÍS og Framnes ÍS. Norður-
tanginn hf. á ísafirði, sem er að
mestu í eigu tveggja fjölskyldna, á
mestan kvóta fyrirtækja á Vestfjörð-
um, eða rétt um 3000 þorskígildi.
Þar er Ásgeir Guðbjartsson og fjöl-
skylda hans meöal eigenda en hann
á stóran hlut í Hrönn hf.
Á Flateyri er Kambur hf. fjöl-
skyldufyrirtæki og ræður yfir nán-
ast öllum kvóta staðarins og þar eru
því öll eggin í sömu körfu.
Pétur Sigurðsson segir að þrátt
fyrir að fjölskyldumar hafi haldið
kyrru fyrir í fjórðungnum þá sé ljóst
að brotthvarf einhverra þeirra gæti
oröið mikið áfall fyrir byggðarlög
vestra.
„Það hafa enn ekki tekið sig upp
fjölskyldur með stóra kvóta og flutt í
burtu en ég hugsa til þess með hryll-
ingi ef slíkt gerist. Við getum á eng-
an hátt varist slíkum áföllum sem
myndu hafa í fór með sér atvinnu-
leysi,“ segir Pétur Sigurðsson. -rt
Hafnarfjörður:
Bjóðum helmingi
starfsfólksins
óbreytta yfirtíð
- segir Tryggvi Harðarson
Tryggvi Harðarson, bæjarfull-
trúi í Hafnarfirði, segir að bæj-
aryfirvöld hafi gert helmingi
þeirra ríflega 90 bæjarstarfs-
manna sem sagt hafi verið upp
sérkjörum frá 1. janúar 1996 til-
boð um óbreytta yfirvinnu. Ekk-
ert hafi verið ákveðið með þá
sem eftir em. Tryggvi segir að
bæjarráð eigi viðræður við fúll-
trúa starfsmanna fljótlega í vik-
unni helgi og að málið eigi að
skýrast þá.
„Að okkar mati er kominn
miklu mýkri tónn í öll þessi mál
þó að ekkert formlegt sé komið í
sambandi við lendingu. Starfs-
mannafélagið hefúr bent á þann
möguleika að hægt sé að taka
þessi mál út af borðinu og setja
inn í þá vinnu sem á sér stað í
sambandi við skipulagsbreyting-
ar,“ segir Ámi Guðmundsson,
formaður Starfsmannafélags
Hafnarfjarðar. -GHS
Fræðsluskrifstofur:
Starfsmönnum hefur
veriö sagt upp
Fræðslustjórinn á Suðurlandi, Jón
Hjartarson, hefur sent öllum starfs-
mönnum fræðsluskrifstofunnar, sjö
talsins, uppsagnarbréf og taka upp-
sagnirnar gildi 1. ágúst á næsta ári.
Uppsagnarbréfin voru send í fram-
haldi af tilkynningu menntamálaráð-
herra til allra fræðslustjóra í landinu
nýlega um að taka til viðeigandi ráð-
stafana vegna lokunar fræðsluskrif-
stofa 1. júli 1996.
Helgi Jónasson, fræðslustjóri í
Reykjanesumdæmi, sagði í samtali
við DV í gær að fræðslustjórar um
allt land væru búnir að segja upp
starfsfólki sinu. Sér vitanlega væri
starfsfólkið ekki búið að ráðstafa sér
í aðra vinnu en hann sagðist vita til
að búið væri að ræða við suma.
Starfsfólkið á fræðsluskrifstofunni
væri það sérhæft að það væri bjart-
sýnt á að fá vinnu.
Uppsagnirnar ná til 60-70 starfs-
manna á fræðsluskrifstofum um allt
land, að fræðslustjórum meðtöldum.
Enn er óákveðið hjá flestum sveit-
arfélögum hvernig verkefnum
fræðsluskrifstofa verður hagað eftir
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laga á næsta ári. Á Austurlandi hafa
sveitarfélögin þó ákveðið að stofna
fræðsluskrifstofu með svipuðu sniði
og áður. -GHS
Töluverður fjöldi íslendinga fer til útlanda á ári hverju til að sjá knattspyrnuleiki. Þessi galvaski hópur fór til
Newcastle aö sjá heimaliðið spila við Blackburn og hitti Kevin Keegan, framkvæmdastjóra Newcastle, við St. James
Park
Góða
nótt og
sofðu rótt
og kodaar
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 581 4670
ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 567 0100
Heimilistækiadeild Fálkans • Heimilistækiadeild Falkans
UMBOÐSAÐILAR UM ALLT LAND:
Akranes: Versl. Perla • Borgarnes:
Kf. Borgfiröinga • Ólafsvík: Litabúðin •
Patreksfjörður: Ástubúð • Bolungarvík: Versl.
Hólmur • ísafjörður: Þjótur sf.• Drangsnes: Kf.
Steingrímsfj. • Hólmavík: Kf. Steingrímsfj.*
Hvammstangi: Kf. V Húnv. • Blönduós:
Kf. Húnvetninga • Sauðárkrókur: Hegri •
Siglufjörður: Apótek Siglufjarðar • Ólafsfjörður:
Versl. Valberg • Akureyri: Versl. Vaggan (Sunnuhlíð) •
Húsavík: Kf. Þingeyinga • Egilsstaðir: Kf.Héraösbúa
• Eskifjörður: Eskikjör • Hvolsvöllur:
Kf. Rangæinga • Þorlákshöfn: Rás hf. •
Vestmannaeyjar: KF Ámesinga •
Garður: Raflagnavinnust. Sigurðar Ingvarssonar •
Keflavík: Bústoð hf.* Grindavík: Versl. Palóma •
Reykjavík: Bamaheimur, Fatabúðin,
Versl. Hjólið (Eiðistorgi). •
Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Falkans
Björn Steinar Sólbergsson við hljómborð orgelsins. DV-mynd gk
Orgel Akureyrar-
kirkju endurvígt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta orgel, sem var það stærsta
á landinu þangaö til orgelið í Hall-
grímskirkju var sett upp, er án efa
eitt hesta konsertorgel á landinu. Ég
tel að mjög vel hafi tekist til með
þær endurbætur sem hafa verið
gerðar á hljóðfærinu og nú höfum
við yfir að ráða hljóðfæri sem á að
endast í 150-200 ár með reglulegu
viöhaldi," segir Björn Steinar Sól-
bergsson, orgelleikari við Akureyr-
arkirkju. Umfangsmiklum endur-
bótum á orgeli kirkjunnar er nú lok-
ið, og verður það endurvígt nk.
sunnudag, nákvæmlega 34 árum,
upp á dag, eftir að það var upphaf-
lega vígt.
Orgelið var byggt af þýska fyrir-
tækinu Steinmeyer & Co en endur-
byggt nú af danska fyrirtækinu P.
Bruhn & Sön Orgelbyggeri. Björn
Steinar segir að meginbreytingin á
orgelinu sé sú að í stað þess að
knýja það með rafmagni, eins og
verið hefur, hafi nú verið settar 1
það vindhlöður sem knúnar eru af
blásara. Er þar horfið til þess fyrir-
komulags sem viðhaft var áður en
farið var að nota rafmagn til að
knýja hljóðfæri sem þetta.
í orgelið hefur verið bætt fjórum
röddum og er það nú 49 radda. í því
eru 3.290 pípur sem skiptast á þrjú
hljómborð og pedal. Útlit orgelsins
hefur haldið sér í grundvallaratrið-
um en skartar nú nýju orgelhúsi úr
gegnheilli eik.
Kostnaður við breytingarnar
nemur á bilinu 30-40 milljónum
króna eða um 3/4 þess sem nýtt
hljóðfæri kostar. Sérstakur orgel-
sjóður var stofnaður og hafa farið
fram sérstakir tónlistarviðburðir í
kirkjunni í fjáröflunarskyni og fleiri
eru fyrirhugaðir.
Pétur Sigurgeirsson biskup mun
vígja orgelið nk. sunnudag í hátíðar-
messu kl. 14 en hann vigði orgelið
upphaflega fyrir 26 árum. Tónlistar-
flutningur við messuna verður mjög
fjölbreyttur og orgelið að sjálfsögðu
í fyrirrúmi í þeim flutningi.
Akranes:
Góður árangur hjá Hitaveitunni
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
í sex mánaða uppgjöri Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar kemur
fram að tekjur hennar voru einni
milljón króna yfir áætlun. Tekjur
voru 128 miUjónir en gjöld með af-
skriftum 146,3 milljónir. Afskriftir 71
milljón. Nettóskuldastaða 9.nóvemb-
er er tveir milljarðar 133 milljónir.
Að sögn Ingólfs Hrólfssonar er
rekstur hitaveitunnar kominn á
rétta braut og hefur hún undanfarin
ár borgað sig. Ingólfur lætur um ára-
mótin af starfi hitaveitustjóra þegar
nýtt sameinað veitufyrirtæki tekur
til starfa. Það verður sjónarsviptir af
Ingólfi á Akranesi því hann hefur
unnið af krafti við að byggja upp
rekstur hitaveitunnar og átt sinn
þátt í því að hún stendur nú undir
rekstrinum.