Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 Fréttir Kvóti Vestfirðinga að mestu á hendi örfárra fjölskyldna: Þetta er alvarlegt áhyggjuefni - segir Pétur Sigurðsson, forseti ASV „Ég hef áhyggjur af því að kvóti á Vestfjörðum er að langmestu leyti í eigu örfárra fjölskyldna. Maður spyr sig hvað gerist ef þær ákveða að flytja sig um set. Þetta er alvar- legt áhyggjuefni," segir Pétur Sig- urðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða. Pétur vitnar þama til þess að mest af kvóta Vestfirðinga er á höndum örfárra fjölskyldna. Þar má nefna tvær fjölskyldur sem ráða Hrönn hf„ útgerð Guðbjargar ÍS sem er kvótahæsta skip á Vestfjörð- um. í Hnífsdal er um að ræða kvóta Miðfells, útgeröar togarans Páls Pálssonar ÍS. Þá tengjast Ósvör hf. í Bolungarvík og Bakki hf. í Hnífsdal þeirri útgerð þar sem Aðalbjöm Jóakimsson, framkvæmdastjóri og stærsti eigandinn, er jafnframt stjómarformaður og einn eigenda Miðfells. Frosti hf. í Súðavík er í eigu nokkurra fjölskyldna en meðal eigenda þar er Ingimar Halldórsson framkvæmdastjóri sem jafiiframt er einn eigenda Miðfells hf. Gunnvör hf„ útgerð frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar á ísafirði, á jafn- framt meirihlutann í íshúsfélagi ís- firðinga hf. sem aftur á tvo togara, Stefni ÍS og Framnes ÍS. Norður- tanginn hf. á ísafirði, sem er að mestu í eigu tveggja fjölskyldna, á mestan kvóta fyrirtækja á Vestfjörð- um, eða rétt um 3000 þorskígildi. Þar er Ásgeir Guðbjartsson og fjöl- skylda hans meöal eigenda en hann á stóran hlut í Hrönn hf. Á Flateyri er Kambur hf. fjöl- skyldufyrirtæki og ræður yfir nán- ast öllum kvóta staðarins og þar eru því öll eggin í sömu körfu. Pétur Sigurðsson segir að þrátt fyrir að fjölskyldumar hafi haldið kyrru fyrir í fjórðungnum þá sé ljóst að brotthvarf einhverra þeirra gæti oröið mikið áfall fyrir byggðarlög vestra. „Það hafa enn ekki tekið sig upp fjölskyldur með stóra kvóta og flutt í burtu en ég hugsa til þess með hryll- ingi ef slíkt gerist. Við getum á eng- an hátt varist slíkum áföllum sem myndu hafa í fór með sér atvinnu- leysi,“ segir Pétur Sigurðsson. -rt Hafnarfjörður: Bjóðum helmingi starfsfólksins óbreytta yfirtíð - segir Tryggvi Harðarson Tryggvi Harðarson, bæjarfull- trúi í Hafnarfirði, segir að bæj- aryfirvöld hafi gert helmingi þeirra ríflega 90 bæjarstarfs- manna sem sagt hafi verið upp sérkjörum frá 1. janúar 1996 til- boð um óbreytta yfirvinnu. Ekk- ert hafi verið ákveðið með þá sem eftir em. Tryggvi segir að bæjarráð eigi viðræður við fúll- trúa starfsmanna fljótlega í vik- unni helgi og að málið eigi að skýrast þá. „Að okkar mati er kominn miklu mýkri tónn í öll þessi mál þó að ekkert formlegt sé komið í sambandi við lendingu. Starfs- mannafélagið hefúr bent á þann möguleika að hægt sé að taka þessi mál út af borðinu og setja inn í þá vinnu sem á sér stað í sambandi við skipulagsbreyting- ar,“ segir Ámi Guðmundsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. -GHS Fræðsluskrifstofur: Starfsmönnum hefur veriö sagt upp Fræðslustjórinn á Suðurlandi, Jón Hjartarson, hefur sent öllum starfs- mönnum fræðsluskrifstofunnar, sjö talsins, uppsagnarbréf og taka upp- sagnirnar gildi 1. ágúst á næsta ári. Uppsagnarbréfin voru send í fram- haldi af tilkynningu menntamálaráð- herra til allra fræðslustjóra í landinu nýlega um að taka til viðeigandi ráð- stafana vegna lokunar fræðsluskrif- stofa 1. júli 1996. Helgi Jónasson, fræðslustjóri í Reykjanesumdæmi, sagði í samtali við DV í gær að fræðslustjórar um allt land væru búnir að segja upp starfsfólki sinu. Sér vitanlega væri starfsfólkið ekki búið að ráðstafa sér í aðra vinnu en hann sagðist vita til að búið væri að ræða við suma. Starfsfólkið á fræðsluskrifstofunni væri það sérhæft að það væri bjart- sýnt á að fá vinnu. Uppsagnirnar ná til 60-70 starfs- manna á fræðsluskrifstofum um allt land, að fræðslustjórum meðtöldum. Enn er óákveðið hjá flestum sveit- arfélögum hvernig verkefnum fræðsluskrifstofa verður hagað eftir flutning grunnskólans til sveitarfé- laga á næsta ári. Á Austurlandi hafa sveitarfélögin þó ákveðið að stofna fræðsluskrifstofu með svipuðu sniði og áður. -GHS Töluverður fjöldi íslendinga fer til útlanda á ári hverju til að sjá knattspyrnuleiki. Þessi galvaski hópur fór til Newcastle aö sjá heimaliðið spila við Blackburn og hitti Kevin Keegan, framkvæmdastjóra Newcastle, við St. James Park Góða nótt og sofðu rótt og kodaar Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 581 4670 ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 567 0100 Heimilistækiadeild Fálkans • Heimilistækiadeild Falkans UMBOÐSAÐILAR UM ALLT LAND: Akranes: Versl. Perla • Borgarnes: Kf. Borgfiröinga • Ólafsvík: Litabúðin • Patreksfjörður: Ástubúð • Bolungarvík: Versl. Hólmur • ísafjörður: Þjótur sf.• Drangsnes: Kf. Steingrímsfj. • Hólmavík: Kf. Steingrímsfj.* Hvammstangi: Kf. V Húnv. • Blönduós: Kf. Húnvetninga • Sauðárkrókur: Hegri • Siglufjörður: Apótek Siglufjarðar • Ólafsfjörður: Versl. Valberg • Akureyri: Versl. Vaggan (Sunnuhlíð) • Húsavík: Kf. Þingeyinga • Egilsstaðir: Kf.Héraösbúa • Eskifjörður: Eskikjör • Hvolsvöllur: Kf. Rangæinga • Þorlákshöfn: Rás hf. • Vestmannaeyjar: KF Ámesinga • Garður: Raflagnavinnust. Sigurðar Ingvarssonar • Keflavík: Bústoð hf.* Grindavík: Versl. Palóma • Reykjavík: Bamaheimur, Fatabúðin, Versl. Hjólið (Eiðistorgi). • Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Falkans Björn Steinar Sólbergsson við hljómborð orgelsins. DV-mynd gk Orgel Akureyrar- kirkju endurvígt Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta orgel, sem var það stærsta á landinu þangaö til orgelið í Hall- grímskirkju var sett upp, er án efa eitt hesta konsertorgel á landinu. Ég tel að mjög vel hafi tekist til með þær endurbætur sem hafa verið gerðar á hljóðfærinu og nú höfum við yfir að ráða hljóðfæri sem á að endast í 150-200 ár með reglulegu viöhaldi," segir Björn Steinar Sól- bergsson, orgelleikari við Akureyr- arkirkju. Umfangsmiklum endur- bótum á orgeli kirkjunnar er nú lok- ið, og verður það endurvígt nk. sunnudag, nákvæmlega 34 árum, upp á dag, eftir að það var upphaf- lega vígt. Orgelið var byggt af þýska fyrir- tækinu Steinmeyer & Co en endur- byggt nú af danska fyrirtækinu P. Bruhn & Sön Orgelbyggeri. Björn Steinar segir að meginbreytingin á orgelinu sé sú að í stað þess að knýja það með rafmagni, eins og verið hefur, hafi nú verið settar 1 það vindhlöður sem knúnar eru af blásara. Er þar horfið til þess fyrir- komulags sem viðhaft var áður en farið var að nota rafmagn til að knýja hljóðfæri sem þetta. í orgelið hefur verið bætt fjórum röddum og er það nú 49 radda. í því eru 3.290 pípur sem skiptast á þrjú hljómborð og pedal. Útlit orgelsins hefur haldið sér í grundvallaratrið- um en skartar nú nýju orgelhúsi úr gegnheilli eik. Kostnaður við breytingarnar nemur á bilinu 30-40 milljónum króna eða um 3/4 þess sem nýtt hljóðfæri kostar. Sérstakur orgel- sjóður var stofnaður og hafa farið fram sérstakir tónlistarviðburðir í kirkjunni í fjáröflunarskyni og fleiri eru fyrirhugaðir. Pétur Sigurgeirsson biskup mun vígja orgelið nk. sunnudag í hátíðar- messu kl. 14 en hann vigði orgelið upphaflega fyrir 26 árum. Tónlistar- flutningur við messuna verður mjög fjölbreyttur og orgelið að sjálfsögðu í fyrirrúmi í þeim flutningi. Akranes: Góður árangur hjá Hitaveitunni Daníel Ólafsson, DV, Akranesi: í sex mánaða uppgjöri Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar kemur fram að tekjur hennar voru einni milljón króna yfir áætlun. Tekjur voru 128 miUjónir en gjöld með af- skriftum 146,3 milljónir. Afskriftir 71 milljón. Nettóskuldastaða 9.nóvemb- er er tveir milljarðar 133 milljónir. Að sögn Ingólfs Hrólfssonar er rekstur hitaveitunnar kominn á rétta braut og hefur hún undanfarin ár borgað sig. Ingólfur lætur um ára- mótin af starfi hitaveitustjóra þegar nýtt sameinað veitufyrirtæki tekur til starfa. Það verður sjónarsviptir af Ingólfi á Akranesi því hann hefur unnið af krafti við að byggja upp rekstur hitaveitunnar og átt sinn þátt í því að hún stendur nú undir rekstrinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.