Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
35*
Fréttir
Guðrún Hauksdóttir, íbúi í Kópavogi:
Safnaði fatnaði og
sendi til Namibíu
„Söfnunin stóð yfir í þrjár vikur
og það safnaðist rúmlega eitt og
hálft tonn af fötum, skóm og leik-
föngum. Það var ótrúlegt hvað fólk
tók fljótt við sér og var rausnarlegt
og það var yndisleg tilfinning að
horfa á eftir farangrinum um borð í
Hannover vitandi þörfína í þessu fá-
tæka landi,“ segir Guðrún Hauks-
dóttir, íbúi í Kópavogi, en hún stóð
nýlega upp á sitt eindæmi fyrir söfn-
un á klæðnaði og ýmsum nauðsynj-
um handa íbúum í Namibiu.
Guðrún fékk starfsfólk tveggja
leikskóla, nemendur í Fjölbrauta-
skólanum i Ármúla, vini og vanda-
menn til að safna fyrir sig. Hún fékk
sendibílastöð til að flytja dótið
ókeypis fyrir sig á hafnarbakkann
og skip íslenskra sjávarafurða,
Hannover, flutti farangurinn henni
að kostnaðarlausu til Namibíu en
skipið hélt einmitt áleiðis þangað
nú nýlega. Myndin hér á síðunni er
einmitt tekin áður en farangurinn
var fluttur um borð.
Systir Guðrúnar, sem er starfs-
maður ÍS í L”deritz, mun afhenda
vörurnar á áfangastað og segir Guð-
rún að hún vilji gjarnan endurtaka
söfnunina ef henni bjóðist aftur
ókeypis flutningur til ákvörðunar-
staðarins. -GHS
Guðrún Hauksdóttir stóð nýlega fyrir söfnun á fatnaði, skóm og leikföngum
fyrir íbúa í Namibíu og sendi með skipi íslenskra sjávarafurða, Hannover.
Guðrún fékk starfsfólk leikskóla, nemendur, vini og vandamenn til að að-
stoða sig við söfnunina. Hér er hún með dóttur sinni á hafnarbakkanum
áður en dótið var flutt um borð.
Magnús Ólafsson. DV-mynd Örn
Norðurland vestra:
Nýr Fram-
sóknar-
formaður
Örn Þórarinsson, DV, Fljótnm:
Magnús Ólafsson, bóndi á Sveins-
stöðum í Austur-Húnavatnssýslu,
var kjörinn formaður Kjördæmis-
sambands framsóknarmanna á
Norðurlandi vestra en þing flokks-
ins var haldið í Siglufirði fyrir
stuttu. Magnús tekur við for-
mennskunni af Boga Sigurbjörns-
syni, Siglufirði, sem gegnt hefur því
starfi í 8 ár.
Sérmál kjördæmisþingsins var
þróun atvinnulífs í kjördæminu til
aldamóta. Mikil umræða varð um
atvinnumál og horfur í kjördæminu
sem að margra mati eru ekki bjart-
ar eftir nokkurra ára samfellt sam-
dráttarskeið í sauðfjárbúskap.
Á þinginu kom fram hjá mörgum
ræðumönnum ótti við að uppsveifla
í atvinnulífi samfara umsvifum,við
stækkun álvers á Reykjanesi og
hugsanlega stækkun Járnblendi-
verksmiðjunnar ásamt jarðganga-
gerð undir Hvalljörð muni ekki ná
út á landsbyggðina, heldur auka
fólksflótta þaðan. Til að sporna við
neikvæðum áhrifum á uppbyggingu
atvinnulífs á landsbyggðinni sé
brýnt að stjórnvöld bregðist við með
markvissum aðgerðum.
Egilsstaðir:
Ullarpeysur
til Alaska
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum:
Prjónastofan Dyngja á Egilsstöð-
um tók til starfa að nýju í fyrrasum-
ar eftir tveggja ára hlé. Framleidd
er voð fyrir Rússland og nýverið
fóru 3 1/2 tonn þangað. Þá eru
saumaðar peysur og smávörur sem
fara til Norðurlandanna og Dyngja
er að ná fótfestu í Alaska - selur
þangað ullarpeysur. Enn starfa að-
eins 5 við framleiðsluna og fram-
haldið ræðst af því hvernig gengur
að afla markaða.
Okkar stórglæsilega Jólahlaðborð
er hlaðið kræsingum með hefðbundnum jólamat
ásamt fjölda annarra kaldra og heitra rétta
að ógleymdu hinu fjölbreytilega ábætisborði
sem engan svíkur. Borðaðu eins og þig lystir
Um helgar í desember
munu Grétar Örvarsson,
Sigga Beinteins og
Bjarni Ara koma
matargestum
í sannkallaða
jólastemningu.
Jólavínið í ár
Borðapantanir í síma
Hljómsveitin Stjórnin
leikur fyrir dansi
á föstudögum frá kl. 23.30
og verður í dúndur
jóladískó-stuði.