Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 33
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
45
ren
Fasteignir
RC-íbúöarhúsin eru islensk smíöi og
þekkt fyrir mikil gæði og óvenjugóða
einangrun. Húsin eru ekki einingahús
og þau eru samþykkt af Rannsókna-
stofiiun byggingariðnaðarins. Stuttur
afgreiðslufrestur. Útborgim eftir sam-
komulagi. Hringdu og við sendum þér
upplýsingar. fslensk-skandinavíska
hf., Ármúla 15, s. 568 5550, fs. 892
5045.
§ Hjólbarðar
BFGoodrich
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmwmmDckk
Gæði á góðu verði
Geriö gæöa og verösamanburð.
Trail T/A 30-15”......kr. 10.795 stgr.
Trail T/A 31”-15”......kr. 11.903 stgr.
Trail T/A 33”-15”.....kr. 13.482 stgr.
All-Terrain 30”-15”...kr. 11.610 stgr.
All-Terrain 31”-15” ..kr. 12.987 stgr.
All-Terrain 32”-15”...kr. 13.950 stgr.
All-Terrain 33”-15”...kr. 14.982 stgr.
All-Terrain 35”-15”...kr. 16.985 stgr.
Hjólbarðaverkstæði á staðnum.
Bílabúð Benna, sími 587-0-587.
Bílaleiga
Nýir Toyota-bílar.
Á daggjaldi án kílómetragjalds eða
innifoldum allt að 100 km á dag.
Þitt er valið!
Bílaleiga Gullvíðis, símar 896 6047
og 554 3811.
Jg Bílartilsölu
Hyundai Elantra GT 1,8, sjálfsklptur, ár-
gerð ‘95, til sölu, álfelgur, spoiler fram-
an og aftan, rafmagn í öllu, ekinn
5.000, ásett verð 1390.000 kr. Stað-
greiðsluverð óskast. Verður að seljast
vegna brottflutnings. Uppl. í slma
554 2384 eða 845 2050 (símboði).
M. Benz 260E ‘89, sem nýr, ekinn 97
þús. km., ABS, vínrauður, ný, breið low
profile dekk og sportfelgur,
topplúga, útvarp/geislaspilari, 4 höfuð-
púðar o.fl. Verð 2490 þús. ATH. skipti á
ódýrari. Upplýsingar í síma 567 3766
eða 892 0804.
Jeppar
Toyota double cab SR5, bensín, árg. ‘95
(nýr á götuna í apríl ‘95). Aukamutir:
plasthús á palli, vindskeið á húsi,
stigbretti, álfelgur, ný negld 31” BF
Goodrich dekk, húddhlíf, ljóskastarar,
ljósagrind, útvarp/segulband, dráttar-
beisli, plastbrettakantar, strípur.
Bíllinn er sem nýr. Verð 2.480.000 kr.
Uppl. hjá Bílabúð Benna, s. 587-0-587,
Vagnhöfða 23,112 Rvík.
Vinnuvélar
Smáauglýsingar
Nýr Dodge Ram Cumming disil turbo
intercooler club cab ‘96, 6 m., blár,
m/öllu, einnig Nissan Terrano 3000 SE
‘93, ek. 35 þ. km, hvítur, upph., bretta-
kantar, álf., 31” dekk, og Toyota
4Runner V6 ‘91, svartur, topplúga, 33”
dekk, álf., brettakantar, stigbretti o.fl.
o.fl. S. 551 6497, 587 6700, 896 6966.
Til sýnis og sölu að Smiöshöföa 13 R.
• CAT 438 seria II traktorsgrafa ‘91,
keyrð 5000 st., ástand og útlit mjög
gott. Verð 3 millj. + vsk.
• Komatsu PW150, árg. ‘85, hjólagrafa
ásamt Krupp 551 vökvafleyg ‘92, vélin
nýyfirfarin, vél og dælur. keyrðar ca
3000 st. Lítur út sem “ný”. Verð 3,2 m.
+ vsk. S. 567 6430 eða 567 1640.
Skemmtanir
is-prinsessan Leoncie. Hin frábæra
söngkona-dansmær, með æsandi show,
vill skemmta um land allt.
Veljum íslenskt. S. 554 2878, GSM
896 4933. Danstónlistarmyndbönd og
geisladiskur með prinsessunni til sölu.
> Hár og snyrting
ffiho'na
^ Leirubakka36
®557 2053
20% afsláttur af permanenti og strípum
til 1. des. Munið afsláttarkortin fyrir
klippingar. Sama verð á laugardögum.
Aþena, Leirubakka 36, sími 557 2053.
T Heilsa
Trimform Berglindar býður alla
velkomna í frían prufutlma.
Komið þangað sem árangur næst.
Erum lærðar í rafhuddi. Opið frá
7.30-22 v. daga. Visa/Euro. S. 553 3818.
|)UgjFB<MR
Ég held éggangi heim.
Eftir einn ei aki neinn
Menning
Ástríðumorð í
skuggahverfi
Geðveiki, stjórnlausar ástríður, sifjaspell, fóstur-
eyðing, morð. Allt þetta leggur Nína Björk Árna-
dóttir undir í annarri skáldsögu sinni, Þriðju ást-
inni, og eins og oft áður skrifar hún um daprar, ein-
mana og óttaslegnar manneskjur sem finna sig
hvergi og lokast inni í eigin angist. Hún skrifar um
persónur sem langar að elska og njóta en enda leit
sína að frelsi og fögnuði í brennivínsdrykkju, geð-
veiki eða dauða. Og eins og í fleiri verkum Nínu,
t.d. sjónvarpsleikritinu Lífi til einhvers og skáldsög-
unni Móður konu meyju er stillt upp stétt gegn stétt
þar sem vart má á milli sjá hvor heimurinn er
verri, heimur þeirra ríku og fmu eða veröld hinna
fátæku og smáðu.
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
Aðcdpersónan í Þriðju ástinni er yfirstéttarkonan
Ema sem finnst reyndar myrt í upphafi bókar og
gengur sagan út á að lýsa aðdraganda þess atburð-
ar. Þótt Erna.hafi allt til alls í veraldlegum skilningi
er hún tilfinningalega svelt, missir föður sinn í
dauðann og móðurina inn á Klepp. Eiginmaðurinn
er henni góður en fjarlægur og viðhaldið vekur
henni fremur viðbjóð en unað. Á einmana róli um
bæinn hittir Ema stúlkuna Sunnu sem situr aö
sumbli á bar en þau kynni hafa örlagaríkar afleið-
ingar í for með sér. Sögunni er skipt upp í þrjár frá-
sagnareiningar, sögu Ernu sem segir frá í dagbókar-
formi, fyrstu persónu frásögn morðingjans sem rek-
ur líf sitt frá bamæsku fram á þennan dag en hann
hefur verið fenginn til að skrifa sögu sína fyrir helg-
arblað. Þriðja frásagnareiningin er saga Siddós og
Valda, þriðju persónu frásögn, sögð frá sjónarhóli
tveggja karla sem vinna hjá hreinsunardeild borgar-
innar en þeir finna líkið. Saga Siddós og Valda
gengur út á að lýsa því hve uppteknir þeir verða af
líkfundinum og síðar af sögu morðingjans í blaðinu.
Mennimir tveir eru fulltrúar þeirra sem eiga svo
tilbreytingarsnauÖa og tilfinningasljóa tilveru að
þeir lifa aðeins í gegnum annarra gleði og sorgir og
er því komið ágætlega til skila i textanum. Það sem
truflar er hins vegar einfeldni þeirra sem keyrir
fram úr hófi og það sama gildir um morðingjann.
Lesandinn fær innsýn í ástlausa og átakanlega for-
tíð hans og er öryggisleysið undirstrikað með barns-
legum talsmáta. Þau stílhrif notar Nína oft á áhri-
faríkan hátt en í þessu tilfelli virka þau ekki því
naivitet mannsins jaðrar við heimsku og ergir frem-
ur en snertir. Það vantar i hann myrkrið og sárs-
aukann sem Nína Björk kemur svo listilega á fram-
færi í ljóðum sínum og þó örli á sárum kenndum
hjá Ernu er persónusköpunin öll i dauflegra lagi.
Það er helst að höfundurinn nái sér á strik í kunn-
uglegum lýsingum á móður Emu og hálfsysturinni
Amheiði sem endar á geðdeild og er að taka fátæk-
an eiginmanninn á taugum með endalausum kröf-
um um dýrar snyrtivörur og flnni híbýli.
í Þriðju ástinni má finna fallégar erótískar lýsing-
ar en þó undanskil ég tilgerðarlegar og allt að þvi
neyðarlegar lýsingar þar sem snipur er kallaður
tindur og elskhugi yrðlingur (35)! Og afstaðan til
samkynhneigðra ásta er gagnrýniverð. Á einum
stað er samkynhneigð afgreidd sem ólæknandi sjúk-
dómur (65) og ást á milli tveggja kvenna er harmi
blandin frá upphafi og dæmd til að farast. Það sting-
ur einnig að Emu skuli finnast í lagi að faðir henn-
ar barni hana til að bjarga eigin skinni. Hann fær
parkinsonsveiki en vísindin hafa sannað aö æð úr
eigin „blómi“ (7) sjúklinga geti bjargað lífl þeirra. í
kjölfar þessa atburðar taka ljósin að slokkna í lífi
Ernu (10) en samt er ekki annað að sjá en hún sé
nokkuð sátt við (bams)föður sinn - ekkert ógeð,
engin reiði!
í Þriðju ástinni má finna fallega, einlæga og átak-
anlega kafla, sérstaklega þar sem Ema minnist
móður sinnar og systur en heildarútkoman er ekki
góð. Fyrir utan slælega persónusköpun er uppbygg-
ing sögunnar losaraleg og spennan sem skapast í
kringum morðið í upphafi liðast í sundur og verður
að engu.
Þriðja ástin:
Nína Björk Árnadóttir
Iðunn 1995
9 0 4 * 1 7 0 0
t
EO Dagskrá Sjónv.
Q§| Dagskrá St. 2
m Dagskrá rásar 1
[41 Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
Verð aðeins 39,90 mín.
HS Myndbandagagnrýni
m fsl. iistinn - topp 40
22 Tónlistargagnrýni
OBl Nýjustu mýndböndin
[91 Gerfihnattadagskrá
SIMAtowg
9 0 4 •17 0 0
f30% AFSLÁTUR^
AF HALOGENPERUM
557.-
RAFMAGNf
^SKIPHOITI 31 - SÍMI 568 003