Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 34
46
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fréttir______________________________________________________________________________________dv
Glfurlegt tjón I eldsvoða í Dalasýslu:
Sá húsin fuðra upp
- segir Jón Ingi Hjálmarsson bóndi
Gífurlegt tjón varð er eldur kom
upp við bæinn Tjaldanes í Saurbæ í
Dalasýslu upp úr miðnætti á föstu-
dagskvöld. Hestliús, hlaða, geymsla
og hluti af fjárhúsum eyðilagðist í
eldinum. Fjárhúsunum var þó hægt
að bjarga og voru menn að koma því
í lag í gærdag en hin húsin eru ónýt.
Bóndinn á bænum, Jón Ingi
Hjálmarsson, var að horfa á sjón-
varpið ásamt konu sinni þegar raf-
magn fór af húsinu. Hann hélt að
rafmagn hefði farið af allri sveitinni
en þegar hann leit út um glugga sá
hann að svo var ekki. Þegar Jón fór
að athuga málið kom í ljós mikill
reykur við hesthúsið og hlöðuna.
Hann reyndi að slökkva sjálfur á
meðan beðið var eftir slökkviliðinu
frá Búðardal. „Það tók slökkviliðið
einn og hálfan tíma' að komast hing-
að og ég sá húsin nánast fuðra upp
án þess að geta hokkuð gert. Sem
betur fór tókst okkur þó að bjarga
öllum skepnum úr húsi,“ sagði Jón
Ingi í samtali við DV. Um 550 hey-
baggar urðu eldinum að bráð auk
margra verðmætra verkfæra sem í
geymslunni voru.
Aðeins 20 kindur og 3 kálfar voru
í húsunum og tókst að bjarga þeim.
Að sögn Jóns Inga stóð til að koma
skepnum í hús en vegna veðurblíð-
unnar hafði hann ekki gert það og
var það honum til happs nú. „Það
má líka segja að vegna þess hve
veðrið var gott þessa nótt fór betur
en á horfðist. Ef vindur hefði staðið
að fjárhúsunum hefði þetta allt far-
ið,“ sagði Jón Ingi. Hann sagði að
bændur á nærliggjandi bæjum
hefðu sýnt einstakan samhug um
helgina og aðstoðað hann og f]öl-
skyldu hans. „Það er stórkostlegt að
eiga svona góða nágranna," sagði
Jón Ingi sem hefur búið á Tjalda-
nesi frá árinu 1982 og segist vera
með allt tryggt.
- ELA
Eyjamenn eru bjartsýnir á að nýtt síidarævintýri sé í uppsiglingu eftir að síld fannst djúpt út af Reykjanesi þar sem
síld hefur ekki sést í áratugi. Frá Vestmannaeyjahöfn þar sem verið var að landa úr síldarskipinu Kap.
Aðild íslands að Schangen-samkomulaginu:
Umfang og
kostnaður enn
ekki skilgreint
- segir Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráöuneytinu
„Aðild íslands að Schángen-sam-
komulaginu myndi kalla á aukið
vegabréfaeftirlit en hversu mikið
hefur ekki verið skilgreint. Það er
verið að skoða þetta með tilliti til
flæðis farþega til landsins. Fyrr er
ekkert hægt að segja til um hvemig
að þessu yrði staðið né Kostnaðinn,"
segir Þorsteinn A. Jónsson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu.
ísland hefur ásamt hinum Norð-
urlöndunum óskað eftir því að taka
þátt í svokölluðu Schangen-sam-
komulagi sem felur í sér að hægt
verði að ferðast milli aðildarland-
anna í Evrópu án vegabréfaskoðun-
ar. Á hinn bóginn felur samkomlag-
ið í sér aukið vegabréfaeftirlit hjá
þeim farþegum sem koma til ein-
hvers aðildarlandanna frá öðrum
löndum. Þá felur samkomulgið í sér
aukna samvinnu lögregluyfirvalda
og fleira.
Að sögn Þorsteins mun það vænt-
anlega skýrast á ráðherrafundi
Schangen-landanna 20. desember
næskomandi hvort ísland og Noreg-
ur fá aöild að samkomulaginu. í
kjölfarið muni Alþingi og stjómvöld
taka ákvörðun um framhaldið.
Þorsteinn segir að á Keflavíkur-
flugvelli séu einkum tveir álags-
punktar, frá 6 til 9 á morgnana og 15
til 17 síðdegis. Á þeim tíma yrði lík-
lega að fjölga mannskap í vegabréfa-
eftirliti. Ekki sé hins vegar ljóst
hvemig á því verði tekið.
Akureyri:
Atvinnuleysið
eykst hjá Einingu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Atvinnuleysi meðal félagsmanna
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri hefur aukist nokkuð síð-
ustu vikurnar, en er þó talsvert
minna en það var á sama tima á síð-
asta ári.
Guðjón Jónsson hjá Einingu segir
að 10. október sl. hafi 118 Einingar-
félögum á Akureyri verið greiddar
atvinnuleysisbætur. Samkvæmt töl-
um frá Einingu hefur atvinnulaus-
um félagsmönnum svo fjölgað síð-
ustu vikumar, þeir vom 127 þann
24. október, síðan fjölgaði þeim í 151
og þann 21. nóvember fengu 182 fé-
lagar greiddar atvinnuleysisbætur.
Tölur fyrir sama tímabil á síðasta
ári eru hins vegar þær að 119 fengu
greiddar bætur rétt fyrir miðjan
október sem er svo til sama tala og
nú, en þá urðu atvinnulausir í lok
nóvember 213 talsins eða 31 fleiri en
á sama tíma í ár.
Reykjavíkurmót í bridge:
Björn og
Sverrir unnu
Bjöm Eysteinsson og Sverrir Ár-
mannsson náðu að hampa sigri á
Reykjavíkurmótinu í tvímenningi í
bridge sem háð var um helgina í
húsnæði Bridgesambands íslands.
Spiluð var undankeppni á laugar-
daginn og 16 efstu pörin komust
áfram í úrslitakeppni.
Bjöm og Sverrir voru efstir að
lokinni undankeppninni, en spilar-
ar tóku 15% af skori sínu með sér úr
undankeppninni í úrslitin. Fjölmörg
pör skiptust á um að vera í forystu f
úrslitakeppninni, en í lokin vom
það Bjöm og Sverrir sem hrepptu
hnossið. Keppnisstjóri á mótinu var
Sveinn Rúnar Eiríksson. Lokastaða
efstu para varð þannig:
1. Björn Eysteinsson-Sverrir Ár-
mannsson 74
2. Guðlaugur Sveinsson-Erlendur
Jónsson 65
3. Aðalsteinn Jörgensen-Ásmund-
ur Pálsson 61
4. Hrólfur Hjaltason-Rúnar Magn-
ússon 47
5. Páll Valdimarson-Ragnar
Magnússon 45
-ÍS
Björn Eysteinsson og Sverrir Ármannsson, Reykjavíkurmeistarar í bridge,
eru hér að etja kappi við Hjálmar S. Pálsson og Helga Bogason í úrslita-
keppninni. DV-mynd ÍS