Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 35
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
47
Fréttir
Júlíus með hulstrið. DV-mynd Ægir Már
Konurnar standa
vel fyrir sínu
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Skrifstofa Sjóvár-Almennra hefur
verið færð af efstu hæðinni á Aust-
urvegi 38 á Selfossi niður á jarðhæð-
ina. Þar ræður ríkjum sú þekkta
kona á Selfossi, Bryndís Brynjólfs-
dóttir, og hefur sér til aðstoðar Lóu
Guðmundsdóttur. Þær standa vel
fyrir sínu þótt ekki séu þær há-
( skólagengnar - báðar gagnfræðing-
ar.
Bryndis byrjaði snemma að vinna
eh foreldrar hennar ráku Tryggva-
skála hér á Selfossi við góðan
orðstír í fjölda ára. Þegar þau hættu
vegna aldurs tók Bryndís við hótel-
inu og rak af miklum dugnaði ásamt
því að vera með litla fataverslun,
Lindina.
Bryndís var bæjarfulltrúi á Sel-
fossi i 8 ára og kom ýmsum góðum
málum í höfn. Þá stjómaði hún Hót-
el Selfossi um tíma eftir að hótelið
hafði lent í fjárhagshffiðleikum.
Ásmundarsalur:
Listamenn mótmæla
Á fundi í Félagi íslenskra mynd-
listarmanna, FÍM, var þeirri
ákvörðun borgaryfirvalda að kaupa
Ásmundarsal við Freyjugötu og
breyta í barnaheimili mótmælt og
harmað að borgaryfirvöld og eig-
andi hússins, Arkitektafélag ís-
lands, skyldu ekki hafa í heiðri ósk
Ásmundar Sveinssonar myndhöggv-
ara um að nýta ævinlega húsið í
þágu listarinnar eftir hans dag.
-GHS
Starfsfólk Hárhúss Kötlu. DV-mynd Daníel Ólafsson
Nýttu gömul plötu-
umslög rokkarans
í geislahulstur
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Við vorum að leita að leið til
sparnaðar. Faðir minn á mikið af
tómum, gömlum plötuumslögum
sem við klipptum í sundur í sömu
stærð og geislahulstur og sprautuð-
um þau svo,“ sagði Júlíus Guð-
mundsson í hljómsveitinni Deep
Jimi, sem hefur gefið út nýja geisla-
plötu. í stað hinna hefðbundnu
plasthulstra eru hulstrin úr pappa
úr gömlu umslögunum.
Júlíus átti hugmyndina og þeir
hafa gert þúsund eintök. Er það
mikill sparnaður en Júlíus sagðist
varla vera tilbúinn til að gera þetta
aftur. Allir fjórir félagar hljómsveit-
arinnar unnu hörðum höndum að
verkefninu. Þetta hefur ekki verið
gert áður hér á landi og tók tvær
vikur.
Júlíus er sonur rokkarans mikla í
Keflavík (Guðmundar) Rúnars Júl-
íussonar. Framan á hulstrinu eru
handmálaðar rósir og nafn hljóm-
sveitarinnar. Með diskinum fylgir
textablað, handskrifað af stúlku í
Keflavík, sem einnig teiknaði mynd-
ir á hulstrið. Strákarnir halda
næstu daga tónleika og kynna plöt-
una.
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
Listamenn sýna
í Hárhúsi Kötlu
Daníel Ólafsson, DV, Akranesi:
Nýverið flutti Hárhús Kötlu í
nýtt og glæsilegt húsnæði að Still-
holti 14 á Akranesi. Hárhúsið varð 9
ára í september. Boðið verður upp á
þá nýjung á nýja staðnum að einn
listamaður i senn mun sýna verk í
einu horni stofunnar. Fimm manns
starfa á stofunni og er hún opin
virka daga frá kl. 9-18 nema
fimmtudaga frá 9-20 og laugardaga
frá 10-14.
Gæði og hreinleiki
Gustavsberg blöndunar- og hreinlætistækin eru stílhrein og endingargóð.
Kynnið ykkur fjölbreytta og fallega hönnun fyrir eldhús og baðherbergi.
- þar sem gæði og hreinleiki skipta máli
Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum
Innflutningsaðili Gustavsberg á Islandi: Krókháls hf. Sími 587 6550