Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Page 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Page 35
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 47 Fréttir Júlíus með hulstrið. DV-mynd Ægir Már Konurnar standa vel fyrir sínu Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Skrifstofa Sjóvár-Almennra hefur verið færð af efstu hæðinni á Aust- urvegi 38 á Selfossi niður á jarðhæð- ina. Þar ræður ríkjum sú þekkta kona á Selfossi, Bryndís Brynjólfs- dóttir, og hefur sér til aðstoðar Lóu Guðmundsdóttur. Þær standa vel fyrir sínu þótt ekki séu þær há- ( skólagengnar - báðar gagnfræðing- ar. Bryndis byrjaði snemma að vinna eh foreldrar hennar ráku Tryggva- skála hér á Selfossi við góðan orðstír í fjölda ára. Þegar þau hættu vegna aldurs tók Bryndís við hótel- inu og rak af miklum dugnaði ásamt því að vera með litla fataverslun, Lindina. Bryndís var bæjarfulltrúi á Sel- fossi i 8 ára og kom ýmsum góðum málum í höfn. Þá stjómaði hún Hót- el Selfossi um tíma eftir að hótelið hafði lent í fjárhagshffiðleikum. Ásmundarsalur: Listamenn mótmæla Á fundi í Félagi íslenskra mynd- listarmanna, FÍM, var þeirri ákvörðun borgaryfirvalda að kaupa Ásmundarsal við Freyjugötu og breyta í barnaheimili mótmælt og harmað að borgaryfirvöld og eig- andi hússins, Arkitektafélag ís- lands, skyldu ekki hafa í heiðri ósk Ásmundar Sveinssonar myndhöggv- ara um að nýta ævinlega húsið í þágu listarinnar eftir hans dag. -GHS Starfsfólk Hárhúss Kötlu. DV-mynd Daníel Ólafsson Nýttu gömul plötu- umslög rokkarans í geislahulstur Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: „Við vorum að leita að leið til sparnaðar. Faðir minn á mikið af tómum, gömlum plötuumslögum sem við klipptum í sundur í sömu stærð og geislahulstur og sprautuð- um þau svo,“ sagði Júlíus Guð- mundsson í hljómsveitinni Deep Jimi, sem hefur gefið út nýja geisla- plötu. í stað hinna hefðbundnu plasthulstra eru hulstrin úr pappa úr gömlu umslögunum. Júlíus átti hugmyndina og þeir hafa gert þúsund eintök. Er það mikill sparnaður en Júlíus sagðist varla vera tilbúinn til að gera þetta aftur. Allir fjórir félagar hljómsveit- arinnar unnu hörðum höndum að verkefninu. Þetta hefur ekki verið gert áður hér á landi og tók tvær vikur. Júlíus er sonur rokkarans mikla í Keflavík (Guðmundar) Rúnars Júl- íussonar. Framan á hulstrinu eru handmálaðar rósir og nafn hljóm- sveitarinnar. Með diskinum fylgir textablað, handskrifað af stúlku í Keflavík, sem einnig teiknaði mynd- ir á hulstrið. Strákarnir halda næstu daga tónleika og kynna plöt- una. Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa. Allur hagnaður rennur til líknarmála. Listamenn sýna í Hárhúsi Kötlu Daníel Ólafsson, DV, Akranesi: Nýverið flutti Hárhús Kötlu í nýtt og glæsilegt húsnæði að Still- holti 14 á Akranesi. Hárhúsið varð 9 ára í september. Boðið verður upp á þá nýjung á nýja staðnum að einn listamaður i senn mun sýna verk í einu horni stofunnar. Fimm manns starfa á stofunni og er hún opin virka daga frá kl. 9-18 nema fimmtudaga frá 9-20 og laugardaga frá 10-14. Gæði og hreinleiki Gustavsberg blöndunar- og hreinlætistækin eru stílhrein og endingargóð. Kynnið ykkur fjölbreytta og fallega hönnun fyrir eldhús og baðherbergi. - þar sem gæði og hreinleiki skipta máli Fæst í öllum helstu byggingavöruverslunum Innflutningsaðili Gustavsberg á Islandi: Krókháls hf. Sími 587 6550

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.