Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Blaðsíða 3
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995 3 L.JÓÐ DAGSINS l.jóð jynrhvem thiij ársms og orð lil Ihugunar Sigurbjörti Hinursson valdi efnid Ljóð dagsins Sigurbjörn Einarsson valdi efnið ( þessari veglegu bók eru mörg hundruð Ijóð eftir 93 íslensk skáld - eitt Ijóð fyrir hvern dag ársins - og auk þess á hverri síðu „Orð til íhugunar". Allir sem unna Ijóðum munu hitta marga vildarvini á blöðum þessarar bókar. Og víst er að þeir sem staldra við hjá henni stundarkorn á hverjum degi munu hafa af því ofurlitla upplyftingu sem gerir þeim lífið léttara. Hugljúf lesning hvern dag ársins. Sannarlega eiguleg bók - og vegleg tækifærisgjöf. Fímm læknar segja frá Önundur Bjömsson skráði Þrautreyndir læknar fara á kostum og segja frá sjálfum sér, fjölþættum skoðunum sínum og læknisferli. En þeir eru: Árni Björnsson, fyrrverandi yfirlæknir lýtalækningardeildar Landspítalans, Björn Önundarson fyrrverandi héraðslæknir og heimilislæknir í Reykjavík, Hrafnkell Helgason yfirlæknir á Vífilsstöðum, Pétur Pétursson frá Höllustöðum, heimilislæknir á Akureyri og Þorgeir Gestsson fyrrverandi héraðslæknir og heimilislæknir í Reykjavík. í bókinni eru 65 myndir. Lát hjartað ráða för Susanna Tamaro Þýðing: Thor Vilhjálmsson Þessi bók kom fyrst út í heimalandi höfundar, Ítalíu, fyrir 18 mánuðum og hefur selst þar í 2 milljónum eintaka. Hún hefur nú komið út á 20 tungumálum og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. , „Lát hjartað ráða för“ er saga konu sem lifað hefur langan dag og óskar barnabarni sínu þeirra heilla, að hjartað megi ráða för- áður en það er um seinan. Úr ritdómi um „Lát hjartað ráða för“: „Verkið er sneisafullt af vitsmunalegri hlýju ... skáldsaga, sem er sérlega vel rituð ... Hin mikilvægu skilaboð um vægi sjálfstæðrar skynjunar óma í yndislegri sögu, sem er rík af hlýju, vél hugsuð og vitræn ... Unun er að lesa þýðingu Thors svo hljómfögur og stílhrein er hún.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Alþýðublaðinu. Pétur siómaður Ásgeir Jakobsson Pétur sjómaður er ævisaga Péturs Sigurðssonar alþingismanns, sem um þriggja áratuga skeið setti mikinn svip á stjórnmála- og verkalýðssögu landsins og var alþjóð kunnur sem „Pétur sjómaður". Hér segir af sjómannsferli Péturs, 28 ára þingsetu hans, - baráttu fyrir hagsmunamálum sjómannastéttarinnar og forystu hans við uppbyggingu Hrafnistuheimilanna. Pétur sjómaður er því allt í senn: sjómannssaga, framkvæmdasaga og verkalýðs- og stjórnmálasaga. Bókina prýða 120 myndir. JOHN HEDGECOE ALLT UM MYNDBANDS TÖKU Vængir ástarinnar Danielle Steel Þýðing: Skúli Jensson Spennandi ástar- og fjölskyldusaga eftir metsöluhöfundinn Danielle Steel. Svona erum við Þýðing: Örnólfur Thorlacius Þessi bók er einkum sniðin að ungum lesendum frá 6 til 12 ára. - Myndskreytt fróðleiks- og uppsláttarrit. . Dagbók barnsins Ný falleg, litprentuð bók sem varðveitir minningar um barnið frá fæðingu og fyrstu árin. Bók sem verður örugglega skoðuð aftur og aftur. Allt um myndbandstöku Þýðing: Örnólfur Thorlacius Ómissandi handbók fyrir alla sem eiga og nota myndbandsvél (vídeó) eftir hinn heimsfræga Ijósmyndara og kennara John Hedgecoe. Efninu til skýringar eru 800 litmyndir. FREYJUGOTU 14. REYKJAVIK SÍMAR551 7667 - 552 9150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.