Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
Fréttir________________________________________________________________
Tvítug dansmær frá Tahítí brenndist illa á sýningu á Hótel íslandi:
Hér hafa allir veriö
góöir viö mig
- sagði dansmærin Vanessa eftir vel heppnaða aðgerð á Landspítalanum
Danshópurinn hefur verið hér á
landi síðustu daga vegna kynningar
á samnefndri nýrri áfengistegund
sem Austurbakki flytur inn.
Óhappið varð þegar Vanessa var
að setja blómakrans á höfuð eins
gesta Hótel íslands. Eldur frá spritt-
kerti læstist í fatnaði hennar og hár
og breiddist örskjótt út. Nærstaddir
gestir náðu að slökkva í henni og
komst hún undir læknishendur á
ótrúlega skömmum tíma miðað við
aðstæður. Ólafur Einarsson lýta-
læknir framkvæmdi aðgerð á Va-
nessu þar sem hann flutti skinn frá
baki hennar á hálsinn og þykir að-
gerðin hafa tekist mjög vel.
Hún hefði ekki fyrirgefið
okkur ef við hefðum hætt
Félagar hennar í danshópnum
kláruðu sýninguna á Hótel íslandi.
Foringi hópsins, Hinano, sagði í við-
tali við DV í gærkvöldi að þeim
hefði brugðið mjög þegar þau sáu
eld í hári Vanessu. En þau hefðu
hins vegar ákveðið að halda áfram
fyrir hana, hún hefði aldrei fyrirgef-
ið þeim ef þau hefðu hætt sýning-
unni.
„Hún sagðist hafa heyrt tónlist-
ina frá okkur þegar hún beið eftir
sjúkrabUnum og það hjálpaði henni
mikið. AUir hafa reynst okkur mjög
vel, sérstaklega fólkiö á spítalanum,
og viljum við þakka kærlega fyrir
það. Við ákváðum að klára dag-
skrána á íslandi og tileinka
Vanessu sýninguna í kvöld,“ sagði
Hinano í gærkvöldi, skömmu fyrir
sýningu í Perlunni við lok kynning-
arinnar Vín og drykkir sem haldin
var um helgina. -bjb
Flateyri:
Heilir postulínsmunir
finnast I rústunum
Hinano, foringi danshópsins Anaké frá Tahítí, á danssýningu í Perlunni í
gærkvöldi sem var tileinkuð Vanessu, dansmeynni sem brenndist illa á Hót-
el íslandi kvöldið áður. DV-mynd JAK
„Ég er fegin að þetta gerðist þó á
Islandi. Hér hafa aUir verið svo góð-
ir við mig,“ sagði Vanessa, tvítug
dansmær frá Tahítí, við þá gesti
sem fengu að heimsækja hana á
gjörgæsludeUd Landspítalans í gær
eftir erfiða aðgerð. Vanessa varð
fyrir því óhappi á Hótel íslandi á
laugardagskvöldið að brennast illa á
hálsi og baki þegar hún var að
skemmta ásamt félögum sínum í
danshópnum Anaké frá Tahítí.
Vanessa, tvítug dansmær úr hópn-
um Anaké, í Bláa lóninu á föstudag,
daginn áður en hún brenndist á Hót-
el Islandi. DV-mynd GS
Þjoðvegurinn
eins og skautasvell
Flateyringar komu saman á laug-
ardag og sunnudag til að hreinsa til
á svæðinu sem snjóflóðið fór yfir 26.
október síðastliðinn.
„Það kom þónokkuð af fólki, það
var dreift um svæðið með hrífur,
skóflur og hjólbörur. Ýmsir munir
fundust, til dæmis gömuð kakó-
kanna, alveg heil en loklaus, einnig
gamlar myndir, ótrúlega lítið
skemmdar, og óskemmdir postulíns-
munir," sagði Magnea Guðmunds-
dóttir, oddviti á Flateyri, í samtali
við DV í gær.
Gámaþjónusta Vestfjarða var
með gáma á svæðinu og í þá gat fólk
fieygt rusli.
Magnea sagði að Flateyringar
hefðu ekki gert sér vonir um að
hægt yrði að vinna þetta starf fyrr
en í vor en vegna veðurblíðunnar
undanfarið hefði þetta verið mögu-
legt. Þá sagðist hún gera sér vonir
um að áframhald gæti orðið á
hreinsuninni næstu daga ef veðrið
yrði hagstætt. -ÞK
Þjóðvegurinn var eins og skauta-
svell en leit út eins og hann væri al-
veg auður,“ sagði lögreglumaður á
Hvolsvelli í samtali við DV í gær-
kvöldi. Harður árekstur varð á þjóð-
veginum rétt austan við Hellu milli
Toyota-pallbíls og fólksbifreiðar.
Farþegar og ökumenn sluppu með
skrekkinn en fólksbíllinn er ónýtur
eftir skellinn. Nokkuð var um
útafakstur en þar fór þó allt vel. -sv
Auglýst eftir röntgentæknum:
Enginn
sáttahugur
- segir talsmaður röntgentækna
Landspítalinn auglýsti um helg-
ina eftir átta röntgentæknum
og/eða röntgenhjúkrunarfræðing-
um viö rcntgen- og myndgrein-
ingadeild spítalans. Eins og kunn-
ugt er gengu röntgentæknar út af
spítalanum 1. desember sl.
„Þetta er bara eins og við bjugg-
umst við. Það hefur ekki verið
boðað til fundar og enginn sátta-
hugur virðist í mönnum eða vilji
til aö leiðrétta þá skerðinu sem
við höfum orðið fyrir.
Röntgentæknar eru tilbúnir til
viðræðna en okkur finnst ekki að
við eigum að eiga frumkvæðið að
þeim,“ sagði Sigrún Margrét
Magnúsdóttir röntgentæknir í
samtali viö DV.
Hún sagðist ekki eiga von á að
neinn sækti um þessi störf, þaö
væru engir röntgentæknar tilbún-
ir til þess og erlendir
röntgentæknar hefðu helmingi
hærri laun þannig að þetta ætti
varla að freista þeirra. -ÞK
Islenskri DNA-
rannsókn
hnekkt í Noregi
- áfrýjað til Hæstaréttar
NA-rannsókn, sem gerð var í Nor-
egi, stangast á við íslenska DNA-
rannsókn. Á grundvelli íslensku
rannsóknarinnar var 23 ára gamall
Breti dæmdur í 12 mánaða fangelsi
í Héraðsdómi Reykjavíkur 18. des-
ember sl. fyrir að hafa nauðgað 41
árs gamalli íslenskri konu um borð
í togaranum Þerney í Reykjavíkur-
höfn þann 8. október síðastliðinn.
Samkvæmt íslensku rannsókn-
inni, sem gerð var hjá Rannsóknar-
stofnun í meinafræðum, var talið að
sæði í smokk sem konan framvísaði
væri úr ákærða.
Ásgeir Á. Ragnarsson, verjandi
ákærða, sagði í samtali við DV í
gær að í dag myndi hann áfrýja til
Hæstaréttar jafnframt því að fara
fram á flýtimeðferð í málinu. Ásgeir
segir að það sé Hæstaréttar að skera
úr um hvor rannsóknin sé gild, sú
norska eða íslenska.
Ekki náðist í forstöðumann Rann-
sóknastofu í meinafræði í gær. -ÞK
I>V
Miklum verð-
mætum stolið
úr raðhúsi
Fingralangir létu greipar
sópa í raðhúsi í efra Breiöholti
um helgina. Farið var inn í
fjölda íbúða í raðhúsinu og rót-
að í dóti og hlutum stolið. M.a.
tóku hinir bíræfnu bófar skart-
gripi, 100 geisladiska, marga
hverja mjög verðmæta, 80 þús-
und krónur í peningum o.fl.
Brotist var inn á-fleiri stöðum
í borginni og þurfti fólk meðal
annars á sjá á eftir sjónvarps-
tækjum vídeótækjum og hljóm-
flutningstækjum. -sv
Kveikt í
gúmmímottu
Kveikt var í gúmmímottu fyr-
ir framan fataverslun að Lauga-
vegi 60 snemma á laugardags-
morgun. Eldurinn náði að
teygja sig upp eftir húsinu og
einhverjar rúður sprungu vegna
hitans. Þær hrundu þó ekki úr
og samkvæmt upplýsingum frá
RLR mun enginn reykur hafa
komist inn í verslunina.
Slökkvilið náði að slökkva eld-
inn áður en verr fór. -sv
Barn datt í
smurgryfju
Fimm ára gamall drengur
datt í tveggja metra djúpa smur-
gryfju við Laugaveg á laugar-
dag. Hann kvartaði undan
verkjum í höfði og eitthvað var
hann skorinn. Pilturinn var
fluttur með sjúkrabíl á slysa-
deild og við fyrstu sýn virtist
hann óbrotinn. -sv
Stuttar fréttir
Úrskurður um hæfi
Samtök sveitarfélaga á höfuð-
-borgarsvæöinu vilja fá úr því
skorið hvort skólastjórar og
kennarar teljast hæfir til setu í
sveitarstjómum eftir að grunn-
skólinn verður fluttur til sveit-
arfélaga. Samkvæmt fréttum
RÚV úrskurðar félagsmálaráð-
herra í málinu.
Gagnrýnir fjármála-
ráðuneytið
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
að fiármálaráðuneytið hafi að
fyrra bragði haft bein afskipti af
innheimtmnálum sýslumanna
gegn einstökum skuldunautum
ríkissjóðs. Þetta kom fram i
fréttum RÚV.
Verkfræðingur ársins
Sverrir Ólafsson rafmagns-
verkfræðingur fékk viðurkenn-
inguna verkfræðingur ársins
hjá stórfyrirtækinu Rockwell.
Að því er fram kom í fréttum
RUV hannaði hann kubb í tölvu-
mótald sem eykur hraða og má
segja að sé undirstaða interriet-
byltingarinnar.
Uppsagnir í
Bændahöllinni
Bændasamtökin ætla að
fækka starfsfólki í Bændahöll-
inni og leigja frá sér húsnæði.
Einnig verður, samkvæmt frétt-
um RÚV, fækkað í yfirstjóm
samtakanna.
Rafmagnslaust
sunnan Glerár
Rafmagn fór af Akureyri
sunnan Gleráf á sjöunda tíman-
um í gærkvöldi. Samkvæmt
fréttum RÚV var það skamm-
hlaup í jarðstreng sem olli raf-
magnsleysinu.
Landvernd vill
endurgreiðslu
Vegna seinagangs yfirvalda
vill Landvemd fá endurgreitt fé
sem lagt var fram til girðingar-
framkvæmda. Ríkissjónvarpið
greindi frá þessu. -ÞK/bjb