Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
Utlönd
Viðvörun ungs bresks fórnarlambs alsæluneyslu:
Ekki þess virði að bjóða
dauðanum upp í dans
- sextíu hafa látist af völdum efnisins í Bretlandi, síðast á laugardag
Alsælutöflur sem íslenska fíkniefnalögreglan hefur gert upptækar.
DV-mynd GVA
Dauðsföllum af völdum fíkniefn-
isins alsælu í Bretlandi fer sífellt
fjölgandi og er nú talið að það hafi
orðið að minnsta kosti sextíu
manns að bana, nú síðast á laugar-
dag. Unglingar skella skollaeyrum
við viðvörunum um að með neyslu
efnisins séu þeir að „dansa við
dauðann". Alsælutöflur ganga þar
undir sakleysislegum nöfnum eins
og snjóbolti og diskóborgari. Ung-
lingar neyta efnisins til að geta
dansað alla nóttina í svokölluðum
reifpartíum.
Síðasta fórnarlamb alsælunnar á
Bretlandi var hinn nítján ára gamli
Andreas Bouzis. Hann hné niður og
dó á næturklúbbi í Lundúnum á
laugardagskvöld.
Yfirvöld segja að allt að tíundi
hluti breskra ungmenna kunni að
hafa fiktað við alsælu, sem fyrst
barst til Evrópu frá New York seint
á níunda áratugnum. Sumir áætla
að hálf milljón manna taki efnið í
viku hverri.
Fyrsta fórnarlamb alsælu í Bret-
landi datt niður og dó á diskóteki
árið 1988. Síðan þá hafa allt að níu
manns látið lífið af völdum þessa
fikniefnis á ári hverju. Lögreglan
leggur hald á sífellt meira magn efn-
isins.
Andreas Bouzis dó aðeins sólar-
hring eftir að annað fórnarlamb al-
sælúnnar, Helen Cousins, varaði
önnur ungmenni við hættunni sem
stafa af efninu. Ekki gat Helen þó
flutt viðvörun sína sjálf þar sem
hún getur. ekki talað og er með
slöngu tengda við gat á hálsi sér.
Það var Janet, móðir hennar, sem
las yfirlýsinguna frá henni.
„Þið gerið ykkur grein fyrir því
að alsæla er ekki þess virði að bjóða
dauðanum upp í dans,“ sagði í við-
vörun Helenar.
Helen var flutt í skyndingu á
sjúkrahús eftir aö hafa drukkið
tæpa sjö lítra af vatni til að vega
upp á móti vökvatapi af völdum al-
sæluneyslu. Hún var marga daga
milli heims og helju og mun aldrei
bíða þessarar neyslu sinnar bætur.
Þegar Leah Betts fór í dá eftir al-
sæluneyslu í átján ára afmælis-
veislu sinni í nóvember birtu for-
eldrar hennar mynd af henni með-
vitundarlausri á sjúkrahúsinu. Þau
létu slökkva á vélunum sem héldu í
henni lífi eftir fimm daga. En þau
virðast hafa talað fyrir daufum eyr-
um i Bretlandi og um Vestur-Evr-
ópu alla, þar sem vinsældir alsælu
eru miklar.
Yfirvöld í Ástralíu hafa miklar
áhyggjur af vaxandi alsæluneyslu
þar í landi og eru að undirbúa áætl-
un til að stemma stigu við efninu.
Fimm hafa látist af völdum alsælu-
neyslu í Ástralíu, sá síðasti í fyrri
viku. Reuter
Mynd þessi sýnir hálfbrunnið vegabréf ungrar breskrar konu, Johanne Masheder, sem búddamunkur í Taílandi hefur nú viðurkennt að hafa rænt og myrt.
Munkurinn sagðist þó ekki hafa nauðgað henni eins og jafnvel var talið í fyrstu. Rotnandi lik ungu konunnar fannst í gili ekki langt frá búddaklaustrinu en
þá hafði hennar verið saknað í tæpar þrjár vikur. Símamynd Reuter
Forsetakosningarnar í Portúgal í gær:
Sósíalistinn sigraði
með nokkrum mun
Sósíalistinn Jorge Sampaio
sigraði örugglega í forsetakosn-
ingunum í Portúgal í gær og tek-
ur hann við af flokksbróður sín-
um, Mario Soares. Þegar rétt
rúmlega helmingur atkvæða
hafði verið talinn haföi þessi
kurteisi fyrrum borgarstjóri í
Lissabon fengið um 54 prósent at-
kvæða en keppinautur hans,
íhaldsmaðurinn Anibal Cavaco
Silva, fyrrum forsætisráðherra,
um 46 prósent.
Útgönguspár sjónvarpsstööva
höfðu gert ráð fyrir enn meira af-
gerandi sigri sósíalistans, eða að
hann fengi allt að sextíu prósent
atkvæða.
Cavaco Silva hafði ekki fyrir
þvi að bíða eftir að talningu lyki
og viðurkenndi ósigur sinn.
„Fyrstu orð mín eru að óska
Jorge Sampaio til hamingju með
sigurinn," sagði Cavaco Silva á
fundi með fréttamönnum. Síðan
beindi hann máli sínu til hins ný-
kjöma forseta og sagði: „Ég óska
þér velfarnaðar þegar þú sinnir
skyldustörfum þínum í þágu
portúgöisku þjóðarinnar."
Úrslit forsetakosninganna eru
enn einn sigurinn fyrir sósíalista
í Portúgal sem sigruðu í þing-
kosningum fyrir þremur mánuö-
um og komust aftur í stjórn eftir
tíu ára stjórnarandstöðu.
í kosningunum í gær gerðist
það í fyrsta sinn frá því að lýð-
ræði var komiö á í landinu árið
1974 að Portúgalir kusu sér for-
seta úr sama flokki og forsætis-
ráðherra þeirra er i. Reuter
Rússar gáfu Tsjetsjenunum meiri tíma:
Síðasti fresturinn
rann ut í morgun
Rússnesk stjórnvöld framlengdu
frestinn sem þau gáfu uppreisnar-
mönnum frá Tsjetsjeníu sem halda
allt að sjötíu gíslum í litlu þorpi í
Dagestan, nærri tsjetsjensku landa-
mærunum. Uppreisnarmennirnir
fengu síðastliðna nótt tii að hugsa
ráð sitt.
Itar-Tass fréttastofan sagði að
samkomulag um frekari frest hefði
náðst í viðræðum skæruliðanna,
sem hafa haldið til í þorpinu Per-
vomajskaja síðan á miðvikudag, og
embættismanna frá Dagestan.
„Þeir fá nóttina til að hugsa sig
um,“ hafði Itar-Tass eftir talsmanni
innanríkisráðuneytisins.
Ekki var greint frá því til hvaða
aðgerða rússnesku hersveitirnar,
sem hafa umkringt uppreisnar-
mennina, mundu grípa ef gíslarnir
yrðu ekki látnir lausir. Uppreisnar-
mennirnir eru um tvö hundruð.
Tass hafði það eftir embættis-
manni innanríkisráðuneytisins að
uppreisnarmennirnir kynnu að
reyna að flýja inn í Tsjetsjeníu í
skjóli náttmyrkurs.
Þegar skyggja tók skutu Rússar
upp hverju leifturblysinu á fætur
öðru til að lýsa upp svæðið en ekki
sáust nein merki þess að árás væri
í aðsigi. Hermenn virtust þó vera
nokkuð hvumpnir. „Það er mjög
hættulegt hérna í kvöld," sagði da-
gestanskur lögregluþjónn.
Rússar beittu mannræningjana
sálfræðilegum þrýstingi í gær með
því að útvarpa um hátalara hvatn-
ingu til þeirra um að gefast upp.
Reuter
I>V
Stuttar fréttir
Fangar við góða heilsu
Uppreisnarmenn aðskilnaðar-
sinna í Indónesiu, sem rændu 15
manns, þar á meðal Evrópubúum,
sögðu í gær að fangarnir væru við
góða heilsu.
Þrir ákærðir fyrir morð
Þrír menn hafa verið ákærðir
fyrir morðið á Rabin, forsætisráð-
herra ísraels, þ.e. sá sem hefur
játað á sig verknaðinn, bróðir
hans og ejnn aðstoðarmaður til.
Díana brjóstaber
Breska
æsifréttablaðið
People sagði í
gær að verið
væri að bjóða
sjónvarpsstöðv-
um til sölu
myndbandsupp-
töku af Díönu
prinsessu þar sem hún situr með
ber brjóstin á sundlaugarbarmi,
sennilega tekin þegar hún var í
jólafríi í Vestur-Indíum.
Leyndu sprengju
Sprengja sprakk á Champs
Elysées í París 30. desember en
lögreglan þagði um hana til að
vekja ekki ótta meðal almenn-
ings.
í rétta átt
Warren Christopher, utanríkis-
ráðheina Bandaríkjanna, segir
ísraela og Sýrlendinga hafa þok-
ast nær friði með því að ræða
fleiri þætti en áður, undir stjórn
Bandaríkjamanna.
Ashrawi í átökum
Palestínska
mannréttinda-
konan Hanan
Ashrawi sagði í
gær að ísraelska
lögreglan heföi
stjakað við sér
og tekið stuðn-
ingsmenn henn-
ar fasta til að stöðva kosningabar-
áttu hennar í Jerúsalem fyrir
fyrstu kosningamar í Palestinu.
Ekki áfengi að kenna
Áfengið sem fannst í líki flug-
stjóra bandarísku þotunnar, sem
fórst í Kólumbíu um jólin, kom til
vegna náttúrlegra efnahvarfa eft-
ir dauðann.
Öfundsjúkir í Alaska
Útivistarfólk í Alaska er farið
að örvænta vegna snjóleysis þar
um slóðir og öfundar mjög landa
sína á austurströndinni sem era á
kafi í fonn.
Þreifingar forseta
Oscar Luigi Scalfaro, forseti
ítaliu, byrjar viðræður við stjóra-
málaleiðtoga í vikunni í leit að
nýrri ríkisstjórn.
íhugar framboö
Míkhaíl Gor-
batsjov, fyrrum
Sovétleiðtogi,
sagði í viðtali
við franska
sjónvarpsstöð í
gær að líkurnar
á því að hann
byði sig fram í
forsetakosningunum í Rús'slandi í
sumar færu sífellt vaxandi.
Spenna hjá Kohl
Spenna er nú I ríkisstjórn
Kohls Þýskalandskanslara eftir
að þrír þingmenn frjálsra
demókrata hótuðu að setja sig
upp á móti stjóminni.
Læst í fortíð
Tony Blair, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, segir
Margareti Thatcher, fyrrum for-
sætisráðherra, vera læsta í fortíö-
inni en hann bar þó lof á þrumu-
ræðu hennar um stjórn Majors.
Reuter