Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Side 9
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
9
Utlönd
Væntanleg ævisaga Englandsdrottningar:
Filippus ótrúr Elísabetu
Filippus drottningarmaður.
Efasemdir um að Filippus, eigin-
maður Elísabetar Englandsdrottn-
Unglingum ráð-
Sagt að stöðva
kossaflangsið
Unglingum í norðurhluta Eng-
lands hefur verið ráðlagt að hætta
að kyssast vegna heilahimnubólgu-
faraldurs sem hefur orðið átta ung-
mennum að bana frá því um jólin,
nú síðast sautján ára pilti á föstu-
dag.
Heilbrigðisyíirvöld í suðurhluta
Jórvíkurskíris og í kringum Nott-
ingham hafa ákveðið að efna til
bólusétningarherferðar og bólusetja
fjórtán þúsund börn á aldrinum
tveggja til átján ára.
„Hægt er að smitast af heila-
himnubólgu með kossum þar sem
bakterían berst með munnvatni.
Það mundi borga sig fyrir unglinga,
sem búa á svæðum þar sem heila-
himnubólgutiifelli hafa komið upp,
að hætta öllu partístandi um sinn,“
sagði Alan Mousley, talsmaður heil-
brigðisyfirvalda í Nottinghamskíri.
Reuter
Kaupmannahöfn
orðin menningar-
höfuðborg
Evrópu
„Kaupmannahöfn mun sýna um-
heiminum hvers við erum megnug
en það er ekki bara okkar fólk sem
verður til sýnis. Alls konar perlur
og stjörnur annars staðar frá munu
koma og auðga okkur og gesti okk-
ar,“ sagði Margrét Þórhildur Dana-
drottning í veislu þegar Kaup-
mannahöfn tók við sæmdarheitinu
menningarhöfuðborg Evrópu af
Lúxemborg.
Á komandi ári verða rúmlega eitt
þúsund list- og menningarviðburðir
í Kaupmannahöfn og munu herleg-
heitin kosta borgina um ellefu millj-
arða íslenskra króna.
Meðal þess sem gestir og gang-
andi í Kaupmannahöfn geta barið
augum á þessu ári er fyrsta sýning-
in á ætingum eftir Rembrandt og
sextíu impressiónistaverk frá París
sem mjög sjaldan eru lánuð út.
Reuter
ingar, hafi verið konu sinni trúr
hafa enn einu sinni komið upp á yf-
irborðið og eru gerðar að umtalsefni
í nýrri ævisögu drottningar sem
kemur út í febrúar, í tOefni sjö-
tugsafmælis hennar. Breska blaðið
The Times birti útdrátt úr bókinni
um helgina.
Orðrómur um að Filippus hafi
verið konu sinni ótrúr á fyrstu
árum hjónabandsins hefur oft skot-
ið upp kollinum í bresku æsiblöðun-
um en það þykir tíðindum sæta að
virðulegt blað á borð við Times
skuli brjóta þá bannhelgi sem hefur
verið um einkalíf drottningar, öfugt
við það sem gerist um börn hennar.
„Hjónaband þeirra er mjög svo
konunglegt. Elísabet er af kynslóð
sem var alin upp við það að búast
ekki við hjónabandstryggð heldur
hollustu. Elísabet skilur löngun
hans í sjálfstæði og tekur tillit til
þess,“ skrifar höfundur bókarinnar,
Sarah Bradford, og leggur trúnað á
fyrri frásagnir um að drottningar-
maður renni hýru auga til annarra
kvenna.
Hún segir frá atviki í veislu einni
þegar Elísabet fylgdist með eigin-
manninum dansa mjög þétt upp við
dóttur gestgjafanna. „Hún sér en
vill ekkert vita. Hún vill heldur
ekki láta segja sér. Þegar hirðmey
reyndi að upplýsa hana rak Elísabet
hana, þrátt fyrir áralanga vináttu
þeirra," skrifar Bradford en segir að
hjónabandið sé engu að síður gott.
Reuter
Múslímar og
Króatar lofa
böt og betrun
Króatar og múslimar í Bos-
níu létu undan þrýstingi frá ut-
anríkisráðherra Þýskalands og
herstjóra NATO í landinu í gær
og lofuðu að bæta samskipti
þjóðarbrotanna til að renna
styrkari stoðum undir sam-
bandsríki þeirra. Það á að ger-
ast á næstu tveimur vikum.
Muhamed Sacirbey, utanrík-
isráðherra Bosníu, sagði að
múslímar og Króatar hefðu lof-
að að sameína borgina Mostar
undir eina stjórn en hún er nú
veiki hlekkurinn í sambands-
ríkinu. Reuter
“
Þegar þú eignast góðan,
notaðan bíl frá okkur, getur
þú valið annað tveggja:
DÆMI UM GREIÐSLUR
af vaxtalausu láni
Verð bíls 800.000 kr.
Útborgun 200,000 kr.
________Eftirst. 26.313 kr.
á mánuði í 24 mánuði
Allur lántökukostnaður
jnnifalinn
1
Vaxtalausl lán til
24 mánaða að upphæð
allt að 600 þús. kr.
Ríflegan
Margrét Þórhiidur flytur ræðu í
menningarveislu í Kaupmannahöfn.
Símamynd Reuter
»
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12
SÍMI: 568 1200 beint 581 4060
Opið laugardag kl. 10-17
og sunnudag kl 13-17,
virka daga til kl. 19.
’diGOD HV1|B HIGViON r'-vu.
MSKHIM aiavroM