Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Side 10
10
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
Samstarf Evrópuþjóða í
málefnum fatlaðra, HEUOS II.
Island varð fullgildur aðili að samstarfsáætlun Evrópuþjóða um málefni fatlaðra
(Helios II) 1. janúar 1996 á grundvelli 31. greinar samþykktar Evrópska efnahags-
svæðisins. Áætlunin hófst 1993 og mun standa yfir til ársloka 1996. íslendingum býðst
nú tækifæri til að taka þátt í árlegri samkeppni á vegum Helios II, um verkefni sem fjalla
um málefni fatlaðra. Þessi verkefni eru: Blöndun fatlaðra I almenna skóla (þjálfun kenn-
ara). Félagsleg aðlögun fjölfatlaðra. Endurhæfing. Tækninýjungar fyrir fatlaða.
Starfsþjálfun. Þátttaka fatlaðra á almennum vinnumarkaði.
Sérstök dómnefnd á vegum Helios II velur úr sex verkefni frá hverju aðildarríki en dóm-
nefnd ákveður síðan hvaða verkefni hljóta verðlaun. Þrenn verðlaun eru veitt fyrir verk-
efni í hverjum flokki. Verðlaun verða afhent í byrjun desember 1996 I Brussel.
Upplýsingar um þátttökuskilyrði ásamt umsóknareyðublöðum fást í
félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, sími 560 9100.
Verkefnum skal skila til félagsmálaráðuneytisins fyrir 1. mars 1996.
Félagsmálaráðuneytið
Hundaeigendur/hestamenn
Hundar í Elliðaárdal
Vegna þrálátrar veru hunda á bannsvæðinu í Elliða-
árdal, Elliðaárhólma og í hesthúsahverfi Reykjavíkur-
borgar (Faxaból og Víðidalur) vill Heilbrigðiseftirlitið
vekja athygli á að samkv. samþykkt nr. 305/1989 um
hundahald í Reykjavík er slíkt bannað. Brot gegn
samþykktinni geta varðað afturköllun undanþágu frá
banni við hundahaldi í borginni og viðurlögum. Rétt
er að minna á að slysahætta stafar af lausum hund-
um sem hlaupa frjálsir innan um hross. Heilbrigðis-
eftirlitið vill eindregið vara hundaeigendur við að
vera með hunda sína á bannsvæðunum í Elliðaárdal.
Framvegis verða hundar á svæðinu handsamaðir án
frekari viðvörunar og færðir í hundageymslu.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
ÚTBOÐ
F.h. íþrótta- og tómstundaráðs er auglýst laust til
leigu húsnæði við Laugardalslaug fyrir nuddstofu.
Þeir sem hafa áhuga á að gera tilboð í leigu á
aðstöðunni leggi nöfn sín inn hjá Innkaupastofn-
un Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
fyrir 19. janúar nk.
ítr 01/6
F.h. Malbikunarstöðvar Reykjavíkurborgar er ósk-
að eftir tilboðum í 9.000-11.500 tonn af asfalti.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstoíu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
14. mars 1996, kl. 11.00.
mal 02/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er ósk-
að eftir tilboðum í endurmálun á leiguíbúðum í
fjölbýli.
Útboðsgögn verða seld á 1000 krónur á skrif-
stofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
25. janúar 1996, kl. 11.00.
bgd 03/6
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er ósk-
að eftir tilboðum í endurmálun á húsnæði dag-
vistar barna.
Útboðsgögn verða seld á 1000 krónur á skrif-
stofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
1. febrúar 1996, kl. 11.00.
bgd 04/6
Fréttir____________________________________________x>v
Bruni í íbúð:
Fjórir á slysadeild
Kviknað hafði i sófa og hann skíðlogaði þegar slökkviliðið kom á vettvang.
Hér er búið að slökkva í sófanum en reykurinn úr svampinum varð þess
valdandi að þrír menn voru fluttir á slysadeild. DV-mynd S
Jólakortin Kristur læknar sjúka:
Hundrað þúsund til tón-
listarskólans á Flateyri
Með sölu á jólakortunum Kristur
læknar sjúka eftir Mugg, til styrkt-
ar Flateyringum, fyrir jólin söfnuð-
ust 100.000 krónur.
Ragnar Jónsson, sem stóð að söfn-
uninni, segir að í samráði við
Magneu Guðmundsdóttur, oddvita
Flateyrarhrepps, hafi verið ákveðið
að féð rynni til tónlistarskólans á
Flateyri, til hljóðfærakaupa, kaupa
á hljómflutningstækjum og/eða öðr-
um gögnum sem skólinn þyrfti á að
halda.
Söfnunin var gerð í minningu
þeirra sem fórust í náttúruhamför-
unum 26. október 1995.
Ragnar vill koma á framfæri
þakklæti til þeirra fjölmörgu sem
tóku þátt í þessu framtaki, kennara,
grunnskólabarna og fleiri, einnig
Háskóla íslands, fyrir veitta aðstoð.
-ÞK
„Við fengum tilkynningu um
mikinn reyk í stigagangi í fjölbýlis-
húsi við Flyðrugranda kl. 11 á laug-
ardagsmorun og þegar við komum á
staðinn skíðlogaði í sófa í stofu í
íbúð á jarðhæð. Eigandi hennar var
kominn út en þar sem ekki var vit-
að hvort fleiri væru inni voru
reykkafarar sendir til þess að kanna
málið. Svo reyndist sem betur fer
ekki vera,“ segir Ragnar Sólonsson,
varðstjóri Slökkviliðsins í Reykja-
vík.
Lögreglumaður, tveir íbúar í
nærliggjandi íbúðum og eigandi
umræddrar íðbúðar voru fluttir á
slysadeild.
„Lögreglan var á undan okkur á
staðinn og lögreglumaðurinn hafði
fengið snert af reykeitrun og sömu-
leiðis tveir menn sem aðstoðuðu á
vettvangi. Eigandinn hafði síðan
hlotið einhver brunasár. Reykur af
svampi er eitraður og það þótti
skynsamlegt að láta huga að þessu
fólki,“ segir Ragnar. -sv
Ólafsfjörður:
Engin
framleiðsla
hjá Gliti
DV, Akureyri:
Starfsmönnum keramikverk-
smiðjunnar Glits hf. í Ólafsfirði
hefur verið fækkað um þrjá, úr
10 í 7, í kjölfar erfiðleika við
sölu á framleiðsluvörum fyrir-
tækisins.
Hálfdán Kristjánsson, bæjar-
stjóri í Ólafsfirði, sem jafnframt
er starfandi framkvæmdastjóri
Glits, segir að í fyrirtækinu sé
nú eingöngu unnið við frágang
á vörum sem þegar hafa verið
framleiddar. „Það skýrist á
næstunni hvernig sölumálin
þróast og þangað til er þetta mál
nánast í biðstöðu,“ segir Hálf-
dán. -gk
Gjöf til
geðdeildar
Systkini og systkinabörn
Huldu Guðmundsdóttur, f. 15.5.
1918 - d. 10.10. 1995, færðu ný-
lega Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans 350 þúsxmd krón-
ur í minningargjöf.
Gjöflnni verður varið til efl-
ingar tónlistar- og tómstunda-
starfa við meðferö þeirra bama
sem dvelja á deildinni. -GHS
BSRB mótmælir uppsögnum á sjúkrastofnunum:
Telur starfsfólk
og stéttarfélög hafa
verið blekkt
- ítrekaö lýst yfir aö starfsfólki yröi ekki sagt upp
Stjórn BSRB samþykkti á fundi
12. janúar sl. ályktun. Þar er harö-
lega mótmælt hugmyndum stjórn-
"'enda Ríkisspítala og Sjúkrahúss
Reykjavíkur um uppsagnir starfs-
fólks, lokun deilda og sjúkrarúma
og niöurskurði á þjónustu við þá
hópa samfélagsins sem ekki geta
borið hönd fyrir höfuð sér, svo sem
aldraða og geðfatlaða.
BSRB bendir á að í viðræðum við
stéttarfélög starfsfólks á Borgarspít-
ala og á Landakoti hafi, þegar sam-
eining þessara stofnana í Sjúkrahús
Reykjavíkur var til umræðu, því ít-
rekað verið lýst yfir að sameiningin
yrði ekki til þess að starfsfólki yrði
sagt upp. Nú séu hins vegar áform
uppi um að fækka starfsfólki
Sjúkrahúss Reykjavíkur um 80
manns. Gangi það eftir hafi starfs-
fólk og stéttarfélög verið blekkt.
Einnig sé talað um að fækka starfs-
mönnum um allt að 100 hjá Ríkis-
spítulum og loka um 120 sjúkrarúm-
um á árinu.
Að áliti BSRB er ljóst að vanda-
málin hverfa ekki með þessu móti
þó að hægt verði að sýna fram á
sparnað í bókhaldi.
Enn fremur segir í ályktun stjórn-
ar BSRB að ábyrgð fjárveitinga-
valdsins sé mikil þar sem það
þvingar stjórnendur spítalanna til
að halda áfram niðurskurðinum.
-ÞK