Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
Fréttir
Flugráð:
Framkvæmdir við Reykjavík-
urflugvöll ekki á dagskrá
- niðurskurðurinn í ár kemur verst niður á Akureyrarflugvelli, segir Hilmar Baldursson, formaður Flugráðs
DV, Akureyri:
„Það var á ílugmálaáætlun að
fara 1 endumýjun flugbrautanna á
Reykjavíkurflugvelli, en þar sem sú
áætlun hefur verið skorin niður um
helming er alls óljóst hvort pening-
ar verða til þess,“ segir Hilmar
Baldursson, formaður Flugráðs. Svo
virðist sem bréf Flugráðs, sem sent
var ýmsum sveitarstjórnum, hafl á
einhverjum stöðum a.m.k. verið mi-
stúlkað á þann hátt að framkvæmd-
imar á Reykjavíkurflugvelli eigi að
heíjast á næsta ári, og tefji fram-
kvæmdir við aðra flugvelli.
„Við vorum að kynna í þessu
bréfi niðurskurð á framkvæmdafé
sem þýðir einmitt það að það verð-
ur ekki farið í framkvæmdir við
Reykjavíkurflugvöll eins og fyrir-
hugað var. Við erum sífellt að fá
bréf frá sveitarstjómum viðs vegar
á landinu, m.a. frá Akureyrarbæ
sem leggur mikla áherslu á endur-
bætur á vellinum þar. Bókun bæjar-
ráðs Akureyrar er skrítin miðað við
okkar bréf,“ segir Hilmar Baldurs-
son.
Hann segir að í ár verði allar
stórframkvæmdir skomar niður,
lokið verði þeim framkvæmdum
sem í gangi em en peningar lagðir
til endumýjunar á vélum og tækj-
um víða um land. „Það verða nánast
innansleikjur sem ráðist verður í.
Það er fyrst og ffemst Akureyrar-
flugvöliur sem geldur fyrir niður-
skurðinn í ár en þar átti m.a. að
breikka flugbrautina og svo kemur
þetta illa niður á Reykjavíkurflug-
velli,“ segir Hilmar. -gk
Skemmtilegt Hátíðlegt*
Regnhelt Auðvelt *
RentaTent
crt Tjaldaleigan. •* j 1 r
bkemmtilegt hj.
Bíldshöfða 8, 112 Reykjavík
Sími 587-6777
KIMPEX
FYRIR VÉLSLEÐANN
KIMPEX BELTI
í flestar gerðir vélsleða
Mest seldu vélsleðabeltin
AGGRESSOR, SUPER K
BIG HORN
Eigum einnig nagla og isklær
W i belti
V Skútuvogi 12A, s. 581 2530
> Heimilistœki
f Hreinlœtistœki
> Sturtuklefar
> Blöndunartceki
> Eldhús stálvaskar
> Sturtubúnaður
f Rafmagnsverkfœri
> Handverkfœri
> Vinnufatnaður
-*• Skór og stígvél
H :
:
m I * ‘'J
íslendingar nenna ekki að ganga langt frá bflum sínum. Þeir freistast því til þess að leggja farartækjunum á gangstéttum. Vart þarf að taka það fram að það
er ólöglegt og afar óheppilegt. DV-mynd GVA
Endurnýjun flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli:
Bitnar á framkvæmdum
á öðrum flugvöllum
- segir bæjarstjórinn á Akureyri
DV, Akureyri:
Flugráð hefur tilkynnt bæjaryfir-
völdum á Akureyri breytta fram-
kvæmdaáætlun við flugvelli lands-
ins þar sem ákveðið hefur verið að
taka inn endurnýjun á flugbrautum
Reykjavíkurflugvallar á næsta ári. í
bréfinu var einnig greint frá niður-
skurði á framkvæmdafé Flugmála-
stjórnar sem tefur aðrar fram-
kvæmdir.
„Við óttumst að þetta þýði enn
frekari frestun á nauðsynlegum
framkvæmdum á Akureyrarflug-
velli,“ segir Jakob Björnsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, en hann segist
reyndar ekki hafa séð endanleg fjár-
framlög til flugmála né fram-
kvæmdaröð á næstu árum.
„Það er hins vegar alveg ljóst að
ef þessi mikla endumýjun á Reykja-
víkurflugvelli verður tekin inn á
sama tíma og heildarframlög til
þessara málaflokka eru skert hlýtur
það að bitna á framkvæmdum ann-
ars staðar. Auðvitað er það okkur
hagsmunamál að Reykjavíkurflug-
völlur sé sem öruggastur og við höf-
um ekki á móti uppbyggingu þar.
Ég er hins vegar ákaflega óhress ef
þeim framkvæmdum á Akureyrar-
flugvelli, sem ég tel að hafi verið
frestað nógu lengi, verður frestað
enn frekar,“ segir Jakob.
Viðbygging við flugstöðina á
Akureyri er langt komin, en Jakob
segist óttast að fé fáist ekki til
þeirra endurbóta á gömlu flugstöð-
inni sem nauðsynlegt er tii að ný-
byggingin komi að fullum notum.
„Þá þarf að bæta aðkomu að flug-
vellinum, bílaplanið er vaðandi í
drullu, stækkun á flugvélastæði og
breikkun brautarinnar bíöur einnig
þannig að þetta er mikið mál. Þörf-
in á þessum framkvæmdum er brýn
og þess vegna hefur bæjarráð lagt
áherslu á að staðið verði við áður
geröa framkvæmdaáætlun, “ segir
Jakob. -gk
Akureyri:
Læknaráð mótmælir hækkun þjónustugjalda
DV, Akuieyri:
Læknaráð Heilsugæslustöðvar-
innar á Akureyri hefur samþykkt
harðorð mótmæli við þeim áform-
um heilbrigðisráðherra að hækka
þjónustugjöld sem sjúklingar þurfa
að greiða við komu á heilsugæslu-
stöðvar.
í samþykkt læknaráðsins segir að
slík hækkun muni auka enn frekar
eftirspum eftir símaþjónustu þar
sem leitað sé skyndilausna án þess
að fullnægjandi læknisviðtal eða
skoðun hafi farið fram. „Slíkar
starfsaðferðir eru ómarkvissar,
skaðlegar og geta verið beinlínis
hættulegar. Sérstakt rannsóknar-
gjald, sem í sumum tilfellum er
hærra en raunverulegur kostnaður
við rannsóknina, hvetur einnig til
ómarkvissra starfsaðferða," segir í
ályktun læknaráðsins sem mælist
til þess að fallið verði frá öllum
áformum um hækkun komu- og
rannsóknargjalda á heilsugæslu-
stöðvum. -gk