Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Side 26
38
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
Fréttir_____________________________________________________________________________________pv
Hugmyndir um að breyta Orkustofnun í sjálfseignarstofnun:
Stór hluti af starfseminni
færður til einkafyrirtækja
Ræddar hafa verið hugmyndir
um að gera Orkustofhun að hlutafé-
lagi eða sjálfseignarstofnun og jafh-
framt að orkuiðnaðurinn eigi að
taka meiri þátt í rannsóknarkostn-
aði orkulindanna en nú er. Sú um-
ræða er í samræmi við hugmyndir
um hvemig auka megi hagkvæmni
í rannsóknum á orkulindum. Frá
þessum hugmyndum var greint í
fréttatíma Sjónvarpsins.
Ef af því yrði að Orkustofnun
yrði breytt í sjálfseignarstofnun
myndi það óhjákvæmilega hafa í för
með sér gjörbyltingu á störfum
stofnunarinnar og ekki ósennilegt
að því fylgdu margar uppsagnir. Hjá
Orkustofnun vinna um 90 manns og
Birgir Jónsson, formaður starfs-
manncifélagsins, varð þar fyrir svör-
um.
„Það var starfandi nefnd sem átti
að skila áfangaskýrslu um starfsemi
Orkustofnunar og hugsanlegar
breytingar á henni nálægt áramót-
um og hugmyndir hennar eru drög
að áfangaskýrslu. Lokaskýrslan
sjálf á að afhendast í febrúar.
Við höfum ekki fengið þessi
áfangadrög í hendur en ég hef heyrt
hvað stendur í henni. Þar er gert
ráð fyrir að starfseminni sé skipt í
tvennt. Annars vegar verði starf-
andi lítil stofnun í kringum orku-
málastjóraembættið sem verði ríkis-
stjóminni og iðnaðarráðuneytinu
til ráðgjafar í orkumálum, innlend-
um sem alþjóðlegum. Hins vegar
verði meirihluta stofnunarinnar,
þeim hluta hennar sem sér um
framkvæmd rannsókna, dreift út í
mörg einkafyrirtæki þannig að
heildin brotni niður.
Reyndar eru ýmsar aðrar hug-
myndir í gangi, til dæmis að hinn
hlutinn verði sér ríkisstofnun, sam-
eignarfélag, hlutafélag eða tvö
hlutafélög," sagði Birgir.
Fjöldauppsagnir
„Starfsmannafélagið telur að með
þvi að sundra þessari rannsóknar-
heild sé verið að kasta á glæ mikl-
um verðmætum. Hér á Orkustofnun
er samankomin mikil þekking og
reynsla mjög hæfra starfsmanna
sem eru vanir aö vinna saman. Ef
farið yrði eftir þessum hugmyndum
myndi það sennilega þýða fjölda-
uppsagnir. Maður getur ekki skilið
það öðruvisi. Þá yrði sá hluti sem
eftir yrði aðeins um 20 manna stofn-
un.
Við teljum að þessi tillaga sé ein-
Mdlega ekki nógu vel unnin. Þeir
sem séu að leggja hana fram viti
varla hvað fer fram á svona rann-
sóknarstofnun og við trúum því
ekki að þessi tillaga verði sett í
framkvæmd.
Eftir því sem ég kemst næst hefur
ráðherra ekki haft tíma tii þess að
kynna sér tillögur nefndarinnar
enn. Sem betur fer eru þetta enn
sem komið er aðeins drög að nefnd-
aráliti. Við höfum verið að hringja í
nefndarmenn og þeir virðast ekki
allir hafa verið samstiga um þessar
tillögur. Ég veit alla vega um einn
sem vissi ekki að senda ætti út þess-
ar tillögur því hann hafði ekki kom-
ist á síðasta fund nefndarinnar.
Ég tel hins vegar að það þurfi að
endurskoða og hagræða á Orku-
stofnun eins og á öðrum stofhunum
og fyrirtækjum. Starfsmannafélagið
er æst í að taka þátt í þeirri vinnu.
En þegar tillögugerð er haldið frá
okkur verða menn nokkuð uggandi
því við vitum ekki hvað er að ger-
ast,“ sagði Birgir.
„Nefndin er skipuö af mér og er
enn að störfum. Hún skilar af sér
skýrslu fljótlega og þá mun ég taka
tillögur hennar til skoðunar. Ef þær
hugmyndir sem þama eru á kreiki
ná fram að ganga þá þýðir það tals-
verðar breytingar á starfsemi Orku-
stofnunar, það er alveg ljóst.
Ég er tilbúinn að tjá mig um mál-
ið þegar nefhdin er búin að skila frá
sér tillögum, en ekki fyrr,“ sagði
Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra.
-ÍS
Vestmannaeyjar:
Fýrsta síldin í ár
DV, Vestmannaeyjum:
Gígja VE landaði 320 tonnum af
síld hér í Eyjum fyrir helgina og var
það fyrsta súdin sem berst til Eyja á
árinu. Þá landaði Guðmundur VE
einnig 50 tonnum. SUdin er þokka-
lega góð.ísfélagið á eftir um 1200
tonna sUdarkvóta og halda þessi tvö
skip áfram sUdveiðum en Heimaey
VE er á loðnuveiðum með flottroU.
Sighvatur Bjarnason landaði 160
tonnum af sUd sem skipið fékk í
troU. -ÓG
AUKIN
ÖKURÉTTINDI
LEIGUBIFREIÐ
VÖRUBIFREIÐ
HÓPBIFREIÐ
Námskeiö til aukinna
ökuréttinda hefst þann
16. janúar nk.
Hagstœtt verö og góö
greTðslukjör.
Mörg stéttarfélög taka
þáttí kostnaði felaga
sinna.
Hafðu samband og við
sendum þér allar nánari
upplýslngar um leið.
Ökuskóli
íslands
í fyrirrúmi
9 568 3841
Dugguvogur 2
104 Reykjavík
DV-mynd GVA
Hringur og Lára eru kát og glöð í fanginu á pabba.
Borgarbraut á Akureyri:
Bæjaryfirvöld
fá engin svör
frá ríkisvaldinu
DV, Akureyri:
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa
beðið í 11 mánuði eftir svari yfir-
valda við erindi sínu um uppbygg-
ingu Borgarbrautar á Akureyri sem
bæjaryfirvöld líta á sem þjóðveg í
þéttbýli og mörgum þykir orðið
brýnt að ráðist verði í framkvæmd-
ir við.
Borgarbraut á að tengja miðbæj-
arsvæðið við byggðina utan Glerár,
og reyndar verður brautin hluti af
annarri helstu akstursleið í gegnum
bæinn með brú yfir Glerá skammt
frá Sólborg. í reiknilikani hefur sú
útkoma fengist að tilkoma brautar-
innar muni spara bæjarbúum um 30
milljónir króna á ári og hún mun
reyndar gjörbreyta notkun gatna-
kerfis bæjarins.
„Við errnn orðnir ansi óþolinmóð-
ir en ekkert hefur gengið með að
þoka þessu máli áfram. Við höfum
m.a. ýtt á þingmenn okkar og hefð-
um vonast eftir kröftugri viðbrögð-
um þar. Okkar skoðun er sú að hér
sé um þjóðveg að ræða og höfum
með rökum farið fram á að ríkið
greiði þessa framkvæmd þar sem
einnig sé um að ræða tengingu við
vaxandi byggð í næsta sveitarfélagi.
Það eru fordæmi fyrir þessari
túlkun okkar, t.d. í Reykjavík, og
spuming um að menn sitji við sama
borð, enda er þetta verkefni sem
fellur inn í þann ramma sem unnið
hefur verið eftir á höfuðborgar-
svæðinu," segir Jakob. -gk
Sandgerði
býður bygg-
ingalóðir
DV, Suðumesjum:
Bæjarstjóm Sandgerðisbæjar
hefur mikinn áhuga á að koma
til móts við þá sem vilja byggja
íbúðarhús og setjast að í bæn-
um.
Nýbúið er að deiliskipuleggja
svæöi fyrir nýbyggingar -
skipuleggja þar lóðir. Fækkun
íbúa i Sandgerði í fyrra um
4,9% hefur þjappað fólki saman
í bænum og leitað verður allra
leiða til að snúa þeim tölum viö.
„Við stefnum á að fjölga fólki
í bænum á ný. Það er til skoðun-
ar aö koma til móts viö þá sem
vilja byggja íbúðarhúsnæði með
hagstæðum gatna- og byggingar-
leyfisgjöldum," sagði Sigurður
Valur Ásbjamarson, bæjarstjóri
Sandgerðisbæjar.
-ÆMK