Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
Fréttir
íbúö skemmdist mikiö í bruna í ijölbýlishúsi viö Fannafold:
Sá að enginn var
heima og hljóp út
- segir Óskar Knudsen, nágranni sem fyrstur kom að eldinum
eldhúsinu er allt illa brunnið en sót og reykur barst um aiia íbúðina og eru
skemmdir þar verulegar. DV-mynd BG
„Ég heyrði í reykskynjaranum i
íbúðinni og fór strax yfir ganginn
að athuga hvað væri um að vera.
íhúðin var opin og ég fór inn. Það
var mikill reykur í eldhúsinu en ég
gat ekkert annað gert en að líta í
snatri inn í herbergin og athuga
hvort einhver væri heima. Svo var
ekki og þá fór og ég hringdi á
slökkviliðið," segir Óskar Knudsen,
íbúi í fjölbýlishúsi við Fannafold í
Grafarvogi.
Eldur kom upp í íbúðinni, sem er
á áttundu hæð í húsinu, í gærmorg-
un. Miklar skemmdir urðu og er allt
ónýtt í eldhúsinu og íbúðin öll svört
af sóti og reyk. Enginn var heima
því húsmóðirin þurfti að bregða sér
út. Hún er dagmóðir og hafði hún
börnin með sér.
Svo virðist sem eldurinn hafi
kviknað á eldavélinni en þó liggur
ekki fyrir með hvaða hætti það
gerðist. Fjölmennt slökkvilið kom á
staðinn og voru hæðimar fyrir ofan
og neðan rýmdar til öryggis. Að
sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu
var þó ekki veruleg hætta á ferðum.
Óskar gerði aðra tilraun til að
komast að eldinum í íbúðinni eftir
Eldurinn kom upp í íbúð á áttundu
hæð. Slökkviliðið lét rýma hæðirnar
fyrir ofan og neðan en ekki var veru-
leg hætta á ferðum.
að hann hafði hringt á slökkviliðið.
Þá var íbúðin orðin full af reyk og
ekki viðlit að komast að með
slökkvitæki. Slökkviliðið sendi
reykkafara inn í íbúðina og gekk
hann endanlega úr skugga um að
enginn væri inni. Eftir það gekk
greiðlega að slökkva eldinn.
-GK
SeyðisQörður:
Loðna sést víða
og sjómenn bjartsýnir
DV Seyðisfirði:
Nótaveiðiskipin Helga Björk ÞH
og Keflvíkingur KE voru fyrstu
skipin sem lönduðu síld hjá SR-
mjöli á nýja árinu. Ekki um mikið
magn að ræða - samtals 500 tonn.
Þar er auðvitað margt sem veldur.
Þó helst að veiðiheimildir margra
skipa eru orðnar knappar og reyna
menn þá oft að koma afla sínum
fremur í söftun eða frystingu tif að
fá sem mest fyrir feng sinn og
mögufegt er.
Nú vona menn að biðin eftir
foðnuveiði í nót styttist og veiði-
skipunum fjölgar á miðunum.
Loðnu hefur víða orðið vart og eru
menn almennt bjartsýnir á fram-
hafd veiðanna. Nokkur skip með
flottroll hafa féngið fullfermi, sum
oftar en einu sinni.
-JJ
ístravel leigir vél:
Flug-
miðinn
til
Amster-
dam
kostar
25.000
„Viðbrögðin hafa verið ágæt
og það hefur verið mikið af fyr-
irspurnum. Ég er búin að vera í
þessu í 10 ár og hef oft verið aö
hugsa um það að í sól vilja allir
íslendingar endflega fara í sólar-
landaferðir en í hreti verður allt
miklu rólegra. En það er mikið
spurt um þetta flug,“ segir
Gunnar Bragi Kjartansson,
framkvæmdastjóri ístravel.
Ferðaskrifstofan hefur gert
samning við hollenska flugfélag-
ið Transavia um leigu á Boeing
737 300 vél í sumar og býður
ódýr flugfargjöld tvisvar í viku
til Amsterdam í Hollandi. Flogið
verður seint á mánudagskvöld-
um frá Amsterdam til íslands og
farið héðan um miðnætti þannig
að lent er aftur í Amsterdam
snemma á þriðjudagsmorgni.
Flogið er aftur á miðvikudags-
kvöldum frá Amsterdam til ís-
lands og lent aftur í Amsterdam
á fimmtudagsmorgni.
Að spgn Gunnars kemur flug-
miðinn til með að kosta 24.870
krónur með sköttum fyrir 16 ára
og eldri og 22.500 krónur með
sköttum fyrir 2ja til 16 ára en
ókeypis verður fyrir ungbörn.
Enginn lágmarks- eða hámarks-
tími er á dvöl ferðamannsins en
bóka verður sæti fyrir fram og
ekki má breyta miðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ferðaskrifstofu Hafnarfjarðar
kostar ódýrasta flug með Flug-
leiðum til Hollands 29.110 til
31.010 kr. með sköttum í vor og
sumar. Greitt er 10% af fargjaldi
fyrir ungböm. -GHS
Dagfari
Elska skaltu náungann
Það ber hæst í fréttum þessa vik-
una að ekkert hefur frést úr Lang-
holtssókn. Það má merkilegt heita
eftir látlausan skæruhernað allt frá
aðventu og vel fram í síðustu viku.
Vonandi stafar þögnin ekki af því
að þjóðin fái ekki lengur að frétta
hvernig sóknarstarfið í Langholt-
inu gengur. Það hefur einmitt ver-
ið kirkjustarfi í landinu til eflingar
og uppörvunar að fylgjast með
virku starfi kórfélaga, safnaðar-
stjórnar, biskups og prófasta, svo
ekki sé talað um söfnuðinn sjálfan
sem hefur sótt messur af einskær-
um áhuga. Sóknarbörnin biða þess
spennt í hyert skipti, sem þau
ganga til kirkjubekkja, hvort prest-
urinn mæti eða organistinn eða
kórinn eða biskupinn, nú eða sátta-
semjarinn, sem verður auðvitað að
mæta til kirkju til að stilla til frið-
ar ef upp úr skyldi sjóða.
Það er einmitt svo skemmtilegt
við þetta safnaðarstarf að það er
aldrei hægt að ganga að því vísu
hver er með hverjum. Fyrst var
það að sjálfsögðu presturinn á móti
organistanum eða var það orga-
nistinn á móti prestinum? Skiptir
ekki máli, því þeir eru innilega og
afdráttarlaust á móti hvor öðrum,
sem er þvi athyglisverðara út frá
sjónarhóli kirkjustarfsins og trúar-
kenningarinnar að þeir eru búnir
að starfa saman í sókninni um ára-
bil og hafa þannig þroskað með sér
andúðina og illmælgina hvor um
annan. Svo var það formaður Pre-
stafélagsins andspænis biskupi ís-
lands og sú skemmtilega og menn-
ingarlega deila sem spratt af orða-.
skiptum þeirra varðandi skilgrein-
inguna á orðinu bull. Biskupinn
fann það nefnilega út að formaður
Prestafélagsins bullaði og sagðist
vera þreyttur á bullinu. Ekki það
að formaðurinn megi ekki bulla
pínulítið en það getur verið þreyt-
andi til lengdar fyrir sjálfan bisk-
upinn yfir íslandi þegar prestar
bulla í sífellu.
Formaðurinn tók þetta að sjálf-
sögðu óstinnt upp og kærleiks-
blómin spruttu enn á ný í kirkju-
starflnu og um tíma leit út fyrir að
kalla þyrfti málfræðing til að stilla
til friðar á bænum þeim. Svo fór þó
ekki, því biskup vildi fyrst setja
niður deiluna í Langholtssókn með
því að fá dómsmálaráðherra til að
hlutast til um að reka annan
hvorn, prestinn eða organistann.
Dómsmálaráðherra sá strax í
hendi sér að afskipti af slíkri deilu
yrðu hans banabiti í pólitíkinni og
frábað sér alla íhlutun. Þegar það
gekk ekki skipaði biskup Eirík
Tómasson lögmann sem sáttasemj-
ara til að ganga á milli klerksins og
organistans sem er vitaskuld þýð-
ingarlaust og löðurmannlegt verk-
efni í ljósi þess einlæga haturs sem
þeir hafa ræktað með sér.
Ekki hafði Eiríkur fyrr verið
fenginn til sáttastarfanna en í ljós
kom að hann var samstarfsmaður
eiginkonu organistans og talinn
vilhallur honum fyrir vikið. Það
var ekki fyrr en Eiríkur sagðist
hafa verið í skóla með prestinum,
sem sættir tókust um að fá hann til
að sætta deiluaðila. Biskup segist
bera fullt traust til Eiríks og það er
meira heldur en hægt er að segja
um traustið sem hann ber til for-
manns Prestafélagsins. Hvort for-
maður Prestafélagsins ber traust
til Eiríks er svo annað mál, enda
voru þeir ekki saman í skóla og Ei-
ríkur hefur ekki tjáð sig um bullið
í formanninum sem biskupinn er
orðinn svo þreyttur á. En þá verða
menn líka að muna að biskupar
verða fljótt þreyttir á bulli sem
þeir heyra frá kirkjunnar þjónum,
enda þarf biskupinn oftar að sækja
kirkju heldur en Eiríkur. Það er
hans böl.
Nú er sem sagt liðið á vikuna án
þess að almenningur hafi fengið
fregnir af gangi mála í Langholts-
sókn og Dagfari er orðinn óþreyju-
fullur að vita hver er vondur út í
hvern og hver er orðinn þreyttur á
hverjum. Kannske verður maður
að sækja messu á sunnudaginn til
að fá nýjustu fréttir?
Dagfari