Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 5 Fréttir Strætisvagn ók inn i hús við Sundstræti á ísaflrði: Flugum á sófanum inn á mitt gólfið - segir Friðgeröur Hallgrímsdóttir sem var að skoða myndir með manni sínum og dóttur „Þetta var eins og sprenging. Við flugum með sófanum inn á mitt gólf og ultum út úr honum. Ég er dálítið aum í baki en annars verð ég að segja að við höfum sloppið vel,“ seg- ir Friðgerður Hallgrímsdóttir, íbúi í húsinu númer 15 vð Sundstræti á ísafirði. Rétt fyrir hádegið í gær var stræt- isvagni ekið á húsið og hafnaði hann á stofuglugganum með fyrr- greindum afleiðingum. Hálku er kennt um hvernig fór en húsið stendur nokkuð út í götuna. Friðgerður, Magnús Arnórsson maður hennar og Kristjana dóttir þeirra voru að skoða myndir þegar strætisvagninn skall á húsinu af miklu afli. „Við vorum rétt sestar þegar sprengingin varð. Sófinn er hér lappalaus inni á miðju gólfi en það var lán í óláni að það voru rimlag- ardínur fyrir glugganum. Annars hefðum við fengið glerið úr honum yfir okkur,“ segir Friðgerður. Magnúsi líst svo á sem húsið sé ónýtt eftir komu strætisvagnsins. Hann segir að það hafi skekkst á grunninum og stórt gat komið á vegginn þar sem vagninn lenti. „Þetta verður metið af trygging- unum en ég sé ekki að það svari kostnaði að gera við húsið. Það er mikil eftirsjá í því enda vorum við búin að gera það upp og fáum það Húsið skemmdist illa við áreksturinn. Útveggur brotnaði og milliveggir sprungu auk þess sem húsið færðist til og skekktist á grunninum. Meðaleinkunn lægri í læknisfræðinámi Háskólans: Sex nemendur bættust við numerus clausus „Það hefur alltaf verið regla að ef útlendingur er í „numerus clausus- hópnum" í læknisfræðinni, þá verði engir íslendingar látnir gjalda fyrir það. Það var bandarísk stúlka sem var í 5. sæti og vegna þess urðum við að hækka töluna úr 30 í 31. Fimm nemar voru að auki með sömu einkunn í síðustu sætunum. Samkvæmt reglum sem við höfum sett okkur, þá gerum við ekki upp á milli þeirra. Endanlega tala nem- enda sem sluppu í gegn á fyrsta ári var því 36 í stað 30,“ sagði Anna Harðardóttir, skrifstofustjóri hjá læknadeild Háskóla Islands. „Þegar talan í numerus clausus er ákveðin er miðað við að ekki sé hægt að kenna fleirum í verklegu námi á sjúkrahúsunum. Miðað var við 36 nemendur fyrir fjórum árum, en minnkaði niður í 30 þegar Landa- koti var lokað og hefur verið þannig þrjú síðustu ár. En þetta ætti ekki að vera óleysanlegt vandamál þó tal- an hafi farið upp í 36 að þessu sinni. Meðaleinkunnin er lægri í ár en í fyrra. Þeir sem sluppu í gegn núna með lægstu einkunn voru með 7,83 i meðaleinkunn en samsvarandi tala í fyrra var 8,33. Ég held að ástæðan felist meðal annars í því að nýr kennari byrjaði hjá deildinni og áherslur eru aðrar hjá honum,“ sagði Anna. -ÍS Þjófnaðir á Héraði Lögreglan á Egilsstöðum hefur til rannsóknar nokkur þjófnaðamál. Síðustu daga hefur útvarpstækjum verið síolið úr fjórum bifreiðum á Egilsstöðum og tveimur sumarbú- stöðum við Eiðavatn auk þess sem 2 sjónvarpstækjum var stolið úr sum- arbústöðunum. Lögreglan óskar eftir upplýsing- um sem leitt gætu til uppljóstrunar málanna, ekki síst um grunsamleg- ar mannaferðir við sumarbústaðina síðustu vikurnar. -bjb Magnús Arnórsson, húsráðandi að Sundstræti 15 á ísafirði, virðir fyrir sér skemmdir sem stræltisvagninn olli á stofunni. Magnús stendur þarna við sófa sem kona hans og dóttir sátu í við útvegginn þegar 17 tonna strætisvagn skall á húsinu. Mæðgurnar þeyttust fram á gólf við áreksturinn, en sakaði ekki utan þess sem konan kvartaði um eymsli í baki. Mæðgurnar voru nýsestar niður þegar atburðurinn átti sér stað og voru að skoða myndir. aldrei bætt að fullu,“ sagði Magnús. Húsið er gamalt timburhús en í góðu standi. Mæðgurnar Friðgerður og Kristj- ana sátu tvær í sófanum en Magnús sat í sófa til hliðar. Hann haggaðist ekki. Kristjana lýsir atvikum einnig eins og sprengingu áður en hún kastaðist með sófanum inn á gólfið. Kallað var á lækni vegna bak- meiðsla Friðgerðar en hún þurfti ekki að fara á sjúkrahús. Þegar DV talaði við heimilisfólk- ið var verið að loka gatinu á veggn- um og var fjölskyldan að velta fyrir sér möguleikunum á að halda til í húsinu fyrst um sinn þrátt fyrir verulegar skemmdir. „Þau eru svona, slysin, gera ekki boð á undan sér. Það er bara að taka því,“ sagði Friðgerður með ró þrátt fyrir áfall dagsins. Myndir og texti: Hörður Kristjánsson. -GK ■ , M Somsung SF-2800 er óvenju-fallegt faxfœki. Það hefur innbyggðan stafrœnan sfmsvara, kirstolsskjá, 80 númera minni, 10 númera beinvalsminni, 16 gráskala hágœðaupplausn á móftöku, Ijósritunarmöguleika, 10 blaosíðna fínu verði! SAAðSUNG SF-40 faxtœki er meðsíma, hágœða- upplausn, 10 númera minni, tengjanlegt við símsvara, Tjósritunar- möguleikum o.ml. TILALLT AÐ36 MANAÐA 1 V/SA RAÐGREIOSL UR TILAUT AO 24 MANAOA Hraðþjónusta við Iandsbygg8ina: (Kostar innanbasjarsímtal og vörarnor eru sendar samdaagurs) G rensásvi Sími:5886886 Fax:5í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.