Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
Útlönd
Stuttar fréttir :dv
Tsjetsjensku uppreisnarmennirnir og gíslar þeirra enn í Pervomajskaja:
Rússar héldu árásum
sínum áfram í morgun
Óbreyttir borgarar í þorpinu Pervomajskaja í Dagestan reyna að hugga konu sem á son meðal gíslanna sem upp-
reisnarmenn Tsjetsjena hafa haldið þar í nokkra daga. Rússneskar hersveitir réðust til atlögu gegn mannræningjun-
um í gær og héldu bardagar áfram í morgun.
Símamynd Reuter
Rússneskar hersveitir hófu linnu-
lausa skothríð á þorpið Pervoma-
jskaja í Dagestan að nýju i morgun,
sólarhring eftir að þeir hófu árás
sína í gær, til að reyna að sigrast á
uppreisnarmönnum Tsjetsjena sem
hafa tugi gísla á valdi sínu.
Skothríðin, sem beindist einkum
að suðvesturhluta þorjjisins, var svo
mikil að jörðin nötraði og skalf við
varðstöð hersins í fimm kílómetra
fjarlægð. Þungvopnuð rússnesk
þyrla skaut að minnsta kosti einu
flugskeyti að þorpinu. Tsjetsjensku
uppreisnarmennirnir svöruðu skot-
hríð Rússanna og ein sprengja
sprakk nærri varðstöðinni.
Mikill fjöldi Mi-24 þungvopnaðra
þyrlna, sem ganga undir n'afnihu
„krókódílarnir" vegna framljóss
nefsins, komu fljúgandi að þorpinu.
Skothríð rússnesku hermann-
anna þykir benda til þess að þeir
ætli sér að ljúka ætlunarverki sínu
sem fyrst. Borís Jeltsín Rússlands-
forseti sagði í gær að verkinu yrði
lokið á einum degi.
Foringinn heill á húfi
Talsmaður aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjeníu sagði í samtali við Reut-
ers fréttastofuna að Salman Radú-
jev, leiðtogi uppreisnarmannanna í
Pervomajskaja, væri heill á húfi eft-
ir sjö tilraunir rússneskra her-
manna til að ná bækistöðvum hans
í þorpinu á sitt vald.
Hann sagði að skömmu fyrir
klukkan fimm að íslenskum tíma í
morgun hefði hópur rússneskra
hermanna komist í gegnum varnir
uppreisnarmanna og náð nokkrum
húsum undir sig. Barist var hús úr
húsi langt fram á nótt.
Fréttamenn í grennd við Pervom-
ajskaja sáu hvar hópur særðra rúss-
neskra hermanna var fluttur um
borð í þyrlu sem flaug með þá i
burtu.
Ekki var ljóst í morgun hver
hefðu orðið örlög flestra gíslanna,
sem taldir eru vera milli 70 og 116,
og tölum deiluaðila um særða og
faflna bar ekki saman.
Rússneskir embættismenn sögðu
í morgun að hersveitir þeirra hefðu
frelsað þrjá gísla til viðbótar við þá
ellefu sem var bjargað i gær eftir
Nær 20 pró-
senta atvinnu-
leysi í Finnlandi
Atvinnuleysi í Finnlandi
mældist 19,6 prósent í desember
og er líklega meira þar en nokk-
urs staðar í Evrópu. f nóvember
höfðu 18,4 prósent atvinnufærra
verið án vinnu. Þessi aukning
er að hluta til vegna árstíða-
bundinnar sveiflu á vinnumark-
aði. í desember í fyrra mældist
atvinnuleysið 20,2 prósent.
Serbar og Bosn-
íumenn deila
um fangaskipti
Stjórn Bosníu neitaði í gær að
sleppa serbneskum stríðsfong-
um nema Serbar létu lausa fjög-
ur þúsund múslíma. Serbar hafa
boöist til að sleppa tvö hundruð
múslímum. Samkvæmt friðar-
samningunum eiga fangaskiptin
að hafa farið fram á fóstudag.
Leiðtogar Bosníuserba héldu
fund í gærkvöldi til að ræða
hvort Serbar ættu að halda
áfram flótta sínum eða dvelja
um kyrrt í úthverfum Sarajevo
til þess að þrýsta á að Dayton-
friðarsamkomulaginu verði
breytt. Reuter
daglanga bardaga við uppreisnar-
menn.
Ekki var þó ljóst hvort umræddir
þrír gíslar væru þeir sömu og tsjet-
sjensku uppreisnarmennirnir sjálfir
sögðust hafa leyst úr haldi til að
þeir gætu „sagt sannleikann" um at-
burðina.
Rússneskur liðsforingi sagði
fréttamönnum nærri þorpinu í
morgun að hermennirnir væru að
reyna að hraða aðgerðum sínum
þar sem þeir óttuðust árás annarra
tsjetsjenskra uppreisnarmanna aft-
an frá.
í nótt mátti stöku sinnum heyra
skothríð og sprengjudrunur í Per-
vomajskaja. Þá skutu rússnesku
hermennirnir upp blysum yfir þorp-
inu svo ljóst varð sem um hábjartan
dag. Hermennirnir hættu þó þegar
gránaði af degi um sjöleytið að stað-
artíma í morgun.
Jeltsín forseti var harðlega gagn-
rýndur fyrir árásina í gær en hann
sagði hana hafa verið nauðsynlega
til að bjarga lífi gíslanna eftir að
uppreisnarmennirnir höfðu skotið
nokkra þeirra og samningaviðræð-
urnar runnu út í sandinn. Reuter
Sendinefnd til íraks
Bandaríkin og Bretland hcifa
samþykkt tillögu Frakklands
um að senda nefnd frá SÞ til
íraks til að kanna áhrif við-
skiptabannsins.
Betlehem lokað
ísraelsmenn hindruðu umferð
til og frá Betlehem eftir að ísra-
elskur maður var skotinn þar og
særður í gær.
Papandreou segir af sér
Andreas
Papandreou,
forsætisráð-
herra Grikk-
lands, sagði
af sér emb-
ætti í gær
vegna van-
heilsu. Eftir-
maður hans
verður valinn síðar í vikunni.
Eiginkona Papandreous,
Dimitra, sagði í tímaritsviðtali,
sem birtist í gær, að fjölskylda
Papandreous reyndi að koma í
veg fyrir að hún tæki við emb-
ættinu.
Aftur til Nígeríu
Bretar hafa sent sendiherra
sinn aftur til Nígeríu 2 mánuð-
um eftir að hann var kallaður
heim vegna aftöku rithöfundar-
ins Kens Saro-Wiwas.
Konungur Lesotho ferst
Moshoeshoe II, konungur
Lesotho, fórst i bílslysi um helg-
ina. Búist er við að sonur hans
taki við völdum eftir lát foður
síns.
Könnunarviðræður
Oscar
Luigi
Scalfaro, for-
seti Ítalíu,
hefur í dag
viðræður við
formenn
stjórnmála-
flokkanna
vegna stjóm-
málakreppunnar og myndunar
nýrrar stjórnar. Möguleiki er á
myndun fjölflokkastjórnar eða
kosningum ári fyrr en til stóð.
Flýja skæruliða
Herskip hafa flutt yfir 100
óbreytta borgara frá hafnarborg
í suðvesturhluta Líberíu vegna
árása skæruliða.
Engin eftirgjöf
Utanríkisráðherra Sýrlands,
Ehud Barak, segir Sýrlendinga
gera sér grein fyrir aö ísraelar
vilji ekki semja um vatn sem
þeir fá frá Golanhæðum.
Ný ímynd
W. de
Klerk, að-
stoðarforseti
Afríku, segir
að flokkur
sinn sé að
leita að nýrri
ímynd og að
starf hans
kunni að
vera í hættu. Á fréttamanna-
fundi í Höfðaborg staðfesti de
Klerk fregnir, sem lekið hafa til
blaða, um að flokkur hans
kunni, í leit sinni að nýrri
ímynd, að endurmeta stefnuna.
Óhjákvæmilegur dauði
Kínverskur félagsfræðingur
sagði í gær aö dauði barna á
munaðarleysingjahælum væri
óhjákvæmilegur þar sem mörg
barnanna væru veik þegar þau
kæmu á heimilin.
Endurskoða meðferð
Bresk fangelsismálayfirvöld
ætla að endurskoða þá stefnu
sína að hlekkja kvenfanga á
sjúkrahúsum, jafnvel á meðan
þeir fæða. Alvarlega eyðnisjúk
kona hefur kært meðferðina á
kvenfóngum. Reuter
Alræmdur eiturkóngur á
bak við lás og slá í Texas
Alræmdur eiturlyfjaforingi, Juan Garcia
Abrego, dúsir nú í fangelsi í Houston í
Texas þangað sem hann var færður í járn-
um í gær eftir að mexíkósk yfirvöld fram-
seldu hann til Bandaríkjanna. Abrego, sem
stjórnaði eiturlyfjahring með 140 milljarða
króna veltu á ári, var á lista bandarísku al-
ríkislögreglunnar FBI yfir þá menn sem
hún vildi helst hafa tal af.
Abrego var greinilega mjög taugaóstyrk-
ur þegar hann var skráður inn í fangelsið í
gærkvöldi, umkringdur mönnum úr vík-
ingasveit lögreglunnar. Hann veröur leidd-
ur fyrir dómara í dag og ákærður fyrir eit-
urlyfjasmygl og morð, að sögn embættis-
manna. Hann á yfir höfði sér lífstíðarfang-
elsi, verði hann fundinn sekur.
Garcia Abrego var handsamaður í borg-
inni Monerrey í noröurhluta Mexíkós á
sunnudag og fluttur til Mexíkóborgar þaðan
sem flogið var með hann til Houston. Hann
er sakaður um að flytja inn þriðjung kóka-
ínsins sem er á markaði í Bandaríkjunum.
„Hann sá um flutningana fyrir Caíi-eitur-
lyfjahringinn, hann var pakkaflutninga-
maðurinn þeirra," sagði embættismaður
innan löggæslunnar.
Ekki hefur verið skýrt frá því í smáatriö-
um hvernig handtakan gekk fyrir sig en
Abrego hafði verið eftirlýstur um allan
Eiturlyfjakóngurinn Juan Garcia Abrego er umkringdur útsendurum
alríkislögreglunnar FBi í Houston sem fluttu hann í fangelsi í gær-
kvöldi. Símamynd Reuter
heim í þrjú ár og í fyrra var
hann settur á lista yfir tíu eftir-
lýstustu glæpamenn í Bandaríkj-
unum.
Auk eiturlyfjasmygls og pen-
ingaþvættis er Abrego sakaður
um aðild að morðum á tveimur
mexíkóskum stjórnmálamönn-
um árið 1994 en þau tengsl hafa
þó aldrei verið sönnuð.
Bandarísk stjórnvöld lýstu
yfir ánægju sinni með handtöku
Abregos og sögðu hana sýna eit-
urlyfjasmyglurum að lítið stoð-
aði fyrir þá að ætla að fela sig í
Mexíkó. Reuter