Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 2^ Fréttir Ríkisreikningur 1994: Óvissa um lífeyris- skuldbindingar - að mati Ríkisendurskoðunar Borgarfjarðarsýsla: Brotist inn í sumar- bústaði Nokkuö er alltaf um það aö brotist sé inn í sumarbústaði í umdæmi lögreglunnar í Borgar- nesi. Um helgina var brotist inn í nokkra slíka og eins og venju- lega eru menn á höttunum eftir sjónvörpum og öðru verðmæti. Litlar skemmdir voru unnar á þeim stöðum sem farið var inn í að þessu sinni. -sv Hékk í bíl Maður slasaðist lítillega eftir að hafa hangið í bíl á Hverfis- götu aðfaranótt sunnudags. Ökumaðurinn reyndist drukk- inn og tókst lögreglu að hafa hendur í hári hans. -sv Samkvæmt skýrslu Ríkisendur- skoðunar um rikisreikninga 1994 hækkuðu bókfærðar lífeyrisskuld- bindingar A-hluta ríkissjóðs um 3,6 milljarða og námu 64 milljörðum í árslok. Ófærðar skuldbindingar vegna B-hlutans námu 12 milljörð- um og 3 milljörðum vegna A-hlut- ans. Til grundvallar mati á ofan- greindum skuldbindingum liggur tryggingafræðileg úttekt á stöðu þeirra lífeyrissjóða sem starfsmenn ríkisins eiga aðild að. Ríkisendur- skoðun segir matið óhjákvæmilega byggjast að nokkru leyti á óvissum forsendum, t.d. hvað varðar ávöxt- un á eignum sjóðanna. „Þannig hefur verið reiknað með að næstu áratugina verði árleg ávöxtun eigna 2% umfram launa- hækkanir. Ávöxtun umfram launa- hækkanir skiptir hér máli þar sem lífeyrisgreiðslur hækka hjá ríkis- starfsmönnum sem komnir eru á eftirlaun ef hækkun verður á laun- um þeirra sem gegna samsvarandi starfi hjá ríkinu og viðkomandi líf- eyrisþegar gegndu áður. Ef raun- veruleg ávöxtun verður hærri en 2% eru lífeyrisskuldbindingar eins og þær birtast í ríkisreikningi 1994 ofmetnar. Þar sem lífeyrisskuld- bindingar eru meðal veigamestu skuldaliða í efnahagsreikningi rík- issjóðs vill Rikisendurskoðun und- irstrika þá óvissu sem ríkir um for- sendur útreiknings á þeim,“ segir m.a. í skýrslunni. -bjb Norðurárdalur: Bíllinn ónýtur Tveir ökumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíll þeirra valt við Valgilsá í Norðurárdal á sunnudagskvöld. Bíllinn er gjör- ónýtur. -sv Grindavíkurvegur: Beltin björguðu Bilbelti og bamastóll forðuðu því að ekki fór illa þegar jeppa- bifreið fór eina og hálfa veltu út fyrir veg á Grindavíkurvegi á sunnudag. Bíllinn er mikið skemmdur en 5 farþegar sluppu með skrekkinn. Stakur hálku- blettur mun hafa komið bilstjór- anum í opna skjöldu. -sv Akranes: Góð að- sókn að listasetri DV, Akranesi: „Gestafjöldi hjá okkur hefur farið fram úr björtustu vonum okkar, mun fleiri hafa komið en við gerðum ráð fyrir. Við getum ekki verið annað en bjartsýn með framhaldið í ár,“ sagði Jó- hanna Jónsdóttir, forstöðumað- ur Listasetursins Kirkjuhvols á Akranesi, í samtali við DV. Alls sóttu 3.803 gestir lista- salhið á síðasta ári en 28. janúar nk. verður það eins árs. Afmæl- ishátíðin byijar 27. janúar með málverkasýningu Sigríðar Björnsdóttur - Sossu. DÓ Ökumenn tveggja bifreiða voru fluttir á slysadeild eftir aftanákeyrslu á Suðurlandsvegi við Geitháls á föstudagskvöld. Eins og sést á myndinni er a.m.k. önnur bifreiðin mikið skemmd. Báðar bifreiðarnar voru dregnar af staðnum með kranabíl. Kvörtuðu mennirnir um eymsli í baki og hálsi. Nokkrir aðrir árekstr- ar urðu í borginni um helgina, hvort sem lúmskum hálkublettum er um að kenna eða öðru. DV-mynd S Skoöanakönnun Hagvangs: Ánægja með rekstur og þjónustu apóteka Rúmlega átta af hverjum 10 eru mjög ánægðir með þá þjónustu sem apótekin í þeirra byggðarlögum veita. Aðeins 1,5 prósent eru óá- nægð með þjónustuna. Þetta er nið- urstaða skoðanakönnunar Hag- vangs meðal íslendinga á afstöðu þeirra til þjónustu og fjölda apóteka á íslandi. Úrtakið var 1200 manns af fólki á aldrinum 15-75 ára og var tekin dagana 6.-15. desember. Einnig var spurt spurningarinnar „Finnst þér nægflega mörg apótek á því svæði þar sem þú býrð?“ Nálægt 9 af hverjum tíu svöruðu þeirri spumingu játandi. Geðsjuk kona slapp frá Borg- arspítala Óskað var eftir liðsinnis lög- reglu þegar geðsjúk kona slapp frá Borgarspítala á fóstudags- morgun. Þyrla lögreglunnar var í viðbragðsstöðu en hennar var ekki þörf þar sem konan kom fljótlega í leitirnar. Starfsmenn kirkjugarðanna í Fossvogi sáu til konunnar og létu vita af ferð- um hennar áður en hún hafði orðið sér eða öðmm til voða. -bjb 4 „Heimsþekkt myndbandaleigukeöja“: Vill hérlendar myndbandaleigur „Við erum ekki kátir en það er svo sem engin örvænting heldur í gangi. Auðvitað er slæmt að fá er- lent stórfyrirtæki inn á markaðinn en við komum bara til með að mæta aukinni samkeppni,“ segir Þórodd- ur Stefánsson, formaður Mynd- marks, samtaka myndbandaleigna og rétthafa myridbanda á íslandi. Um helgina auglýsti Kristján Öm Elíasson markaðsfræðingur fyrir hönd „heimsþekktrar myndbanda- leigukeðju“ eftir tiu myndbanda- leigum til kaups á höfuðborgar- svæðinu. í auglýsingunni segir að „fjársterkur erlendur aðili“ muni staðgreiða leigumar. „Það eru sérstæðar markaðsað- stæður á Islandi þannig að við töld- um að við værum nokkuð öruggir með að erlendir aðflar hefðu ekki áhuga á aö koma hingað en enginn virðist lengur öruggur," segir hann. Þegar DV hafði samband við Kristján Öm í gær vOdi hann ekk- ert segja til um hvaða keðju væri um að ræða. Getgátur em um að bandaríska keðjan Blockbuster standi á bak við auglýsinguna. Það hefur ekki fengist staðfest. -GHS Þegar iðnaðarráðherra var á dögunum í Borgarnesi ásamt fylgdarliði heim- sótti hann nýtt fyrirtæki þar, Engjaás ehf., sem er til húsa þar sem áður var Mjólkursamlag Borgfirðinga. Meðal starfsemi þar nú er átöppun allra sterkra víntegunda sem framleiddar eru á landinu. Á myndinni, sem tekin var í húsa- kynnum Engjaáss, eru frá vinstri: Árni Magnússon, aðstoðarmaður ráð- herra, Indriði Albertsson, framkvæmdastjóri Engjaáss, Jón Guðmundsson aðstoðarframkvæmdastjóri, Finnur Ingólfsson ráðherra og Magnús Stefáns- son þingmaður. DV-mynd Olgeir, Borgarnesi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.