Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 32
36 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 Krókaveiðimenn gerðu þjóðina ríka. Síðustu frjálsu fiskimennirnir „Krókaveiöimenn eru síðustu frjálsu fiskimennirnir við ís- landsstrendur - leifarnar af því fyrirkomulagi sem gerðu þjóðina ríka.“ Sighvatur Björgvinsson í DV. Sjómenn höfðu rétt fyrir sér „Það er mjög ánægjulegt aö fiskifræðingarnir skyldu koma á svæðið og sjá að sjómenn hafa rétt fyrir sér.“ Guðjón A. Kristjánsson i DV. Ummæli Innan eða utan kirkjunnar „Það er ekkert sem getur kom- ið í veg fyrir að kórinn starfi áfram. Það er bara spurning um hvort við verðum áfram innan kirkjunnar eða utan.“ Jón Stefánsson kórstjóri í Tim- anum. Meira af því sama „Samkeppni í sjónvarpi leiðir sjaldnast til aukinnar fjölbreytni heldur til þess að sýnt er meira af því sama.“ Árni Bergmann í DV. Stórir jarðskjálftar hafa orðið í Kína. Mynd þessi er frá Peking eftir stóran jarðskjálfta sem varð í grennd við borgina. Hálf milljón jarð- skjálftar á ári Talið er að á jörðinni verði ár- lega um hálf milljón jarðhrær- ingar sem greinast á mælum. Af þeim eru 100.000 skjálftar það stórir að menn finna fyrir þeim og um 1.000 sem valda skemmd- um. Dýpstu skjálftaupptök hafa mælst 720 km í Indónesíu 1933, 1934 og 1943. Jarðskjálftar eru mældir með svokallaðri Guten- berg-Richter skjálftakvarða sem fyrst var tekinn í notkun 1954. Hann hefur þann veikleika að hann þykir ekki öruggur þegar sterkustu skjálftarnir, sem eru skjálftar á mælikvarðanum yfir 8, eru mældir. Blessuð veröldin Mannskæðustu skjálftarnir Mesta manntjón, sem heimild- ir greina frá, varð í jarðskjálfta þeim sem skók hverja einustu borg í Austurlöndum nær og við austanvert Miðjarðarhaf í júlí árið 1201. Samtímaheimildir telja að 1,1 milljón manns hafi látið lífið. Öllu traustari heimild- ir eru fyrir þvi að 830.000 manns hafi farist í jarðskjálfta í Shensi í Kína 1556. Mannskæöasti jarð- skjálfti á síðari tímum var Tangshan skjálftinn í Kína 1976 sem var að styrkleika 8,2. Tölum um fjölda látinna hefur ekki borðið saman og hafa Kínverjar birt tölur allt frá 242.000 í 750.000 manns sem eiga að hafa farist. Vaxandi sunnanátt Skammt norður af Hvarfi er vax- andi 980 millíbara lægð sem hreyfíst norður. í dag verður vaxandi sunn- anátt á landinu - allhvöss um vest- anvert landið og þar verður farið að Veðrið í dag rigna um hádegi. Það verður síðan rigning norðvestan til á landinu en skúrir suðvestan til. Um landið austanvert verður vindur heldur hægari, þykknar upp í dag en úr- komulaust. í nótt verða skúrir vest- anlands en skýjað með köflum aust- an til. Hiti á bilinu 2 til 6 stig. Á höf- uðborgarsvæðinu verður vaxandi sunnanátt. Stinningskaldi eða all- hvasst og rigning í kringum hádegi. Sunnankaldi eða sinningskaldi og skúrir síðdegis. Hiti á bilinu 2 til 6 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.22 Sólarupprás á morgun: 10.51. Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.32. Árdegisflóð á morgun: 3.19. Heimild: Almanak Háskólans. Veórió kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaó 3 Akurnes léttskýjaö 1 Bolungarvík léttskýjaö 1 Egilsstaöir skýjaó 1 Keflavíkurflugv. skýjaó 2 Kirkjubkl. léttskýjaö 0 Raufarhöfn léttskýjaö -1 Reykjavík úrkoma í grennd 2 Stórhöfði úrkoma i grennd 3 Helsinki þokumóóa 0 Kaupmannah. þokumóöa -1 Ósló snjókoma -1 Stokkhólmur þokumóöa -1 Þórshöfn léttskýjaó 6 Amsterdam þokumóóa 1 Barcelona þokumóöa 13 Chicago skýjað -6 Frankfurt þokumóða 1 Glasgotv þokumóöa 6 Hamborg þokumóóa 1 London þoka 5 Los Angeles skýjaö 14 Madrid skýjaö 7 París lágþokublettir 3 Róm léttskýjaö 4 Mallorca léttskýjaö 9 Neui York heiöskírt -6 Nice skýjaö 10 Nuuk snjókoma -13 Orlando léttskýjaö 10 Valencia skýjaö 12 Vín hrímþoka -3 Winnipeg snjókoma -17 Guðmundur Páll Ólafsson rithöfundur: Hef getað sameinað starf og áhugamál „Það er langur aðdragandi aö gerð þessara bóka en ég-fór að vinna að fullu í verkinu haustið 1985 og má segja að ég hafi unnið nær eingöngu við þessar bækur síðan,“ segir Guðmundur Páll Ólafsson sem í síðustu viku var veitt viðurkenning Hagþenkis fyr- ir þrjár bækur sínar; Fuglar í nátt- úru íslands, Perlur í náttúru ís- lands og Ströndin í náttúru ís- lands. Hagþenkir, sem er félag höf- unda fræðirita og kennslugagna, veitir árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi fræðistörf og samningu fræðirita og námsefnis og var Guðmundur aðnjótandi við- Maður dagsins urkenningarinnar í ár. Bækur Guðmundar hafa vakið mikla athygli og fengið góðar við- tökur, enda ekkert til sparað við að gera þær sem bestar úr garði. Er það Mál og menning sem hefur gefið bækurnar út og prentverkið hefur verið unnið í Odda. Guð- mundur, sem á að baki nám í dýrafræði og haflíffræði, skrifar bæði texta og tekur flestar ljós- Guðmundur Páll Ólafsson. myndimar sem prýða bækurnar en gott samspil er á milli texta og mynda í bókunum: „Ljósmyndun, teikning og margt fleira hefur fylgt mér í gegnum tíðina og við gerð þessara bóka gat ég loks sam- einað starf og áhugamál." Við gerð bókanna hefur Guð- mundur verið mikið á ferðalögum um landið: „Ég hef yfirleitt haft það þannig að ég sit við ritstörf á veturna en nota sumur og haust til að ferðast og taka myndir og er þá oft á stanslausum þeytingi um landið. Ég man að eitt sumarið reiknaðist mér til að ég hefði farið akandi þrjátíu sinnum kringum landið." Þrjár bækur era komnar út í bókaröðinni. Er von á meiru? „Ég vona það. Það er ýmislegt eftir en það fer eftir efnum og ástæðum hvort verður framhald á. Þetta er mjög dýrt í framkvæmd. Ég hef kostað miklu til sjálfur, það er að segja öll ferðalög mín og rekstur í kringum mig. Þetta er mjög um- fangsmikið verk og stanslaus bar- átta að koma þessu saman og þótt ég viti nokkurn veginn hvað ég vil hafa í bókinni og sé búinn að skipuleggja allt áður en lagt er af stað þá er meira en að segja það að koma texta og myndum í eina heild svo að vel sé. Guðmundur býr í Stykkishólmi: „Ég er Húsvíkingur en hef búið víða erlendis og hér heima. Eftir að ég kom frá námi árið 1966 hef ég haldið mig á ýmsum stöðum úti á landi, hef átt heima á Blönduósi, Akureyri, Flatey á Breiðafirði, Stokkseyri og Stykkishólmi. Guð- mundur á þrjár dætur og kona hans er Ingunn Kristín Jakobs- dóttir kennari. -HK Verslanakeðja Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki Suðurnesja- slagur í kvennakörf- unni Það er frekar rólegt í íþróttum í kvöld og meistarflokksmenn í körfubolta og handbolta eru að búa sig undir átök sem eru fram undan. Einn leikur er þó á dag- skrá í 1. deild kvenna í körfu- íþróttir boltanum i kvöld. Það er viður- eign Suðurnesjaliðanna í Grindavík og Keflavík. Keflvísku stúlkurnar hafa verið íslands- meistarar undanfarin ár en þær grindvísku leika á heimavelli i kvöld og gætu veitt nágrönnum sínum harða keppni. Leikurinn hefst kl. 20.00. Einn leikur er í handboltanum í kvöld, viðureign Gróttu og Hauka í 1. flokki karla. Leikur- inn fer fram á Seltjamarnesi og hefst kl. 21.45. Fyrir þá sem heima sitja er vert að benda á hinn ágæta íþróttaþátt á Stöð 2, Visa-sport sem er kærkomin til- breyting frá öllu því efni sem sýnt er frá keppnisíþróttum. Listakona á tíræðisaldri í húsakynnum Félags eldri borgara að Hverfisgötu 105 hefur verið sett upp sýning á verkum eftir Maríu M. Ásmundsdóttur, myndlistarkonu frá Krossum í Sýningar Staðarsveit. María er nú á 97. ald- ursári. Hefur hún fengist við margvíslega listavinnu lengst af ævinni. Hún sýndi fyrst verk sín í útstillingargluggum hjá Mart- eini Einarssyni árið 1930. Auk þess sem María hefur málað á hefðbundin hátt þá hefur hún málað á gler og á sýningunni er einnig sýndur útsaumur eftir hana. Sýningin á verkum Maríu stendur til 21. janúar. Bridge Jón Þorvarðarson og Sverrir Krist- insson, sem nú eru búsettir i Dan- mörku um stundarsakir, hafa samein- að krafta sína við spilaborðið og standa sig vel í Danaveldi. Á sunnu- daginn urðu þeir félagarnir Sjálands- meistarar í tvímenningi og hafa unnið sér rétt til að spila í úrslitum Dan- merkurmótsins í tvímenningi þar sem 40 pör spila um titilinn (Esbjerg 3.-4. * 987 543 * K6 * K5432 febrúar). Úr því verið er að segja frá atburðum í Danmörku þá flýtur hér með spil úr nýjasta hefti tímaritsins Dansk Bridge. Kanadíski landsliðsspil- arinn Fred Gitelman hefur hannað bridgeforrit sem Danir eru mjög hrifn- ir af. Þar geta spilarar æft sig í úrspil- inu. Forritið er þannig uppsett aö ef spilarinn finnur ekki bestu leiðina í úrspilinu gerir forritiö sjálfkrafa ráð fyrir verstu legu - aðeins besta úrspil tryggir vinning i spilinu. Hér er ein úrspilsþraut frá Gitelman. Hver er besta spilaáætlun vesturs í 6 spöðum í þessu spili með hjartakóng út frá norðri? Rétta spilamennskan felst í því að gera ráð fyrir vondri tígullegu. Drepa útspilið á hjartaás, taka laufásinn, spila tígli á kóng og henda hjarta í laufkónginn. Síðan verður að gefa einn slag á tígul! annars fer spilið nið- ur. Suður kemst inn, spilar trompi, tígull trompaður í blindum, hjarta trompað heim, tígull trompaður, hjarta aftur trompað og trompin tekin í botn. Tígulásinn er tólfti slagurinn. Ef þú velur einhverja aöra spilaleið (án þess að sjá spil NS) þá ferðu niður á spilinu, en forritið gefur þér ein- kunnina „í sama spilaklassa og Paul Soloway" ef þú valdir áðurgreinda leið. fsak Örn Sigurðsson 4 432 * KDG1 * 7 * DG10 * AKDG10 * Á2 + Á5432 * Á * 876

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.