Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 7 Fréttir Reykjavík: Fimmtungi fleiri útköll Útköllum Slökkviliðsins í Reykajvík fjölgaði um 20% á ár- inu 1995 miðað við árið 1994. Alls urðu útköllin 1471 en voru 1222 árið 1994. Um eld var að ræða í 527 til- vikum á liðnu ári en eldsvoðar voru 457 árið 1994. Af þessum út- köllum voru 120 vegna sinu- bruna og er það líkt og verið hef- ur. Sjúkraflutningar voru 11.766 á árinu en 10.829 árið áður. Er það um 9% aukning. Starfssvæði slökkviliðsins er í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ. -GK Fjárhagur Kjalarneshrepps: Seljum land og húsnæði og úthlutum lóðum HafnarQörður: Brunum fjölgar Slökkviliðið í Hafhartlrði þurfti að sinna meira helmingi fleiri útköllum vegna elds á ár- inu 1995 en var árið áður. Á síð- asta ári voru útköll vegna elds 165 en 78 árið 1994. Fiest voru útköllin vegna sinubruna og elds í rusli. Þó varö 21 sinnum að slökkva í íbúðarhúsum og varð mikið tjón í fimm þeirra. Þá varð einnig mikið tjón þegar verkstæöishús brann. Alls voru útköll slökkvi- liðsins 258 á liðnu ári. Sjúkraflutningabifreiðar voru kallaðar út 1639 sinnum á árinu. En það nokkru meira en árið áður. -GK Sláturhús KÞ: ESB-leyfi til útflutn- ingsá kindakjöti Sláturhús Kaupfélags Þingey- inga á Húsavík hefur fengið leyfl til útflutnings á kindakjöti til landa Evrópusambandsins eftir ítarlega skoðun eftirlits- manns ESB síðastliðið haust. Opinber yfirlýsing frá embætti yfirdýralæknis þess efnis barst forráðamönnum KÞ í gær. Sláturhús KVH á Hvamms- tanga og sláturhús KASK á Hornafirði höfðu ESB-leyfi fyrir. Miklu hefur verið kostaö til við að ná þessari viðurkenningu, sem er KÞ mikilvæg sem og út- flutningi kindakjöts í heild. Slát- urhús KÞ hafði fyrir leyfi til slátrunar og vinnslu fyrir Bandaríkjamarkað. - segir sveitarstjórinn „Við höfum verið að velta fyrir okkur sölu eigna og höfum aðeins verið að þreifa fyrir okkur en erum ekki komin með nein áþreifanleg tilboð ennþá. Þetta var bara sett í gang rétt fyrir áramótin og gæti tek- ið tíma alveg til febrúarloka. Þá ætti það að skýrast hvort þetta tekst,“ segir Jón Pétur Líndal, sveitarstjóri á Kjalarnesi. Hann vill ekki segja nákvæmlega hvaða eignir sé til um- ræðu að selja en segir þó að þar sé um samning að ræða sem geti numið 70-100 milljónum króna verði honum breytt í peninga. Kjalarneshreppur komst í frétt- imar síðasta haust þegar í ljós kom að sveitarfélagið var skuldugast allra sveitarfélaga á landinu miðað við höfðatölu. Heildarskuldir sveit- arfélagsins nema nú 210-220 millj- ónum króna en námu 207 milljónum í fyrra. Skatttekjur Kjalnesinga nema 60 milljónum króna á þessu ári en útsvarið er 9,2%. „Við fórum örugglega út í að taka fyrir nokkra rekstrarþætti og höf- um verið á fullu í því að skoða út- boð og hagræðingu. Það sem við höfum byrjað á hefur komið það vel út að við höldum áfram að skoða alla þætti út frá því að bjóða út þjónustu eða stokka hana upp. Það getur greinilega skilað töluverðum aurum,“ segir Jón Pétur. DV greindi frá því nýlega að bæj- aryfirvöld i Hafnarfirði hefðu ákveð- ið að selja húseignir og tæki samtals fyrir um 140 milljónir króna til að hafa upp í skuldir sveitarfélagsins. „Við erum ekki með mikið af tækj- um til að selja en kannski eitthvað pínulítið af húsnæði og svo eigum við eitthvað af landi. Mér sýnist frekar stefna í að menn vilji úthluta byggingarlóðum og byggja hraðar upp og fá þannig fleiri skattgreiðend- ur,“ segir Jón Pétur. -GHS Skagfirðingar dug- DV, Sauöárkróki: DV-mynd Þórhallur Á fæðingardeildinni á Sauðár- króki fæddust mun fleiri böm á síð- asta ári en 1994 en þá voru fæðing- ar reyndar með minnsta móti. Árið 1995 fæddust 69 börn á Króknum en voru aðeins 42 áriö áður. Á Blöndu- ósi fæddust 23 börn 1995 en voru 24 árið á undan. Á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar fæddust 17 börn 1995. Það eru heldur færri fæðingar en í með- alári. Það þurfti ekki að bíða lengi eftir fyrsta bami ársins á fæðingardeild- inni á Sauðárkróki. Það kom í heiminn kl. 10.40 þriðjudaginn 2. janúar. Þá fæddist þeim Ingitíjörgu Sigurðardóttur og Páli Jóhann- essyni sonur sem mældist 55 sm og vó rúmar 15 merkur. Þetta er fyrst barn þeirra en þau búa á Sauðár- króki. Ingibjörg er frá Víðinesi í Hjaltadal en Páll frá Akureyri. Hann á einnig ættir að rekja austur fyrir Héraðsvötn. Ingibjörg sagði að fæðingin hefði gengið vel. „Þetta var allt samkvæmt áætlun," sagöi hún. ÞÁ Ingibjörg og Páll með litla drenginn. legri að fjölga sér GR 1400 • H: 85 B:51 D:56 cm • kælir: 140 I. Ver& kr. 29.350,- GR 1860 • H: 117 B:50 Ð:60 cm • Kælir: 140 Itr. • Frystir 45 Itr. Ver&kr. 41.939,- GR 2260 • H:140 B:50 D:60 cm • Kælir:180 Itr. • Frystir 45 Itr. Verb kr. 47.280,- GR 2600 • H:152 B:55 D:60 cm • Kælir 187 Itr. • Frystir: 67 Itr. Verð kr.49.664,- GR 3300 • H:170 B: 60 D:60 cm • Kælir:225 Itr. • Frystir 75 Itr. Verð kr. 58.350,- #índesít ...í stöðugri sókn! BRÆÐURNIR =)] ORMSSONHF Lágmúla 8, Sími 553 8820 Umbo&smenn um land allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.