Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö ■í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 550 5000 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjalst ohað dagblað ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 Strand í Sandgerði: Sex sverar land- - festar slitnuðu „Þeir voru héma fimm um borð og áttu sér einskis ills von. Hreyf- ingin í höfninni á flóðinu í nótt var hins vegar svo mikil að sex sverir endar slitnuðu en það var lán í óláni að báturinn strandaði á leir- botni þegar hann átti eftir 10 metra upp í grjótgarðinn,“ segir Oddur Sæmundsson, skipsfjóri á Sandgerð- isbátnum Stafnesi KE. Báturinn strandaði í höfninni í Sandgerði á fjórða tímanum í nótt, skömmu áður en halda átti í róður. — -í’imm voru um borð og vakti skip- stjórinn þá í strandinu þegar hann kom að ræsa menn i róður. Þrisvar áður munu bátar hafa slitnað upp á þessum stað í höfninni. Björgunarbáturinn Hannes Haf- stein var notaður við að draga Staf- nes á flot og sá lítið sem ekki á botni bátsins og var haldið í róður eftir tveggja tíma töf. Oddur skipstjóri sagði í samtali við DV í morgun að góður afli hefði verið á miðum Suð- urnesjabáta síðustu daga. -GK Ók á Ijósa- staur í Ár- túnsbrekku Flytja varð ökumann bifreiðar á slysadeild í gærmorgun eftir að hann hafði ekið á ljósastaur í Árt- únsbrekkunni. Þetta er sami staurinn og ekið var á skömmu fyrir jól en þá lét far- þegi í bifreið lífið. -GK Dreginn af brunahana Lögreglan á ísaflrði varð í gær að draga lausan bíl sem ekið hafði ver- ið á brunahana. Sat bíllinn þar fast- ur en brunahaninn bognaði mikið. Mikil hálka var í bænun og varð það orsök margra óhappa í umferð- inni. Strætisvagn hafnaði á húsi og bíll aftan á vagninum. Engin slys urðu þó á fólki en dagurinn var annasamur hjá lögreglu. Frostrign- ing var og götur bæjarins glerjaðar L O K I Jafn auðvelt fyrir unglinga að panta flkniefni og pitsu: Hefur heyrst að E-pillan sé fram- leidd hérlendis - sagði Björn Halldórsson hjá fíkniefnadéild á borgarafundi í gærkvöld „Ég á fallega 16 ára dóttur, skemmtilega, hæfileikaríka og vel gerða á allan hátttoppstelpu í alla staði og dóttur eins og allir foreldrar vilja eiga. Hún kom til mín fyrir viku síðan og sagði: „Mamma, ég er farin í meðferð á Vog.“ Stelpan mín hafði ánetjast flkniefnum án þess að nokkur vissi af því. Þetta er dugleg og kröftug stelpa og ég er viss um að henni á eftir að ganga vel í með- ferðinni á Vogi. Hún á ábyggilega einhvern tima eftir að verða borg- arstjóri," sagði móðir á Seltjarnar- nesi. Sjálfstæðisfélag Seltirninga hélt I gærkvöld almennan fund um fíkniefnamál með Birni Halldórs- syni, lögreglufulltrúa í fikniefna- deild Lögreglunnar í Reykjavík, Einari Gylfa Jónssyni, sálfræðingi hjá SÁÁ, og Jóni Friðriki Sigurðs- syni, sálfræðingi hjá Fangelsis- málastofnun. Fjölmenni var á fundinum og var greinilegt að fundarmenn höfðu miklar áhyggj- ur af fikniefhaneyslu unglinga. Áhyggjur foreldra á fundinum beindust að því að jafn auðvelt væri fyrir unglinga að panta landa og fikniefni og að panta pitsu. Kona sagði frá því að um síðustu helgi hefði hún farið ásamt eigin- manni sinum á skemmtistað í Reykjavík. Þar hefði sér verið sagt að vatnið væri selt því að ekkert áfengi væri keypt á barnum. Þá bar önnur móðir fram þá fyrir- spurn hvort farið væri að fram- leiða E-pillur hér. í svari sínu sagði Björn að lög- reglan vissi til þess að amfetamín, sem væri fremur flókið í fram- leiðslu, hefði verið framleitt hér á landi. „Við höfum heyrt að menn séu að kokka þetta héma,“ sagði hann um E-pilluna og taldi fullvíst að innflutningur á öðrum eitur- lyfjum, svo sem heróíni og krakki, ætti eftir að hefjast hér á landi eins og erlendis. Spurningin væri bara hvenær. „Við höfum orðið varir við að útlendingar eru farnir að vera pínulítið fyrirferðarmeiri í þessari starfsemi. Þetta er rosalega við- kvæmt því að við erum ekki að tala um tælenskar eða filippseysk- ar konur eins og fjallað hefur ver- ið um i fjölmiðlum en við hljótum að fá þetta vandamál eins og ná- grannalönd okkar," sagði hann og vildi ekki greina frá því hvaðan þessir menn kæmu. „Það er ekki hægt að nefna neitt þjóðerni. Þetta em bara menn sem hafa komið hingað og sest hér að. Þeir stunda starfsemina hér með þeim samböndum sem þeir hafa erlendis,“ sagði Björn í samtali við blaðamann DV. Sjálfstæðisfélag Seltirninga hélt í gærkvöld almennan fund um fíkniefnamál. Á fundinum kom meðal annars fram að útlendingar eru farnir að vera fyrirferðarmeiri á fíkniefnamarkaðinum en áður hérlendis eins og erlendis. Þeir flyttu búferlum hingað og stunduðu starfsemi sína hér með þeim samböndum sem þeir hefðu erlendis. Hér má sjá Björn Halldórsson yfirmann fíkniefnadeildar lögreglunnar sem hafði framsögu á fundinum. DV-mynd ÞÖK -GHS Sauðárkrókur: 500 lítrar af áfengi teknir Lögreglan á Sauðárkróki fann í gærkvöld um 500 lítra af áfengi og töluvert af sigarettum í togaranum Hegranesi SK. Nokkrir skipverjar hafa viðurkennt að eiga smyglið en togarinn var að koma úr söluferð til Þýskalands. Telst málið upplýst. Alls voru teknir 276 lítrar af sterku víni, 141 af bjór og 15 lítrar af léttvíni. Þá reyndust sígaretturnar vera 1000. Grunur hefur undanfarið leikið á að smygl bærist úr Hegra- nesinu á markað í Reykjavík. Hefur áður verið leitað þar án árangurs. Smyglið var falið á ýmsum stöð- um í skipinu, í tönkum og víðar. Tók marga klukkutíma að finna all- an farminn. -GK Veðrið á morgun: Súld eða rigning Á morgun verður sunnan- og suðaustanátt, hvöss allra vest- ast en annars allhvasst víðast hvar. Um landið sunnan- og vestanvert verður súld eða rigning en skýjað að mestu og úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 3 til 7 stig, hlýjast suð- vestan til. Veðrið í dag er á bls. 36 brothec tölvu iímmiða prentari Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 v i K I N G LéTTé alltaf á Miövikudögxun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.