Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 9 DV Útlönd Elísabet Bretadrottning: Varði aðeins 2 tímum á dag með börnunum Elísabet Bretadrottning var fjar- læg og áhugalítil móðir þegar böm hennar voru lítil. Hún varði einung- is einni klukkustund með þeim að morgninum og einni um háttatíma á kvöldin. Uppeldisaðferðir hennar eru sagðar endurspeglast af hennar eigin uppeldi en það vom að mestu bamfóstrur og einkakennslukonur sem sáu um það. Þetta kemur fram í útdrætti úr bók um ævi drottning- ar sem breska blaðið The Times birtir i dag. Þar kemur einnig fram aö drottn- ingin vilji hafa föt sín þægileg og tildurslaus. „Þetta væri allt í lagi fyrir Joan Collins en ekki fyrir mig,“ á Elísabet að hafa sagt er hún var spurö hvort hún vildi ekki hafa axlapúða í kjólum sínum. Drottn- ingin gefur sjálf hundunum sínum að éta á hverjum degi og lítur ekki í bók nema hún endurspegli ástriðu- Elísabet Bretadrottning vill ekki klæðast eins og Joan Collins. Símamynd Reuter fullan áhuga hennar á hestum. í gær birti The Times útdrátt þar sem sagði að Margrét prinsessa, systir Elísabetar Bretadrottningar, hefði verið á barmi örvæntingar þegar hrikta fór í stoðum hjóna- bands hennar og ljósmyndarans Anthony Armstrong-Jones. Starfsmenn BuckinghamhaUar neituðu í gær aö tjá sig um nýjustu upplýsingamar úr bókinni. En fuU- yrðingunum um að PhUip prins, eiginmaður drottningar, hafi verið henni ótrúr var vísað á bug. Sagt er að Margrét prinsessa, sem er 65 ára, hafi aldrei jafnað sig eftir að hafa verið neydd tU að hætta ást- arsambandi sínu 1955 við stríðshetj- una Peter Townsend en hann var fráskUinn. Hún giftist Armstrong- Jones 1960 en áratug seinna voru komnir brestir í hjónabandið. Arms- trong-Jones neitaði að tala við Mar- gréti, njósnaði um hana gegnum gat á vegg og skrifaði til hennar á miða móðgandi skUaboð, að sögn höfúnd- ar ævisögunnar, Söru Bradford. Bradford segir að Margrét hafi fengið taugaáfaU 1974 og að áhyggju- fuUir vinir hennar hafi ákveðið að koma fyrir hlerunartækjum í her- bergi þar sem hjónakornin eiga að hafa rifist. Vinirnir sendu upptök- una tU sálfræðings án þess að geta þess um hverja væri að ræða. Úr- skurður sálfræðingsins var að „kon- an“ þyrfti hjálp í skyndi. Margrét er jafnframt sögð hafa hringt í vin og hótað að fleygja sér út um glugga. Vinurinn hringdi i drottninguna sem á að hafa svarað: „Haldið áfram að skemmta ykkur. Svefnherbergið hennar er á jarð- hæð.“ Margrét og Armstrong-Jones skUdu 1978 og hefur hún ekki geng- ið í hjónaband að nýju. Reuter Rétt af hjákonu Mitterrands að vera við útförina Yílrgnæf- andi meiri- hluti frönsku þjóðarinnar telur það hafa verið rétt af hjá- konu Francois Mitterrands, fyrmm Frakk- landsforseta, og dóttur þeirra að vera við útfór hans, að því er fram kemur í skoðanakönnun sem birtist í gær. Nærri níu af hverjum tíu Frökkum fannst þetta hið besta mál en aðeins sextán prósent töldu það ekki viðeigandi. Tímaritið Paris-Match skýröi frá því í gær að einn lækna Mitterrands hefði staöfest að forsetinn látni hefði greinst með krabbamein þegar árið 1981, eða tíu árum áður en frá þvi var skýrt opinberlega. Vilja kanna áhrif viðskiptabanns SÞ á írak Ajay, Ramkishan og Dheeraj Hinduja, þrír afkomendur ríkustu fjölskyldu Indlands sem býr í London, komu ríðandi á hvítum hestum er þeir gengu í hjóna- band í Bombay á Indlandi í gær. Gestirnir voru um 10 þúsund og sagði einn þeirra að veislan væri fremur látlaus þar sem um svo auðuga fjölskyidu væri að ræða. Ekki var veitt áfengi og veislumaturinn var grænmetisfæði. Af öryggisástæðum var hvorki leyft að koma með gjafir né blómvendi nálægt brúðhjón- unum þrennum. Símamynd Reuter Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi lýstu í gær yfír stuðningi sínum við tillögu Frakka um að sérstök mannúð- arnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna yrði send til íraks til að rannsaka lamandi áhrif fimm ára viðskiptabanns á landið. Öryggisráðið hefur ekki enn samþykkt sendiförina þar sem Rússar og Kínveijar eru hikandi við samþykkja þá tillögu Banda- ríkjamanna aö nefndin megi einnig kanna að hve miklu leyti írösk sfjórnvöld eigi sjálf sök á bágindum þjóðarinnar. En hvað svo sem Öryggisráðið ákveður er ekki tryggt að írakar hleypi nefndinni inn í landið. Brottrekstur Kúrda frá Sví- þjóð var klúður Ingvar Carlsson, for- sætisráð- herra Sví- þjóðar, við- urkenndi í gær að sér hefði orðið á í messunni þegar ákveðið var að senda kúrdíska flóttamenn, níu börn og mæður þeirra, úr landi og aftur heim til Tyrklands en ráð- herrann hefur sætt mikilli gagn- rýni fyrir. „Það var slæm ákvörðun að senda fjölskyldumar aftur til Tyrklands," sagöi Carlsson. Fiölskyldurnar viðurkenndu að hafa logið til um heimaland sitt þegar þær komu til Svíþjóð- ar fyrir fimm árum, sögðust koma ffá írak. Reuter Hillary Clinton íhugar að bera vitni fyrir þingnefnd - dularfullur skjalafundur f Hvita húsinu Svarta ekkjan viðurkennir fleiri morð Sextíu og fjögurra ára gömul austurrísk ekkja, Blauensteiner, hefur játað á sig fimm morð og er grunuð um fleiri. Blauensteiner, sem austurrísk blöð hafa upp- nefht „Svörtu ekkjuna", segist hafa myrt eiginmann sinn, tvo fyrrverandi elskhuga og tvo kunningja þar sem þeir hafi átt það skilið. Lögregluna grunar að hún hafi myrt vegna peninga þai' sem hún sé forfallinn fjárhættu- spilari. Blauensteiner myrti mennina með því að gefa þeim banvæna skammta af lyfjum. Reuter Hillary Clinton, forsetafrú Banda- ríkjanna, gaf í skyn í gær að hún myndi biðja um að fá að bera vitni fyrir nefnd öldungadeildar Banda- ríkjaþings sem fer með rannsókn Whitewatermálsins. Að minnsta kosti einn nefndar- manna hefur ítrekað hvatt til þess að Hillary verði kölluð í vitnastúku en formáður nefndarinnar segir það ekki á dagskrá. Formaðurinn, Al- fonse D’Amato frá New York, er kosningastjóri Bobs Doles sem tal- inn er líklegt forsetaefni repúblik- ana. Skriður komst á rannsóknina fyr- ir tíu dögum þegar skjöl, sem lengi hafði verið leitað að, fundust í Hvíta húsinu. Um er að ræða skjöl tengd reikningum Hiliary á níunda ára- tugnum vegna lögmannsstarfa hennar fyrir lánastofnun á meðan hún bjó í Arkansas. Yfirmaður lána- stofnunarinnar og eiginkona hans fjárfestu ásamt Clintonhjónunum í byggingu sumarhúsa og var verk- efniö kallað Whitewater. Eitt af þeim atriðum sem verið er að' rann- saka er hvort ríkistryggt sparifé al- mennings hafi verið sett í verkefn- ið. Rannsóknamefndin mun í þess- ari viku einbeita sér að öðram at- riðum í sambandi við reikningana og sérstaklega skyndilegan fund þeirra í Hvíta húsinu. Talið var að skjölin hefðu glatast eða að þau hefðu verið eyðilögð. Reuter VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁ HVERN VINNINGSHAFA 1.5 af 5 0 2.022.546 r\ 4 af 5 (C 41. Plús mz 102.750 3. 4af5 69 7.700 4. 3 af 5 2.268 540 Heildarvinningsupphæð: 4.086.816 S& : m i BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.