Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANUAR 1996
Vveran «
Þjóðverji á gamals aldri, Walter
Thiele, 75 ára, auglýsti í síðustu
viku eftir karlmanni til þess að
annast gullfallega, 28 ára eigin-
konu sína og auðæfi sín eftir að
maðurinn með ljáinn vitjar hans.
Thiele þessi er margmilljónari
og segir hundruð manna hafa
svarað auglýsingu sem hann setti
í einkamáladálk í dagblöð í Þýska-
landi.
„Hún elskar mig og ég elska
hana en vitanlega hugsum við
um timann eftir dauða minn. Við
ákváðum að leita saman að
manni sem myndi vilja erfa
mig,“ segir Thiele. Hann býr í
Suður-Þýskalandi og kallar sig
milljónamæring hins hlæjandi
poka. Hann segir að hann og
Renate kona sin muni ákveða
mannsefnið eftir að hafa hitt lík-
legust umsækjendurna augliti til
auglitis. Samkvæmt heimildum
DV geta menn enn þá sótt um að
fá að taka þátt í forvalinu og ef
umrædd kona er eins og sú hér
til hægri ætti áhuginn að vera
nægur. -sv
gýs þessi hræðilega táfýla. Hún
er algeng þegar fólk gengur í
lokuðum skóm og fætumir
verða rakir. Fótaaögerðardöm-
ur bjóða upp á margar tegundir
spreyja og krema til þess að
eyða táfýlunni og tegundin fer
eftir því hvort fólk þjáist af
fótraka eða þurrki.
Fótaaðgerð og
fótsnyrting
Fótaaðgerð og fótsnyrting er
tvennt ólíkt. Löggiltur fótaað-
gerðafræðingur meðhöndlar
niðurgrafnar neglur, fjarlægir
vörtur og líkþom og allt sem
heitir hörð húð eða sigg. Spang-
ir eru settar á neglurnar ef þær
em niðurgrónar.
Fótsnyrtifræðingur snyrtir
aftur á móti fæturna. Hann
klippir' neglur, raspar fætur og
lakkar neglur.
Umhirða fóta
Fólk vill oft gleyma að hugsa
vel um fætuma á sér en mjög
mikilvægt er að þeir séu jafn
vel hirtir og aðrir hlutar líkam-
ans. Undirstaða þess að fólki
líöi vel er að fætumir séu vel
hirtir og úthvíldir. Guðbjörg
Þorsteinsdóttir fótaaðgerða-
fræðingur gefur góð ráð um
umhirðu fóta fyrir fólk sem vill
hirða sína fætur sjálft.
Að sögn Guðbjargar em fóta-
böð mjög góð en þá er best að
nota grænsápu eða kristalssápu
eins og hún er kölluð núna.
Kristalssápan er mjög sótt-
hreinsandi og mýkjandi. Einnig
er gott að nota baðsalt í fótabað-
ið en það er hægt að kaupa í
apótekunum.
Þurrka milli tánna
Mikilvægast er að þurrka sér
vel á milli tánna eftir fótabaðið
Úndína Sigmundsdóttir að störfum á snyrtistofunni Töru.
gengur. Þetta er ekki þægileg með-
ferð en ekki svo sárt að konurnar
leggi það ekki á sig. Algengustu
staðimir em á efrivör, kjálka og á
milli brjósta. Þetta er eina aðferðin
sem losar konur endanlega við hár-
in. Húðsjúkdómalæknar nota þessa
sömu aðferð en þetta er sú eina sem
dugar og árangurinn er stórkostleg-
ur,“ segir Úndína.
og að tærnar séu vel þurrar.
Sveppir og annar óþrifnaður á
til að myndast á milli tánna sé
svæðið ekki þurrt. Neglur skal
klippa þvert og fólk getur tekið
harða húð af iljum og tám með
raspi.
Táfýla
Hver hefur ekki kynnst því
að fara úr skónum eða horfa á
einhvern fara úr skónum og
upp
„Rafmagnsháreyðing byggist á
því að einangraðri nál er stungið
niður í hársekkinn og stuttbylgju-
straumi hleypt á. Straumurinn lok-
ar fyrir háræðakerfið en það géfur
rótinni næringu. Þegar háræðakerf-
ið lokast fær rótin ekki næringu til
þess að byggja sig upp aftur og hár-
ið hverfur smám saman,“ segir Únd-
ína Sigmundsdóttir, snyrtifræðing-
ur á snyrtistofunni Töru.
Konur eru í auknum mæli hættar
að sætta sig við óæskileg hár á lík-
amanum og láta í mörgum tilfellum
fjarlægja þau endanlega með raf-
magnsmeðferð á snyrtistofum. Um
er að ræða langtímameðferð.
„Það er ofboðslega mikið að gera
í þessu því margar konur kljást við
þetta vandamál. Ýmislegt getur or-
sakað hárvöxtinn eins og hormóna-
truílanir, pillan og fleira. í sumum
tilvikum er mikill hárvöxtur ætt-
Hár eru stundum fjarlægð af fótleggjum með rafmagnsmeðferð en Úndína
telur það of dýrt ef hárin eru mörg. DV-mynd BG
inu. Það þýðir að eftir tvo daga kem-
ur það upp aftur. -em
^>eV4'
Heimilistœki
f Hreinlœtistœki
> Sturtuklefar
> Blöndunartœki
f Eldhús stálvaskar
> Sturtubúnaður
f Rafmagnsverkfœri
> Handverkfœri
> Vinnufatnaður
> Skór og stígvél
\(xvx<a- l9angi
Úndína fjarlægir óæskileg hár af höku viðskiptavinarins.
Vaxmeðferð
á stór svæði
Að sögn Úndínu borgar sig að
nota vaxmeðferð á stór svæði eins
og fótleggi þar sem of dýrt verður að
fjarlægja hár með rafmagnsmeðferð
á svo stóru svæði. Með vaxmeðferð
eru hárin rifin upp en ekki er lokað
fyrir háræðarnar sem framleiða
næringuna. Rótin byggir þá upp hár
aftur. Þegar notað er háreyðingar-
krem er einungis sneitt ofan af hár-
75 ára karl auglýsir:
Vantar mann handa 28 ára konu sinni
- ung, myndarleg og full af fjöri
Háreyðing með rafmagni:
Stórkostlegur árangur
- segir Úndína Sigmundsdóttir snyrtifræðingur