Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Page 26
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 Préttir Dagatal Holræsahreinsunar til skoöunar i Jafnréttisráði: „Niðrandi klámmyndir af kon- um í óviðeigandi stellingum“ - segir kærandi - hvítasunnumyndir, segir framkvæmdastjórinn Jafnréttisráði hefur borist kvörtun vegna dagatals frá Hol- ræsahreinsuninni hf. Á dagatalinu eru „niðrandi klámmyndir af kon- um í óviðeigandi stellingum," svo vitnað sé til þess sem kvartaði. Myndirnar þóttu of klúrar og of- buðu starfsmanni fyrirtækis nokk- urs á Siglufirði sem sendi dagatalið td Jafnréttisráðs til skoðunar. Rögnvaldur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Holræsahreinsunar- innar hf., hló þegar DV spurði hann um dagatölin og sagði að á hans da- gatali væru hvítasunnumyndir ef borið væri saman við BUanaust og íselco. „Ég hef aldrei heyrt það betra, ég er búinn að gefa út svona dagatöl í mörg ár. Ég er ekki einn um það að gefa út dagatöl af léttklæddu kven- fólki. Þetta hefur farið fyrir brjóstið á einhverri konu í vesturbænum, hún hefur ekki þolað samanburð- inn. Það er ekkert athugavert við þetta dagatal, það eru margir aðrir sem gefa út svona dagatöl með miklu klúrari myndum,“ segir Rögnvaldur. Blaðamaður DV fékk dagatalið sent til skoðunar og getur ekki með nokkru móti kaUað þetta neitt ann- að en klámmyndir. -em Lítilsvirðandi gagn- vart konum - segir framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs „Ákvæði í lögunum kveða skýrt á um að auglýsandi skuli sjá til þess að auglýsing hans sé ekki öðru kyn- inu til minnkunar. Ég lít svo á að þetta dagatal sé auglýsing þar sem fyrirtæki sendir dagatalið í sínu nafni. Ég held að það sé óumdeilan- legt að þetta sé lítilsvirðandi gagn- vart konum,“ segir Elsa Þorkels- dóttir, framkvæmdastjóri Jafnrétt- isráðs, en hún fékk dagatal Hol- ræsahreinsunarinnar til skoðunar í gær þar sem kvartað hefur verið yfir því. Hjá Jafnréttisráði þykir dagatalið mjög sóðalegt og bréf hef- ur verið sent til Holræsahreinsun- arinnar þar sem óskað er eftir að það verði afturkallað. „Verði fyrirtækið ekki við þeirri ósk mun ég leggja málið fyrir Jafn- réttisráð. Það verður þá ráðsins að taka næsta skref. Ég minni á að við höfum ákvæði í hegningarlögunum um klám og ríkissaksóknari getur tekið málið upp þar sem dreifing á klámi er refsiverð. Við fylgjumst ekki mikið með hvað er gefið út af svona hlutum en ef fólk veit að svona er í gangi má það gjarnan láta okkur vita. Ábendingar okkar til fyrirtækja og einkaaðila hafa venjulega verið teknar til greina og fyrirtæki hafa snúið til betri vegar,“ segir Elsa. -em trMt ' $SM : ' r ■ 4 H Kristján Árnason, formannsframbjóðandi B-lista, segist að undanförnu hafa sótt heim ýmsa vinnustaði og rætt við Dagsbrúnarmenn. Hann segir að mikill áhugi sé á því að eitthvað sé gert í launamálunum og segir að B-listi muni reka raunhæfa stefnu fyrir verkamenn og vinnuveitendur. Myndin var tekin þegar Kristján ræddi málin í Áburðarverk- smiðjunni. DV-mynd BG Stjórnarkjöriö í Dagsbrún: Viljum reka raunhæfa launastefnu - segir Kristján Árnason „Við erum nýkomnir af fundi hjá Stálsmiðjunni og fengum þar af- skaplega vænar og góðar viðtökur. Þar áttum við málefnalegar umræð- ur um okkar stefnuskrá og það sem starfsmönnunum lá á hjarta, sér- Staklega kaupgreiðslurnar. Kaup- taxtarnir eru númer eitt, tvö og þrjú. Dagvinnutaxtarnir brenna heitast á mönnum," segir Kristján Árnason, frambjóðandi B-lista til formanns í verkamannafélaginu Dagsbrún. Frambjóðendur á B-lista hafa að undanfórnu sótt heim ýmsa vinnu- staði á höfuðborgarsvæðinu til að kynna stefnumál sín vegna kosning- anna á föstudag og laugardag til stjórnar og trúnaðarráðs í Dags- brún. Kristján segir að B-listi hafi á stefnuskrá sinni það meginmark- mið að færa taxtana upp að „þess- um aukasporslum sem mönnum er greitt,“ eins og hann orðar það. „Það kemur greinilega í ljós á þessu ári að hinn unni vinnutími skiptist í 48 stundir, inni í því er fal- in yfirvinnutíð vegna okkar Evr- ópusamninga. Þetta leiðir til þess að kaup hjá mörgum lækkar óumflýj- anlega því að ef við fylgjum þessu ekki getum við átt á hættu að vera kærðir eins og hefur komið fram í öðrum efnum," segir formannsfram- bjóðandinn. Kristján segir að B-listinn ætli að hafa sínar tillögur í launamálum fastmótaðar að minnsta kosti þrem- ur mánuðum áður en samnings- frestur rennur út um næstu áramót nái listinn kjöri. Frambjóðendur B- lista ætli sér að reka raunhæfa stefnu, stefnu sem komi raunhæft út, bæði fyrir verkamenn og vinnu- veitendur. „Við ætlum ekki að leyfa vinnu- veitendum að slá öllu slíku á frest og greiða fólki eftir gömlu töxtun- um,“ segir hann. -GHS Garðar Karlsson verkamaður í Áburðarverksmiðjunni og starfsfélagar. DV-mynd BG Kosningarnar í Dagsbrún: Menn eru íhaldssamir í eðli sínu „Það er ágætt að hrista aðeins upp í mönnum og fá umræðu um verkalýðsmál á vinnustaðinn. Menn eru misjafnlega áhugasamir og það er voðalega lítið spáð í þetta, að manni finnst en sumir hafa vissu- lega áhuga á þessum málum. Von- andi hlusta samt allir," segir Garð- ar Karlsson, verkamaður hjá Áburðarverksmiðjunni. Frambjóðendur B-lista hafa eytt síðustu dögum og jafnvel vikum í að fara á vinnustaði og halda fundi með starfsmönnum. í hádeginu í gær sótti Kristján Árnason, fram- bjóðandi B-lista, Áburðarverksmiðj- una heim. Garðar Karlsson var einn þeirra sem sátu og hlustuðu. Að- spurður hvort hann ætti von á breytingum í stjórn Dagsbrúnar sagði hann: „Menn eru íhaldssamir í eðli sínu. Það er lítil umræða um þessi mál hér innanhúss. Menn halda ró sinni en auðvitað er ýmislegt sem má breyta," sagði hann. -GHS Stjórnarkjörið í Dagsbrún: Viljum setja fullan kraft í launataxtana - segir Halldór Björnsson, frambjóðandi A-lista „Við viljum að Dagsbrún komist í sviðsljósið og verði sama afl í launa- baráttunni og félagið var áður en þjóðarsáttin og öll samábyrgðin kom upp á borðið. Við tókum auð-- vitað þátt í þjóðarsáttinni og getum ekki afneitað því endalaust en núna viljum við leggja megináherslu á launataxtana," segir Halldór Björns- son, varaformaður og frambjóðandi A- lista stjórnar og trúnaðarráðs til formanns í verkamannafélaginu Dagsbrún í stjórnarkjörinu á föstu- dag og laugardag. Halldór segir að félagar í Dags- brún hafi alltaf litið á félagið sitt sem eitt það róttækasta í launabar- áttunni enda hafi Dagsbrún ávallt verið í sviðsljósinu. Halldór segir að kosningabaráttan núna snúist um innri mál félagsins og gagnrýni á núverandi stjórn og viðurkennir að nokkuð sé til i þessu en minnir á að sex menn af tíu frambjóðendum á A- lista séu nýir. Halldór telur upp á að launamálin brenni heitt á mönnum og boðar harðari og beittari stefnu í kjaramálunum. „Við erum ekki að tala um að brjóta upp alla sérsamninga heldur setja alla orku í launataxtana. Ef við náum kjöri munum við byrja á þeim undirbúningi og vera tilbúnir strax um áramótin að leggja í samn- ingagerð," segir hann. Stjórnarkjörið í verkamannafé- laginu Dagsbrún fer fram á fóstudag og laugardag en atkvæði verða talin eftir að kjörstað hefur verið lokað á laugardagskvöld. Kosningabaráttan hefur að undanförnu gengið út á að sækja vinnustaðafundi víðs vegar um höfuðborgarsvæðið og má búast við að 70-80 vinnustaðir hafi verið sóttir heim þegar kjördagur rennur upp. Félagar í verkamannafélaginu Dagsbrún eru tæplega 4.000 og seg- ist Halldór búast við að þeim fjölgi eitthvað næstu daga. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.