Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Qupperneq 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 Afmæli Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson Þorsteinn Hallgrímur Gunnars- son, bóndi að Reykjum í Torfa- lækjarhreppi, er fímmtugur í dag. Starfsferill Þorsteinn fæddist í Skerjafirði í Reykjavík en ólst upp í Laugar- nesinu í Reykjavík tU átta ára aldurs. Þá var honum komið fyrir að Syðri-Löngumýri í Blöndudal þar sem hann vann fyrir sér til sautján ára aldurs. Þorsteinn lauk landsprófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði 1964, bú- fræðiprófi frá Bcpndaskólanum að Hvanneyri 1965 og búfræðikandid- atsprófi þaðan 1970. Þorsteinn var farmaður, fiski- maður, verkamaður og bílavið- gerðarmaður á árunum 1964-68, var túnamælingamaður, frjótækn- ir og búfjárræktarráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austur-Hún- vetninga 1968-74, starfaði hjá Áburðarverksmiðjunni 1974-76, bóndi að Syðri- Löngmnýri 1976-86 og er bóndi að Reykjum frá 1986. Þorsteinn var formaður Veiðifé- lags Auðkúluheiðar 1976-79, for- maður Búnaðarfélags Svínavatns- hrepps 1978-81, í stjórn Búnaðar- félags Torfalækjarhrepps frá 1986 og formaður þess frá 1995, í stjórn Sölufélags Austur-Húnvetninga 1980-83, var skipaður í stjórn und- irbúningsfélags Graskögglaverk- smiðju ríkisins í Vallhólma í Skagafirði 1981 og sat í stjórn verksmiðjunnar fyrstu árin, er formaður Alþýðubandalagsfélags Blönduóss og nágrennis og á sæti í miðstjórn Alþýðubandalagsins, var stofnandi Bændasamtakanna Röst og einn af hvatamönnum samantektar ritsins Stjörnukerfi búvöruframleiöslunnar og stjóm- skipan íslands eftir prófessor Sig- urð Líndal sem félagið gaf út í samvinnu við Orator, félag laga- nema við HÍ. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist 26.10. 1968 Ingu Þórunni Haildórsdóttur, f. 31.7.1947, aðstoðarskólastjóra viö HúnavaUaskóla. Hún er dóttir Halldórs Guðmundssonar, fyrrv. framkvæmdastjóra Vélsmiðju Njarðvíkur, og Helgu Ingólfsdótt- ur sem er látin. Böm Þorsteins og Ingu Þórunn- ar em Erlendur Smári Þorsteins- son, f. 27.5.1971, stærðfræðingur; Ágústa Björg Þorsteinsdóttir, f. 17.12.1972, háskólanemi; Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, f. 16.6. 1980, grunnskólanemi. Systkini Þorsteins em Halldóra Gunnarsdóttir, f. 16.11.1933, hús- móðir á Seltjarnamesi; Kristbjörg Gunnarsdóttir, f. 1.1.1937, versl- unarmaður í Reykjavík; Birgir Gunnarsson, f. 20.10. 1938, fórst með vitaskipinu Hermóði 18.2. 1959, matsveinn; Arnbjörn Gunn- arsson, f. 19.10.148, skipstjómar- maður i Grindavík. Foreldrar Þorsteins voru Gunn- ar Arnbjörnsson, f. 22.5. 1912, d. 14.4.1970, bílstjóri í Reykjavík, og Aðalheiður Magnúsdóttir, f. 3.10. 1915, d. 2.8. 1979, húsmóðir. Ætt Gunnar var sonur Ambjöms, verkamanns i Borgamesi, Árna- sonar, húsmanns á Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi, Björnssonar, b. á Þursstöðum, Sigurðssonar. Móðir Árna var Sigríður Guðmundsdótt- ir. Móðir Ambjörns var Þorbjörg Þorkelsdóttir, b. í Sl^aftárdal í Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson. Skaftártungum, Jónssonar og Mál- fríðar Bergsdóttur. Móðir Gunnars var Guðrún Sig- urðardóttir, b. í Litlabæ í Álfta- neshreppi, Sigurðssonar og Krist- bjargar Einarsdóttm-. Aðalheiður var dóttir Magnúsar Guðmundssonar smiðs og Karitasar, b. í Tröð á Álftanesi, Skarphéðinsdóttur, b. í Efstadal, Elíassonar. Móðir Karitasar var Petrína Ásgeirsdóttir. Þorsteinn og Inga Þórunn taka á móti gestum í Húnavallaskóla 20.1. nk. kl. 20.30. Hjörtur Guðjónsson Hjörtur Guðjónsson, fyrrv. tré- smiður, Miðtúni 48, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Hjörtur fæddist á Viðborði á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp í foreldrahúsum til fermingaraldurs. Þá flutti hann með fjölskyldu sinni til Kotstrand- ar þar sem hann dvaldi í fjögur ár, að undanskildum einum vetri á Laugarvatni. Hann var í iðn- námi í Reykjavík í tvö ár þar sem hann lærði húsgagnabólstrun. Auk þess öðlaðist hann þrjátíu tonna skipstjórnarréttindi. Hjörtur flutti til Hafnar í Hornafirði 1942 og vann þar við trésmíði. Hann byggði Trésmiðju Hornafjarðar ásamt Þorleifi Bene- diktssyni 1945, var hárskeri í fjölda ára og stundaði sjómennsku og vörubílaakstur í sex ár. Þá vann hann við smíðar hjá íslensk- um aðalverktökum við byggingu ratsjárstöðvar á Stokksnesi, starf- aði síðan sjálfstætt við smíðar á Höfn en vann sex Síðustu starfsár- in við viðhaldsvinnu á Stokks- nesi. Hjörtur flutti, ásamt eigin- konu sinni, til Reykjavíkur 1991. Fjölskylda Hjörtur kvæntist 28.7. 1945 Guð- rúnu Rögnu Valgeirsdóttur, f. 11.1. 1923, húsmóður. Hún er dótt- ir Valgeirs F.G. Bjarnasonar, verkamanns á Svalbarði á Höfn í Hornafirði, og k.h., Sólveigar S. Jónsdóttur, húsmóður þar. Börn Hjartar og Guðrúnar Rögnu eru Þórveig Hjartardóttir, f. 28.7. 1944, starfsmaður við heil- brigðisráðuneytið, búsett í Reykjavík og á hún þrjú börn; Pálína Hjördís Hjartardóttir, f. 5.4. 1946, starfsmaður við sjúkrahúsiö á Húsavík, gift Grétari Sigurðs- syni og eiga þau fjögur börn; Val- geir Gunnar Hjartarson, f. 21.2. 1948, starfsmaður við öryggisþjón- ustu á Höfn í Hornafirði, kvæntur Valdísi Ingibjörgu Harðardóttur og eiga þau þrjú böm; Guðjón Hjartarson, f. 5.12. 1949, starfsmað- ur við bón og bílþvott í Reykjavík en kona hans er Kristjana Jens- dóttir og á hann tvær dætur; Kristján Már Hjartarson, f. 1.11. 1951, trésmiður í Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Höskuldsdótt- ur og á hann fimm börn; Signý Ingibjörg Hjartardóttir, f. 15.10. 1955, húsmóðir í Reykjavík, og á hún fjögur börn; Hjörtur Ragnar Hjartarson, f. 16.3.1958, starfsmað- ur Pósts og síma á Höfn í Homa- firði en kona hans er Nanna Gunnarsdóttir óg eiga þau tvö börn. Systkini Hjartar: Halldóra Nanna, f. 14.6.1917, húsmóðir í Reykjavík; Gísli Friðgeir, f. 31.10. 1918, nú látinn, bílstjóri í Reykja- vík; Hlíf, f. 3.4. 1923, húsmóðir á Þorlákshöfn; Inga Jenný, f. 15.12. 1925, húsmóðir í Reykjavík; Sigur- laug, f. 4.4. 1927, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Hjartar vom Guðjón Gíslason, f. 3.7. 1885, bóndi að Við- borði og á Kotströnd, og k.h., Pálína Jónsdóttir, f. 22.10. 1885, húsfreyja. Ætt Guðjón var sonur Gísla, b. í Þórisdal í Lóni og á Viðborði á Mýrum, Sigurðssonar, b. á Bæ í Lóni, Gíslasonar. Pálína var dóttir Jóns, b. í Odda á Mýrum, Hálfdánarsonar, Hjörtur Guðjónsson. b. þar, Hálfdánarsonar frá Heina- bergi. Móðir Pálínu var Halldóra Gisladóttir, b. á Arnardranga, Bjarnasonar og Þuríðar Þorláks- dóttur. Hjörtur og Guðrún Ragna eru að heiman. Tll hamingju með afmælið 16. janúar 90 ára Sigurður Eyjólfsson, Bogahlíð 9, Reykjavík. 85 ára Ásta Jónsdóttir, Hagamel 29, Reykjavík. 75 ára Haraldur Kr. Jóhannsson, Hólmgarði 66, Reykjavík. Guðbjörg A. Þorsteinsdóttir, Framnesvegi 65, Reykjavík. 70 ára Þorbjörg Guðmundsdóttir, Fálkagötu 21, Reykjavík. Gestur Kristján Jónsson, Vesturbraut 2, Grindavík. 50 ára Harald Peter Hermanns, Heiðargerði 26, Reykjavík. Berglind Andrésdóttir, Miðvangi 73, Hafnarfirði. Helga Magnúsdóttir, Esjubraut 2, Akranesi. Guðrún Guðmundsdóttir, Miðengi 20, Selfossi. Svavar Haraldssón, Sunnubraut 4, Akranesi. Jón Ólafur Þórðarson, Arnartanga 60, Mosfellsbæ. Hörður S. Hallgrímsson, Akurgerði 25, Reykjavík. Guðríður Ema Haílldórsdóttir, Seftjörn 9, Selfossi. Guðný Elisabet Kristjánsdóttir, Hólalandi 20, Stöðvarfirði. Sigurður R. Þorsteinsson, Gmndarbraut 28, Snæfellsbæ. Frans ^riðriksson, Melasíðu 4D, Akureyri. Magnea Ágústsdóttir, Stóragerði 1, Hvolsvelli. 40 ára 60 ára Páll Einar Jónsson, Miðhúsum 25, Reykjavík. Sigurjón Haraldsson, Hiíðarhjalla 14, Kópavogi. Jóna Guðmundsdóttir, Fannafold 135, Reykjavík. Jaltobina Ingunn Ólafsdóttir, Dyngjuvegi 5, Reykjavík. Gylfi Garðarsson Gylfi Garðarsson tónlistarmað- ur, Grenimel 22, Reykjavík, er fer- tugur í dag. Starfsferill Gylfi fæddist í Keflavík. en ólst upp í Njarðvík. Hann lauk lands- prófi í Keflavík 1972, verslunar- prófi frá VÍ 1974, stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðumesja 1980 og lokaprófi úr Tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík 1987. Gylfi hefur sinnt margbreytileg- um störfum fyrir Voga hf. og hjá Fiskverkun Garðars Magnússonar en hefur auk þess starfað hjá út- vegsbanka íslands, Keflavíkur- verktökum, Lánasjóði íslenskra námsmanna og hjá AMP í Dan- mörku. Þá starfrækti hann fyrir- tækið NÓTA í Danmörku 1988-91 og starfrækir nú Nótuútgáfuna frá 1993. Gylfi var fulltrúi Bandalags ís- lenskra sérskólanema í stjóm LÍN 1984-86. Fjölskylda Eiginkona Gylfa er Ólöf María Ingólfsdóttir, f. 12.6.1962, tón- menntakennari. Hún er dóttir Ing- ólfs Halldórssonar, kennara í Reykjanesbæ, og Önnu Dóru Ágústsdóttur, póstfulltrúa þar. Dætur Gylfa og Ólafar Maríu em Elva Ósk Gylfadóttir, f. 5.1. 1981; Ása Dóra Gylfadóttir, f. 25.8. 1991. Systkini Gylfa eru Sigurður T. Garðarsson, f. 30.6. 1950, fram- kvæmdastjóri í Reykjanesbæ; Þor- björg Garðarsdóttir, f. 8.2. 1952, kennari í Reykjanesbæ; Garðar Garðarsson, f. 11.8. 1960, sölumað- ur í Reykjavík; Ólafur Garðars- son, f. 3.9. 1962, forritari í Reykja- vík; Njörður Garðarsson, f. 30.6. 1965, d. 1970; Kolbrún Garðarsdótt- ir, f. 9.1. 1967, sölumaður í Reykja- vík. Foreldrar Gylfa eru Garðar Magnússon, f. 5.10. 1930, forstjóri í Njarðvík, og Amdís L. Tómasdótt- ir, f. 10.2.1928, húsmóðir. Ætt Garðar er sonur Magnúsar Ólafssonar, útgerðarmanns í Njarðvík, og Þórlaugar Magnús- dóttur úr Grindavík. Arndís er dóttir Tómasar, prentara og tónlistarmanns á ísa- firði og í Reykjavík, Albertssonar, Gylfi Garðarsson. skipstjóra á ísafirði, Brynjólfsson- ar, b. í Bæ í Súgandafirði, Jóns- sonar. Móðir Tómasar var Sæ- mundína Messíana Sæmundsdótt- ir, sjómanns í Æðey, Þorsteins- sonar. Móðir Arndísar var Ása Sigríð- ur Stefánsdóttir, Loömfjörð fast- eignasala Jónssonar og Ólínu Þór- eyjar Ólafsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.