Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Page 4
4
/
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Hundrað manns smitaðir af eyðni hérlendis og þar af 29 látnir:
Afanga nað með nyjjum lyfjum
sem halda veirunni í skefjum
— segir Haraldur Briem yfirlæknir
„Þetta er áfangi í langri þróun
sem hefur verið að eiga sér stað í
lyfjameðferð á HIV-smiti,“ segir
Haraldur Briem, yfirlæknir á smit-
sjúkdómadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur, um ný lyf sem vekja nú von-
ir manna um að meiri árangur sé að
nást við að halda HlV-veirunni í
skefjum.
„Rannsóknir sem fram hafa farið
í Bandaríkjunum, Evrópu, Ástralíu
og víðar hófust með tilkomu AZT-
lyfsins á markaðinn en það hafði
áhrif á vaxtarmöguleika veirunnar.
Það missti hins vegar áhrifamátt
sinn ef það var gefið í langan tlma.
Gefin voru lyf með AZT sem stopp-
uðu veiruna á leið inn í kjarna-
frumu og önnur lyf þróuð sem
stoppuðu á leið út úr kjarnafrumu.
Það hefur svo komið í ljós að ef þau
eru gefm samtímis næst meiri ár-
angur við að halda HlV-veirunni í
skefjum," segir hann.
„Þetta var fundið út með verk-
fræðilegum hætti þar sem gerðar
voru myndir af veirum og hvötum
og hægt að sjá hvaða lyfjaform
væru líkleg til að stoppa hvatana.
Rannsóknir manna hafa svo sýnt að
þetta hefur virkað vel. Þetta hefur
verið prófað í mönnum undanfarin
ár og árang-
ur af því
hefur verið
góður. Veir-
an hefur
nánast horf-
ið í um 85%
tilfella og
erfitt hefur
reynst að
finna hana
með þeirri Haraldur Briem, yfir-
tækni sem læknir á smitsjúk-
yfirleitt hef- dómadeild Sjúkra-
ur verið not- húss Reykjavíkur.
uð. DV-mynd
Haraldur segir að með þróun
nýrra lyfja sé mikilvægum áfanga
náð í þessum efnum. Ekki sé þó
hægt að tala um að lækning sé fund-
in við HlV-veirunni heldur einung-
is merkilegt skref tekið í þá átt.
„Það er ljóst að ef hægt er að
minnka magn HlV-veirunnar þá er
samtímis hægt að minnka líkurnar
á því að HlV-smitaður einstaklingur
veikist. Það er til mikils að vinna
því niðurstöður benda til að lyfin
sem virðast halda veirunni i skefj-
um koma raunverulega til með að
halda sjúkdómnum í skefjum. En
það er þó spurning hvað lyfin koma
til með að endast lengi og það þurfa
menn að rannsaka enn frekar. Sam-
sett lyfjameðferð hefur þegar verið
prófuð í 6 mánuði eða lengur og hún
hefur greinilega langtímaáhrif.
Næsta skref í rannsóknunum verð-
ur að meðhöndla frekar veirusýk-
inguna með fleiri lyfjum en einu.
En það er aldrei hægt að útiloka að
einhver vandamál komi upp,“ segir
Haraldur.
Tæplega 100 manns hér á landi
hafa smitast af HlV-veirunni, þar af
eru 29 dánir. Um 30 manns eru nú í
meðferð, sumir hverjir með lítil ein-
kenni sjúkdómsins.
David Greenall atvinnudansari:
Megum ekki gera okk-
ur of miklar vonir
- stórfrétt, segir varaformaður Samtakanna 78
„Fjölmiðlar mega ekki rjúka upp
til handa og fóta og telja fólki trú
um að nú sé búið að finna lækningu
á HlV-veirunni. Því fer fjarri. Ég
veit ekki nákvæmlega úr hverju ný
lyf eru samansett en ég held að
menn verði að gera sér grein fyrir
því að þau geta haft alvarlegar
auka- og hliðarverkanir," segir Dav-
id Greenall, dansari hjá íslenska
dansflokknum sem hefur verið HIV-
smitaður í fjögur ár. Hann hefur
ekki enn veikst, er fullfrískur og
stundar vinnu sína sem atvinnu-
dansari. Hann fer þó reglulega til
læknis til að láta fylgjast með sér.
„Ný lyf lofa sjálfsagt góðu en það
er hættulegt að segja að þau lækni
alnæmissjúkdóminn. Ég hef áhyggj-
ur af því að ef of mikið verður gert
úr þessum rannsóknum þá haldi
fólk að nú megi slaka á þar sem
lækning sé tfl staðar,“ segir hann.
„Fólk verður að halda áfram að
lifa öruggu
kynlífi því
sjúkdómur-
inn heldur
vafalaust
áfram að
drepa. Lækn-
ar eiga enn
langt í land í
þessum efn-
um og við
veröum að
bíða og sjá
hver þróunin
verður. Ég er
ekki tilbúinn
að taka inn
lyf nema vera viss um að þau leiði
ekki af sér slæmar aukaverkanir.
Alnæmi er og verður að mínu mati
alvarlegur bölvaldur og yfirvöld og
aðrir verða að tryggja að skilningur
á sjúkdómnum verði festur í sessi,“
segir David.
Gleðifréttir fyrir alla smitaða
Percy Stefánsson, varaformaður
Samtakanna 78, hefur verið smitað-
ur af HlV-veirunni í 12 ár. Hann
segir fyrstu viðbrögð sín við frétt-
um af nýjum lyfjum hafa verið gleði
og hamingju.
„Ég varð samt líka pínulítið
smeykur. Þetta er náttúrlega stór-
frétt og því verður að fara varlega í
venjast tilhugsuninni um að kannski
sé verið að finna lækningu. Ég, sem
og aðrir HlV-smitaðir, þarf að melta
þessi tíðindi því þau þýða væntan-
lega mikla breytingu fyrir mig, fjöl-
skyldu mína og vini,“ segir Percy.
„Hingað tfl hef ég leyft mér að
vona og ég trúi því varla að þetta sé
að gerast í dag. Þetta er bylting fyrir
mig því í yfir 8 ár hefur mér oft ver-
ið hugsað til þess hvað ég eigi í raun
mörg ár eftir ólifuð. Nú þarf ég hins
vegar að átta mig á þessu öllu sam-
an. Ég hef talað við vini mína, einn
David Greenall dansari
þeirra vissi varla hvernig hann átti
að bregðast við þessum fréttum. Þær
gjörbreyta öflu fyrir hann eins og
mig,“ segir hann.
„Það er okkur HlV-smituðum mik-
ilvægt að fjölmiðlar fylgist með
gangi mála og taki þátt í jákvæðri
umfjöflun þar að lútandi. Það hjálp-
ar að auka skilning manna á sjúk-
dómnum og hjálpar smituðum að
opna sig og tjá. Við þurfum á breytt-
um viðhorfum í okkar garð að halda
til að styrkja sjálfsálit okkar og and-
lega líðan," segir Percy. -brh
Dagfari
Ég er mjög reiður
Þingmenn Framsóknarflokksins
eni ævareiðir um þessar mundir.
„Ég er auðvitað mjög reiður," sagði
Hjálmar Árnason af Reykjanesi í
viðtali við DV í gær og í sama
streng tóku fleiri samflokksmenn
hans. Meira að segja Magnús Stef-
ánsson af Vesturlandi, sem hefur
keppst við að þegja þunnu hljóði á
þingi, getur ekki orða bundist og er
foxfllur. Ástæðan fyrir þessari
reiðiöldu framsóknarmanna er að
fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa leyft sér þá ósvinnu að
flytja frumvarp á Alþingi án þess
að fá leyfi til þess hjá Framsóknar-
flokknum. Fjórmenningaklíkan
flytur frumvarp um að útlendingar
megi eiga allt að 49% hlut í sjávar-
útvegsfyrirtækjum hér á landi. Og
þeir létu ekki einu sinni Finn við-
skiptaráðherra vita sem klökknaöi
af gremju er hann frétti af tOtæk-
inu. Það var ekki fyrr en Davíð var
búinn að harma að Finnur hefði
ekki verið látinn vita að ekkasog
ráðherrans þögnuöu.
Reiði framsóknarmanna er skilj-
anleg. Það var búið að samþykkja í
stjórnarflokkunum að leggja fram
stjórnarfrumvarp sem gengur í allt
aðra átt en frumvarp fjórmenning-
anna. Og þegar eitthvað hefur ver-
ið samþykkt í stjórninni eiga þing-
menn stjómarflokkanna ekki að
hafa aðrar skoðanir en ríkisstjórn-
in. Þetta ættu sjálfstæðismenn að
vita og þetta vita þeir flestir. Tveir
af fjórmenningunum eru að vísu
nýliðar á þingi, þeir Kristján Páls-
son og Pétur H. Blöndal, og þeir
hafa því kannski ekki gert sér
grein fyrir því að menn sitja ekki á
þingi tO að hafa sjálfstæðar skoð-
anir. Hinir tveir hafa hins vegar
ekkert sér til afsökunar, það er að
segja VOli verslunar og Guðjón
Guðmundsson, hulduþingmaður af
Skaganum. Þeir hafa báðir þing-
reynslu og ættu því að vita að
svona gera menn ekki. Þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa ekki leyfi
til að hafa aðrar skoðanir á málum
en þær sem Davíð og Hafldór hafa
samið um. Enn síður hafa þeir
leyfi til að leggja fram frumvörp
sem ganga í aðra átt en ríkisstjórn-
in hefur ákveðið. Þess vegna er það
óskiljanlegt að fjórmenningarnir
skuli leyfa sér þá ósvífni að troða
eigin skoðunum að þingheimi og
það í frumvarpsformi. Engum
þingmanni Framsóknarflokksins
dytti í hug að viðra aðrar skoðanir
en þær sem formenn stjórnarflokk-
anna hafa lagt blessun sina yfir.
Þess vegna er Hjálmar reiður og
Valgerður hissa og Magnús er reiö-
ur og Jón Kristjánsson segir að
þetta séu vinnubrögð sem þing-
menn eigi ekki að stunda.
Við verðum bara að vona að
þetta dragi engan dilk á eftir sér
því það er stöðugleikinn sem gOd-
ir. Stöðugleikinn hefur algjöran
forgang eins og allir vita og þess
vegna má ekki breyta einu né
neinu þar sem það getur ógnað
stöðugleikanum. Með því að hafa
allt í sama horfinu er stöðugleik-
inn tryggður og þá mega menn
ekki gleyma sér og fara að flytja
frumvörp sem geta komið róti á
þjóðina. Það sem fór með fyrri rík-
isstjórn var að kratarnir voru
alltaf með alls konar mál um land-
búnað og GATT og veiðigjald og
Guð veit hvað sem gerði það að
verkum að stöðugleiki ríkisstjórn-
arinnar var ekki nægur. Með
komu Halldórs Ásgrímssonar og
hans manna í stjórnina er allur
annar og betri bragur á landsmál-
um. Það gerist ekki neitt og þjóðin
er fegin því að fá loks frið fyrir
stjórnmálamönnum eftir að hafa
sent kratana í skammarkrókinn.
Því verður að taka hart á óstöðug-
leika fjórmenningaklíkunnar úr
Sjálfstæðisflokknum og sjá tO þess
að þeir komist ekki upp með neinn
stráksskap. Ef menn halda að þeir
geti flutt frumvarp að eigin geð-
þótta á þingi er kominn tími tO að
kenna þessum drengjum
mannasiði, öðrum tO viðvörunar.
Það má leyfa Villa að hamra á
þessari tillögu sinni um að hringla
með klukkuna því það er mál sem
foringjarnir hafa engan áhuga á.
En vei þeim sem flytja eigin frum-
vörp um eitthvað sem skiptir máli.
Dagfari