Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Page 11
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
11
DV
Menningarverðlaun DV 1996:
Menning
Fimm tilnefningar
í kvikmyndum
Dómnefnd um kvikmyndir hefur
skOaö firnrn tilnefningum til Menn-
ingarverðlauna DV sem afhent
verða í Þingholti, Hótel Holti,
fimmtudaginn 22. febrúar nk.
Nefndin hefur tilnefnt kvikmyndina
Á köldum klaka, Hilmar Oddsson,
stuttmyndina I draumi sérhvers
manns, Kjartan Kjartansson og Sig-
urð Sverri Pálsson.
Menningarverðlaun DV eru veitt
fyrir markverða atburði og sérstakt
framtak í sjö listgreinum á árinu
1995: myndlist, bókmenntum, list-
hönnun, kvikmyndum, byggingar-
list, tónlist og leiklist. Þegar hefur
verið gerð grein fyrir tilnefningum í
myndlist, bókmenntum og listhönn-
un. Næstu daga verður greint frá
tilnefningum í tónlist, byggingarlist
og leiklist.
í dómnefnd um kvikmyndir eiga
sæti Hilmar Karlsson, blaðamaður
og kvikmyndagagnrýnandi DV,
Baldur Hjaltason, forstjóri og kvik-
mýndasafnari, og Valdimar Leifs-
son kvikmyndagerðarmaður.
Hér á eftir gerir nefndin grein
fyrir tilnefningum sínum:
Kvikmyndin Á köldum klaka
eftir Friðrik Þór Friðriksson er til-
nefnd til verðlauna. Myndin lýsir
hvernig ungur, japanskur maður
upplifir ísland - land og menningu,
sem eru gjörólík því sem hann á að
venjast. Hér takast á hinn stóri
heimur, þar sem maðurinn á sínar
rætur, og undarlegur kaldur heim-
ur íslands. Lögð er áhersla á mis-
mun þessara heima með sjálfu
myndforminu. Sagan hefst í Japan
og þá sjáum við myndina í þröngu
„kassaformati" og má hugsa sér að
þarna sé endurspeglun á fólks-
mergðinni og þrengslunum í borg-
um Japans. Þegar til íslands er
komið er myndin aftur á móti í
breiðtjaldsformati og köld, grá og
mannlaus víðáttan blasir við unga
manninum.
Hilmar Oddsson er tilnefndur
fyrir leikstjórn og gerð kvikmyndar-
innar Tár úr steini. Myndin er stór-
virki í íslenskri kvikmyndagerð og
er í heild eins vel heppnuð og á
verður kosið. Tár úr steini er fyrst
og fremst verk Hilmars Oddsonar,
sem lengi er búinn að vera með
myndina í vinnslu og þróa hana stig
af stigi af mikilli þolinmæði og hug-
rekki. Leikstjórn hans er markviss
og styrk og dramatísk ævi Jóns
Leifs verður að óvenju lifandi frá-
sögn í kvikmynd Hilmars.
í draumi Sérhvers manns. í
draumi sérhvers manns er fimmtán
mínútna stuttmynd eftir Ingu Lísu
Middleton. Hún er byggð á sam-
nefndri smásögu eftir Þórarinn Eld-
járn. Þetta er hnitmiðuð mynd í
myndrænum ramma sem dregur vel
Kjartan Kjartansson, hljóðmaður í
myndunum Á köldum klaka, Benj-
amín dúfu og Tár úr steini.
fram í gamansömum tón drauma og
martraðir starfsfólks Gildismats
ríkisins. Leikstjórinn notar á
skemmtilegan máta liti til að undir-
strika andstæðurnar í myndinni,
það er gráan hversdagsleikann og
svo heim draumanna. Myndin er
vel gerð og heldur áhorfandanum
vel við efnið.
Kjartan Kjartansson er tilnefnd-
ur fyrir hljóðvinnslu í myndunum
Á köldum klaka, Benjamín dúfu og
Tár úr steini. Kjartan hefur á und-
anfornum árum sannað sig sem
hljóðmaður á heimsmælikvarða.
Tilkoma hans inn í íslenska kvik-
myndagerð hafði mikið að segja
með það að hljóð í íslenskum kvik-
myndum batnaði til muna. Með
mikilli þrautseigju og nákvæmni
hefur hann náð að fullkomna tækni
sína, sem rís hátt í þeim þremur
kvikmyndum sem hann vann við á
síðasta ári. I hverri þeirra fyrir sig
Stuttmyndin I draumi sérhvers manns eftir Ingu Lísu Middleton.
Hilmar Oddsson fyrir kvikmyndina Tár úr steini.
Sigurður Sverrir Pálsson, kvik-
myndatökumaður í myndunum
Benjamín dúfu og Tár úr steini.
Kvikmyndin Á köldum klaka (Cold
Fever) eftir Friðrik Þór Friðriksson.
er að finna hljóðsetningu sem að-
eins er á færi fremstu listamanna í
þessari grein að skapa.
Sigurður Sverrir Pálsson er til-
nefndur fyrir kvikmyndatöku á
Benjamín dúfu og Tár úr steini. Sig-
urður er einn reyndasti kvikmynda-
tökumaöur okkar og á að baki
glæsilegan feril í íslenskri kvik-
myndagerð. Hann sýndi á síðasta
ári hversu megnugur hann er í
tveimur aðskildum verkefnum, Tár
úr steini og Benjamín dúfu. Þótt
áferð þeirra sé ekki lík þá leynir
það sér ekki að mikill. kunnáttu-
maður er að baki kvikmyndavélar-
innar. Sigurður Sverrir er dæmi um
listamann sem löngu er búinn að
sanna sig en er ennþá að læra og
þróa sína list.
-bjb
Umbodsmenn um allt land
Reykjavík: Byggt og Búiö Kringlunni. Vesíurland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni E.Hallgrímsson, Grundarfirði.
Vestfirölr:.Rafverk,Bolungarvík.Straumur,ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík.
Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauðárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka,
Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn
Guömundsson, Egilsstööum. Stál, Seyöisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstaö.
IKf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfiröi.KASK, Höfn Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes.Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
6.95
Öko Vampyr 8251
• Sexföld rykslun* Stillanlegur sogkraftur
• Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla
• þrír auka sogstútar • Inndraganleg snúra
• Rykpoki 5,5 lítrar • 900vött ( Nýr Oko-mótór
skilar sama sogkrafti og 1500 vatta mótor)
Vampyr 6400
Sexföld ryksíun*
Ultra- filter (Skilar útblósturs- •
lofti 99,97% hreinu) Stillanlegur sogkraftur •
Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla •
Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra •
Rykpoki 4 lítrar • 1400 vött • Þyngd 7 kg •
Vampyr 6100
• Fjórföld ryksíun
• Stillanlegur sogkraftur
• Fylgihlutageymsla
• Tveir auka
sogstútar
• Inndraganleg
snúra
Rykpoki 4 lítrar
1300 vött
Þyngd 7 kg
Vampyr 5010
Fjórföld ryksíun •
Stillanlegur sógkraftur •
Tveir auka sogstútar •
Inndraganleg snúra
• Rykpoki 4 lítrar
• 1300 vött • Þyngd 6 kg •