Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1996, Side 14
14
27
FIMMTUDAGUR 15. FEBRUAR 1996
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
Iþróttir
Kemst sá fertugi á ólympíuleikana og skilur „strákinn“ eftir heima?
Er í þessu af fullri alvöru
- segir Bjarni sem er kominn framúr Vernharð Þorleifssyni og stefnir ótrauður á Atlanta
Bjarni Friðriksson, til hægri, ásamt Michal Vachun, landsiiðsþjálfara í júdó.
Bjarni hefur þegar tekið þátt í fernum ólympíuleikum og gæti komist á þá
fimmtu í sumar.
Eftir alþjóðlega júdómótið í París um síðustu
helgi þar sem Bjarni Friðriksson hafnaði í 7.
sæti er hann í 7.-8. sæti á Evrópulistanum í -95
kg flokki. Níu efstu á þeim lista öðlast keppn-
isrétt á ólympíuleikunum í Atlanta í sumar.
Bjarni er með 50 punkta en skammt á eftir er
Akureyringurinn Vernharð Þorleifsson meö
45 punkta. Þeir keppa í sama flokki en aðeins
má einn keppandi frá hverri þjóð keppa í
hveijum þyngdarflokki á ÓL.
Þremur af tíu A-mótum er lokið svo staðan
getur breyst hvaö þá Bjarna og Vernharð
varðar. Um helgina taka þeir þátt í móti í
Austurríki og á næstu vikum taka þeir þátt í
fleiri mótum.
Bjarni verður 40 ára gamall á þessu ári en 12
ár eru síðan hann stóð á hátindi ferils síns
þegar hann vann til bronsverðlauna á ólymp-
íuleikunum í Los Angeles og síðan þá hefur
hann unnið margra glæsta sigra, bæði hér
heima og erlendis. Hin síðari ár hefur Bjami
hægt á ferðinni og hefur nokkrum sinnum gefið
það út að hann væri hættur en honum hefur
reynst það þrautin þyngri og í dag hefur hann
tekið stefnuna á Atlanta eða er ekki svo?
Lítur vel út í dag
„Það er orðið endanlega ákveðið að ég hef tek-
ið stefnuna á Atlanta og er í þessu af fullri al-
vöru. í dag er ég „inni“ en það segir ekki alla
söguna. Það em sjö mót eftir og staðan getur
breyst eftir hvert mót. En í dag lítur þetta vel
út hvað mig varðar," sagði Bjarni við DV í gær.
„Mótið gekk mjög vel úti í París. Það var
geysisterkt enda öll A-mótin sterkari en Evrópu-
mótið og á þessi mót mæta allar Asíuþjóðirnar,
Ameríkuþjóðirnar og svo Evrópuþjóðimar. Þetta
er fyrsta A-mótið sem ég tek þátt í í mínum
þyngdarflokki í tvö ár en ég reyndi
aðeins fyrir mér í þungavigt-
arflokknum á móti í Sviss í desember. Þar sá ég
að ég er alltof léttur fyrir þann flokk og þetta er
allt öðruvísi júdó sem tekur mann mörg ár að
komast inn í.“
- Fari svo að þú tryggir þér keppnisrétt á
ólympíuleikunum hvaða möguleika átt þú þar?
„Ég ætla ekki að vera allt of bjartsýnn en mót-
ið í París var kannski vísbending. Þar kepptu 36
keppendur og það má segja að þetta hafi verið
svona „mini“ ólympíuleikar. Hefði ég unnið síð-
ustu glímuna hefði ég keppt um bronsið á mót-
inu.“
Ég er í mjög góðu formi
- Hvernig er formið í dag miðað við það
þegar þú varst á toppnum?
„Það er erfitt að bera það saman en í dag er ég
í mjög góðu formi. Ég er búinn að vera í góðu
prógrammi frá því í
haust og æft
geysilega vel. Þetta er allt að skila sér núna. Út-
haldið er að verða gott en það var ekkert þegar
ég byrjaði aftur. Þetta verður strembið þar sem
ég er orðinn dálítið gamall. Maður þarf að leggja
meira á sig en mér þykir engin ástæða til að
segja bara gamall og hætta þessu."
- Nú er komin mikil keppni milli þín og
Vernharðs. Er það ekki erfitt?
„Það er bara betra. Hann peppast upp við þetta
og verður að standa sig og ég verð að standa mig
líka og það ætti bara að koma betri árangur út
úr því hjá okkur báðum. Sá okkar sem fer á
ólympíuleikana ætti að vera í betra ásigkomu-
lagi þegar þar að kemur. Þetta er bara sam-
keppni eins og í viðskiptunum. Vernharð er ekki
inni núna en hann var inni síðast og það eru
ekki nema 5 punktar á milli okkar. Við þurfum
að halda okkur á þessum slóðum, annar hvor
okkar, ef við náum því ekki fórum við ekki á
leikana,“ sagði Bjarni að lokum. -GH
Lenear Burns leikur
meira með Keflavík.
ekki
Burns rekinn
Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Lenear Burns var í gærkvöldi rekinn frá
úrvalsdeildarliði Keflavíkur og var ákvörðunin tekin sameiginlega af stjórn
deildarinnar og þjálfara liðsins. Bums, sem var valinn besti erlendi leikmaður
deildarinar í fyrra, hefur ekki náð sér á strik í vetur og er sagður hafa sýnt af sér
áhuga- og metnaðarleysi í leikjum liðsins.
„Við erum byrjaðir að leita að nýjum Kana og verðum komnir með hann
fljótlega, um eða eftir helgi. Liðið hefur ekki staðið undir væntingum í vetur og
fyrsta skrefið var að láta Burns fara. Hjá okkur er allur vilji til að vinna
íslandsmeistaratitililinn, en það dugir ekki eitt og sér að skipta um útlending. Við
þurfum að ná meiri aga í sóknarleikinn hjá okkur,“ sagði Jón Kr. Gislason,
þjálfari Keflavíkur, við DV í gærkvöldi.
-ÆMK
NBA-deildin í körfuknattleik í nótt:
Magic styrkir Lakers
Skíði:
Góður árangur hjá
Hauki og Arnóri
Haukur Arnórsson og Arnór
Gunnarsson náðu góðum ár-
angri á stórsvigsmótum í Aust-
urríki í vikunni. Á fyrra mótinu
gerði Haukur 34 FlS-punkta en
Arnór keyrði út úr brautinni.
Seinni daginn varð Haukur í 8.
sæti og gerði 31 FlS-punkt og
Arnór varð í 13. sæti og gerði 36
FlS-punkta.
Með þessu er punktastaða
Hauks orðin 33 FlS-punktar en á
gildandi heimslista er hann með
46,28 FlS-punkta og hefur bætt
sig um 28,7%. Arnór er með 46,30
FlS-punkta á gildandi heimslista
og hefur bætt sig um 22,0%.
-GH
Stórslys í
Sierra Nevada
Rússneska brunkonan Tatiana
Lebedeva og starfsmaður Al-
þjóða skíðasambandsins, Harald
Schönhaar, fótbrotnuðu bæði í
hörðum árekstri í HM-brautinni
í Sierra Nevada á Spáni í gær.
Schönhaar gekk óvænt yfir braut-
ina þegar Lebedeva kom niður á
fleygiferð en snarræði hennar
forðaði því að enn verr færi.
Knattspyrna:
Bob Paisley
lést í gær
Bob Paisley, fyrrum fram-
kvæmdastjóri og leikmaður Liv-
erpool, lést á sjúkrahúsi í Liver-
pool í gær. Paisley var 77 ára
gamall og hafði átt við langvar-
andi veikindi að stríða. Hann
var einn sigursælasti þjálfarinn
í ensku knattspyrnunni fyrr og
síðar.
Aston Villa náöi
góöu jafntefli
Arsenal og Aston Villa skildu
jöfn, 2-2, í fyrri leik liðanna f
undanúrslitum enska deildabik-
arsins í gærkvöldi. Dennis Berg-
kamp kom Arsenal í 2-0 en
Dwight Yorke svaraði tvívegis
fyrir Villa.
Bikarmeistarar Everton voru
óvænt slegnir út í 4. umferð
bikarkeppninnar í gærkvöldi af
1. deildar-liði Port Vale og-West
Ham fékk skell gegn Grimsby.
Úrslit urðu þessi:
Bolton-Leeds ..........0-1
Port Vale-Everton......2-1
Manch.City-Coventry ...2-1
Grimsby-West Ham.......3-0
Héðinn Gilsson eftir ótrúlegt hrun FH í seinni hálfleik:
Okkur til skammar
- Valur vann seinni hálfleikinn gegn FH, 20-5
IS og Þróttur í
úrslitaleiki
ÍS sigraði HK, 3-1, í undanúrslitum
bikarkeppni kvenna i blaki i gær-
kvöldi. Þróttur R. vann Stjömuna,
„í fljótu bragði man ég ekki eftir
svona sveiflukenndum leik. Við tókum
okkur í gegn í hálfleiknum og vorum
alls ekki búnir að gefast upp þegar síð-
ari hálfleikur hófst," sagði Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður Vals, eftir
ótrúlegan sigur Vals gegn FH að Hlíðar-
enda í gærkvöldi, 25-17.
FH-ingar skoruðu átta fyrstu mörkin
og Valsmenn vissu ekki hvað þeir hétu.
Valur skoraði ekki mark fyrstu 20 mín-
úturnar. Staðan í leikhléi var 12-5.
Flestir, nema leikmenn Vals, höfðu gef-
ið þennan leik frá sér og bókað öruggan
FH-sigur.
Fljótlega í byrjun síðari hálfleiks kom
í ljós að FH-ingar hefðu ekki styrk til að
fylgja góðri stöðu eftir. Þeir fóru í far
Valsmanna frá fyrri hálfleiknum og gott
betur. Fyrstu 20 mínútur hálfleiksins
skoruðu Valsmenn 14 mörk gegn 3 og
voru með unninn leik í höndunum.
Héldum greinilega að þetta væri
búið í hálfleik
„Við héldum greinilega að þetta væri
búið í hálfleik. Við gáfumst svo fljótlega
upp í síðari hálfleik og það gekk ekkert
upp. Við urðum okkur hreinlega til
skammar," sagði Héðinn Gilsson, FH-
ingur eftir leikinn.
Hafi FH-ingar orðið sér til skammar í
síðari hálfleik þá máttu Valsmenn
skammast sín fyrir fyrri hálfleikinn.
„Við höfum oft byrjað illa eftir hlé og
þessi leikur var engin undantekning þar
á,“ sagði Guðmundur
Hrafnkelsson enn fremur.
„Það er rétt að við eig
um að geta leikið mun
betur en þetta miðað
við þann mannskap
sem við erum með.
Orsökin liggur ein-
göngu hjá okkur
leikmönnunum. Við
gerum ekki það sem
okkur er sagt að
gera,“ sagði Héð-
inn Gilsson.
SK
„Við berjumst til
síðasta blóðdropa"
DV, Selfossi:
„Svona eiga handbolta-
leikir að vera, þetta var
mjög spennandi og það var
kominn tími til að við
kláruðum svona „sálfræði-
leik. Við ætlum að ná ár-
angri og berjast til síðasta
blóðdropa í baráttunni sem
eftir er,“ sagði Valdimar
Grímsson þjálfari eftir mik-
ilvægan sigur Selfyssinga á
ÍR, 26-25.
Leikurinn var spennandi
og skemmtilegur en Selfyss-
ingum tókst að komast yfir
þegar 24 sekúndur voru eft-
ir og náðu að loka á ÍR-inga
það sem eftir var. Hallgrím-
ur Jónasson varði aukakast
í lokin og var mjög góður í
leiknum en að öðrum ólöst-
uðum var Hjörtur Leví Pét-
ursson. bestur Selfyssinga.
Daði Hafþórsson var bestur
í jöfnu liði ÍR.
-GHS
Grótta á flugi
„Við vorum vel undirbúnir fyrir þennan
leik. Varnarleikurinn var góður og hraðaupp-
hlaupin sömuleiðis og þetta tvennt var lykillinn
að sigrinum," sagði Gauti Grétarsson, þjálfari
Gróttu, eftir óvæntan stórsigur á Haukum í
Strandgötu, 25-32.
Seltirningar komu Haukunum í opna skjöldu
með mjög öflugum varnarleik og þau voru ófá
hraðaupphlaupin sem góð vörn skapaði þeim.
Grótta hefur komið mjög á óvart i vetur og
Gauti er greinilega að búa til skemmtilegt lið á
Nesinu. í jafnri liðsheild voru Juri Sadovski og
Sigtryggur Albertsson markvörður bestir en í
stemningslausu og slöppu Haukaliði var Halldór
Ingólfsson einna skástur.
-GH
Stjarnan-KA
(15-9) 26-27
2-1,5-2,9-3,12-5,14-7 (15-9,16-12,18-14,
18-18, 21-19, 22-23, 24-23, 24-25, 26-26, 26-27.
Mörk Stjömunnar: Konráð Olavs-
son 8, Jón Þórðarson 4, Magnús Sigurðs-
son 4, Sigurður Bjamason 4, Dmitri Fil-
ippov 4/3, Hafsteinn Hafsteinsson 1,
Magnús A. Magnússon 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 12,
Axel Stefánsson 2.
Mörk KA: Julian Duranona 15/8, Pat-
rekur Jóhannesson 6, Björgvin Björg-
vinsson 2, Leó Öm Þorleifsson 1, Erling-
ur Kristjánsson 1, Jóhann G. Jóhanns-
son 1, Guðmundur Amar Jónsson 1.
Varin skot: Guðmundur Amar 21/1.
Brottvísanir: Stjaman 4 mín.
Dómarar: Egill Már og Öm Markús-
synir, áttu erfitt uppdráttar.
Áhorfendur: Um 500.
Maöur leiksins: Guðmundur Amar
Jónsson, KA.
0-2, 3-2, 3-5, 8-6, 8-8 (12-10), 12-12
15-15, 18-18, 21-21, 23-23, 25-25, 26-25.
Mörk Selfoss: Hjörtur Leví Péturs-
son 8, Valdimar Grímsson 6/2, Einar
Gunnar Sigurðsson 5, Björgvin Rún
arsson 3, Sigurjón Bjamason 2, Erling
ur Richardsson 1, Finnur Jóhannsson 1
Varin skot Haligrimur Jónasson 11/1
Mörk ÍR: Frosti Guðlaugsson 4
Daöi Hafþórsson 4, Njörður Ámason 4,
Einar Einarsson 3, Jóhann Ásgeirsson
3, Magnús Þórðarson 3, Ragnar Óskars
son 2, Guðfmnur Kristmannsson 1
Ólafur Gylfason 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 7
Brottvlsanir Selfoss 6 mín., ÍR 6 mín.
Dómarar: Einar Sveinsson og Ólaf-
ur Haraldsson, afburða dómgæsla.
Áhorfendur: Um 270.
Maður leiksins: Hjörtur Levi Pét-
ursson, Selfossi.
Með Magic Johnson í broddi fylk-
ingar vann LA Lakers góðan sigur á
Atlanta í NBA i nótt. Johnson styrk-
ist og eflist með hverjum leik og í
nótt skoraði hann 15 stig, 13
stoðsendingar og 10 fráköst.
Síðan að Johnson fór að leika
með liðinu á ný hafa unnist fimm
leikir af sex. Steve Smith gerði 20
stig fyrir Atlanta.
New Jersey vann Indiana örðu
sinni á tveimur dögum. P.J. Brown
skoraði sigurkörfu New Jersey.
Reggie Miller skoraði 34 stig fyrir
New Jersey.
Philadelphia fékk skell gegn
Detroit. Grant Hill skoraði 24 stig
fyrir Detroit en Jerry Stackhouse
25 stig fyrir 76’ers.
Charlotte burstaði New York og
bar var Glen Rice í stuði með sin 29
Efstu liöin sigruöu bæöi
Efstu liðin í 2. deild karla í handbolta unnu
leiki sína í gærkvöldi. HK vann ÍH, 24-19, í
Digranesi. Óskar Elvar Óskarsson skoraði 8
mörk fyrir HK og Gunnleifur Gunnleifsson 4.
Fram vann Fjölni, 20-35, í Grafarvogi.
stig og 10 fráköst. Patrick Ewing
skoraði 26 stig fyrir New York.
.Úrslit leikja í nótt:
New Jersey-Indiana ..........88-87
Philadelphia-Detroit........83-102
Charlotte-New York ........120-100
Seattle-Minnesota...........130-93
Vancouver-Sacrameno .........93-86
Golden State-Boston .......106-103
LA Lakers-Atlanta ...........87-86
_____________________________-JKS
Fimmtánda markið
tryggði KA sigur
- Duranona skoraöi
,,Það er gífurlega sterkt að ná
að vinna Stjörnuna á útivelli
og á þennan hátt. Okkur gekk
afleitlega í fyrri háflleik en
sjálfstraustið fór í gang í
seinni hálfleik og við sýnd-
um hvað við getum," sagði
Patrekur Jóhannesson, leik-
maður KA, eftir að nýkrýndir
bikarmeistarnir höfðu sigrað
Stjörnuna, 26-27, í ótrúlegum
leik í Garþabæ í gærkvöldi.
Stjörnumenn léku frábæran
handbolta í fyrri hálfleik og
hreinlega keyrðu yfir norðan-
menn sem virtust ekki vera komn-
í lokin gegn Stjörnunni
ir niður á jörðina eftir bikarsigurinn
um síðustu helgi. En hið geysisterka
lið KA fór heldur betur í gang í síðari
hálfleik og náði að sigra á glæsilegan
hátt þegar Julian Duranona skoraði
með einum af sínum frægu þrumufleyg-
um þremur sekúndum fyrir leikslok.
Duranona skoraði 15 mörk í leiknum og
var bestur í liði KA ásamt Guðmundi A.
Jónssjmi markverði.
Konráð Olavsson var bestur í jöfnu
liði Stjörnunnar. „Andleysið var al-
gert í síðari hálfleik og við töpuðum
leiknum á því og óskiljanlegri dóm-
gæslu," sagði Viggó Sigurðsson, þjálf-
ari Stjörnunnar, eftir leikinn. -RR
Kvennahandbolti:
Stjarnan enn
á sigurbraut
Stjarnan hélt áfram sigur-
göngu sinni í 1. deild kvenna i
handbolta í gærkvöldi og lagði
KR að velli i Laugardalshöllinni,
12-19. í hálfleik stóð -6-9 fyrir
Stjörnuna, KR minnkaði mun-
inn í 11-12, en þá stakk Stjarnan
af.
Ragnheiður Stephensen skor-
aði 5 mörk fyrir Stjörnuna og
Herdís Sigurbergsdóttir 4. Helga
Ormsdóttir og Brynja Steinsen
skoruðu 4 mörk hvor fyrir KR.
Haukar unnu Fylki í Hafnar-
firði, 28-19, og iBV sigraði FH í
Eyjum, 29-25.
-VS
Eyjamenn í fallsætið
- eftir tap gegn Aftureldingu, 26-22
Haukar-Grótta
(12-17) 25-32
1-0, 3-3, 5-5, 5-8, 8-11, 12-13 (12-17),
12-18,17-21,19-26, 22-30, 25-32.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 9/4,
Aron Kristjánsson 4, Sveinberg Gislason
4, Gústaf Bjamason 4, Þorkell Magnússon
2, Gunnar Gunnarsson 1, Petr Baumruk 1.
Varin skot: Bjarni Frostason 10, Bald-
ur Guðmundsson 4.
Mörk Gróttu: Juri Sadovski 10/4, Ró-
bert Rafnsson 5, Jens Gunnarsson 5, Jón
Þórðarson 4, Jón Örvar Kristinsson 3,
Þórður Ágústsson 2, Davíð Gíslason 2,
Einar Jónsson 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson 16/1.
Brottvísanir: Haukar 6 min., Grótta
12 min.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og
Gísli Jóhannsson, frekar slappir.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Juri Sadovski,
Gróttu.
Héðinn
Gilsson er
stöðvaður á '
flugi af vörn Vals.
DV-mynd BG
Valur-FH
(5-12) 25-17
0-8, 3-9 (5-12), 12-12, 12-13, 14-14,
18-14, 21-15, 25-17.
Mörk Vals: Valgarð Thoroddsen 7,
Sigfus Sigurösson 6, Dagur Sigurðsson
6/2, Ólafur Stefánsson 4, Davíð Ólafs-
son 1, Ari Allansson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafit-
kelsson 13/1.
Mörk FH: Héðinn Gilsson 5, Hans
Guðmundsson 4/2, Hálfdán Þórðarson
3, Guðjón Ámason 1, Gunnar Bein-
teinsson 1, Sigurður Sveinsson 1, Guð-
mundur Pedersen 1, Stefán Guðmunds-
son 1.
Varin skot: Magnús Ámason 12.
Brottvísanir: Valur 4 mín., FH 6 min.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og
Guðjón L. Sigurðsson, slakir.
Áhorfendur: Um 250.
Maður leiksins: Valgarð Thordd-
sen, Val.
* Mosfellingar unnu góðan sigur
þegar þeir fengu Eyjamenn í heim-
sókn í gærkvöldi, 26-22. í fyrri hálfleik
var jafnræði með liðunum, Eyjamenn
börðust vel og voru að spila ágætlega og
höfðu góðar gætur á Róbert á línunni. Þeir Páll
Þórólfsson og Jóhann Samúelsson voru mjög ógn-
andi í sóknarleik Mosfellinga og skoruðu mörg fal-
leg mörk. í seinni hálfleik byrjuðu Eyjamenn vel
en um hann miðjan datt botninn úr leik þeirra og
Afturelding náði góðri forystu.
Eyjamenn fóru i fallsæti eftir leiki gærkvöldsins
en bestir þeirra voru Arnar Pétursson og Gunnar
Berg Viktorsson sem spilaði vel í seinni hálfleik.
Hjá Aftureldingu léku Páll og Jóhann vel og Bjarki
og Róbert voru góðir í seinni hálfleik. -SS
Staðan
Staðan í Nissandeildinni í hand-
knattleik eftir leikina í gærkvöldi:
Valur
KA
Haukar
Stjarnan
FH
17 14
16 15
17 9
17 9
17 7
Afturelding 16 8
Grótta
Selfoss
16 7
17 8
462-376 30
458-403 30
441-417 21
443-418 20
447-425 17
389-379 17
384-385 16
406450 16
ÍR 17
Víkingur 17
1 10 376404 13
0 12 378-403 10
ÍBV
KR
16
17
4 1 11 370-407 9
0 1 16 405-514 1
Afturelding-IBV
(14-12) 26-22
2-3, 4-5, 7-7, 10-8, 12-10 (14-12),
14-14, 18-15, 26-16, 21-19, 24-22, 26-22.
Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfs-
son 6, Jóhann Samúelsson 5, Róbert
Sighvatsson 5, Ingimundur Helgason
5/3, Bjarki Sigurðsson 4, Bergsveinn
Bergsveinsson 1.
Varin skot: Bergsveinn 15.
Mörk ÍBV: Gunnar Berg Viktors-
son 8/4, Amar Pétursson 5, Svavar
Vignisson 3, Ingólfur Jóhannesson 3,
Haraldur Hannesson 2, Davíð Þór HaU-
grimsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur 12.
Brottvisanir: Afturelding 6 min.,
ÍBV 2 min.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmars-
son og Vigfús Þorsteinsson.
Áhorfendur: 200,
Maður leiksins: Páll Þórólfsson,
Aftureldingu.
Víkingur-KR
(15-11) 27-26
1-0, 3-3, 7-4, 11-5, 13-8 (15-11), 16-11,
16-16, 19-19, 20-22, 23-22, 26-26, 27-26.
Mörk Víkings: Ámi Friðleifsson 9,
Birgir Sigurðsson 7, Guðmundur Páls-
son 5, Knútur Sigurðsson 4/1, Rúnar Sig-
tryggsson 2.
Varin skot: Reynir Reynisson 8/1,
Hlynur Morthens 1.
Mörk KR: Sigurpáll Aðalsteinsson
13/4, Eirikur Þorláksson 4, .Björgvin
Barðdal 3, Gylfi Gylfason 2, Hilmar Þór-
lindsson 2, Einar B. Ámason 1, Ágúst
Jóhannsson 1.
Varin skot Hrafh Margeirsson 8/3,
Siguijón Þráinsson 1.
Brottvísanir: Vikingur 2 min., KR10.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sig-
urgeir Sveinsson, sæmilegir.
Áhorfendur: Um 100.
Maður leiksins: Ámi Friðleifsson,
Víkingi.
Naumur sigur
hjá Víkingum
„Þetta var lélegur seinni hálfleikur og
í heildina ekki rismikill handbolti, eins
og staða liðannna í deildinni gefur til
kynna. Við náðum ekki að fylgja eftir
stemningunni frá bikarleiknum og það
er lélegt aö geta ekki spilað á fullu gegn
KR úr því við gátum það gegn KA. En
stigin eru góð engu að síður,“ sagði Árni
Friðleifsson, skytta Víkinga, eftir naum-
an sigur á botnliði KR, 27-26, í Víkinni í
gærkvöldi.
Víkingar náðu góðu forskoti í fyrri
hálfleik en í upphafi þess síðari hrundi
leikur liðsins og KR-ingar gengu á lagið
og komust yfir um miðjan hálfleikinn.
Víkingar komust aftur inn í leikinn og
náðu að merja sigur á síðustu sekúndun-
um.
Árni var bestur í liði Víkings en Sig-
urpáll Aðalsteinsson hjá KR. -ÞG
IÞROTTAsfMf
Verð aðeins
904*5000 39,90 mín.
*-
Þú þarft aðeins eitt símtal í Íþróttasíma
DV til að heyra nýjustu úrslitin í fótbolta,
handbolta og körfubolta. þar er einnig
að finna úrslit í NBA deildinni og í enska,
ítalska og þýska boltanum.
IÞROTTAsmw
9 0 4-5 0 0 0
+